Tíminn - 18.02.1986, Side 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 18. febrúar 1986
SPEGILL
Mclissa Gilbert leikur nú „stórar stúlkur“.
Nú er Melissa Gilbert
(Lára í Húsinu á Sléttunni)
farin að fá „fullorðins-hlutverk"
- Flestir líta enn á mig sem „Láru
í Húsinu á Sléttunni“, en smám
saman er fólk farið að sjá mig sem
stúlku - en ekki barn - og því fæ ég
hlutverk eftir því, t.d. í myndinni
„Val hjartans", segir Melissa.
Melissa Gilbert er ekki lengur
litla stúlkan með flétturnar heldur
glæsileg stúlka sem hefur gaman af
að klæðast tískufötum og er klippt
og krulluð af hárgreiðslumeistur-
um. Hún er nú orðin 20 ára og
hefur, ef svo má segja, unnið allt
sitt líf við sjónvarp og kvikmyndir.
Sem smábarn var Melissa tekin í
JJ
fóstur.af leikkonunni Barbara Gil-
bert og þáverandi manni hennar,
Paul Gilbert. Þegar Melissa var
tveggja ára var hún orðin fyrirsæta
og sýndi barnaföt og auglýsti sápur.
Hún vann við auglýsingamyndir
þangað til hún var níu ára. Þá var
það Michael Landon (pabbinn í
Húsinu á Sléttunni) sem uppgötv-
aði Melissu. Honum fannst sem
telpan væri alveg sköpuð í hlutverk
Láru, enda gekk hún svo upp í rull-
unni, að margir kalla hana Láru
enn þann dag í dag.
Melissa var ekki aðeins „sæt
stelpa" heldur hafði hún leikhæfi-
leika og sterkan vilja og í ellefu ár
lék hún Láru af lífi og sál, - og á
þessum árum varð Melissa líka
milljónamæringur.
Fyrsta hlutverkið eftir Húsið lék
Melissa í myndinni "Sylvester".
Hún var spennt að fá að leika í
alvörumynd, og ekki dró það úr
ánægju hennar, að nú var hún ást-
fangin. Hún og ungi leikarinn Rob
Lowe voru talin ástfangnasta parið
í Hollywood, og í þrjú ár voru þau
alltaf saman þegar færi gafst. Þau
voru bæði önnum kafin við kvik-
myndaleik, og oft voru þau sitt á
hvorum staðnum og sáust þá með
höppum og glöppum.
Rob og Melissa sögðu það vera
draum sinn að leika saman í nýrri
útgáfu af „Á hverfanda hveli“
(Gone With the Wind). Nú verður
lfklega ekkert úr því, því þau slitu
sambandinu með látum í Japan er
þau voru þar á kvikmyndahátíð.
Sagt var að Rob hafi alls ekki haft
áhuga á að binda sig, en Melissa
látið sig dreyma um brúðkaup, hús
og barnafjöída.
SIMON
LEBON
í það heilaga
Nýjustu fregnir herma að Simon
Le Bon úr Duran Duran og kærast-
Verðandi foreldrar; Julie Ann
komin fjóra mánuði á leið.
an hans Yasmín Parvaneh hafi
gengið í það heilaga þann 27. des-
ember. Það brúðkaup var haldið í
kyrrþey þar sem bróðir Símons,
David flutti tveggja sekúndna ræðui
og faðir hans sagði lélega fimm
aura brandara í hálftíma. Hin ný-
bökuðu hjón fóru til Frakklands í
brúðkaupsferð. Reyndar segir
Símon, að þau hafi verið í brúð-
kaupsferð síðan þau kynntust. Þau
eiga von á barni í apríl, en þau eru
ekki ein um það því að Nick Rhod-
es og Julie Ann eiga líka von á
barni, en í maí.
J.E.T. (í starfskynningu)
Ást er: Simon Le Bon og Yasmin Parvaneh.
Illllllll ÚTLÖND 11
FRÉTTAYFIRLIT
Reutei
PARIS — Frönsk stjórnvöld
sendu hersveitir og flugvélar til
höfuöborgarinnar í Chad sem
svar við loftárásinni á flugvöll-
inn í N’DjamenaerLíbýuherer
sagður hafa staðið á bak við.
Hersveitirnar eiga að aðstoða
sveitir Hissene Habre forseta
og ríkisstjórnar hans í barátt-
unni við skæruliða. Flugfélög
um allan heim frestuðu ferðum
sínum til N’Djamena vegna
skemmda á flugvellinum.
LISSABON — Marió Sóar-
es, hinn gamalreyndi leiðtogi
sósíalista, vann nauman sigur
í forsetakosningunum í Portú-
gal og þótti reynsla hans og öf-
galausar skoðanir þar eiga
stærstan hlut að máli. Stjórn-
málalegt óöryggi er þó ennþá
við lýði þar í landi.
MANILA — Philip Habib,
sérlegur sendifulltrúi Banda-
ríkjastjórnar, átti viðræður við
bæði Ferdinand Marcos for-
seta og Corazo Aquino stjórn-
arandstöðuleiðtoga, þó ekki
samtímis. Habib reynir nú að
meta stjórnmálaástandið þar í
landi eftir hinar umdeildu for-
setakosningar.
JÓHANNESARBORG
— Að minnsta kosti þrettán
manns létu lífið og 700 aðrir
voru handteknir í óeirðum um
helaina, sem voru einar þær
blóðugustu síðan uppþotin
hófust fyrir tveimur árum.
BEIRÚT — Að sögn útvarps-
stöðvar í Beirút voru þrír ísra-
elskir hermenn felldir er her
þeirra réðst inn í þorp í Suður-
Líbanon. Útvarpið sagði ísra-
elskar hersveitr hafa verið
varðar af þyrlum en þær tóku á
sitt vald sex þorp fyrir utan „ör-
yggissvæði" ísraels norður af
landamærum ríkjannatveggja.
BAHRAIN — Stjórnvöld í
íran sögðu hersveitir sínar
hafa náð á sitt vald mikilvæg-
um stöðum í Suðaustur írak.
Yfirvöld í írak sögðu hins vegar
mestan hluta herliði írana, sem
fór yfir Shat Al-Arab sundið fyrir
átta dögum, hafa verið felldan.
BONN — Ríkissaksóknarar í
borainni Koblenz sögðu að til
stæði að hefja mál gegn vest-
ur-þýska kanslaranum Helmut
Kohl, vegna ákæru um að
hann hefði gefið falskan vitnis-
burð í rannsókn á vegum
þingsins er snerti spillingu.
LUNDÚNIR - Bresk stjórn-
völd hafa ákveðið að reyna að
binda enda á stirt samband sitt
við Argentínustjórn eftir að
Falklandseyjastríðinu lauk og
ber yfirstandandi heimsókn
argentínskra þingmanna til
Bretlands þess merki.
JAKARTA — Subroto
námu- og orkumálaráðherra
Indónesíu sagði fimm aðildar-
ríki OPEC (Samtaka olíuút-
flutningsríkja) vilja auka fram-
leiðslu á olíu svo samtökin
næðu stærri hlut á heimsmark-
aðinum.
LÚXEMBORG - Flestað-
ildarríki Evrópubandalagsins
(EC) skrifuðu í gær undir nýja
og endurskoðaða stofnskrá
samtakanna. Þar er einnig um
ýmis ný atriði að ræða í sam-
starfi hinna tólf þjóða Evrópu-
bandalagsins. Búist er við að
aðrar þjóðir fylgi fljótlega for-
dæmi hinna þ.ám. Danmörk.