Tíminn - 18.02.1986, Page 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 18. febrúar 1986
Gífurleg hækkun
á kaffi og kjöti
Rúmlega 15% verðhækkun kom
fram á liðnum: Kaffi, te og kakó
við útreikning framfærsluvísitöl-
unnar í byrjun febrúar. Af öðruni
matvörum varð lang mest hækkun á
kjöti og kjötvörum eða 9,24% og
átti sú hækkun ein um fimmtunginn
af heildarhækkun framfærsluvísi-
tölunnar milli janúar og febrúar. Þá
má nefna rúmlega 4% verðhækkun
á fiski, en sem kunnugt er, er enn
ekki búið að semja um fiskverðs-
hækkun til útgerðar eða sjómanna á
þessu ári.
Hækkun framfærsluvísitölunnar
milli mánaða varð nú 2,28%, sem
svarar til um 31% árshækkunar.
Framfærsluvísitalan reyndist
167,76 stig í febrúarbyrjun, miðað
við 100 í febrúar 1984, þannig að
verðlag hefur að meðaltali hækkað
um 67,76% á þessum tveim árum.
Af þessari 2,28% hækkun nú
stafa 0,9% af verðhækkun matvöru
(þar af um helmingur vegna kjöts-
ins sem fyrr greinir). Tæp 0,4% af
hækkuninni voru vegna nær 5%
verðhækkunar á fötum og skóm.
Sömuleiðis varð tæplega 4% hækk-
un á húsgögnum og gólfteppum á
þessum eina mánuði, rúmlega 4%
hækkun á því sem tilheyrir skóla-
göngu, tæplega 5% á snyrtingu og
snyrtivörum og nærri 42% hækkun
á liðnum tryggingar.
-HEI
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS
RANNSÓKNASTOFNUN
BYGGINGARIÐN AÐ ARINS
Fræðslumiðstöð iðnaðarins vekur athygli á eftir-
töldum námskeiöum á næstunni sem ætluö eru
byggingamönnum:
Námskeið um glugga og glerjun, frágang og
endurnýjun, verður endurtekið dagana 3.-5. mars,
n.k„ kl. 16.00 til 20.15.
Verð kr. 4000,-
Námskeið í steyputækni, um hönnun og gerð
steinsteypu og nýjungar í steypugerð, ferfram 10.
og 11. mars, n.k. kl. 09 til 16.00.
Verð kr. 2.500,-
Námskeið um útveggjaklæðningar, um frágang
og festingar, efni á markaðnum og kostnað, verður
haldið 17.-19. mars, n.k. kl. 09 til 16.00.
Verð kr. 6.500,-
Öll námskeiðin fara fram á Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins, Keldnaholti, 112 Reykjavík.
Innritun og upplýsingar hjá Fræðslumiðstöð
iðnaðarins í símum 687440 og 687000.
Norrænir starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar
veita á námsárinu 1986-87 nokkra styrki handa íslendingum til náms
við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til
framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undir-
búnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsskólum iðnskólakennara,
svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Islandi.
Fjárhæð styrks í Danmörku er 15.000 d.kr., í Finnlandi 13.600 mörk, í
Noregi 16.800 n.kr. í Svíþjóð 9.800 s.kr. miðað við styrk til heils skó-
laárs.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 1. apríl nk. Nánari upplýsingar og umsóknareyðu-
blöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
14. febrúar 1986.
HÚSAÞJÓNUSTAN SF.
Tökum að okkur alla málningarvinnu, utan-
sem innanhúss, hvar á landi sem er.
Einnig: Sprunguviögerðir og þéttingar- Háþrýsti-
þvott Sílanúðun - Alhliða viðhald fasteigna.
Tilboð - Mæling - Tímavinna.
Skiptið við ábyrga fagmenn, með áratuga reynslu.
