Tíminn - 23.05.1986, Side 19

Tíminn - 23.05.1986, Side 19
Föstudagur 23. maí 1986 Tíminn 23 Úr leikritinu í deiglunni eftir Arthur Miller. Hákon Waage og Elfa Gísladóttir takast hér á. Þjóðleikhúsið: I deiglunni, efftir Arthur Miller Á laugardagskvöld sýnir Þjóðleikhúsið leikril Arthurs Millers, í deiglunni, í leikstjórn Gísla Alfreðssonar. Magnað drama um trúarofsóknir, heimsku og hetjulund. Verk sem á sífellt erindi við samtímann og er allt í senn: áminning, aðvörun og spásögn. Með helstu hlutverk fara Hákon Waage, Edda Þórarinsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Erlingur Gíslason, Sigurður Skúlason, Guðrún Gísladóttir og Elfa Gísladóttir. Atriði úr LAND MÍNS FÖÐUR: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Aðalsteinn Bergdal líta hýruin augum hvort á annað. Land míns föður Sýningar á föstudags- og sunnudagskvöld Nú um hclgina verða 134. og I35. sýningar á stríðsárasöngleik Kjartans Ragnarssonar LAND MINS FÖÐUR. LANDIÐ hefur verið sýnt síðan í haust við metaðsókn. Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér miða því aðeins örfáar sýning- ar eru eftir á lcikárinu. Með helstu hlutverk fara Sigrún Edda Björnsdóttir, Helgi Björnsson, Jón Sigur- björnsson, Margrét Hclga Jóhannsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Aðal- steinn Bergdal og Ragnheiður Arnardótt- ir. Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson, tón- list samdi Alli Heimir, leikmynd gerði Steinþór Sigurðsson, búninga Gerla, Jó- hann G. Jóhannsson sér um tónlistar- stjórn, David Williams geröi lýsingu en Ólafía Bjarnleifsdóttir dansa. 1 Jakoli Þór Einarsson og Þorsleinn Gunnarsson í hlutverkuni Eyjólfs prests (á ungaaldri ogsíðará ævinni) og Gísli Rúnar .lónssoní lilutverki sýsluinanns. Þjóðleikhúsið - frumsýning: Helgispjöll í kvöld, föstudagskvöldið 23. maí, frumsýnir Þjóðleikhúsið lcikritið HELGISPJÖLL. eftir breska leikskáldið Peter Nichols, í þýöingu og leikstjórn Benedikts Árnasonar. Leikmynd er eftir Stíg Steinþórsson, búningar eftir Guð- nýju Björk Richards og lýsing í höndum Árna Baldvinssonar. Með helstu hlutverk fara: Róbert Arn- linnsson, Margrét Guðmundsdóttir, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Bessi Bjarnason, Þórunn Magnea Magnúsdótt- ir og Sigurveig Jónsdóttir. Þetta er fyrsta leikrit eftir Peter Nichols, sem sýnt hefur verið hérá landi, en hann er talinn einn athyglisverðasti leikritahöfundur Breta síðustu 20 árin. í Hclgispjöllum fjallar hann uni hjóna- bandið og ástina. Önnur sýning er á sunnudagskvöld. Magnús Tómasson myndlistarmaður og Magnús Skúlason arkitekt eru þátttak- endur fyrir íslands hönd. Sýning í Ásmundarsal: Byggingarlist - myndlist HLIDVIDHLID Nýlega var opnuð í Ásmundarsal sýn- ing á hugmyndasamvinnu myndlislar- manns og arkitekts. Að sýningunni stend- ur Norræna myndlistabandalagið og kynnir samvinnu myndlistarmanns og arkitekts að tillögum á endurbótum á Grimsta, sem er ein af útborgum Stokkhólms. Þátttakendur eru myndlistarmaður og arkitekt frá hverju Norðurlandanna. Frá íslandi sýna Magnús Tómasson myndlist- armaður og Magnús Skúlason arkitekt. Sýningin stendur til 29. maí og er opin daglega kl. 14.00-19.00. Fundur um opinberar listskreytingar með þátttöku fulltrúa myndlistarmanna og arkitekta í Listskreytingasjóði ríkisins verður haldinn 29. maí. Kynntur verður nýr bæklingur með upplýsingum um List- skreytingasjóð ríkisins. Úr vinnustofu Tolla. TOLLI sýnir í Listasafni ASÍ - síðasta sýningarhelgi Málverkasýningu Tolla í Listasafni ASf lýkur nú á sunnudaginn 25. maí. Tolli hefur haldið sex einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Á sýningunni í Listasafni ASf eru 49 málverk. Sýningin er opin virka daga kl. 16.00-20.00 og um helgar kl. 14.00-22.00. Flauta og gítar í Dalvíkurkirkju Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari munu