Tíminn - 23.05.1986, Page 7
Föstudagur 23. maí 1986
Tíminn 7
Séð yfir land Skógræktar ríkisins í Fossvogi. Fossvogsbraut nivndi liggja þvert í gegnum það og stofna framtíð Skógræktarinnar á þessum stað í óvissu.
FOSSVOGSDALURINN
- einstætt útivistarsvæði
„Ég hef stundum sagt. að svæðið
frá Öskjuhlíð sunnanverðri og
Fossvogsdalurinn að Elliðaárdal sé
annað lunga Reykjavíkurborgar.
Hitt lungað er þá Elliðaárdalurinn
og Laugardalurinn og svæðið þar
á milli. “ Þetta sagði Einar Egilsson
formaður Náttúruverndarfélags
Suð-Vesturlands er Tíminn ræddi
við hann um Fossvogsdalinn og
verndun hans, með tilliti til hinnar
umdeildu Fossvogsbrautar, sem
samkvæmt skipulagsdrögum fyrir
Reykjavíkurborg á að liggja þvert
í gegnum hina mjóu landspildu
eftir endilögnum Fossvogsdal.
Bæjarstjórn Kópavogs hefur hins
vegar einróma lagst gegn öllum
hugmyndum um Fossvogsbraut, en
hluti brautarinnar liggur gegnum
lönd og mannvirki Kópavogsbæj-
ar, samkvæmt skipulagsuppdrætti.
Útivistarsvæðin mynda
heildstæða keðju
Einar sagði að vel mætti líta á
útivistarsvæðin í borgarlandinu
sem eina keðju og Fossvogsdalinn,
sem hlekk í þcirri keðju, sem alls
ekki mætti rofna.
„Það eru ekki allir sem gera sér
grein fyrir því hve mikið og stór-
kostlegt útivistarsvæði Reykvík-
ingar eiga. Hugsum okkur að við
hefjum gönguferð við Víkurgarð-
inn í hjarta borgarinnar. Við göng-
um meðfram Tjörninni, gegnum
Hljómskálagarðinn og yfir í
Vatnsmýrina og Scljamýrina aust-
an flugvallarins. Við göngum
Öskjuhlíðina suður í Nauthólsvík,
og síðan með fjörunni sunnan
Oskjuhlíðar. Þegar við höfum
komist yfir Kringlumýrarbrautina
erum við komin í Skógræktarstöð-
ina í Fossvogi. Þegar við höfum
gefið okkur góðan tíma til að
skoða hana höldum við áfram aust-
ur eftir Fossvogsdalnum, þar sem
þegar hafa verið lagðir göngustíg-
ar. Þannig komumst við hindrunar-
lítið alla leið upp í Elliðaárdal.
Við höfum ekki farið um mikið
landrými, en landið sem við höfum
farið um býður upp á alveg ótrú-
Einar Egilsson.
lega fjölbreytni. Vötn, mýrar, mýr-
lendi, mólendi, fjörur og skóg-
lendi. Það er ótrúlegt, að við
skulum eiga aðgang að öllu þessu
mitt í borgarlandinu. Og það er
vert að veita því athygli að það er
stutt inn á þetta svæði úr
íbúðahverfum borgarinnar.
Én við þurfum ekki að Ijúka
gönguokkar í EÍIiðaárdalnum. Við
getum gengið þaðan niður í Elliða-
árvog og yfir í Laugardalinn. Síðan
getum við haldið áfram í Laugar-
nesið og meðfram strandlengjunni
alla leið niður í Grófina. Við
getum meira að segja lagt lykkju á
leið okkar, farið upp Rauðarárstíg-
inn og upp á Miklaíún. Þá erunt við
búin að fara um stærstu opin svæði
borgarinnar og lokað hringnum
þar sem við lögðum upp."
En uppá hvað býður Fossvogs-
dalurinn sjálfur?
Áður er minnst á Skógræktar-
stöðina vestast í dalnum. Þar er
mikið fuglalíf, m.a. er þar mesta
þrasta- og starrabyggö í Norður-
Evrópu. Raunar cr allur dalurinn
viðkomustaður farfugla. Lækur
rennur eftir miðjum dalnum og
heitir Fossvogslækur, en svo sér-
kennilega háttar til að vatnaskil
eru í miðjum dalnum og fellur
lækurinn þaðan bæði vestur í Foss-
vog austur í Elliðaár. Að áliti
Einars mætti hreinsa lækinn og
bæta skilyrði fyrir silung í honum.
Einar bendir á að með því að
halda Fossogsdalnum opnum og
gcfa möguleika á því svæði sem að
ofan var lýst sem útivistarsvæði, sc
verið að friða land, sem sé næsta
einstætt inni í miðri borg. Land-
rými sé ekki mikið, en þeim mun
fjölbreyttara, hvað náttúrufar
snertir og einnig verða á vegi
manna um svæðið merkilegar
mannvistarleifar. Svæðið henti til
útivistar allan ársins hring, þar sé
til dæmis upplagt skíðagöngusvæði
á vetrum.
„Náttúruverndarmenn vonast til
að borgaryfirvöld, arkitcktar og
verkfræðingar svifti ekki borgar-
búa þessu einstæða svæði, heldur
beiti hugviti sínu til að leysa um-
ferðarmál höfuðborgarsvæðisins
án þess að farga Fossvogsdalnum,"
sagði Einar Egilsson.
Séð austur Fossvogsdalinn úr turni Borgarspítalans. Eins og sést á myndinni er aðeins mjó ræma
óbyggð og aðskilur byggðina í Fossvogi og Kópavogi. Fossvogsbraut myndi liggja um hlaðvarpana
í cinbýlishúsabyggðinni neðst í Fossvogi.
Milli Fossvogskirkjugarðsins og sjávarins er gönguleið sem tengir Fossvogsdalinn við Nauthóls-
víkina. Þar er hægt að skapa ákjósanlega aðstöðu til fjöruskoðunar.
Tímamyndir Pétur