Tíminn - 11.03.1986, Síða 3
Þriðjudagur 11. mars 1986
Tíminn 3
Vélin var hífð upp að framan og ýtf
inn á brautina. Skenundirnar sjást á
vængnum hægra inegin. Hreyfillinn
er skemmdur, og einnig rifnaði
búkurinn, þegar hún dúndraðist nið-
ur eins og sjónvarvottur orðaði það.
Nokkruni mínútum eftir slysið.
Svanhildur Kristjánsdótt ir flugfreyja
komin út, eftir giftusainlcgar björg-
unaraðgcrðir, þar sem allt fór sem
skyldi. Farþcgar töluðii sérstaklega
um hversu vel gekk að tæma vélina.
Mynd: Sverrir.
Litlu munaði að Árfari lenti á olíubíl:
„Þetta valt á sekúndum"
-sagði bílstjórinn
Nokkrum sekúndum munaði
að stórslys _yrði, þar sem Flug-
leiðavélin Árfari fór út í Suður-
götu. Stór olíuflutningabíll hafði
nýverið farið suður Suðurgötu
þegar vélin skall á götuna. Bíll-
inn var tómur, eftir flutninga á
gasolíu, og var á leið að
olíustöðinni í Skerjafirði.
„Ég var kominn fyrir flugvall-
arendann og kominn á móts við
Ingdís Líndal
Jensdóttir
farþegi Árfara:
„Þrýsti
barninu
að mér“
„Ég vissi að eitthvað var að þegar
flugvélin sló af í flugtaki. Það fyrsta
sem ég gerði var að þrífa í barnið og
þrýsta því að mér,“ sagði Ingdís
Líndal Jensdóttir, sem var stödd í
flugvélinni með fjögurra ára gamlan
son sinn Baldur Baldursson. Sá stutti
sagðist bara hafa orðið smávegis
hræddur. „Ég þurfti að stökkva úr
flugvélinni," sagði hann.
„Ég sat aftarlega í vélinni og
heyrði skelli á skelli ofan. f>að var gíf-
urlegur hávaði samfara þessu. Um
leið og ég fann að vélin var stopp,
komst aðeins ein hugsun að og það
var að komast út með barnið. Ég
þreif hann því upp og var líklega
önnur út úr vélinni. Fyrst fór kona
með ungabarn í burðarrúmi. Við
vorum þærfyrstu út úr vélinni. Þegar
ég kom út. þá sá ég hvar við vorum
stödd, og þá fóru taugarnar að láta til
sín taka.
f>að myndaðist aldrei neinn
troðningur. Flestir gerðu það sem í
þeirra valdi stóð. til þess að róa hver
annan. Ég persónulega varhræddust
við að það kviknaði í.“ sagði Ingdís.
-ES.
búðina Skerjaver, þegar ég sé
ílugvélina fara niður á mikilli
ferð og átti von á því að eitthvað
væri að. Ég reikna með að ég
hafi verið síðasti bíll þarna um.
Hefði ég tafist á Hringbrautinni á
leið suðureftir má segja að ég
hefði kannski verið þarna við
endann. í sjálfu sér var þetta
sekúndu spursmál,“ sagði bif-
reiðarstjóri olíubílsins, Harald-
ur Karlsson í samtali viðTímann
í gær. Hann sá að eitthvað var að
vélinni.
„Ég sá að vélin kom eftir
flugbrautinni, og er þá komin í
hallann. Regnveggurinn stóð á
eftir henni og ferðin var gífurleg.
Vélin skalf öll og titraði og nötr-
aði. Það var greinilegt að eitt-
hvað var að. Ég sá að hún ætlaði
ekki í loftið og vissi þá strax að
hún hlyti að fara fram af braut-
inni. Þaðeralvegsérstaktaðvél-
in skyldi ekki lenda á neinu.
Þarna er stöðugt umferð og því
mesta mildi að ekki fór ver.
Þegar ég kom síðan á staðinn
var allt fólkið komið út úr vél-
inni, og greinilegt að það gekk
vel fyrir sig,“ sagði Haraldur.
-ES
Ingibjörg Guðmunds-
dóttir farþegi
Árfara:
„Ég reif
upp burð-
arrúmið“
„Vélin var komin á mikla
ferð, þegar hún var bremsuð
niður. Við héldum að hún myndi
stoppa áður hún færi fram af
brautinni,“ sagði Ingibjörg
Guðmundsdóttir, en hún var á
leið til Þingeyrar með 2ja mán-
aða gamlan son sinn til þcss að láta
skíra hann. Með þeim mæðgin-
um var Garðar Grétarsson einn-
ig frá Þingeyri. Óskírður sonur-
inn lá í burðarrúmi í næstu sæta-
röð við móður sína. „Ég hugsaði
bara um að koma honum út,“
sagði Ingibjörg.
Ingibjörg sagði að fólk hefði
brugðist misjafnlega vel við. Þó
voru flestir rólegir þar til þeir
komust út.
„Flugfreyjan var mjög snögg
að koma fólkinu út,“ sagði
Garðar. Hann benti þó á að hon-
um hefði fundist að slökkviliðið
hefði mátt koma fyrr á vettvang.
„Við vorum komin langleiðina
að innanlandsmóttökunni
þegar slökkviliðið kom.“ -ES
Björgvin Sigur-
jónsson farþegi
- Árfara:
„Það varð
dauðaþögn“
„Ég áttaði mig ekki al-
mcnnilega á því hvað það var
scm gerðist. Vélin var á fullri
keyslu og síðan sló hún allt í
einu af og flugstjórinn reyndi
greinilega að stoppa vélina.
Nokkrum sekúndum síðar
var ég kominn út úr vélinni.
Þctta gerðist allt mjög snögg-
lega,“ sagði Björgvin Sigur-
jónsson, en hann sat í einu af
öftustu sætunum í Árfara.
Björgvin var á leið til Tálkna-
fjarðar.
„Einhversstaðar um miðja
brautina fór flugstjórinn að
hemla. Slegið var af hreyflun-
um ogsíðan hemlað. Vélin var
orðin svo að segja kyrr við
brautarenda, og höggið sem
kom þá var næstum ekki
neitt. Eftir að vélin hafði
staðnæmst varð dauða þögn.
Hún varaði þó ekki lengi því
fljótlega barst skipun frá flug-
freyjunni um það að fólk ætti
að forða sér út úr vélinni,“
sagði Björgvin. Hann sagði
að greinilegt hcfði verið að
fólk hefði ekki náð því að
verða hrætt, þar sem atburð-
irnir gerðust svo hratt. Hann
nefndi einnig það að flestir
hefðu haldið stillingu sinni og
fólk hvatt hvert annað til þess
að vera rólegt. -ES
Félagsfundur
hjá
blaðamönnum
Félagsfundur verður í Blaða-
mannafélagi íslands kl. 17.00 í
dag á Hótel Borg. Fundarefni er
samningamálin.
Ingdís og Baldur. Hann var bara smávegis hræddur þegar flugvélin stopp-
aði. Mvnd: Sverrír.
Ingibjörg Guðmundsdóttir með óskírðan 2ja mánáfta son sinn. Við hlið
hennar situr Garðar Grétarsson. Þau biðu meðan verið var að kanna skil-
yrði til flugs. Mynd: Svcrrir