halda tónleika í Dalvíkurkirkju mánudags- kvöldið 26. mai kl. 9. Á efnisskránni er alls konar tónlist, gömul og ný, innlend (eftir Eyþór Þorláksson og Atla Heimi Sveinsson) og erlend, auðmelt og tormelt. Elsta verkið er frá öndverðri 18. öld, það yngsta er samið vorið 1986. Þeir félagar hafa spilað mikið saman síðan þeir komu úr námi fyrir tveimur árum en þetta eru fyrstu sameiginlegu tónleikar þeirra utan Reykjavlkur. Leikfélag Reykjavíkur: Síðustu sýningar leikársins: Svartfugl - 2 sýningar eftir - Á laugardagskvöld verður næstsíðasta sýning á Svartfugli Gunnars Gunnarsson- ar í Ieikgerð Bríetar Héðinsdóttur. Með helstu hlutverk fara: Þorsteinn Gunnars- ■ son. Jakob Þór Einarsson, Sigurður Karlsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Gísli Rúnar Jónsson o.fl. Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir, leik- mynd gerði Steinþór Sigurðsson. tónlist Jón Þórarinsson en David Walters sá um lýsingu. Schubert-tónleikar í Norræna húsinu Laugardaginn 24. maí kl. 16.00 halda Martin Berkofsky og Anna Málfríður Sigurðardóttir sjöttu og síðustu tónleika sína í heildarflutningi á fjórhentum píanóverkum Franz Schuberts. Allur ágóði af tónleikunum rennur til styrktar flygilkaupum fyrir Norræna húsið. Fjölskylduhátíð Kvennalistans Kvennalistinn verður með Fjölskyldu- hátíð í Sóknarsalnum. Skipholti 50A sunnud. 25. maí kl. 14.00. Eitthvað skemmtilegt verður fyrir alla fjölskyld- una, svo sem leikþáttur, söngur, upplest- ur og fl. skemmtiatriði. Fyrir börnin verður leiksmiðja, tónsmiðja og mynd- smiðja. Einnig verða seldar veitingar og blóm. Ávörp flytja Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarfulltrúi og Sigrún Ágústs- dóttir kennari. - Kvennalistinn. Sýning Ole Kortzau í Norræna húsinu Sýning á verkum Ole Kortzau, hins fjölhæfa danska listamanns, verður opn- uð í Norræna húsinu á morgun, laugar- daginn 24. maí kl. 14.00 og stendur hún til 8. júní. Kortzau er arkitekt að mennt, en hefur hlotið frægð og viðurkenningu fyrir grafíklist sína, textílmynstur, postul- ín, silfurmuni og húsgögn. Það er verslunin Epal sem gengst fyrir sýningunni hér. enda hefur hún gert mikið að því að kynna danska listhönnun hér á landi. Sendiherra Dana á Islandi, Hans And- reas Djurhuus mun opna sýninguna og listamaðurinn sjálfur verða viðstaddur. 26 nýirþroskaþjálfar útskrifuðust í vor Föstud. 16. maí voru 26 þroskaþjálfar brautskráðir frá Proskaþjálfaskóla ís- lands að Skipholti 31. Fjölmenni var við athöfnina og heiðraði forseti ísland há- tíðina með nærveru sinni. Ávarp fluttu Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráð- herra og Ingimar Sigurðsson formaður skólastjórnar. Bel Canto kórinn söng undir stjórn Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur. Námstími við skólann er 3 ár og skiptist ár hvert í bóklega og verklega önn. í vetur stunduðu 64 nemendur nám við skólann. 3 fastakennarar eru við skólann. Stundakennarar og gestafyrirlestrar voru alls 32. Útskriftarnemendur fara ár hvert i námsferð til útlanda. í vor verður farið til Boston í Bandaríkjunum. Tilgangur námsferðar er að kynnast málefnum þroskaheftra eftir því sem við verður komið hverju sinni. Nemendur fjár- magna sjálfir ferð sína með ýmiss konar samvinnu. Skólastjóri Þroskaþjálfaskóla Islands er Bryndís Víglundsdóttir. Erla B. Skúladóttir í hlutverki sínu í söngleiknum Blóðbræður. Leikfélag Akureyrar: Blóðbræður allra síðasta sýning Allra síöasta sýning á söngleiknum BLOÐBRÆÐUR hjá Leikfélagi Akur- eyrar vcrður á laugardagskvöld kl. 20.30. Þar með lýkur leikárinu í ár. Félagsstarf aldraðra í Reykjavík Félagsmálastofnun Rcykjavíkurborgar hefur sent út sumardagskrá um félagsstarf aldraðra í borginni: Sumarferöir. orlof, sýningar og utanlandsferðir. Sýningar verða haldnar í 3 félagsmiö- stöðvum og sýndir munir og handavinna sem unnin var þar í vetur í félagsmið- stöðvum aldraðra. Sýningarnar verða dagana .24., 25.. 