Tíminn - 02.07.1986, Blaðsíða 3

Tíminn - 02.07.1986, Blaðsíða 3
Miövikudagur 2. júlí 1986 Tíminn 3 Umferðarráð: Landsmót hestamanna hefst í dag á Hellu Spáð er hlýju og björtu veðri sunnan og vestan lands Landsmót hestamanna hefst á Gaddastaðaflötum við Hellu í dag kl. 13.00. Á Geysisvelli og Gadda- staðavelli verða kynbótahross og afkvæmahópar dæmdir allan daginn. Búist er við fjölmenni á mótið og eru hestamenn hvaðanæva af landinu að fjölmenna á mótssvæðið og útlend- ingar sem sækja mótið verða trúlega á bilinu 1-2000. f gær voru hópar hestamanna staddir á Flúðum, m.a. frá Skaga- firði og Húnavatnssýslu. í>eir lögðu af stað á fimmtudagsmorguninn og fóru um Kjöl. í ferðinni voru samtals um 35 menn með 146 hesta og gekk ferðin vel, þrátt fyrir að Kjölur sé nú rétt að verða fær. Á Flúðum voru einnig staddir hestamenn sem lögðu af stað á sunnudag frá Laugarvatni á vegum íshesta og voru þar 35 hestar í förinni. Kynnisferðir Búnað- arsambands Suðurlands: Sjö hundruð þátt- takendur Liðlega sjö hundruð manns tóku þátt í hópferðum Búnaðar- sambands Suðurlands, nú fyrir nokkru. Ekið var um Suðurnes og viðkomustaðir voru fjölmarg- ir. Flestir þéttbýlisstaðir á Suður- nesjum voru heimsóttir og einnig var litið á nýju flugstöðina. Strandarkirkja var heimsótt og hlýddu ferðalangar á sögu kirkj-• unnar. Orkuverið að Svarts- • engi var heimsótt og litið á Bláa lónið. Stærsta kanínubú á landinu var skoðað, en það er í Ytri- Njarðvík. Kynnisferðirnar stóðu yfir í fjóra daga, og er þetta fimmta árið sem Búnaðarsamband Suðurlands efnir til slíkra ferða. Hvern dag lauk ferðalaginu með sameiginlegum málsverði í skíða- skálanum í Hveradölum. Aðsókn hefur farið vaxandi ár frá ári, þau ár sem ferðir þessar hafa verið í boði. Veðrið ætti að verða heldur hvetj- andi fyrir fólk að sækja mótið því spáð er hægri austan átt og bjartviðri um vestan og sunnanvert landið yfir daginn en þokulofti um nætur. Tölvuspá veðurstofunnar gerir síðan Það var mikið um dýrðir þegar minnst var aldarafmælis Landsbanka íslands í gær. Hátíðahöld fóru fram með miklum glæsibrag. Lúðrasveit og skrúðganga gengu fylktu liði frá Vegamótaútibúi bankans og niður í aðalbankann, í Austurstræti. I af- greiðslusal bankans, sem var þétt- skipaður fólki, voru veitingar á boð- ráð fyrir enn bjartara og hlýrra veðri sunnan og vestan lands á laugardag og sunnudag. Norðlendingar verða hins vegar að bíta í það súra epli, að hlýindin sem verið hafa þar eru gengin yfir í bili og hiti þar einungis stólum fyrir hvern sem þiggja vildi. Börnum voru gefnar gjafir og þau launuðu fyrir sig með því að syngja hástöfum afmælissöng til heiðurs bankanum. Eins og áður sagði var salurinn þéttskipaður fólki og sagði Jóhann Ágústsson, umsjónarmaður hátíðahaldanna að um hádegisleytið í gær hefðu um 5 þús. manns heiðrað um 10-13 stig auk þess sem þokuloft það sem gert hefur Sunnlendingum gramt f geði að undanförnu er nú flutt norður yfir heiðar um leið og vindátt breyttist. bankann með komu sinni og bjóst hann við 8 þús. manns áður en bankinn lokaði kl. 4. Starfsfólk „vígði“ nýja einkennis- búninga og þjónaði