Tíminn - 08.04.1986, Qupperneq 1
f ^ ^ STOFNAÐUR1917
1111111111
R
Jjf n,
í
RAUSTIR
MENN
25050
senDiBiLBSTöDin
HELGI ÓLAFSSON var efstur á
New York skákmótinu ásamt sex öörum fyrir
síöustu umferðina sem tefld var seint í
gærkvöld Helgi var meö sex vinninga af átta
mögulegum. Hann tefldi viö júgóslavneska
stórmeistarann Durbic. Jón L. og Margeir
voru meö fimm vinninga fyrir níundu og
síðustu umferðina og Karl Þorsteins var með
4,5 vinninga. Úrslit lágu ekki Ijós fyrir þegar
Tíminn fór í prentun seint í gærkvöldi.
FORSETAR ALÞINQiS og for-
menn þingf lokka hafa lagt fram þingsályktun-
artillögu þar sem gert er ráö fyrir aö þingfor-
setunum veröi faliö að athuga meö hvaða
hætti Alþingi muni minnast þúsund ára
afmælis kristnitöku á íslandi. Gert er ráð fyrir
aö þjóökirkjan og Alþingi muni sameinast um
þjóöhátið af þessu tilefni árið 2000 og segir
m.a. í greinargerð með tillögunni aö þingfor-
setar skuli eiga sameiginlega viðræöufundi
til undirbúnings meö kristnitökunefnd þjóð-
kirkjunnar.
STROKUFANGI af Litla-Hrauni
náðist, eftir skamma útivist af Hrauninu
aðfaranótt sunnudags. Fanginn kom labb-
andi upp á Selfoss, þar sem lögregla náði
honum tveimur tímum eftir aö tilkynnt var um
strok hans. Það var klukkan 6.25 á sunnu-
dagsmorgun, sem hann náðist.
INNBROTSÞJÓFAR heimsóttu
sparisjóðinn á Flateyri um helgina. Einnig
var brotist inn í kaupfélagið. Rannsóknarlög-
reglan vinnur að rannsókn málsins. Ekki
hefur enn tekist að hafa upp á þeim sem
frömdu innbrotin. Að sögn Öskars Sigurðs-
sonar rannsóknarlögreglumanns á Isafirði
var litlu stolið í innbrotunum, en talsverðar
skemmdir voru unnar á húsnæðinu.
EDWARD DERWINSKI, sér-
stakur ráðunautur utanríkisráðuneytis
Bandaríkjanna, er væntanlegur til Islands í
lok mánaðarins og mun hann hafa meðferðis
nýjar tillögur bandarískra stjórnvalda um
lausn hins svo nefnda Rainbow-máls, vegna
vöruflutninga varnarliðsins til og frá íslandi.
Matthías Á. Matthiesen utanríkisráðherra
ritaði George P. Schultz bréf fyrr í þessum
mánuði, þar sem þess var farið á leit að
hraðað yrði aðgerðum í Rainbow-málinu.
HORNSTEINN VERÐUR
LAGÐUR að nýja Seðlabankahúsinu
þann 6. maí n.k. Gert er ráð fyrir að
Reiknistofa bankanna flytji starfsemi sína í
nýbygginguna í lok apríl og vonast er til að
Seðalbankirt'n og Þjóðhagsstofnun geti flutt
um næstu áramót. Höggmyndasýning verður
opnuð í húsinu er hornsteinninn hefur verið
lagður og mun hún standa í nokkra daga.
Þess má geta að Seðlabankinn er 25 ára
gamall um þessar mundir.
ÓHÁÐ stofnun í Suður-Afríku sem hefur
með samskipti kynþátta að gera gaf út
tilkynningu í gær þar sem 171 maður var
sagður hafa látið lífið í kynþátttaátökum í
marsmánuði. Það gerir mars að versta,
mánuðinum í þessu sambandi síðan núver-
andi óeirðir og átök hófust í landinu fyrir
rúmum tveimur árum.
SOVÉTRÍKIN OG KÍNA áttu
mikil viðskipti saman á síðasta ári og reyndar
jukust viðskipti ríkjanna tveggja um 64% frá
árinu 1984. Sovétmenn seldu Kínverjum
olíuafurðir, járn, stál og timbur en Kínverjar
seldu kjöt, áxexti, te og ull í massavís til
Sovétríkjanna.
KRUMMI
„Þau virðast vera
mislöng þessi helg-
arfrí þarna á Hraun-
inu....“
Tímamynd: Sverrír.
Flugvélarflakið í Ljósufjöllurn. Einungis tveir af sjö manns sem voru með
vélinni komust lífs af. A innfelldu myndinni sést hvar komið er með hina
slösuðu frá Stykkishólmi. Báðir mennirnir eru enn á gjörgæsludeild, en
taldir Úr iífshættu. Tímamynd: Friftþjófur.
