Tíminn - 11.03.1986, Síða 1
STOFNAÐUR 1917
RAUSTIR
MENN
JP jMk
50
SBJlDIBíLRSTÖÐin
FERÐAMÖNNUM til íslands hefur
fiölqaö talsvert í ár miðað við sama tíma í
fyrra. í febrúar í ár komu 7153 ferðamenn til
landsins, þar af 3209 erlendir en í febrúar i
fyrra komu 5950 ferðamenn til landsins, þar
af 2313 erlendir. Það sem af er árinu hafa um
1500 fleiri ferðamenn komið til landsins en í
fyrra, og eru langflestir af erlendu ferða-
mönnunum frá Bandaríkjunum.
PRÓFASTAR haldasinn árlegafund
með biskupi á Akureyri og hefst fundurinn í
dag. Fundurinn mun m.a. fjalla um þau laga-
frumvörp sem eru á döfinni, t.d. um kirkju-
garða og um framkvæmd þeirra laga sem ný-
verið hafatekið gildi. Fundurinn verður í kap-
ellu Akureyrarkirkju.
FLUGFÉLAG Norðurlands hagnaðist
um 3,1 milljón kr. á síðasta ári. Velta félags-
ins á árinu var 70 milljónir króna og eigið fé í
árslok nam 36,5 milljónum. Alls flutti félagið
um 20 þúsund farþega og 470 tonn af vörum
og pósti. Stór þáttur í rekstri félagsins var
Grænlandsflugið, eða 30% og eiga umsvif
olfufélagsins ARCO við Scoresbysund veru-
legan þátt í að þessi þáttur hefur aukist hjáfé-
laginu.
SKIPVERJA tók út af rækjubátnum
Guðmundi Einarssyni á föstudagskvöld, þar
sem báturinn var norð-vestur af Kolbeinsey.
Skipverjinn sem heitir Jón Aðalsteinn Sæ-
björnsson, bjargaðist eftir um fimm mínútna
dvöl í ísköldum sjónum. Talið er að björgun-
arnet Markúsar hafi orðið til bjargar mannin-
um. Komið var með Jón Aðalstein á sjúkra-
húsið á (safirði um hádegi á laugardag og fór
hann þangað til eftirlits, en reyndist lítilshátt-
ar meiddur. Jón er 29 ára gamall og kvæntur.
BRETAR drukku minna af þjóðardrykk
sínum tei á síðasta ári samanborið við fyrra ár.
Samkvæmt könnun einni nam teneysla á
síðasta ári 160.000 tonnum en árið 1984 var
hún 177.000 tonn.
MARGRÉT II
Danadrottning hefur
verið sæmd nafnbót-
inni heiðursdoktor af
heimspekideild Há-
skóla Islands. Tildrög
þessarar samþykktar
heimspekideildar eru
þau að deildin vill nú,
þegar handritamálið
er til lykta leitt heiðra
Danadrottningu sem
sýnt hefur iðkun
fræða og vísinda alúð
og jafnframt vill Há-
skóli íslands votta
dönsku þjóðinni virð-
ingu sína og þakk-
læti.
FLUGLEIÐIR ætla að verðlauna
handboltalandsliðið fyrir góðan árangur i
Sviss, með því að bjóða liðsmönnum í ferða-
lag til Mið-Evrópu ásamt mökum.
KRUMMI
Ætli það verði bráðum
skilyrði fyrir flugprófi að
hafabílpróf...?
Flugvélin rann stjórnlaust út á götu. Lögreglan lokaði Suðurgötu, en samt sem áður reyndi fólk að komast að flugvélinni. Fyrir aftan vélina sjást
slökkviliðsbílar í viðbragðsstöðu. Horft er suður Suðurgötu.
Flugleiðavél hlekktist á í flugtaki:
Rann stjórn-
laust fram
af brautinni
- stöðvaöist á miðri um-
ferðargötu
Miklar skemmdir urðu á vélinni. Trjónan rifnaði þegar hún skall niður eftii
að nefhjól brotnaöi undan. Annar vængur brotnaði og hrcyfillinn er illa
farinn. Tímumyndir Sverrir.
Árfari, flugvél Flugleiða fór
fram af flugbraut 32,sem Iiggur útað
Suðurgötu í Skerjafirði í gær laust
fyrir hádegi, þegar hætt var skyndi-
lega við flutak. 41 farþegi og fjög-
urra manna áhöfn var hætt komin
þegar slysið varð. Engin meiðsl
urðu á fólki en vélin sem er nýlega
uppgerð er stórskemmd ef ekki
ónýt. Vélin var á leið í áætlunarflug
til Patreksfjarðar og Þingeyrar.
