Tíminn - 02.07.1986, Qupperneq 2

Tíminn - 02.07.1986, Qupperneq 2
Miðvikudagur 2. júlí 1986 2 Tíminn Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur: Rally Cross á Kjóavöllum - reiptog aldarinnar! Fyrsta Rally Crosskeppni á vegum Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur verður haldin á morgun á Kjóavöll- um fyrir ofan Rjúpnahæð. Verður leiðin vel merkt frá Breiðholti og ættu því allir að rata. Keppnin hefst klukkan 20 og stendur í rúma tvo tíma. Skemmtiatriði verða í hléi. Jón Páll Sigmarsson kraftajötunn og Ómar Ragnarsson munu reyna með sér í reiptogi. Eins og myndin ber með sér, hefur Ómar orðið sér út um farartæki, sem ætti að gera Jóni Páli erfiðara fyrir en ella. Kynnir og stjórnandi keppninnar verður hinn kunni rall kappi Jón R. Ragnarsson. Framkvæmdastjóri BÍKR sagði í samtali við Tímann að mjög góð aðstaða væri fyrir áhorfendur við braut klúbbsins. -ES Þeir kappar Ómar og Jón Páll munu reyna með sér í reiptogi. Ómar hefur fengið leyfi til þess að vera á bíl í toginu. Myndin gefur hugmynd um hvernig það mun fara fram. Landbúnaöarráöherrar Norðurlanda: Funduðu á Egilsstöðum Svanfríður Hagwaag fréttaritari Tímans í Ncs- kaupstað: Fundur landbúnaðarráðherra frá Norðurlöndum, í norrænu ráðherra- nefndinni, var haldinn á Egilsstöð- um í síðustu viku. Fundir nefndar- innar eru haldnir einu sinni á ári til skiptis í löndunum, til þess að fræð- ast um málefni tengd landbúnaði. Fyrsta daginn var rætt um auka- búgreinar í landbúnaði og ný at- vinnutækifæri, eins og loðdýrarækt, Gunnhild óyangen frá Noregi og Svanpe Lundkvist, sem sæti eiga í norrænu nefndinni. Mymi svantríður Rætt við fundargesti frá Svíþjóö og Noregi: skógrækt á íslandi og ferðamanna- þjónustu. Fundur var haldinn um framkvæmd samnings sem gerður var fyrir tveimur árum um fram- kvæmd ýmissa atriða í landbúnaðar- málum. Rætt var sérstaklega um markaðsmál á Norðurlöndunum, og ný mál sem þar hafa skotið upp kollinum. Gerðar voru sameiginleg- ar ályktanir á sviði menntunarmála. Sérstök áhersla var lögð á að þjóð- irnar skyldu tilkynna um hættu á mengun og var geislun sérstaklega nefnd í því sambandi. Þá hafa Svíar, Norðmenn og Finnar miklar áhyggj- ur af skógardauða, þar sem hann er orðinn alvarlegt vandamál hjá þeim. Tveir dagar voru notaðir til um- ræðna um ofangreind mál. Seinni hluti tímans var notaður í skoðunar og kynningarferðir. Sýndur var bú- skapur á Héraði og m.a. skoðuðu þátttakendur Egilsstaðabúið. Skóg- ur og skógrækt að Hallormsstað var skoðuð. Loks var skoðaður búskap- ur á fjörðunum í nágrenni Egils- staða, þar sem hann er töluvert öðruvísi í svo afskekktum byggðar- lögum. Varðskip flutti gesti milli fjarða. Fjárdráttur hjá Pósti og síma Akureyri: Sá grunaði hefur játað Rannsóknarlögreglan á Akur- eyri hefur lokið rannsókn á fjár- drætti þeim sem framinn var hjá Pósti og síma á Akureyri. Játning hins grunaða liggur fyrir, og hefur málið verið sent til ríkissaksókn- Rannsóknaraðilar sem Tíminn ræddi við í gær sögðust ekki vilja láta opinskátt hvernig fjárdrátt- urinn var framinn. „Pað var gat í kerfinu sem viðkomandi notfærði sér,“ sagði rannsóknarlögreglu- maður sem Tíminn ræddi við. Sjúkraþjálfun: Unnið að gerð tölvuforrits Um þessar mundir er verið að vinna að þróun tölvuforrits til kennslu og rannsókna í sjúkraþjálf- un á vegum Maríu Ragnarsdóttur lektors í sjúkraþjálfun við Háskól- ann, Eríks Ragnarssonar skrifstofu- stjóra hjá Sjálfsbjörgu og Odds Benediktssonar prófessors. Auk þessara aðila vinna að þróun þekk- ingargrunns tölvuforritsins Jakobína E. Sigurðardóttir sjúkraþjálfari hjá Sjálfsbjörgu og Valgerður G. Schram sjúkraþjálfari á Landspítal- anum. Tilraunavinnsla fer fram í Sjálfsbjörgu. Þetta kom fram á árlegu Norrænu samvinnuþingi sem haldið var á Þingvöllum nýlega. Talsverðar vonir eru bundnar við þetta nýja forrit bæði hvað varðar faglega og rekstr- arlega þætti í starfsemi sjúkraþjálf- unar hér á