Tíminn - 23.05.1986, Page 20
'erslið
meðVISA
SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR
skipar 1. sæti á lista Framsóknarflokksins
við borgarstjornarkosningarnar 31. maí
1986.
STUÐLUM AÐ VALDDREIFINGU
OG STYRKJUM LÝÐRÆÐI
Útflutningsverðmæti af
f iskeldi 10 milljarðar
- um aldamót, ef forsendur standast
„Fyrirliggjandi hugmyndir unr
fiskeldisstöðvar og líklegur vöxtur
markaða næstu árin benda til [ress að
fiskeldisstöðvar hérlendis gætu viö
næstu aldamót flutt út um 25 þúsund
tonn af eldisfiski, 40 milljón göngu-
seiöi eða hrogn og ungfisk af öðrum
stærðum til áframeldis annars
staðar. Verðmæti útflutnings þessa
gæti nálgast 10 milljarða króna og
numið 20-25% af útflutingsverðmæti
landsmanna eða álíka og allur iðnað-
arútflutningur. Starfsliö við fiskeldi
gæti þá verið 17(K)-2(K)0 manns og
annað eins í tengdum störfum og
þjónustu við fiskeldið," segir í ný-
útkominni skýrslu frá Rannsóknar-
ráði ríkisins um þróun fiskeldis.
Skýrslan er byggð á athugunum
starfshóps sem Rannsóknarráð skip-
aði árið 1982.
Skýrslan sem er nákvæm og viða-
mikil tekur á flestum þáttum sem
tengjast fiskeldi. Bent er á að rann-
sóknir í þágu fiskeldis hafi verið
vanræktar að miklu leyti og brýna
nauðsyn beri til að stórefla þær til
þess að draga sem mest úr hættu á
mistökum og áföllum í fiskeldinu.
Starfshópurinn leggur til í skýrslu
sinni að hið opinbera veiti 35 millj-
ónum króna árlega á verðlagi ársins
1985 til rannsókna og þróunarstarfs
í fiskeldi næstu fimm árin. Þá leggur
hópurinn til að Laxeldisstöð ríkisins
í Kollafirði verði nýtt sem tilrauna-
stöð í fiskeldi, fyrst og frcmst til þess
að sinna langtímarannsóknum.
Skýrt er tekið fram í skýrslunni að
hvergi hafi verið sýnt fram á að
fiskeldi yrði rekið með hagnaði til
langframa hér á landi, þegar verð á
laxi tckur að lækka eins og búist er
við eftir lok þessa áratugs.
Ein af niðurstöðum starfshópsins
er að fiskeldi hér á landi er mun
fjárfrekara en annars staðar. Sam-
keppnishæfni fiskeldisfyrirtækja hér
á landi erþví sögð liggja í því að nýta
sér þá möguleika að stjórna þroska-
ferli eldisfisksins þannig að sem
örastur vöxtur og mest framleiðsla
náist á hverja fjárfesta krónu. -ES
Núgetabændursér-
pantað fóðurblöndur
Nú hillir undir það, að bændur
geti sérpantað fóðurblöndur scnt
hæfi sérstaklega þörfum búsmala
þeirra, allt eftir því hvernig fóður-
gildi heyja er á hverjum bæ.
Forsvarsmenn Fóðurblöndunnar
hf. skýrðu frá þessu í gær þegar
Fóðurblandan tók formlega til starfa
í nýjum og glæsilegum húsakynnum
við Kornhöfða í Sundahöfn í
Reykjavík. Hin nýja verksmiðja get-
ur framleitt allar tegundir kjarnfóð-
urs fyrir landbúnað og fiskeldi, en
tækjakostur verksmiðjunnar er
svissneskur og tæknilega mjög full-
kominn, m.a. er stýribúnaður allur
tölvuvæddur. Stýribúnaður tölvunn-
ar geymir uppskriftir í sérstöku
minni og stjórnar hún jafnframt
blönduninni. Rafeindavogir tryggja
að nýting og skömmtun hráefna og
bætiefna sé nákvæm og mögulegt er
að köggla allt fóður fyrir búfé, fugla
og fiska. Þá cru í verksmiðjunni
framleiðslulínur sem gera mögulega
fituhúðun á kögglunum, en með
henni eykst fóðurgildi kögglanna
auk þess sem unnt er að losna við
ryk.