Hætt var við flugtak þegar flug-
stjóri vélarinnar Árni Sigurbergs-
son heyrði hávaða sem olli því að
hann taldi óvarlegt að halda áfram
flugtakinu. Þá var slegið af.
Bremsuskilyrði á vellinum voru í
lágmarki, þar sem mikil bleyta var á
brautinni. Vélin fór fram af flug-
brautinni og skall framhjólið á
steyptu holræsi sem stendur við
flugbrautarendann. Það brotnaði af
og vélin skall á girðingu og þaðan
út á götu. Nokkrum sekúndum
áður hafði olíubíll farið suður
Suðurgötu. Vélin staðnæmdist
ekki fyrr en hún lá þvert yfir Suður-
götu og lokaði henni algerlega.
Annar vængur vélarinnar rifnaði
að hluta frá búk hennar.
„Það sló dauðaþögn á farþeg-
ana,“ sagði einn af farþegunum
sem Tíminn ræddi við skömmu eft-
ir slysið.
Farþegum var skipað að yfirgefa
vélina sökum eldhættu. Fyrst fóru
konur með börn, og síðan fylgdu
aðrir farþegar á eftir. Grciðlega
Bolungarvík:
Brenndist í eldsvoða
Karlmaður var fluttur á sjúkra-
húsið á ísafirði á sunnudagskvöld
með alvarleg brunasár í andliti, á
höndum og baki. Maðurinn
brenndist þar sem hann var við
vinnu sína í vélaskemmu á bænum
Geitastöðum, 2-3 kílómetra frá
Bolungarvík. Ekki hefur enn ver-
ið hægt að taka skýrslu af mannin-
um og því er ekki vitað um elds-
upptök.
Maðurinn komst af eigin ramm-
leik að íbúðarhúsinu á Geitastöð-
um og gerði viðvart. Kallað var á
slökkviliðið á Bolungarvík klukk-
an 20.30. Þegar að var komið var
mikill eldur. Slökkvistarf gekk
greiðlega, og íbúðarhús sem stend-
ur í námunda við vélaskemmuna
slapp enda stóð vindur af því.
Mikið eignatjón varð í brunan-
gekk að koma fólkinu út úr vélinni.
Þcgar slökkvilið kom á staðinn
voru allir komnir út og byrjað var
á því að tæma cldsneytisgeyma vél-
arinnar. Lögregla lokaði Suður-
götu á móts við Hjarðarhaga, til
þess að halda frá forvitnu fólki.
í fréttatilkynningu scm flugslysa-
nefnd og flugmálastjórn hafa scnt
frá sér segir að ekki sé vitað hvers
vegna ekki tókst að stöðva vélina
áður en hún fór fram af brautinni.
Rannsókn á tildrögum slyssins
heldur áfram.
Árfari er af gerðinni Fokker Fri-
endship og nýlega uppgerður af
Flugleiðum.
Sjá viðtöl við farþega bls 3.
-ES
um. í vélaskemmunni voru geymd-
ar tvær dráttarvélar og tilheyrandi,
tveir bílar og sitthvað fleira. Að
sögn lögreglunnar á Bolungarvík
er þetta allt mcira eða minna
skemmt og jafnvel sum farartækin
ónýt. Tveir af þremur bílum
slökkviliðsins á Bolungarvík
slökktu eldinn og var slökkvistarfi
lokið um klukkan 22. -ES
Fundust
hressir
Sjötíu manns úr hjálparsvcit-
um í Rcykjavík lcituðu í fyrrinótt
og fram á gærdag, aö tvcimur
meðlimum Islenska alpaklúbbs-
ins. Mcnnirnir tvcir scm voru við
æfingar í grennd við Botnssúlur
fundust í skála Alpaklúbbsins, en
þar höfðu þeir leitað skjóls í fyrri
nótt, þcgar þcir sáu að veður var
orðið mjög slæmt.
Beiðni um leit barst frá lög-
rcglu og aðstandendurn fjall-
göngumannanna. Þegar var kall-
að út eftir sérstaklega þjálfuðum
fjallamönnum og mönnum þjálf-
uðum til leitar í snjóflóðum.
Þegar stóðu vonir til þess að
mcnnirnir hefðu komist í skálaog
rættist sú von. Skilyrði til leitar
voru mjög slæm. Krap og skyggni
lítið. Snjóflóðahætta setti svip
sinn á leitina. Útbúnaður
til leitar í snjóflóðum var tekinn
með, bæði hundar og stangir.
Leitarmenn heyrðu drunur í
snjóflóðum á meðan á leit stóð,
og eitt flóð féll skammt frá leitar-
hóp. Allt fór þó vel og þeir Her-
mann Valsson og Stefán Smára-
son fundust í skálanum hréssir.
-ES.