Tíminn - 19.02.1986, Side 10
10 Tíminn
....
Miðvikudagur 19. febrúar 1986
Svalahurðir
Útihurðir
Bílskúrshurðir
Gluggasmiðjan IIT^áo^oso
Auglýsing um styrki og lán til
þýðinga á erlendum bókmenntum
Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 um þýðing-
arsjóð, er hlutverk sjóðsins að lána útgefendum eða styrkja þá til út-
gáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli. Greiðslur skulu
útgefendur nota til þýðingarlauna.
Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi:
1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur.
2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök.
3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæðakröfum.
4. Eðlileg dreifing sé tryggð.
5. Útgáfudagur sé ákveðinn.
Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1986 nemur 2.664.000
krónum.
Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr sjóðnum fást í menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, og skulu umsóknir hafa
borist ráðuneytinu fyrir 15. mars nk.
Reykjavík 14. febrúar 1986.
Stjórn þýðingarsjóðs
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrirhönd Byggingadeildar borg-
arverkfræðings óskar eftir tilboðum í ýmsa þætti viðgerða og viðhalds
á eldri hluta Sundlauga Reykjavíkur í Laugadal. Verkið felst í viðgerð-
um og viðhaldi á hluta sundlauga, sem samanstendur af stúku og
byggingahlutum hennar. Helstu verkþættir eru háþrýstiþvottur, múr-
viðgerðir, endursteypa, sprunguviðgerðir og sílanböðun utanhúss.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 10 þús. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað,
þriðjudaginn 11. mars nk. kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍXURBORGAR
Frfkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir janúar mánuö 1986, hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
20%, en síðast reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. mars.
Fjármálaráðuneytið,
17. febrúar 1986
HÚSAÞJÓNUSTAN SF.
Tökum að okkur alla málningarvinnu, utan-
sem innanhúss, hvar á landi sem er.
Einnig: Sprunguviðgerðir og þéttingar- Háþrýsti-
þvott Sílanúðun - Alhliða viðhald fasteigna.
Tilboð - Mæling - Tímavinna.
Skiptið við ábyrga fagmenn, með áratuga reynslu.
Upplýsingar í síma 91-61-13-44
Vantar stúlku
til starfa við kjúklingabú. Þarf að vera samviskusöm og geta unnið
sjálfstætt.
Gott kaup fyrir rétta manneskju. Upplýsíngar í síma 99-6053 og 99-
6051.
Sovéskur efnahagsvandi,
stjörnustríð, Afganistan...
Þann 8. febrúar sl. sendi TASS frá
sér svör Mikhail Gorbachjovs við
spurningum dagblaðsins L'Human-
ite. Þetta var langt mál, næstum 20
síður. Auðvitað var margt í þessum
svörum, sem var fyrst og fremst ætl-
að til að vekja áhuga Frakka, sem
eru undir stöðugum áhrifum óvin-
vcittra árása á Sovétríkin, eins og
fulltrúar L’Humanite orðuðu það.
En í svörum sovéska leiðtogans var
einnig að finna ýmislegt sem hlýtur
að vekja áhuga hjá íslenskum les-
endum. Bæði Frakkarog íslendingar
eru fulltrúar Vesturlanda.
Hér á eftir ætla ég að skýra frá
nokkrum ummælum og skoðunum
M. Gorbachjovs.
1. Hverjar eru helstu horfurnar í þró-
un hins sovéska efnahagslífs á næstu
10-15 árum?
- Þegar sovéski leiðtoginn svaraði
þessari spurningu lagði hann áherslu
á að á næstu 15 árum ætti fram-
leiðslumáttur landsins að tvöfaldast.
Ýmsir örðugleikar hindruðu lausn á
flóknum efnahagsmálum í Sovét-
ríkjunum, svo sem óhagstætt ástand
í lýðræðimálum og vígbúnaðar-
kapphlaupið sem þröngvað hefði
verið upp á landið. Samt væri gert ráð
fyrir því að bæta á sem skemmstum
tíma áætlanagcrð, stjórnun og cfnis-
lcga hvatningu, herða á vísinda- og
tækniframförum. Á þessum grunni á
að efla framleiðni og auka gæði.
Meðal brýnustu málanna er að sjá
innanlandsmarkaði fyrir fjölbrcytt-
um vörum í háum gæðaflokki. Þetta
taldi M. Gorbachjovafar mikilvægt.
