Tíminn - 08.04.1986, Side 4
4 Tíminn
Það er skiljanlegt að Liv Ullmann
kunni ekki alveg að meta lcikhús-
siði sumra í Bandaríkjunum.
Liv
Ullmann
og bandarískir
leikhúsgestir
Það er ekki alltaf tekið út með
sitjandi sældinni að vera leik-
stjarna. Scrstaklega ku það geta
reynt á þolrifin í Bandaríkjunum,
þar sem leikhúsgestir eru ekki
alltaf að einbeita sér að því að sýna
á sér sína bestu hlið.
Liv Ullmann hefur reynslu af
erfiðum leikhúsgestum þar í landi
og hefur eftirfarandi að segja:
„Sennilega eru crfiðustu leikhús-
gestirnir þeir sem haldnir eru
„baseball“ æði. Þeir koma í
leikhúsið með ferðaútvarps- og
sjónvarpstæki og sitja og hlusta og
horfa á leikina á meðan á leiksýn-
ingu stendur. Aðeins öðru hverju
líta þeir á það sem er að gerast á
sviðinu.
Sjálfsagt eiga leikararnir að sýna
þeim umburðarlyndi, en ég verð
að viðurkenna að ég kann ekki að
meta þessa samkeppni,“
„Lofaðu
okkur
aðsjá
kjólinn
þinn!“
hrópuðu
aðdáendur
Diahann
Carroll
Þegar Dynasty-stjarnan Diah-
ann Carroll kom til hátíðarinnar
sent haldin var í sambandi við
úthlutun sjónvarpsverðlaunanna
„Goldan Globe Awards“ í Holly-
wood var mannfjöldi samansafnað-
ur á strætinu fyrir utan til að sjá
leikarana augliti til auglitis.
Hin fagra, þeldökka Diahann
Carroll hefur um tíma komið fram
í sjónvarpsþáttunum Dynasty og
áunnið sér mikla frægð og vinsældir
hjá áhorfendum. Hún birtist þarna
í silkifóðraðri loðkápu, hin glæsi-
legasta. En áhorfendur á götunni
voru ekki ánægðir með það, heldur
hrcípuðu: „Lofaðu okkur að sjá
kjólinn þinn!" Og það stóð ekki á
því hiá leikkonunni, - hún svipti
frá sér pelsinum og æpti: „Hvernig
líst ykkur á? Er hann ekki algjört
æði!“ Henni var klappað lof í lófa
og aðdáunarhróp heyrðust frá
áhorfendum.
Elton John á tveggja ára brúökaupsafmælinu:
„Ég er svo hamingjusamur
í göngutúr í hversdagsfötunum,
brosandi og leiðast eins og ást-
fangnir unglingar.
Hamingjan vex sífellt, þetta er dá-
samlcgt, segir söngvarinn lukku-
legur. Það er aðeins eitt sem
vantar, - harnið.
Er ekki kjóllinn minn algjört æði?!
Við Renata erum lukkulegri meö hverjum deginum sem líður!“
Kcnata og Elton John giltu sig í Sldney í Ástralíu á St. Valentine-dag fyrir
2 árum. Brúðguminn er mað stráhatt með hleikum borða í stíl við
þverslaufuna, en lianii sést sjaldan berhöfðaður.
Elton John hefur samið lög og
texta og sungið sjálfur um árabil.
Lögin hans hafa vcrið urn allt
mögulegt sem kemur fyrir í lífi
ungs manns, - allt frá því hann var
feiminn unglingur, lög um einmana-
leikann, þegar liann varð lyrst
ástfanginn ogörvæntingu hans þeg-
;ir allt fóru út um þúfur í ástamál-
unum.
En þeir scm best þekkja til segja
aðþaðsé stóreyða í tilfinningaann-
álinn hjá tónskáldinu: Hann hcfur
aldrci sungið um það, að vera
l'aðir, aldrci vögguvísu cða sungið
um lítil börn.
Þrátt t'yrir velgengni, auðæfi,
stórhýsi víða um heintinn, lúxus-
bíla og ferðalög urn hciminn, þá sé
Elton enn að bíöa cltir því sem
myndi gera lífið fullkomlcga ham-
ingjuríkt, - barni. - Ég vona að sú
ósk rætist bráðlega, segir Elton.
l-yrir tveimur árum gift ust Elton
John og Renata Blauel. Þau gil'tu
sig á St. Valentine-daginn og rom-
antíkinn var allsráðandi. Sumir
spáðu nú að glansinn færi fljótt al
þessu poppara-hjónabandi en þaðer
nú eitthvað annað. Þau eru alltal'
saman, ástangin upp yfir haus og
glöð og ánægð. Þau bíða enn eftir
að óskin um barn -eða börn rætist.
