Tíminn - 02.07.1986, Blaðsíða 16

Tíminn - 02.07.1986, Blaðsíða 16
meðVISA i—i HVERGERÐINGAR undir for- ystu Stefáns Halldórssonarfyrrum Víkings tryggöu sérsæti í 16-liöa úrslitum Mjólkur- bikarkeppni KSl í gærkvöldi meö 4-1 sigri á Víkverja í Reykjavík. Þá komust einnig í 16-liða úrslitin Víkingar, sem unnu Reyni Sandgeröi 4-0 i Sandgeröi og Grindvíking- arsem unnu ÍR í Grindavík2-0 í hörkuieik án tilþrifa. Hvergeröingar hafa lagt m.a. Selfyssinga á leiö sinni í 16-liða úrslitin. Samtök Evrópuþjóða um hátækni og rannsóknir: fslandi var veitt aðild - nítjánda aðildarríki samtakanna íslandi hefur verið veitt formleg aðild að EUREKA sem eru samtök um samvinnu Evrópuþjóða á sviði hátækni ogrannsókna. Aðild íslands var samþykkt á ráðherrafundi aðild- arríkja EUREKA sem haldinn var í London á mánudag. A fundinum var ísland boðið velkomið sem nítj- ánda aðildarríki samtakanna. Full- trúar íslands á fundinum voru Einar Benediktsson, sendiherra og Sveinn Björnsson sendifulltrúi Auk Evrópubandalagsríkjanna tólf eru Austurríki, Finnland, Nor- egur, Sviss, Svíþjóð og Tyrkland aðilar að EUREKA. Meðal þeirra verkefna, sem unnið er að innan EUREKA og íslenskir aðilar hafa áhuga á þátttöku í , er upplýsinga- og fjarskiptatækni, líf- tækni og efnistækni. Reglugerð um lánveitingar Byggingarsjóðs ríkisins: Kostnaðar og greiðslu- áætlun forsendur lána Árbæjarsafni í Reykjavík bættist formlega nýtt hús í safnið í gærdag. Lokið hefur verið við endurbyggingu prófessorsbústaðaríns frá Kleppi. Borgarstjóri Reykjavíkur, Davíð Oddsson opnaði húsið með pomp og prakt í gær. Tímamynd Pélur. - krafist er tekjuvottorðs frá skattstjóra eða endurskoðanda Reglugerð um lánveitingar Bygg- ingarsjóðs ríkisins var í gær gerð opinber. Þar er nánar kveðið á um atriði varðandi lánsrétt húskaup- enda og hvernig afgreiðsla á lánum fer fram, til þeirra. Þar er að finna ný atriði sem umsækjendur þurfa að huga að, t.d. þarf nú vottorð frá lífeyrissjóði um iðgjaldagreiðslur sl. 2 ár, yfirlýsingu skattstjóra hvort umsækjandi eigi eða hafi átt íbúð sl. 3 ár, kostnaðar- og greiðsluáætlun umsækjanda vegna áætlaðra kaupa, auk tekju- vottorðs sl. árs frá skattstjóra eða löggiltum endurskoðanda. Þá þarf að fylgja teikningu íbúðar, sundurliðuð kostnaðaráætlun vegna byggingar hússins eða íbúðarinnar sem unnin er af höfundi teikningar- innar. Slík kostnaðaráætlun nemur um 15% af verði fullrar teikningar frá hendi arkitektsins, og hefur fólk í flestum tilvikum sparað sér þennan kostnaðarlið. Samkvæmt heimildum Tímans mun ekki vera hægt að meta kostnað fyrr en bæði svonefndum byggingarnefndarteikningum og verkteikningum hefur verið skilað og er það nýjung að teikningar þurfi að vera komnar á þetta stig áður en hægt er að sækja um lán. Þá eru arkitektar yfirleitt ekki sérhæfðir í, né vanir, að gera slíkt kostnaðarmat, og kann því að vera að þeir þurfi að fara að fletta skólabókunum á nýjan leik. Þá hefur það oft gerst að verk- fræðingar hafi séð um verkteikning- ar hússins, og munu hin nýju hús- næðislög væntanlega krefjast nánari samvinnu þeirra við arkitekta en hingað til hefur tíðkast. phh Umferðarslys á Akureyri: Lést af áverkum Björn Þórólfsson lést á fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri í fyrradag, af völdum áverka sem hann hlaut síðastliðinn föstudag, þegar hann varð fyrir bifreið. Ekið var á Björn þegar hann var á leið yfir gangbraut á Hörgár- braut. Slysið varð síðastliðinn föstudag laust fyrir hádegi. Björn var fæddur 1910. -ES Hlaðvarpanum afhent afsal - rekstur hússins kominn ífullangang Afsal Vesturgötu 3 var afhent