26., maí, laugard. sunnud. og mánud. í Norðurbrún 1, Lönguhlíð 3 og Furugeröi 1. Ný félagsmiðstöð var nýlega tekin í notkun fyrir íbúa Vesturbæjar í KR- heimilinu við Frostaskjól og verður þar opið hús tvisvar í viku á miðvikudögum og föstudögum. Sumardagskráin verður send öllum íbúum Reykjavíkurborgar 67 ára og eldri. Sumarferðir Neskirkju Til Skotland og um Sprengisand norður í land Ákveðið hefur verið að utanlandsferð- in í ár verði til Skotlands 21. maí. Flogið verður til Glasgow og ekið þaðan til Edinborgar þar sem dvalið verður í nokkra daga. Þá liggur leiðin til Aberdeen en þaðan er ætlunin að fara í skoðunar- ferðir upp í skosku Hálöndin, sem eru margrómuð fyrir einstæða náttúrufegurð. Síðustu dagana er dvalið í Glasgow. Ferðin kostar 34.200 kr. Þeir sem áhuga hafa á að skella sér með verða að skrá sig í síðasta lagi mánudaginn 26. á milli kl. 5-6 í síma 11144. Ferðaáætlunin í innanlandsferðina um miðjan júlímánuð er í stórum dráttum þessi: 1. dagur: Ekið sem leið liggur austur yif ir fjall að Sigöldu og Þórisvatni. Há- degisverður snæddur í Nýja dal. Af Sprengisandi er komið í Bárðardal. Gist- ing á Eddu hótelinu á Stóru-Tjörnum. 2. dagur: Haldið gegnum Vaglaskóg yfir Vaðlaheiði til Akureyrar, þar sem merkir staðir verða skoðaðir. Áfram er svo haldið yfir Öxnadalsheiði til Skagafjarð- ar. Gisting og kvöldverður á hótel Mæli- felli á Sauðárkróki. 3. og 4. dagur: Farið fyrir Skaga til Skagastrandar og Blöndu- óss. Gisting á Edduhótelinu á Húnavöll- um í tvær nætur. Á meðan dvalist er í Húnavatnssýslu verður víða komið við. Ekið um Svínadal, Vatnsdal um Vestur- hóp út Vatnsnes til Hvammstanga, farið út á Heggstaðanes og að Reykjum í Hrútafirði. 5. dagur: Ekið um Blöndudal suður Kjöl. Hádegisverður á Hveravöll- um. Komið að Gullfossi og Geysi og Lyngdalsheiðin farin til Þingvalla í leið- inni til baka til Reykjavíkur. Ferðin kostar 12.800 kr. og er allt innifalið: akstur, gisting á hótelum matur og kaffi. Skráning hjá kirkjuverði í síma 16783 á milli kl. 5-6 alla virka daga. Frank M. Halldórsson, sóknarprestur. Ásta Sigurðardóttir í Tímariti Máls og menningar Tímarit Máls og menningar 2. hefti 1986 er nýkomið út. Á forsíðu þess er litrík mynd af spaðadrottningu, ogdrottn- ingarnar tvær á spilinu eru rammíslenskar galdrakonur - þær Höfðubrekku-Jóka og Straumfjarðar-Halla. Þetta er úr spilum sem Ásta Sigurðardóttir listakona lét eftir sig, en eru enn óútgefin. ( heftinu eru tvær greinar um skáldskap Ástu, eftir Matthías Viðar Sæmundsson og Dagnýju Kristjánsdóttur. Auk þess segir Stein- grímur Sigurðsson frá kynnum sínum af skáldkonunni. I ritinu er áður óbirt ræða eftir Kristján E. Andrésson, sem hann mun hafa haldið á framhaldsstofnfundi Félags byltingar- sinnaðra rithöfunda 1933, og finnst í handritasafni hans. Mörg Ijóð eftir ís- lcnska höfunda eru í ritinu. Formviljinn heitir grein Guðmundar Andra Thorsson- ar, en þar fjallar hann um frumsamdar íslenskar skáldsögur sl. árs. Ingunn Þóra Magnúsdóttir segir frá Málfríði Einars- dóttur og sauma hennar í stramma: Um strammaskáldskap Málfríðar. Fleiri greinar eru í ritinu og einnig ritdómar. Pétur Gunnarsson ritar ádrepu um menn- ingararfinn. Ritstjóri er Silja Aðalsteinsdóttir. Pennavinur í Englandi Okkur hefur borist bréf frá fertugum manni í Reading í Englandi. sem hefur mikinn áhuga á fslandi og öllu sem íslenskt er. Hann hefur hug á að hefja bréfaskipti við Islending hið fyrsta og hér kemur nafn hans og heimilisfang. Mr. M. Wise, 141 Elgar Road, Reading, Berkshire RG2ODH England Húnvetningafélagið Aðalfundur Húnvetningafélagsins í Reykjavík verður haldinn sunnud. 25. maí kl. 14.00 í Skeifunni 17 (Ford-hús- inu). Venjuleg aðalfundarstörf. Laga- breytingar. Stjómin

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.