Tíminn - 18.02.1986, Page 16
ISLENSKT frjájs íþróttafólk . setti fjögur íslandsmet á
Norðurlandamótinu innanhúss sem fram fór í Stokkhólmi um jl|
helgina. Svanhildur Kristjónsdóttir, Aðalsteinn Bernharðsson
og Hjörtur Gíslason, sem sló tvö metanna, voru þar að verki.
Árangurinn var samt ekki nógu góðurtil að koma Islendingun-
um á verðlaunapall. Svanhildur náði fimmta sæti í 60 m hlaupi
en engin verðlaun féllu okkar fólki í skaut.
Ttminn
Þriðjudagur 18. febrúar 1986
Mjólkurstuldurinn hjá MS:
RLR opinberaði
kaupmannalistann
- enginn stórmarkaður keypti þýfi
Svo virðist sem rann-
sóknarlögregla hafi gengið
að kröfum starfsfólks
Mjólkursamsölunnar, og
veitt forsvarsmanni þess
leyfi til að kanna gögn þau
sem málið varðar.
Skyndilega féll allt í
dúnalogn seinni partinn í
gær í Mjólkursamsölunni.
Þá höfðu fundahöld staðið
lengi. Yfirtrúnaðarmaður,
Ólafur Ólafsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar,
Guðlaugur Björgvinsson
ásamt lögfræðingi og
varaformanni Dagsbrúnar
funduðu um „mjólkurmál-
ið“.
Harðorð yfirlýsing frá
starfsfólkinu, snemma í
gærmorgun gaf tilefni til
þess að ætla að framhald
yrði á málinu. Rétt fyrir
kvöldmat barst tilkynning
frá starfsfólkinu, þar sem
sagt var að samkomulag
hefði náðst um öll ágrein-
ingsatriði.
„Við fengum að sjá þau
gögn sem við þurftum að
skoða. Ég get fullyrt að
enginn stórmarkaður hefur
keypt stolna mjólk," sagði
Ólafur í samtali við Tímann
í gær. Hann vildi ekki fara
frekar út í þá sálma, hvaða
gögn hann hefði fengið að
skoða, en neitaði því ekki
að þau hefðu borist frá
RLR.
Ólafur sagði fund sem
haldinn var með starfsfólk-
inu seinnipart dags í gær
hafa leitt í ljós að svona
nokkuð hefði ekki komið
upp á ef betra samstarf
hefði verið rríilli manna í
fyrirtækinu.
Heimildir Tímans segja
að vitneskja um óeðlilega
vörurýrnun, hafi verið til
staðar snemma í haust, en
þá hafi málið verið þaggað
niður.
-ES
Stálu nýjum bíl
og skemmdu hann
- tveir sextán ára piltar
sem fengu sér neðan í því
Tvcir sextán ára drengir,
undir áhrifum áfengis létu
sannarlega að sér kveða um
helgina. Vinirnir tveir sem
höfðu fengið sér neðan í því,
lögðu leið sína að Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Þar
stóð yfir hóf starfsmanna og
gesta þeirra. Drengirnir
könnuðu innihald vasa á
yfirhöfnum gesta. Bíl-
lyklar sem fundust í einum
vasanum freistuðu drengj-
anna mest. Þeir lögðu því
næst leið sína út á bifreiða-
stæðin fyrir utan skólann.
Lyklarnir voru reyndir við
flest alla bíla, en að lokum1
passaði lykillinn. Gripurinn
sem hann gekk að var tíu
daga gamall Nissan.
Þeir tóku ökutækið trausta-
taki og hófu ferðalag um göt-
ur Reykjavíkur og lá leið
þeirra loks út á Seltjarnarnes.
Þar var skipt um ökumann.
Fljótlega eftir að hann tók við
stjórninni fipaðist honum
aksturinn og hafnaði bíllinn á
grindverki. Þá var tekið til
fótanna í kapphlaupi við
Seltjarnarneslögregluna, sem
hafði betur á endasprettin-
um. Drengirnir hafa játað
fíflaskapinn.
