Tíminn - 11.03.1986, Side 16

Tíminn - 11.03.1986, Side 16
1 Sykurlausar Iv© MM 8 mtm % ú' t!. ", ■/, 11 Hálstöflur HETJUR ÍSLANDS , handknattleiksliðiö sem hafnaði í sjötta sæti á HM í Sviss, kom heim aðfaranótt sunnudags. Mikið var um blóm og bros er liðið steig á íslenska grund. Eiginkonur leikmanna svo og forráðamenn ISÍ voru mættir til að fagna leikmönnunum. Júgóslavar urðu að lokum heimsmeistarar eftir sigur á Ung- verjum. T Tíminn Þriðjúdagur 11. mars 1986 Klofningur í Alþýðubandalaginu Fjórar forystukonur segja sig úr f lokknum vantraust á verkalýðsforystuna Formaður og jirír aðrir stjórnarmenn í vcrkalýðs- málaráði Alþýðubandalagsins hafa sagt af scr öllum trúnaðar- störfum á vcguni flokksins um lcið og þeir gcngu úr honum. Þctta cru þær Bjarnfríður Leósdóttir formaður verkalýðsmálaráðs, Margrct Pála Ólafsdóttir, Stclla Hauks- dóttir og Dagbjört Sigurðar- dóttir. Úrsögn þessara kvcnna atti scr stað á fundi verkalýðs- málaráðs í fyrrakvöld og í álits- gcrð scm fylgdi úrsögninni scg- ir m.a. að mcð þcssu scu þær að lýsa vantrausti á vcrkalýðsfor- ystuna, scm sc lcidd af Alþýðu- bandalagsmönnum mcð af- dráttarlausum stuðningi flokksforystunnar. Þá scgir að hugmyndir vcrkalýðsmálaráðs scm kynntar hafi verið í æðstu stofnunum flokksins hafi vcrið samþykktar mótmælalaust, cn síðan sniðgcngnar í öllum atr- iðum og ónýttar af þcint scm cnn halda völdum í flokknum. Bjarnfríður Lcósdóttir sagði í samtali við Tímann í gær að það hafi verið dæmigert á þcss- um fundi í fyrrakvöld að eftir að þær höfðu gengið úr flokkn- um og búast hefði mátt við að fundurinn gæti haldið áfram, hefði ekki fengist ræddur dagskrárliðurinn um kjaramál. Forystan hefði komið í veg fyr- ir það með dagskrártillögu og að þetta væri í annað skipti á stuttum tíma, sem ekki væri hægt að ræða um kjaramál í flokknum. Bjarnfríður sagðist ekki vera í minnsta vafa um að fólk almennt, ekki síst konur, væri, „hundóánægt með þessa samn- inga“ og þeir væru lítil bót fyrir þá sem ekki hefðu notið launa- skriðs. „Hins vegar veit fólk ekki hvert það á að snúa sér,“ sagði Bjarnfríður ennfremur „það treystir ekki þessari for- ystu til nokkurs hlutar, og því stendur það eftir háif munaðar- laust," sagði hún. -BG. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var laugardaginn 8. mars, og af því tilefni efndu kvennasamtök til göngu frá Hljómskála í Hlaðvarpann, kvennahúsin við Vesturgötu, og þar var haldinn sérstakur baráttufundur. Þessi mynd var tekin í Hlaðvarpanum á laugardaginn og sést þar hluti fundargesta. Tímam.vnd: Svemr Tollar af bílum lækka enn frekar Lög um frekari tollalækkanir á bifreiðum voru samþykkt sem lög frá Alþingi í gær, eftir að frumvarpinu hafði verið hraðað í gegnum báðar deildir þingsins mótatkvæðalaust. Porsteinn Pálsson fjármálaráð- herra mælti fyrir frumvarpinu, sem er fram komið vegna þess að tollabreytingarnar sem gerðar voru um daginn í kjölfar kjarasamninganna reyndust ekki ná fram tilætluðum áhrif- um á framfærsluvísitöluna. Ætlunin var að minni fólksbílar lækkuðu um a.m.k. 30% og hefðu þau áhrif á framfærslu- vísitöluna að hún lækkaði uni 1,5%. í því skyni voru tollar al- mennt lækkaðir niður í 30% úr 70% jafnframt því að bifreiða- gjald var fellt niður af minnstu bifreiðum. Hins vegar kom í Ijós við endurskoðaða útreikninga að þessar aðgerðir dugðu ekki og að nauðsynlegt er að lækka tolla á bifreiðum niður í 10% og breyta álagningu bifreiða- gjalds þannig að það leggist á í 7 liðum á bilinu 0%-32%, sem fer stighækkandi eftir stærð bifreiðarinnar. Lögin gilda frá ogmeðl.mars. _BG Eyjafjöll: Aurskriða lokaði þjóð- veginum Rúmlega 50 metra breið aur og