Tíminn - 23.05.1986, Qupperneq 10
10 Tíminn
Föstudagur 23. maí 1986
íþróttir 1;: t
Omar Khalifa frá Súdan er nú á leið um heiminn með logandi eld sem tendra
skal stóran kyndill fyrir franian hús SÞ í New York á sunnudaginn. Hann
ferðastá milli heimsborga og víðast hvar taka lciðtogar á móti honum með fé
til handa hungruðum í Afríku.
Nú hlaupa allir með
Afríkuhlaupið verður á sunnudag - Hlaupið um allt land - Uppákomur á Lækjartorgi
Afríkuhlaupið verður haldið á
sunnudaginn 25. maí og hefst það í
Lækjargötu kl. 15.00. Hlaup þetta
er í samvinnu við svokallað Sport
Aid hlaup sem nú stendur yfir um
allan heim og nær hámarki á sunnu-
daginn en þá munu hlauparar koma
að byggingu Sameinuðu þjóðanna í
New York með Bob Geldof, aðal-
forsprakka söfnunarinnar, í farar-
broddi. Á íslandi verður söfnunarfé
notað til að reka barnaheimili í
Eþíópíu sem nú er verið að byggja
fyrir þá peninga sem söfnuðust með
útgáfu plötunnar „Hjálpum þeim“.
Þannig rennur allt fé sem héðan
kemur til íslensks málefnis sem skil-
ar sjáanlegum árangri.
Það verður ekki aðeins í Reykja-
vík sem hlaupið verður þennan dag
heldur verða milli 20 og 30 staðir útá
landi með hlaup og víðast hvar
verða seld merki þau og bolir sem
söfnunin byggir á. Á Akureyri verða
einhverjar uppákomur í göngugöt-
unni fyrir hlaupið og á Þingeyri er
stefnan að alíir hlaupi í bolum
merktum Afríkuhlaupinu.
Það er stefna þeirra sem standa að
hlaupinu hér á landi að sem flestir
taki þátt í því og ef vel tekst til þá
verður ísland hugsanlega það land
sem flestir taka þátt í hlaupinu -
miðað við fólksfjölda að sjálfsögðu.
Svo það er að einhverju að keppa
fyrir utan það að safna peningum
fyrir munaðarlaus börn í Áfríku.
Ýmsar uppákomur munu verða á
Lækjartorgi kl. 13.00 á sunnudaginn
og koma þar fram ýmsar hljómsveitir
og skemmtikraftar aðrir. Hlaupið
sjálft hefst kl. 15.00 eins og áður
segir og geta allir verið með. Ekki er
nauðsynlegt að hlaupa af krafti alla
leið. Mönnum er frjálst að ganga
hluta leiðarinnar en um tvær mis-
munandi vegalengdir verður að
ræða. Fólk er þó hvatt til að vera í
góðum skóm og vera vel klætt.
Aðstaða tii að geyma utanyfirgalla
verður til staðar. Þá er bara að
kaupa merki eða bol og vera með í
hlaupinu á sunnudaginn kemur.
íslandsmótiö 3. deild:
Steindauður leikur
-Ármannog Reynirskildujöfn 1-1 ágervimottunni
Ármenningar og Reynir Sand-
gerði skildu jöfn í fyrsta leiknum í
3. deild íslandsmótsins í knattspyrnu
í gærkvöldi á gervigrasinu í Laugar-
dal. Liðin leika í SÁ-riðli 3. deildar.
Leikurinn, sem var sennilega sá
jafnlélegasti sem spilaður hefur ver-
ið á mottunni, endaði með einu
marki gegn einu. Sandgerðingar
gerðu sjálfsmark er um korter var
eftir af leiknum og Pétur Brynjars-
son jafnaði síðan fyrir þá úr víta-
spyrnu.
