Tíminn - 19.02.1986, Side 11
Miðvikudagur 19. febrúar 1986
Tíminn 11
Hallgrímur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Samvinnutrygginga:
Athugasemd vegna skrifa HP
Vegna skrifa Helgarpóstsins um
Samvinnutryggingar og meint
„tryggingarsvik" tveggja ráðherra,
tel ég nauðsynlegt að gera nokkrar
athugasemdir:
1. Frá því ég tók við framkvæmda-
stjórn hjá Samvinnutryggingum
árið 1974, hef ég einn borið
ábyrgð á ákvarðanatöku við
endanlegt uppgjör tjóna hjá fé-
laginu. Hvorki stjórn félagsins né
einstakir stjórnarmenn hafa tekið
ákvarðanir né haft afskipti af slík-
um málum.
2. Ekki verður hjá því komist að
rekja nokkuð þau tjón, sem um er
fjallað í greininni.
TjónJóns Helgasonar
Jón Helgason hefur verið trygg-
ingartaki hjá félaginu á ábyrgðar-
tryggingum bifreiða frá 22. júní
1953. Kaskó tryggingu fyrir bifreið
keypti hann fyrst hjá félaginu 4. júlí
1978. Bifreið Jóns, sem lenti í um-
ræddum árekstri var Z-2202, sem
keypt var 30. september 1981 og þá
þegar sett í ábyrgðartryggingu, en
kaskótrygging var keypt fyrir bif-
reiðina 2. nóvember 1981. Umrætt
tjón varð 11. september 1982 á
Grafningsvegi í Þingvallasveit. Þar
lenti bifreiðin í árekstri við aðra
fólksbifreið á blindhæð. Bifreiðarn-
ar voru báðar tryggðar hjá Samvinnu-
trygginum. Lögregla var kvödd á
staðinn og gaf skýrslu um árekstur-
inn. Báðir bílarnir voru óökufærir
eftir áreksturinn og voru færðir burt
af slysstað af kranabíl. Við mat á
sök, var bifreið Jóns talin eiga 'A sök
en hin bifreiðin %. Tjón Jóns var því
bætt að 2A úr ábyrðartryggingu þess
bíls, er á móti kom, en að einum
þriðja úreigin kaskótryggingu. Upp-
hæðir, sem komu til greiðslu voru kr.
44.500.00 úr ábyrgðartryggingu, en
kr 47.620.00 úr kaskótryggingu.
Jón Helgason ók bifreið sinni ekki
í umræddu tilviki, heldur vörslumað-
ur, sem Jón hafði fengið bifreiðina í
hendur. Ekki þótti ástæða til að neita
bótum úr kaskótryggingunni af þeim
sökum. Enda alvanalegt, að eigend-
ur bifreiða feli öðrum að aka bifreið-
um sínum í ýmis konar tilgangi.
Tjón
Steingríms Hermannsson-
ar
Steingrímur keypti fyrst ábyrgðar-
tryggingu hjá Samvinnutryggingum
27. maí 1947, en kaskótryggingu,
fyrst 10. ágúst 1978- Bifreið Stein-
gríms G-11648, sem lenti í umrædd-
um árekstri var ábyrgðartryggð frá
10. ágúst 1978 og kaskótryggð frá
sama tíma.
Tjónið var á gatnamótum Vífils-
staðavegar og Brúarflatar 20. maí
1981. Samkvæmt lögregluskýrslu,
sem tekin var á slysstað, játaði dóttir
Steingríms, að hún hefði tekið bif-
reiðina ófrjálsri hendi og við fram-
haldsrannsókn hjá lögreglu játaði
vinkona hennar að hafa ekið bifreið-
inni. Báðar voru -15 ára að aldri. Auk
stúlknanna voru tveir piltar farþegar
í bifreiðinni umrætt skipti og stað-
festu þeir framburð stúlknanna.
Áreksturinn varð með þeim hætti,
að stúlkan, sem ók bifreið Stein-
gríms, virti ekki biðskyldu. Bifreið
Steingríms var talin eiga 100% sök á
árekstrinum.
Kaskótjón á bifreið Steingríms
varð kr. 6.254.95 og var það greitt af
Samvinnutryggingum. Tjón, sem
verður þegar bifreið er tekin ófrjálsri
hendi er bótaskylt. Hins vegar kom
til álita, hvort endurkrefja bæri
ökumann bifreiðarinnar um tjónið.