„Ég vil fara að hægja á mér, og ég
þrái aö eignast fjölskyldu. Ég er
'svo mikill fjölskyldumaður í mér,
það er alvcg satl," sagði Elton
nýlega í blaðaviötali í Englandi.
Elton Joltn hafði orð á sér áður
l'yrir skrautlcgt ástalíf með ástvin-
um af báðum kynjum, og hann var
oröinn .16 ára þegaf hann hitti
Renötu og varð ástlanginn af
henni. - Ég hafði áður engan
áltuga á að gifta mig, ég Itafði
aldrei orðið svona ástfanginn áður,
svo einfalt er þaö, ságöi hann.
Það var stórkostleg veisla og
vinir og popp-músíkantar komu
víðs vegar að til að óska til ham-
ingju. en aðrir sendu gjafir cða
skeyti, svo sem Miehael Jaekson
og Yoko Ono o.fl.
Elton John hefur frá unglingsár-
um veriö aðdáandi Watford fót-
boltalélagsins, og hann hefur lagt
mikla peninga í að styðja l'élagið.
I lann hefur mikið lagt sig Iram við
að vinna aö líknarmálum. svo sem
Live Aid með Bob Gcldof. Elton
er í uppáhaldi hjá brcsku konungs-
fjölskyldunni, einkum Margaret
prinsessu. Hann hefurkynnst mörgu
merkisfólki, t.d. í Póllandi er hann
var þar á tónleikaferð, reyndi hann
að hal'a uppi á Lech Walesa leið-
toga í Irjálsu vcrkalýðshreyfing-
unni og óska honum góðs gengis og
það var alvarlegur Elton John sem
kom til hádegisveröar hjá l'orsætis-
ráðherranum Margaret Thatcher,
en hvað þau ræddu lylgir ekki
sögunni.
Þriöjudagur 8. apríl 1986
llillllli ÚTLÖND llllilll
FRETTAYFIRLIT
TEL AVIV — Talsmaður
ísraelshers sagði flugsveitir
hafa gert árás á tvær flótta-
mannabúðir í Suður-Líbanon
þar sem skæruliðar Palestínu-
araba leyndust. Hann sagði
allar ísraelsku flugvélarnar
hafa komið heilar útúr árásar-
ferðinni og flugmennirnir sögð-
ust hafa hitt skotmörkin.
PANAMABORG - Utan-
ríkisráðherrar ríkja Rómönsku
Ameríku héldu friðarviðræðum
sínum áfram í allan gærdag.
Viðræðurnar snérust um átök-
in í Mið-Ameríku en i gær var
varað við að færu viðræðurnar
út um þúfur væri vonlaust að
finna friðsama lausn á deilun-
um í Mið-Ameríku.
LUNDÚNIR - Verð á
Norðursjávarolíu hækkaði enn
í gær á Evrópumörkuðum eða
um dollar hver tunna. Hækkun-
in fylgir í kjölfar spár sérfræð-
inga sem sögðu deilur þær,
sem valdið hafa stöðvun á
olíuframleiðslu Norómanna,
geta átt eftir að standa yfir
næstu vikurnar.
DHAHRAN, Saudi-Ar-
abía — George Bush vara-
forseti Bandaríkjanna lýsti yfir
við lok heimsóknar sinnar til
þessa mesta olíuútflutnings-
ríkis heims að stöðugt
olíuverð væri Bandaríkjunum í
hag.
MANILA — Salvador Laurel
varaforseti Filippseyja sagði
það vel mögulegt að Ferdinand
Marcos fengi að snúa aftur til
landsins þegar meiri festa væri
komin í stjórnmálaástandið í
landinu.
JERÚSALEM — Háttsettur
ísraelskur leyniþjónustumaður
sagði stjórnvöld sín gruna líb-
ýska aðila um að hafa staðið á
bak við sprengingu þá sem
gerði gat á bandarísku flugvél-
ina yfir Grikklandi. Hann sagði
sýrlensk stjórnvöld einnig hafa
vitað um málið.
ISTAMABAD — Afganskir
skæruliðar hófu í gær gagn-
sókn á hendur herjum kom-
múnista sem ráðist höfðu á
aðalbækistöð skæruliðanna,
hina svokölluðu Zhawarstöð.
Mannfall í liði skæruliðanna
var þó mikið.
VESTUR-BERLÍN -Hel-
mut Kohl kanslari V-Þýska-
lands og hinn kristilegi demó-
krataflokkur hans urðu fyrir enn
einu áfallinu þegar tveir ráð-
herrar í stjórn Vestur-Berlínar
sögðu af sér vegna tveggja
aðskilinna mútumála.
AÞENA — Vinna lagðist nið-
ur í Grikklandi í gær en þá
mótmæltu tugir þúsunda
manna hinum nýju efnahags-
aðgerðum ríkisstjórnarinnar.