írsku landsliðsmennirnir komu til landsins í gær. Þar er valinkunnur maður er í hverju rúmi en við látum lesendur
spreyta sig á myndunum. Tímamynd Pciur
Reykjavíkurleikar í knattspyrnu:
Þriggja liða mót
- írar og Tékkar mæta til leiks - Keppt um Reykjavíkurbikarinn
Um helgina hefjast á Laugardals-
velli svokallaðir Reykjavíkurlcikar í
knattspyrnu. Þrjú landslið keppa á
þessum leikum og eru það lið
Islands, írlands og Tékkóslóvakíu.
Fyrsti leikurinn verður á sunnudag-
inn kemur þann 25. maí og leika þá
íslendingar gegn írum. Hefst leikur-
inn kl. 17:00. Á þriðjudaginn 27.
maí spila síðan írar og Tékkar og
mótinu lýkur síðan á fímmtudaginn
29. maí með leik íslendinga og
Tékka. Báðir síðasttöldu leikirnir
hefjast kl. 19:00.
Knattspyrnusamband íslands
heldur þessa leika í samvinnu við
Reykjavíkurborg í tilefni 200 ára
afmælis borgarinnar. Borgin gefur
fagran grip til keppninnar og veitir
auk þess verðlaunapeninga. Erfyrir-
hugað að Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, veitir verðlaunin að loknum
síðasta leik þann 29. maí.
KSI hefur fengið hingað til lands
enskan dómara að nafni Joe Worrall
og mun hann dæma leiki íslands en
Óli Ólsen mun dæma leik íra og
Tékka. Línuverðir verða íslenskir í
öllum leikjunum.
Þetta verða fyrstu landsleikirnir á
heimavelli undir stjórn hins nýja
landsliðsþjálfara Sigi Held. Það
verður því forvitnilegt að fylgjast
með leikmönnum (slands í keppni
við þessa sterku andstæðinga. Þá er
Ijóst að einhverjir af atvinnumönnum
Islands erlendis munu koma og spila
í öðrum eða báðum landsleikjum.
Má nefna Arnór Guðjónsen, Sigurð
Jónsson, Pétur Pétursson og Sigurð
Grétarsson.
(rarnir koma með lið skipað
þekktum nöfnum úr ensku knatt-
spyrnunni og eru margir þeirra fastir
gestir á sjónvarpsskjám íslendinga
meðan á keppnistímabili enskra
stendur. Tékkneska liðið er ungt að
árum en harðsnúið þrátt fyrir það.
Forsala aðgöngumiða stendur nú
yfir. Miðar eru seldir í versluninni
Torginu Austurstræti og á Akranesi
í versluninni Óðni og í Sportvík í
Keflavík. Verð aðgöngumiða er kr.
550 í stúku, 350 í stæði en 100 fyrir
börn. Þá er hægt að kaupa miða á
alla leikina og eru þeir á sama verði
og á tvo leiki eða 1100 í stúku, 700 í
stæði og 200 fyrir börn. Þess skal
getið að hægt er að nota greiðslukort
við kaup á miðum á Reykjavíkur-
leikana.
Houston Rockets unnu sinn fjórða
sigur í röð á L.A. Lakers í úrslita-
keppni NBA körfuknattleiksdeild-
arinnar í Bandaríkjunum og munu
því mæta Boston Celtics í úrslita-
leikjunum um meistaratitilinn. Liðin
áttust við í fyrrinótt og sigruðu
Houston með 114 stigum gegn 112.
Það var Ralph Sampson sem skoraði
sigurkörfu Rockets á síðustu sek-
úndu leiksins og var það í eina skipti
sem Rockets komust yfir í leiknum.
Þetta var fimmta viðureign félag-
anna en Lakers unnu þá fyrstu.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 1981
sem Lakers eru ekki í úrslitaleikjun-
um en þess má geta að Lakers unnu*
Rockets í fjórum leikjum af fimm í
deildarkeppninni í vetur. Lakers,
drifnir áfram af góðum leik Kareem
Abdul-Jabbar, náðu góðri forystu í
Rummenigge meiddur
Nú er talið víst að Karl-Heinz
Rumenigge missi af fyrsta leik
V-Þjóðverja í HM í knattspyrnu í
Mexíkó vegna meiðsla. Hann á við
meiðsl að stríða í hné þar sem
liðbönd eru rifin.