Umferðarlög kveða svo á, að
endurkrefja skuli tjón hjá ökumanni
Hallgrímur Sigurðsson.
ef tjóninu er valdið af ásetningi eða
stórfelldu gáleysi. Pær aðstæður
voru ekki fyrir hendi, auk þess sem
aldur stúlkunnar gaf enn síður á-
stæðu til endurkröfu.
Ég fullyrði, að tjón þessi voru
meðhöndluð á nákvæmlega sama
hátt og önnur tjón, sem koma til af-
greiðslu hjá Samvinnutryggingum,
þar skiptir engu máli hvaða stöðu
viðskiptavinurinn gegnir.
Auk þess leyfi ég mér að benda á,
að hafi viðskiptamaður keypt trygg-
ingu hjá tryggingarfélagi og sannar-
lega orðið fyrir tjóni, þurfa að vera
fyrir hendi sérstakar og alvarlegar
ástæður fyrir því, að neitað sé um
greiðslu. I hvorugu þessara framan-
greindu tjóna voru slíkar ástæður
fyrir hendi.
3. Ásakanir um hvarf skjala og
gagna úr hirslum Samvinnutrygg-
inga eru ekki svara verðar. Enda
verða fyrirtæki af slíkri stærð
ekki rekin með þess konar að-
ferðum.
4. I grein Helgarpóstsins kemur
fram, að upplýsingar þær, sem
greinin byggist á séu komnar frá
fjórum einstaklingum, sem sent
hafa kæru á Samvinnutryggingar
til ríkissaksóknara, m.a. vegna
meðhöndlunar framangreindra
tveggja tjónamála.
Ég tel nauðsynlegt, að það komi
fram hverjir þessir einstaklingar eru.
Kæruna undirrita:
Ragnar Jóhann Jónsson, en hann er
sonur Jóns Rafns Guðmundssonar,
sem var framkvæmdastjóri Endur-
tryggingafélags Samvinnutryginga.
Arnar G. Pálsson, Ólafur Örn Ólafs-
son ogTryggvi Björnsson.
Aðeins einn þessara manna er
með smávægilega tryggingu hjá
Samvinnutryggingum.
Hallgrímur Sigurðsson
framkvæmdastjóri
Samvinnutrygginga g.t.
FRÍMERKI
Að stof na frímerkjaklúbb
Pað er ekki alltaf auðvelt að stofna
klúbb, eða félag þeirra sem vilja
vinna að sama áhugamáli. Þetta
þekkja flestir, sem eitthvað hafa
komið nálægt félagsmálum. En tök-
um fyrir í stuttu máli hver eru höfuð-
atriðin.
1) Það þarf að vera einhver sem
vill ríða á vaðið og skipuleggja
starfið. Sé um að ræða ungmenna-
klúbb, þá eru yfirleitt fyrir hendi
æskulýðsráð, eða tómstundaráð og
nefndir í öllum bæjarfélögum, sem
gjarna hjálpa til með að auka félags-
starfsemi yngra fólks. Slíkir aðilar
eru því gjarna hjálplegir við svona
stofnun. Ékki skaðar ef einhver full-
orðinn einstaklingur, sem vit hefir á
frímerkjum er fenginn til aðstoðar.
Þá er ekki úr vegi að fá skólann til að
hjálpa til. Flestir skólar á landinu
munu vilja nota sér af því sem kallað
er tómstundastarf í skólum við að
hjálpa nemendum til að stofna svona
klúbb. Nægir þar að nefna að frí-
merkin geta verið ágætis hjálpartæki
við kennslu. Þá hafa allflestir kenn-
arar fengið nokkra nasasjón af því,
hvernig á að safna frímerkjum og
ætli þeir sjái auk þess ekki allir
hversu nota má þau sem hjálpartæki,
t.d. í vinnubækur.
2) Þegar svo þarf að búa tit lög eða
starfsreglur fyrir klúbbinn má leita til
Landssambands íslenskra frímerkja-
safnara um fyrirmyndir. Landssam-
bandið, eða L.Í.F., fær vissa fjárveit-
ingu á ári hverju frá Póstmálastjórn
til að vera til hjálpar í slíkum málunt.
Þá er að ákveða hversu oft skal halda
fundi.
3) Ráðlegt væri að halda ekki
fundi of ört ífyrstu a.m.k. þvíaðþað
er enginn vandi að verða leiður á ein-
hverju sem oft mikið er af. Hálfs-
mánaðarlegir fundir yfir vetrartím-
ann/skólatímann, er ekki svo frá-
leitt. Auk þess geta svo þeir sem
mest magn eiga af frímerkjum hist
oftar til að skipta á merkjum og/eða
skoða merki og söfnunaraðferðir
hver hjá öðrum.