Upplýsingar í síma 91-61-13-44
VÉLSLEDAÞJÓNUSTAN
Viðgerðaþjónusta fyrir vélsleða og minni háttar snjóruðningstæki
FRAMTÆKNI s/f
Skemmuvetj 34 N - 200 Kópavogur
Sími 64 10 55
^__S
Slysatíöni í byggingarvinnu meö mesta móti:
Um 18 af hverjum
100 slasast árlega
Ný úttekt á vinnuslysum sem
koma til meðferðar á slysadeild
Borgarspítalans í Reykjavík bendir
til þess að árlega verði um 175 slys
meðal hverralOOO.manna sem starfa
við byggingar, þ.e. 5.-6. hver
byggingarmaður að meðaltali á ári.
Af þessum 175 slasast sjöundi hver á
höfði, að því er fram kom á ráð-
stefnu um aðbúnað og öryggi á bygg-
ingarvinnustöðvum, sem nýlega var
haldin. Er slysatíðni í byggingar-
vinnu sögð með mesta móti í saman-
burði við aðrar atvinnugreinar.
Ástæður hinnar miklu slysatíðni
er bæði talið að leita hjá atvinnurek-
endunum og byggingarmönnunum
sjálfum. T.d. séu öryggishjálmar og
öryggisskór oft ýmist ekki fyrir hendi
eða látnir liggjaónotaðir. Vinnupall-
ar séu óvandaðir, handrið ekki sett
þar sem hætta er á falli og ekki séu
gerðar nægar ráðstafanir vegna vara-
samra efna í sementi, málningarvör-
um og lími. Þá eru vinnuskúrar oft
sagðir lélegir eða engir.
Margar tillögur og ábendingar
komu fram um úrbætur, allt frá því
að leitast við að efla ábyrgðartilfinn- aðgerða af hálfu Vinnueftirlits ríkis-
ingu starfsmannanna sjálfra til ins.
ákveðnari fyrirmæla og þvingunar- -HEI
Tímamynd S.G.
Hólmadrangur ST-70 við bryggju á Hólmavík í gær.
Hólmadrangur:
Banaslys við
Straumsvík
Hásetahluturinn
1,8 milljónir
Gréta Ingvarsdóttir lést í um-
ferðarsiysi á Reykjanesbraut,
skammt sunnan Straumsvíkur
seinnipart laugardags. Gréta
var fædd þann 31/3 1935. Hún var
til heimilis að Yrsufelli 13,
Reykjavík.
Áð sögn farþega sem var í
bílnum, varð slysið með þeim
hætti, að hin látna missti stjórn á
bílnum, þegar áætlunarbifreið ók
fram úr þeim. Bíllinn fór fram af
þriggja metra háum kanti og lenti
úti í hrauninu. Gréta kastaðist út
um framrúðuna. Hún lést
skömmu eftir að hún kom í
sjúkrahús. Farþeginn var að hcita
má ómeiddur.
Frá Stefáni Gíslasyni, Hólmavík
Frystitogarinn Hólmadrangur ST
kom til heimahafnar á Hólmavík sl.
mánudag eftir 23 daga veiðiferð.
Togarinn landaði 115 tonnum af full-
unnum fiski, þar af rúmlega 100
tonnum af frystum þroskflökum.
Brúttóverðmæti aflans var 12,7 mill-
jónir króna, og var hásetahluturinn í
þessari veiðiferð 130.000 krónur.
Utgerð Hólmadrangs gekk vel á
síðasta ári og skilaði nokkrum hagn-
aði. Botnfiskafli togarans 1985 var
samtals 3004,6 tonn miðað við
óslægðan fisk og var brúttóverðmæti
þess afla um 109,4 milljónir kr. Þá
veiddust á árinu 166,4 tonn af rækju
og fór langmest af henni á Japans-
markað. Brúttóverðmæti rækjunnar
var um 47,3 milljónir kr. Árið 1985
var brúttóaflaverðmæti Hólma-
drangs því samtals 156,7 milljónir
króna.
Sóknardagar ársins 1985 voru 279
og hásetahlutur 1.777.000 kr.
Skipstjóri á Hólmadrangi ST er
Hlöðver Haraldsson.
Það er gott að fá vopnfæra menn í liðið Clint minn.