Vcgna þess hve verksmiðjan er
tæknilega fullkomin skapast nú sá
möguleiki að blanda fóður fyrir
einstaka bændur í samræmi við fóð-
urgildi heyja er á hverjum stað. En
lil þess þarf að efnagreina heyin og
gera fóðuráætlanir fyrirfram. Að
sögn Hjörleifs Jónssonar forstjóra
Fóðurblöndunnar hf. myndi slíkt
ekki bætast ofan á , heldur yrði hér
um aukna þjónustu við viðskiptavini
að ræða. Farið verður að huga að
þessum þætti þegar reksturinn kemst
í fastar skorður.
Kostnaður vegna byggingar verk-
smiðjunnar mun vera í kringum 100
milljónir, en hún stendur á tiltölu-
lega smáum bletti og er verksmiðjan
sjálf á 6 hæðum. Framleiðslugetan
er um fjórfalt meiri en geta gömlu
verksmiðjunnar, sem staðsett var úti
á Granda.
Nýja verksmiðjan stendur við
hliðina á Kornhlöðunni hf., sem er í
sameiginlegri eign SÍS, Mjólkurfé-
lags Reykjavíkur og Fóðurblönd-
unnar, og gerir það meðferð og
flutning hváefna hina ákjósanleg-
ustu.
í stjórn Fóðurblöndunnar hf. eru
Gunnar Jóhannsson, stjórnarfor-
maður, Kolbeinn Kristinsson, Árni
Möller, Karl Sigurgeirsson og Egg-
ert Haukdal. Forstjóri er Hjörleifur
Jónsson, en framkvæmdastjóri Árni
Gunnarsson.
- BG
Hjörleifur Sigurðsson forstjóri og Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri í hinni
nýju verksmiðju Fóðurblöndunnar hf. (Tímumynd Pctur)
Agnar Friöriksson:
„Engum dyrum
íokað á
Arnarflug"
- viðræður í gangi
við lánardrottna
„Mér vitanlega er ekki búið að
gera upp reikninga fyrirtækisins á
þessu ári og við höfum gefið það
út að tapið fyrstu fjóra mánuði
þessa árs verði um 50 milljónir,"
sagði Agnar Friðriksson fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs í gær
þegar Tíminn bar undir hann
frétt Morgunblaðsins í gær um að
tap á rekstri Arnarflugs hafi farið
langt fram úr því sem áætlað hafi
verið og að eiginfjárstaðan sé nú
neikvæð um talsvert á þriðja
hundrað milljónir og framtíð fyrir-
tækisins þvf óljós. „Sú tala okkar
er frá því í byrjun apríl og miðuð
við rekstraráætlun, þannig að á
þessu stigi er hvorki hægt að
segja að hún sé of há eða of lág,"
sagði Agnar ennfremur. Um við-
ræður við erlenda lánardrottna
sagði Agnar þær standa yfir og að
engum dyrum hefði verið lokað á
Arnarflug í því sambandi. Vænt-
anlegir hluthafar hafa tekið þátt í
viðræðum við lánardrottna.
Drengur
fyrir
bifreið
Sjö ára drengur varð fyrir bifreið
í gærkvöldi á Selásbraut við Reykás.
Drengurinn sem var að koma út úr
strætisvagni með móður sinni, hljóp
aftur fyrir vagninn og fyrir aðvífandi
bifreið. Mun drengurinn hafa fót-
brotnað og hlotið áverka á höfði.
Var farið með hann á sjúkrahús eftir
slysið. Að sögn lögreglu bendir ekk-
ert til að bifreiðin hafi verið á of
miklum hraða.
ÍSLENSK ÞROSKALEIKFÖNG
DÚA LEIKFANGASERÍAN
Við framleiðum nú þrjár gerðir af hinum góðkunnu Dúa bílum.
Þaðnýjasta hjáokkurergamli íslenski dúkkuvagninn endurborinn.
Við köllum hann Dú-dú. Með eða án sængurfata.
Svo er nú dýrfirski rugguhesturinn orðinn full taminn. Nafn fylgir
ef óskað er.
Nú er ekkert vandamál lengur með tækifæris- og afmælisgjafir.
Kaupum íslensk þroskaleikföng. Bjóðum sérstök kjör fyrir barna-
heimili og dagmömmur.
SENDUM í
PÓSTKRÖFU_______________________________
Sláið á þráðinn. Síminn er 94-8181.
LEIKFANGASMIÐJAN ALDA HF., ÞINGEYRI, DÝRAFIRÐI