4) Fundarefni getur verið margs-
konar, en hér er t.d. tillaga:
a) Fundarsetning og efni er varðar
rekstur klúbbsins.
b) Fræðsluefni (Safn skoðað - sér-
efni tekið fyrir - ný bók skoðuð -
Fyrirlestur^- lesnar upp greinar
úr blöðum eða tímaritum, sem
borist hafa).
c) Lítið uppboð. Frímerkjaskipti,
samkvæmt verðlista.
d) Önnur mál
e) Almenn skipti á frímerkjum,
frjálst spjall.
5) Enginn er meistari við fyrsta högg
og því ættu menn ekki að vænta
neinnar fullkomnunar á fyrstu
fundum, en margt má sér gera til
gamans. Til er bæklingur sem heitir:
„Uppsetning". Stuttur leiðarvísir
um það hvernig frímerkjasafn er sett
upp, eftir Gunnar Dahlvig. Hann má
fá frá L.Í.F. og nota til leiðbeiningar
um hvernig söfn eru sett upp, ef ein-
hver á orðið svo mikið efni, að
ástæða sé til. Þá eru til frímerkja-
bækur fyrir öll lönd heims, sem fást í
frímerkjaverslunum. Þessar bækur
hafa reiti fyrir öll frímerki viðkom-
andi lands. Auk þess er hægt að fá
blöðin í þessar bækur í ákveðnum
hlutum. Svo dæmið ísland sé tekið,
þá má kaupa Lýðveldið Island sér og
svo þegar það er fyllt má kaupa blöð-
in fyrir konungsríkið á eftir.
6) Ekki er gerlegt að safna merkjum
án þess að hafa frímerkjaskrá yfir
land það sem safna á. Þessar skrár
eru í daglegu tali nefndar frímerkja-
verðlistar. Hér á landi eru tveir slíkir
gefnir út. Er þar annars vegar „ís-
Nú er sá árstími, þegar starfsemi
áhugaleikfélaganna á landsbyggð-
inni stendur sem hæst. Á Norður-
landi er mikil gróska í þessum
málum. Atvinnuleikhúsið á Akur-
eyri æfir söngleikinn Blóðbræður,
auk þess sem starfsemi sjö áhuga-
leikfélaga er í fullum gangi.
Leikfélag Öngulsstaðahrepps
frumsýndi leikritið Kviksand í
Freyvangi föstudaginn 14. febrúar,
undir stjórn Þráins Karlssonar.
Höfundur verksins er Micael Vinc-
ent Cazzo, og tekur hann til um-
fjöllunar líf ungs manns sem ánetj-
aður er vímuefnum. Einnig er
komið inná viðbrögð aðstandenda
mannsins, ástæður neyslunnar og
afleiðingar. Leikritið gerist í New
York í kringum 1950 en á ekki síð-
ur erindi til íslendinga nú, á dögum
sívaxandi neyslu vímuefna og
hvers kyns óhroða. Hlutverk í sýn-
ingunni eru 9, en alls vinna um 20
manns að uppfærslunni. Leikfélag
Grenivíkur er að æfa gamanþriller-
inn Slettirekuna undir stjórn Erlu
lensk frímerki", sem Isafoldarprent-
smiðja gefur út árlega og á að fást í
öllum bókaverslunum. Hinsvegarer
„íslenski frímerkjaverðlistinn," sem
Frímerkjahúsið, Lækjargötu 6a,
Reykjavík, gefur út og má panta
þaðan. Listarnir fyrir Norðurlöndin
heita svo „A.F.A.“ og „Facit“, þeir
sem hægt er að fá í frímerkjaverslun-
um hér á landi. Þá er hægt að kaupa
verðlista fyrir t.d. Evrópu, eða allan
heiminn. Þarna er orðið um dýrar
bækur að ræða. Því er heppilegt að
klúbbarnir kaupi slíka lista og láni þá
svo meðlimunum til skiptis. Þannig
má einnig kaupa ýmsar aðrar bækur
um frímerki, sem kunna að fást á
hverjum tíma í frímerkja eða bóka-
verslunum.