Flugslysiö í Ljósufjöllum:
\*r
Tveirkomustlífsaf
- fimm manns létust þegar TF-ORM fórst
Tveir komust lífs af, en fimm
létust þegar TF-ORM af gerðinni
Piper Aztec vél Arna frá ísafirði
fórst í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi'
skömmu eftir hádegi á laugardag.
Mennirnir tveir sem komust lífs af
dvöldu enn á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans í gærkvöldi, en voru
taldir úr lífshættu.
TF-ORM lagði af stað frá ísa-
firði áleiðis til Reykjavíkur um
hádegisbilið á laugardag. Flogið
var blindflug. Síðast heyrðist frá
vélinni klukkan 13:19 þegar haft
var s^mband við flugstjórn í Stykk-
ishólmi. Þar fékk flugmaður leyfi
til þess að lækka sig niður í lág-
marks flughæð - fimm þúsund fet.
Þegar vélin svaraði ekki kalli að-
flugsstjórnar í Reykjavík, eftir að
vera horfin af radar, var leit þegar
undirbúin. Vél flugmálastjórnar
fór strax í loftið og heyrði í neyðar-
sendi vélarinnar klukkan 14:29. Þá
tókst að miða út vélina og reyndist
sú staðarákvörðun vera rétt.
Björgunarsveitir víðsvegar að af
Snæfellsnesi gerðu sig klárar til
þess að fara til leitar, fótgangandi,
á vélsleðum og snjóbílum. Þyrlur
Landhelgisgæslunnar og varnarliðs-
ins freistuðu þess strax í byrjun að
komast að flakinu en það reyndist
ógerningur. Þyrlurnar voru hafðar
til taks, ef veður skyldi batna.
Björgunarsveitarmenn sem lögðu
á fjallið urðu margir hverjir frá að
hverfa vegna erfiðra aðstæðna. í
verstu hryðjunum komst vindhæð-
in í tólf stig og voru miklir svipti-
vindar í fjöllunum. Vatnsaginn var
mikill og snjór blautur og erfiður
yfirferðar.
Leiddar hafa verið líkur að því
að einmitt þetta slæma veður hafi
orsakað flugslysið. Harðir svipti-'
vindar, mikil ísing og niðurstreymi
af fjöllum geta hæglega hafa skap-
að þær aðstæður sem gerðu flug
illmögulegt á þessum slóðum.
þessum slóðum.
Það voru meðlimir úr Flugbjörg-
unarsveitinni í Reykjavík sem
fyrstir brutust upp að flakinu. Þá
var lífsmark mcð þremur mann-
eskjum. Þau vóru flutt niður fjallið
í snjóbíl, og tók þyrlaLandhelgis-
gæslunnar við sjúklingunum og
flutti áleiðis til flugvallarins í
Stykkishólmi þar sem TF-GTO
flutti þau til Reykjavíkur. Einn
sjúklingurinn lést í flutningunum.'
Níu klukkustundir liðu frá því
að slysið varð, og þar til fyrstu
björgunarmenn komu á staðinn.
Það er samdóma álit þeirra björg-
unaraðila sem Tíminn ræddi við að
það hefði ekki staðið í mannlegu
valdi að stytta þann tíma.
Rannsóknarnefnd flugslysa fór á
slysstaðinn á sunnudag. Þar fór
fram frumrannsókn á flakinu, en
síðan forðuðu menn sér af fjallinu -
sökum snjóflóðahættu. Ekki varð
ljóst að um sjóflóðahættu var að
ræða fyrr en undir morgun á sunnu-
dag, og höfðu þá tugir leitarmanna
verið fótgangandi í fjöllunum. Alls
voru hundruð manna við leitina
þegar hún stóð sem hæst.
Talsverður tími mun líða þar til
rannsóknarnefnd flugslysa mun
télja flakið fullrannsakað. ■
Flugslysiö:
Nöf n f arþega
Þessi létust:
Sigurður Auðunsson hagræð-
ingarráðunautur, 57 ára gamall
til heimilis að Efrahvoli í Mos-
fellssveit. Hann lætur eftir sig
konu og þrjú uppkomin börn.
Kristján Sigurðsson bóndi að
Ármúla við ísafjarðardjúp.
Kristján lætur eftir sig konu og
sexbörn. Hann var49áragamall.
Smári Ferdinandsson flugmað-
ur 35 ára, til heimilis að Hjalla-
braut 35 Kópavogi. Hann lætur
eftir sig unnustu.
Auður Albertsdóttir 28 ára
gömul til heimilis að ísafjarðar-
vegi 4 Hnífsdal og dóttir hennar
Erla Björk Pálmarsdóttir sem var
eins árs gömul. Auður var kona
Pálmars Gunnarssonar sem
komst lífs af úr flugslysinu. Auð
ur lætur eftir sig mann og fjögurra
ára gamla dóttur.
Þessir komust af:
Kristján Guðmundsson sjó-
maður frá Bolungarvík og Pálmar
Gunnarsson lögreglumaður á ísa-
firði. Þeir eru báðir úr lífshættu.
-ES
-ES