Það er gert ráð fyrir því að bæta
lífskjör þjóðarinnar, að verði breyt-
ingar bæði á sviði magns og gæða,
hvað snertir neyslu og þjónustu,
húsnæði, heilbrigðisþjónustu,
menntun, félagslegt öryggi, aðgang
að menningarávinningum, umhverf-
isvernd, bættar aðstæður í borgum
og þorpum, tómstundir og margt
fleira. M. Gorbaehjov sagði að
margt af því sem hér væri upptaliö
væri ekki í því horfi sem æskilegt
væri. Það væri vegna þess að hin erf-
iða saga landsins hefði ekki gefið
tóm til að vinna að lausn þessara
vandamála. En það væri einnig
vegna þess að landsmenn sjálfir
hefðu reynst óhæfir til að leysa vand-
ann og stundum hefði það veriö
vcgna ábyrgðarleysis opinberra að-
ila, deilda eða samtaka.
Af skrifum i sovéskum blöðum
mætti ráða hvcrsu margir aðilar, þar
á meðal háttsettir, hefðu verið gagn-
rýndir harkalega fyrir þetta. Nú ætti
að bæta ástandið, en það krefðist
auðvitað tíma og mikils átaks.
2. Er ekki atvinnuleysi óhjá-
kvæmilegur fylgifiskur endurnýjun-
ar framleiðslunnar?
- í áætluðu efnahagslíli þar sem
unnið er að því að mæta þörfum
þjóðfélagsins eins vcl og hægt cr, cr
slíkt ekki til. Hvað okkur varðar er
þctta akadcmísk spurning. Einkum
vegna þess að vandinn í Sovétríkjun-
um er ekki of mikið framboð á vinnu-
krafti. heldur skortur á vinnuafli.
Það er cinnig önnur ástæða. Enn för-
unr við okkur hægt við að fram-
kvæma endurnýjun okkar, þar á
meðal á sviðum, þar sém kominn er
tími til.
3. Getur hin bandaríska Stjörnu-
stríðsáætlun leitt til styrjaldar?
- Þessi áætlun eykur verulega lík-
urnar á styrjöld og getur á vissu stigi
gert hana mögulega.
Þó að gert sé ráð fyrir því að fram-
kvæmd Stjörnustríðsáætlunarinnar
verði aðeins lokið eftir nokkra ára-
tugi og aðeins nokkrir „bjartsýnis-
menn" telji að hún sé framkvæman-
leg, mun hún hafa í för með sér mjög
alvarlegar afleiðingar í náinni
framtíð, ef Bandaríkin halda fast við
framkvæmd hennar. Hér er um að
Gorbachjov
leysir frá
skjóðunni
ræða að við framkvæmd liennar hef-
ur Washington í hyggju að kollvarpa
yfirstandandi samningaviðræðum og
gera að engu alla samninga um víg-
búnaðareftirlit. í þessu tilfelli munu
Sovétríkin og Bandaríkin, banda-
menn þeirra og allur heimurinn búa
við óheft vígbúnaðarkapphlaup á
næstu árum, strategíska óreiðu,
hættulega röskun á stöðugleika, al-
menna óvissu og ótta, aukna hættu á
hörmungum, sem tcngist þessu öllu.
Þessi hætta ógnar ekki aðeins barna-
börnum okkar, heldur einnig okkur
sjálfum, öllu mannkyninu.
Og hver er hugmynd Sovétríkj-
anna urn að tryggja öryggi allra?
Hún er fólgin í því að tryggja öllum
öryggi mcð því að fækka vopnum og
koma á afvopnun. allt til algerrar út-
rýmingar allra gereyðingarvopna. Á
okkar tímum getur ekki verið neitt
öryggi fyrir Sovétríkin nema öryggi
ríki í Bandaríkjunum og það er ekk-
ert öryggi fyrir Varsjárbandalags-
löndin nema öryggi sé fyrirhendi hjá
NATO.
Þegar M. Gorbachjov svaraði
spurningunni um stjörnustríð, sagð-
ist liann telja æskilegt að leggja sér-
lega áherslu á að losa Evrópu við
kjarnorkuvopn, fyrst og fremst með-
aldrægar cldflaugar, sem hefðu mjög
alvarlcg áhrif á ástandið.
Fylgismenn kjarnorkuvígvæðirig-
ar telja, að útrýming slíkra vopna
geri vcstriö „varnarlaust" frammi
fyrir „yfirburðum" Sovétríkjanna
hvað varðar svokölluð hefðbundin
vopn. Þcssu má svara á eftirfarandi
hátt - í tillögum Sovétríkjanna er
gert ráð fyrir að þessum vopnum
verði einnig fækkað, svo og auknum
ráðstöfunum til að efla iraust.
4. Eru merki þess að spennuslök-
un sé að komast á í alþjóðasamskipt-
um eftir leiðtogafundinn í Gcnf?