7) Þá skal þess getið að frímerki
verða víst ekki ódýrari en á nafn-
verði, þegar um ónotuð merki er að
ræða. Þau er hægt að kaupa frá frí-
merkjasölu Póstmálastjórnar við-
komandi lands. Hér á landi er þetta:
Frímerkjasalan,
Pósthólf 8445,
128-Reykjavík.
Þarna má panta ónotuð frímerki,
B. Skúladóttur, og stefna Gren-
víkingar að frumsýningu 21. febrú-
ar.
í Skriðuhrcppi er gamanleikur-
inn Ingiríður Óskarsdóttir eftir
Trausta Jónsson, í fullum gangi
undir stjórn Péturs Eggerz. Frum-
sýningardagur er óákveðinn.
Leikfélag Menntaskólans á Ak-
ureyri er að hefja starfsemi sýna
undir stjórn Theodórs Júlíussonar.
Ekki er hægt að gefa nafn leikrits-
ins upp ennþá, en menntskælingar
stefna að frumsýningu um miðjan
apríl.
Á Þórshöfn er Saumastofan eftir
Kjartan Ragnarsson í uppsiglingu
undir stjórn Auðar Jónsdóttur.
Saumastofan greinir frá 6 konunt
sem vinna á saumastofu. Á afmæli
einnar þeirra lyfta konurnar glasi,
og þegar andinn úr glasinu hefur
liðkað um tunguhöftin rekja þær
ævisögur sínar hver fyrir annarri.
Auk þess koma við sögu karlmenn
þeir er á saumastofunni vinna.
Frumsýning er áætluð 1. mars.
fyrsta dags stimpluð bréf og svo nátt-
úrlega ný merki, stimpluð. Hægt er
að gerast áskrifandi og fá fastan við-
skiptareikning sem borgað er inn á,
Þann sama dag frumsýnir Leikfé-
lag Húsavíkur Endasprett eftir Pet-
er Ustinof. Verkið segir frá lífs-
hlaupi Sams nokkurs, og fá áhorf-
endur að kynnast honum og lífsvið-
horfum hans á fjórum aldursskeið-
um, tvítugum, fertugum, sextugum
og áttræðum. Lýst er sambandi
hans við foreldra sína og síðar
framkomu Sams við son sinn, sem
er bein endurspeglun á uppeldi
hans sjálfs. Leikstjóri er Oktavía
Stefánsdóttir.
Á Dalvík stjórnar Margrét Ósk-
arsdóttir æfingum á Jóa eftir Kjart-
an Ragnarsson. í stuttu máli fjallar
Jói um samskipti þroskahefts
drengs við foreldra sína. Frumsýn-
ing á Jóa er áætluð 7. mars.
Hjá Leikfélagi Akureyrar eru
sýningar á Silfurtúnglinu eftir Hall-
dór Laxness um hverja helgi. Auk
þess eru hafnar æfingar á leikritinu
Blóðbræður (Blood Brothers) eftir
Willy Russel (sá er gerði kvik-
myndina Educating Rita). Blóð-
bræður er söngleikur, og hefur
eða láta senda sér merkin í póst-
kröfu. Einnig er hægt að fá áskrift að
sérstimplum, meira um það annars-
staðar. Sigurður H. Þorsteinsson.
Magnús Þór Jónsson, betur þekkt-
ur sem Megas, þýtt verkið. Leik-
stjóri er Páll Baldvin Baldvinsson,
og í helstu hlutverkum eru Þráinn
Karlsson, Erla B. Skúladóttir,
Sunna Borg, Barði Guðntundss. og
Ellert A. Ingimundarson. Blóð-
bræður segir frá tvíburabræðrum
sem alast upp við ólíkar aðstæður
og vita eigi um skyldleika sinn. Ör-
lögin haga því þó þannig að þeir
kynnast, og sverjast meira að segja
í fóstbræðralag, þótt hin raunveru-
lega móðir þeirra, svo og fóstur-
móðirin, reyni að koma í veg fyrir
kunningsskap þeirra. Inní leikritið
blandast allskyns hjátrú, þess efnis
að ef tvíburabræður sent hafa verið
aðskildir, og ókunnugt er um upp-
runa sinn komist að hinu sanna,
muni báðir deyja. Hvað hér gerist
verður bara að koma í ljós, og rétt
að benda á að leikritið Blóðbræður
verður frumsýnt 21. rnars nk.
Það er því úr nógu að moða fyrir
Norðlendinga á sviði leiklistar um
þcssar mundir og flestir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi. hía
iíómleg íeikiist á Norðuríandi