jafnframt við- skiptavinum bankans af einstakri lipurð. Veður var hið besta og sagði Jóhann að Landsbankinn væri göntul og traust stofnun sem hefði sambönd víða og átti þar við veðurguðina. Jóhann kvað hátíðahöldin hafa Varúðvegna landsmóts - hestamenn á ferö við Hellu Umferðarráð hefur sent frá sér fréttatilkynningu, þar sem veg- farendur eru hvattir til sérstakrar varúðar. „Vegna landsmóts hestamanna, sem haldið verður á Gaddastöðum við Heliu á Rang- árvöllum, má vænta margra hestamanna á ferð á vegum sunn- an- og suðvestanlands," segir í frétt frá Umferðarráði. Ráðið vill minna fólk í umferð- inni á að hestar haga sér ólikt í umferðinni og manneskjur og er því þörf á að aka varlega þegar hrossahópum er mætt, eða farið er fram úr þeim. gengið einstaklega vel fyrir sig og sagði að þessa dags yrði vafalítið lengi minnst. Reyndar var Austurstrætið og aðalbankinn ekki eini vettvangur hátíðahaldanna. Öll útibú bankans í Reykjavík og úti á landsbyggðinni héldu uppá daginn með svipuðum hætti. -geh. -ABS Lúðraþeytarar og merkisberar í Austurstræti í gær. Landsbankinn 100 ára: „Dagsins minnst“ - segir Jóhann Ágústsson umsjónarmaöur hátíðahaldanna Mikill fjöldi fólks heiðraði bankann með komu sinni og þáði veitingar. Tímamynd: Gísli Egill. Samkeppni Námsgagnastofnunar: Helgi Skúli verðlaunaður Helgi Skúli Kjartansson, sagn- fræðingur hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni Námsgagnastofnunarum ritun bóka fyrir börn um fræðandi efni. Hlaut Helgi verðlaunin fyrir bókina Vesturfararnir, en hún fjallar um fólksflutninga fslendinga vestur um haf um síðustu aldamót. í áliti dómnefndar, en hana skip- uðu Sigríður Jóhannesdóttir form., Erla Kristjánsdóttir og Örnólfur Thorlacius, segir að bókin sé vel skrifuð og kunnáttusamlega og að hún sé vel fallin til skipulegrar kennslu. í samtali við Tímann sagði Helgi, að hér væri frekar um að ræða kver en bók. Efni hennar væri að mestu bundið við ísland, hann greindi frá ástæðum fólksflutninga og hvernig fólki hafið reitt af í Vesturheimi. Helgi kvaðst hafa setið við dag og nótt milli jóla og nýárs, við að skrifa bókina enda hafi fyrsti frestur runnið út þann 31. des. Aðalmunurinn á að skrifa fyrir framhaldsskóla eða skrifa fyrir grunnskóla, eins og hann hafi gert núna, væri sá að þegar skrifað væri fyrir yngri hópinn, þyrfti að huga betur að framsetningu efnisins, það væri meiri tæknivinna. Önnur verðlaun hlaut Karvel Ög- mundsson, útgerðarmaður af Suður- nesjum fyrir bókina Refir, en hún fjallar eins og nafnið segir til um, um refi bæði á fræðilegan hátt og innan ramma skáldsögunnar. Þriðju verð- laun hlaut síðan Tómas Einarsson, fyrir handritið Undir jökli. Frá verðlaunaafhendingunni, frá vinstri: Helgi Jónasson form. námsgagna- stjórnar, Sigríður Jóhannesdóttir, form. dómnefndar, þá verðlaunahafarnir, Tómas Einarsson, Helgi Skúli og Karvel Ögmundsson og loks Ásgeir Guðmundsson, námsgagnastjóri. Tímamynd Gísli Alls var skilað inn 24 handritum, hlutu 6 aðilar viðurkenningu fyrir en auk vinningshafanna þriggja handrit sín. phh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.