- Hér verður að fara varfærnislega
í hlutina að mínu nrati. Ástæðan er
ckki aðeins fólgin í breytingum á
samskiptum Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna: Þau eru takmörkuð,
tímabundin ogekki lífsmikilvæg. En
vissar breytingar hafa átt sér stað í
hinu pólitíska andrúmslofti. Það hcf-
ur vakið von hjá fólki í mörgum
löndum og fyllt það trú á að mögu-
legt sé að snúa til spennuslökunar.
binda enda á hið brjálæðislega víg-
búnaðarkapphlaup og þróa eðlilega
alþjóðlega samvinnu. Nú er um að
ræða eitthvað raunverulegt.
Gorbachjov telur að sovésku til-
lögurnar, eins og t.d. algert bann við
kjarnorkusprenginum, útrýming
kjarnorkuvopna stig af stigi í Evrópu
og í heiminum öllum, að koma í veg
fyrir vígbúnaðarkapphlaup í geimn-
um, verði til þess að mótaðilar Sovét-
ríkjanna í viðræðunum verði að
„sýna sitt rétta andlit, sýna markmið
stefnu sinnar í raun". Þegar Sovét-
ríkin lögðu til að kjarnorkuspreng-
ingar yrðu frystar var sagt við þau -
þið eruð klókir, hafið sprengt meira á
árinu en við (það var þá samt ekki
satt) og leggið svo til að Bandaríkin
hætti. Sovétríkin hafa ekkert sprengt
í sjö mánuði. Nú geta Bandaríkin
ekki lengur notað þessa átyllu. Þá
fóru þau að tala um eftirlit. Sovétrík-
in lýstu sig reiðubúin til að fallast á
allar eftirlitsaðgerðir. Hvað er eftir?
Er það aðeins ákvörðun Bandaríkj-
anna að halda áfram vígbúnaðar-
kapphlaupinu hvað sem það kostar?
5. Má vonast eftir því að styrjöld-
inni í Afganistan fari að Ijúka í náinni
framtíð og að sovéskar herdeildir
liverfi á brott þaðan?
- Við mundum vilja það og munum
eftir því scm við getum vinna að því.
Ríkisstjórn Afganistans er á sömu
skoðun. Hún cr tilbúin til að ganga
langt hvað varðar lausn innanríkis-
þróunar í landinu og er að setja ýmis
pólitísk öfl í að taka þátt í því að
koma á eðlilegu ástandi í landinu.
Jafnframt er langt frá því að allt sé
komið undir ríkisstjórn Afganistans.
Það eru ytri öfl, sem taka þátt í
átökunum. sem hafa kornið fram á
sjónarsviðið vegna utanaðkomandi
afskipta í fyrsta lagi og vilja þau
halda áfrant þessurn átökum - þar
eru Pakistan og Bandaríkin og Vest-
ur-Evrópa og þessir aðilar geta haft
áhrif á gang mála. Ég held að verði
ástandið í Afganistan metiö á raun-
hæfan máta og cf eigin hagsmunir og
hagsmunir almenns friðar verði
teknir méð í reikninginn, veröi hægt
að finna leiðir til að leysa vandann.
P.S. Útdrátturúrsvörum Mikhails
Gorbachjovs og stytt svör hans við
spurningum dagblaðsins L'Human-
ite vitna um aö Sovétríkin eru ekki
aðeins ákveðin í að efla efnahagslíf
sitt og bæta lífskjör þegna sinna.
heldur einnig að stuðla að því að
koma ástandinu á alþjóðavcttvangi í
eðlilegt horf og að losa mannkynið
viö möguleikann á því að kjarnorku-
styrjöld fari af stað. Afleiðingar
slíkrar styrjaldar voru sýndar í
bresku kvikmyndinni Þræðir, sem ný
lega varsýnd í íslenska sjónvarpinu.
! Sú mynd virðist hafa haft mikil áhrif á
íslenskan almenning. Fólk í Sovét-
rtkjunum hefur sömu áhyggjur vegna
þessa hræðilega möguleika. Þaðan
eru tilkomnar tillögur Sovétríkjanna
um nauðsyn þess að hætta kjarn-
orkuvopnatilraunum, útrýma kjarn-
orkuvopnum o.fl. Það er leitt að
þcssum tillögum og fleiri skuli ekki
vera gefinn nægur gaumur í nokkr-
um hinna vestrænu ianda.
Evgení Barbukho,
vfírmaður APN á Islandi
11.2 ’86
í nýjum
búningi
Árfari er fyrsta vél þeirra Flug-
leiðamanna sem skrýdd hefur verið
nýjum búningi. Fyrirhugað er að all-
ar verði þær málaðar á sama hátt. Að
sögn Andra Hrólfssonar stöðvar-
stjóra Flugleiða á Reykjavíkurflug-
velli tekur talsverðan tíma að vinna
við hverja vél og því ekki útséð um
hvenær allar vélar félagsins í innan-
landsflugi verða komnar í nýja bún-
inginn. Tímamynd-Ámi Bjarna