landi. Einkum ætti forritið að auðvelda rannsóknir og þar með leiða til framfara í faginu og bættrar þjónustu við sjúklinga. Reiknað er með að forritið verði tilbúið til notkunar um næstu áramót. -BG Tsjernóbýl-slysið rætt í nefndinni SvanfríAur Hagwaag fréttaritari Tímans í Nes- kaupstad. Vegna fundar landbúnaðarráð- herra Norðurlanda á Egilsstöðum voru Svanpe Lundkvist frá Svíþjóð og Gunnhild Oyangen frá Noregi tekin tali. Fyrst var Svanpe Lund- kvist spurður að því hvað hefði komið fram á fundinum um Tsjern- obyl slysið. Hann sagði m.a. að allir væru sammála um að það þyrfti að halda góðum samböndum og hver að upplýsa annan um hvaða afleiðingar slysið hefur haft. „Við þurfum að athuga hvernig við getum varið okkur betur fyrir áföllum sern þessum í framtíðinni. Ástandið í Svíþjóð hefur verið þannig að nú fyrst er hægt að sleppa út kúm. Við höldum uppi stöðugum mælingum á geislavirkni, og megum ekki við því að taka nokkra áhættu, hvorki fyrir fólkið sem vinnur við landbúnaðinn né fyrir neytandann sem neytir afurðanna. Hinsvegar vil ég taka það fram, vegna spurninga sem bor- ist hafa frá Bandaríkjunum að það er ekki hættulegt fyrir ferðamenn að heimsækja Svíþjóð," sagði Lund- kvist að lokum. Gunnhild 0yangen var spurð hver staða konunnar væri í Noregi og hvað væri efst á baugi þar. Sagði hún að konurnar hefðu veikan bakgrunn. „Þær vinna mikið og hafa ekki fullan rétt í samfélögunum. í miklum meirihluta eru það mennirnir sem eiga býlin. Það er mikill vilji fyrir hendi, að fá konurnar til þess að vinna betur að sínum málum. Við erum líka upptekin af að búa til atvinnutækifæri fyrir konur sem vinna í strjálbýlinu. Þessvegna er lögð áhersla á að byggja upp áætlanir til þess að tryggja betur stöðu kon- unnar. M.a. höfum við veitt náms- styrki svo þær geti menntað sig betur. Þá erum við að vinna að breytingum á skattakerfinu svo kon- um verði gefnir betri möguleikar. Meðal annars vegna þess höfum við óskað eftir samstarfi við hin Norður- löndin, svo við getum styrkt hvert annað. í sambandi við fleiri atvinnumögu- leika er áríðandi að við snúum við þróuninni. Bændurnir þurfa að vera tilbúnir til að hugsa öðruvísi," sagði Gunnhild að lokum. Umsjón: Eggert Skúlason| VEIÐIHORNIÐ Veiði byrjuð á Arnarvatnsheiði Fyrstu veiðimennirnir hafa lagt leið sína á Arnarvatnsheiði. Færð er nú góð þangað uppeftir, eftir að ófært hafði verið framan af sumri. Heiðin opnar nú hálfum mánuði seinna en vant er. Veiði hefur verið góð þessa fyrstu daga. Veiðihornið frétti af hópi veiðimanna, sem fór til veiða um helgina. Farið var í sjö bílum og veiddist vel. Sjö hundruð fiskar voru dregnir áður en upp var staðið. Hópurinn veiddi í Árnar- vatni stóra. Þá fóru veiðimenn í Úlfsvatn og var veiði þar heldur tregari. Á sex stangir veiddust um tuttugu þokkalegir silungar og var sá stærsti um þrjú pund, rennilegur urriði. Talsvert var af smælki innan um og gerði það veiðimönnum erfitt fyrir. Eins og myndirnar bera með sér er fiskurinn góður og varla hægt að fá hann betri í soðið. Mokveiði í Blöndu Um 350 laxar eru komnir á land úr Blöndu. Þetta er með því besta sem hefur gerst þar, síðastliðin ár. Stærsti fiskurinn sem veiðst hefur í sumar er 21 pund. Kvóti er í ánni, og er heimilt að veiða fjórtán fiska. í fyrradag bar svo við að menn Páll Karlsson hefur landað einum vænum úr Úlfsvatni. Hann og nokkrir félagar hans voru með þeim fyrstu að leggja á heiðina í sumar til veiða. Á innfelldu myndinni sést hluti aflans eftir veiðitúrinn. Tímamynd Jón G. fylltu kvótann, og var þá óhemju fallegur fiskur í ánni. Átján pundari og sautján pundari veiddust og var fiskurinn til jafnað- ar mjög fallegur. Veiði í Svartá hófst í gær. Lax hefur sést í ánni og bíða menn spenntir eftir að sjá hvernig veiði verður í ánni í sumar. Síðastliðið ár var mjög gott í Svartá, en þar mátti mestu þakka stórgóðri veiði undir lok veiðitímans.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.