-ES
Landsbankinn:
Hyggurá
sókná
verðbréfa*
markaði
Landsbankinn hefur verið að
hasla sér völl á verðbréfa-
markaðinum undarifarna mán-
uði. Hefur bankinn þegarstað-
ið fyrir lOskuldabréfaútboðum
fyrir um samtals á 3. hundrað
millj. króna. Einstaklingar
hafa keypt flest bréfin, en fyrir-
tæki, stofnanir og sjóðir hins
vegar keypt fyrir hærri upp-
hæðir.
Landsbankinn hefur nú haf-
ið útgáfu dreifirits til kynningar
á því sem er að gerast á vett-
vangi verðbréfaviðskipta í
bankanum, enda hyggur bank-
inn á frekari sókn á þessum
markaði á næstu misscrum, að
því er segir í fréttatilkynningu.
-HEI
Forystusveit ASÍ notaði helgina til fundahalda með stjórnum verkalýðsfélaga innan samtakanna víðs vegar um landið. Þar var kynnt staða samningamála og könn-
uð afstaða. í Ijósi síðasta tilboðs VSÍ skoraði forystusveitin á þau félög sem ekki hefðu aflað sér verkfallsheimilda að gera það hið fyrsta. Mynd-Sverrir
Heimilisstörf:
Koma Alþingi
alls ekki við
Meirihluti allsherjarriefndar
sameinaðs Alþingis telur ekki
að þingið eigi að taka afstöðu
til þess hvort að heimilisstörf
verði metin til starfsreynslu.
Þingsályktunartillaga þess efn-
is var borin fram fyrr í vetur og
vísað til nefndarinnar að lok-
inni fyrstu umræðu.
1 nefndarálitinu segir að lagt
sé til að tillagan verði afgreidd
með rökstuddri dagskrá: „Þar
sem tillaga þessi fjallar um efni
sem ber að semja um í kjara-
samningum en ekki ákvarða
með fyrirmælum frá Alþingi
telur samcinað þing ekki á-
stæðu til ályktunar í þessu máli
og tekur fyrir næsta mál á
dagskrá." Þar undirrita Ólafur
Þ. Þórðarson, Pétur Sigurðs-
son, Eggert Haukdal, Birgir
Isl. Gunnarsson og Eiður
Guðnason. Þeir Stefán Bene-
diktsson og Guðmundur J.
Guðmundsson voru fjarver-
andi við afgreiðslu málsins.
-SS
Um 30% af Ið jufélögum
hafa ekki kosningarétt
Listi Guðmundar Þ. Jóns-
sonar, fyrrv. varaformanns
sigraði lista Bjarna Jakobs-
sonar, fyrrv. formanns í
stjórnarkosningum Iðju fé-
lags verksmiðjufólks nú um
helgina. með rúmum 600 at-
kvæðum á móti rúmlega 300.
Áhugi fyrir kosningunum -
þeim fyrstu í lOársem kosiðer
á milli lista - virðist ekki hafa
verið mikill þar sem aðeins
rúmlega 900 af alls yfir 2.400 á
kjörskrá notfæröu sér kosn-
ingarétt sinn. Þar við mætti
bæta um þúsund manns sem
starfandi er á félagssvæði Iðju
- þ.e. hafa borgað félagsgjöld
til Iðju á árinu 1985 eða 1986
- sem ekki höfðu kosninga-
rétt í félaginu vegna þess að
þeir höfðu ekki sótt formlega
um inngöngu. Er þannig um
þriðjungur starfandi Iðju-
fólks án kosningaréttar. þar
sem rúmlega 400 af þeim
2.400 sem kosningarétt höfðu
eru úr hópi lífeyrisþega í líf-
eyrissjóði félagsins og þar
með ekki starfandi en alls
mundu Iðjufélagar vera um
3.300 ef fyrrnefndir þúsund
aukafélagar hefðu formlega
gengið í félagið. Samkvæmt
upplýsingum á skrifstofu Iðju
voru þó ekki nema um eða
innan við 10 af þessum þús-
und sem hugðust kjósa, en
urðu frá að hverfa vegna þess
að þeir voru aðeins aukafé-
lagar.
- HEI