Önnur hetja í HM, Mexíkaninn
Hugo Sanchez mætti hinsvegar til
æfingar með landsliðinu í gær eftir
þriggja vikna meiðslaerfiðleika í
hné. Er nú nokkuð víst að hann
verður með Mexíkönum í fyrsta leik
þeirra í keppninni.
Fimleikakeppni
I dag verður í íþróttahúsinu Sel-
tjamamesi hópkeppni í fimleikum.
Hefst keppnin kl. 14.00 og koma
fram 14 glæsileg sýningaratriði.
Dómnefnd velur besta hópinn en
áhorfendur velja vinsælasta hópinn.
Puma gefur öll verðlaun í mótinu.
báðum hálfleikjum í leiknum og
höfðu unr tíma 14 stig framyfir
Rockets í þriðja fjórðungi leiksins.
Þá tóku þeir við sér Ralph Sampson
(2,24m) og Akeem „The Dream“
Olajuwon (2,13m) og fóru að saxa
á forskot Lakers. Þegar svo aðeins
fimm mínútur voru eftir af leiknum
voru Olajuwon og Mitch Kupchak
reknir af velli fyrir slagsmál sín á
milli. Þrátt fyrir þetta náðu Houston
að jafna leikinn og skora sigurkörf-
una eins og áður segir. Olajuwon
skoraði 30 stig fyrir Houston en
Sampson gerði 29. Jabbar skoraði 26
fyrir Lakers en Magic Johnson gerði
24. Ekkert fréttist af Pétri Guð-
mundssyni og er sennilega að hann
hafi ekkert spilað.
Þess má geta að íslenska sjónvarp-
ið mun sýna úrslitaleikina eins og
undanfarin ár.
NBA-körfuknattleikurinn:
Lakers úr leik
Houston unnu fimmta leikinn og mæia Boston í úrslitunum
„Draumurinn“ hann Olajuwon treð-
ur hér með tilþrifum. Hann átti
mikinn þátt í sigri Houston á Lakers.
Landsliðshópurinn
Sigfried Held, landsliðsþjálf-
ari, og landsliðsnefnd íslands
hafa valið eftirtalda leikmenn til
þátttöku í landsleikjum íslands
gegn írum og Tékkum á Reykja-
víkurleikunum:
Markverðir: Leikir
Bjarni Sigurdsson, Brann..........11
Fridrik Friöriksson, Fram..........4
Þorsteinn Bjarnason, ÍBK..........28
Varnarmenn:
Viðar Þorkelsson, Fram ............3
Loftur Ólafsson, KR................3
Gunnar Gíslason, KR...............20
Ágúst Már Jónsson, Kr..............3
Ólafur Þórðarson, ÍA...............5
Guðni Bergsson, Val................6
Miðjumenn:
Pétur Ormslev, Fram ..............22
Arnór Guðjónsen, Anderlecht......18
Sigurður Jónsson, Sheff. Wed.......6
Ómar Torfason, Luzern.............20
Guðmundur Þorbjörnsson, Baden . . 36
Framherjar:
Pótur Pétursson, Hercules.........26
Sigurður Grétarsson, Luzern......17
Ragnar Margeirsson, Waterschei . . 18
Guðmundur Steinsson, Fram..........9
Halldór Áskelsson, Þór.............7
Þetta er tiltölulega óreynt lið
enda níu leikmenn með minna en
10 landsleiki. Hinsvegar hafa
margir góða reynslu í deildar-
leikjum og engin ástæða til ann-
ars en að vera bjartsýnn um gengi
liðsins.
Opið-unglingamót
Fyrsta opna unglingamótið fer
fram á Hólmsvelli í Leiru sunnu-
daginn 25.maí og hefst kl. 10.00.
Allir unglingar fæddir 1970 og
síðar hafa heimild til þátttöku í
mótinu. Tekið er við skráningu í
golfskálanum í síma 92-2908 laug-
ardaginn 24. maí frá kl. 11.00 til
kl. 17.00.