grjótskriða féll á þjóðveginn við Steina undir Eyjafjöllum í gærmorgun og lokaði veginum. Engin umferð var um veginn þegar skriðan féll. Vegagerð ríkis- ins á Hvolsvelli opnaði veg- innafturum kl. 14.30 ígær. Mjög mikið vatnsveður var undir Fjöllunum í fyrra- kvöld og nótt og féll skriðan úr hlíðinni fyrir ofan Steina um kl. 9.15 ígærmorgun. Þá höfðu mjólkurbílar nýfarið þar framhjá á austurleið. Stóreflis bjarg barst með skriðunni og stöðvaðist það í vegkantinum. , Vegagerðin notaði veg- hefil og jarðýtu til að opna veginn. Vegurinn skemmd- ist ekki að ráði. -GSH Listi Framsóknarflokksins á Akureyri: SigurðurogÚlf- hildur efst Sigurður Jóhannesson bæjarfulltrúi fékk yfirgnæf- andi kosningu í 1. sæti lista Framsóknarflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri, og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir bæjarfulL trúi fékk svipað fylgi í 2. sæti listans, í prófkjöri flokksins á Akureyri sem fór þannig fram að kosið var í hvert sæti listans fyrir sig koll af kolli frá því fyrsta í það átt- unda. í 3. sæti var Ásgeir Arn- grímsson útgerðartæknir, 4. sæti Kolbrún Pormóðsdóttir kennari, í 5. sæti Þórarinn Sveinsson mjólkurbús- stjóri, í 6. sæti Unnur Pét- ursdóttir iðnverkamaður, í 7. sæti Sigfús Karlsson bankamaður og í 8. sæti Ár- sæll Magnússon umdæmisr stjóri Pósts og síma. Kjörið var bindandi fyrir fyrstu átta- sætin. Framsóknarmenn 'eiga nú þrjá bæjarfulltrúa á Akur- eyri. Einn þeirra, Jón Sig- urðsson, gaf ekki kost á sér til næsta kjörtímabils. Hia Guðmundur Fylkisson lögreglumaður á (safirði: Heiðraður fyrir björgunarafrek Lögreglufélag Vestfjarða heiðraði Guðmund Fylkisson, liðlega tvítugan lögregluþjón á ísafirði, fyrir hetjulega björgun á tveimur stúlkubörnum í elds- voða fyrir rúmri viku. Guðmundur, sem hefur fengið tilsögn í reykköfun var hjá slökkviliðinu áður en hann gekk til liðs við lögregluna. Nú hefur hann silfurskjöld uppi á vegg hjá sér, þar sem honum er þakkað líf stúlknanna tveggja. En hvað segir Guðmundur um þessa viðurkenningu? „Petta er óneitanlega mikill heiður. Ég verð að viðurkenna það að sporin sem ég hef tekið síðustu dagana hafa verið létt- ari en áður.“ Annars vildi hann gera lítið úr björgunarafreki sínu og sagði að hann hefði ein- faldlega verið réttur maður á réttum stað á réttum tíma. „Við vorum staddir í nokk- urri fjarlægð frá staðnum þar sem kviknaði í. Við ókum þangað í dauðans ofboði og á meðan þá fór ég úr helstu ein- kennisklæðum því ég gerði mér ljóst að ég þyrfti jafnvel að fara inn. Þegar við komum á stað- inn var slökkviliðið að renna upp að húsinu. Ég setti á mig grímuna, og þeir byrjuðu að sprauta inn um útidyrnar. Ég fór inn við annan mann og við leituðum samkvæmt því sem okkur er kennt. Stúlkurnar tvær fundust. Ég held mér sé óhætt að segja að það hafi skipt sekúndum um líf þeirra," sagði Guðmundur. Félagar Guðmundar í lög- reglunni sögðu hann vel að þessum verðlaunum kominn og hefði unnið fyrir þeim, áður umrætt kvöld. -ES ísafjörður: Kveikti í óviljandi Kveikt var í mannlausu húsi við Mjógötu 7a á fsa- firði um klukkan eitt aðfara- nótt laugardags. Húsið er mjög illa farið eftir eldsvoð- ann. Óskar Sigurðsson rann- sóknarlögreglumaður á ísa- firði sagði í samtali við Tím- ann í gær að eldsupptök væru kunn. „Þau eru að 24ra ára gamall ísfirðingur fór í heimildarleysi inn í húsið. Hann hefur við yfir- heyrslur viðurkennt að hafa óviljandi orðið valdur að eldsupptökum. Þá hefur komið fram við rannsókn málsins að sá hinn sami revndi að slökkva eldinn en tókst ekki og þá gerði hann viðvart um eldinn," sagði Óskar. -ES

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.