framkvæmdastjóra Hlaðvarpans í gær og er þar með orðin lögleg eign hlutafélagsins. Húsið var keypt á 9,5 milljónir af erfingjum Eiríks Orms- sonar. Tæplega helmingur kaup- verðsins hefur nú verið fjármagnað- ur með hlutabréfasölu og hlutabréfa- loforðum, eða um 4 milljónir. Rekstur húsanna þriggja er nú að komast í fullan gang og tekjur af leigu standa undir rekstri hússins, en getur ekki staðið straum af þeim lánum sem nú hvíla á þeim. Þess vegna verða fleiri hlutabréf að seljast ef dæmið á að ganga upp. Húsið er hugsað sem almenn fél- ags og menningarmiðstöð fyrir kon- ur sem vantar aðstöðu til að sinna áhugamálum sínum. Herbergin eru leigð til 3-6 mánaða í einu, auk þess sem í húsinu er myndlistarsalur og leikhúskjallari. 1 Kjallaraleikhúsinu mun verða sýndur einþáttungur í sumar eftir Strindberg sem heitir „Hin sterkari" auk þess sem fleiri uppákomur verða í boði. í myndlistarsalnum verða sýningar í allt sumar. Eftir er að innrétta risið, en þar gæti orðið aðstaða fyrir funda- og ráðstefnu- hald. Næsta skref í endurbótum á húsunum er þó að mála þau að utan og jafnvel að skipta um járn. Stjórn Hlaðvarpans vonast til þess að borg- in styrki þær framkvæmdir að ein- hverju leyti nú á afmælisári sínu. ABS Frystihús í erfiðleikum: Hraðf rystistöðin hættir frystingu - verkalýðsfélög mótmæla fjöldauppsögnum Hraðfrystistöðin í Reykjavík arinnar hefði verið áberandi slæm hefur ákveðið að hætta frystingu frá og með 1. október næstkom- andi. f samræmi við það hefur öllu starfsfólki frystihússins verið sagt upp störfum, alls um 80 manns. Að sögn Ágústs Einarssonar fram- kvæmdastjóra Hraðfrystistöðvar- innar var þessi erfiða ákvörðun tekin vegna þess að tap hefur verið á frystingunni undanfarin ár, rekstrarskilyrði greinarinnar væru og hefðu verið mjög slæm og ekki útlit fyrir að þau bötnuðu á næst- unni. Hann sagði að staða frysting- á suð-vesturhorninu, þó ástandið væri slæmt um allt land. Aðspurður um hvort kvótanum mætti að ein- hverju leyti kenna um þetta, taldi Ágúst svo ekki vera, en benti á óhagstæða þróun sem orðið hafi á dollaramörkuðum, dollarinn hafi á um átján mánuðum fallið um 40% á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði. Ágúst hafnaði hins vegar þeirri hugmynd að gengisfelling myndi leysa vanda frystingarinnar. „Ég held að frystingin í landinu standi nú á tímamótum og leita verði að nýjum leiðum,“ sagði Ágúst. Aðspurður um hvort Hraðfrysti- stöðin hafi leitað eftir aðstoð hjá Byggðastofnun, viðskiptabönkum og Fiskveiðasjóði, en þar er nú í gangi átak til aðstoðar frystingunni í landinu, kvað Ágúst svo ekki vera þar sem þeir hafi talið til- gangslítið að verða sér úti um aukið lánsfé til þess eins að tapa áfram. Engar ákvarðanir hafa enn verið teknar um hvort frystihúsið verður selt. Vinnsla mun halda áfram eins og verið hefur til hausts, en að sögn Ágústs stendur ekki til að flytja frystinguna yfir í togara fyrirtækis- ins með því að breyta þeim í frystiskip. „Við höfum íhugað þann möguleika en honum fylgja bæði kostir og gallar. Það vefður að vona að enn verði til hús til að vinna aflann þó svo fari að Hrað- frystistöðin hætti,“ sagði Ágúst. Verkalýðsfélögin Framsókn og Dagsbrún í Reykjavík hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er þungri ábyrgð á hendur stjómvöldunt og atvinnurekendum „sem horft hafa . aðgerðarlaus á fiskvinnsluna vesl- ast upp.“ Verkalýðsfélögin viður- kenna að ytri skilyrði frystingarinn- ar hafi breyst, en hins vegar hafi 'innri skipulagning greinarinnar verið vanrækt og húsin því ekki orðið rekstrarhæfari með breyttum tímum. Þessu sinnuleysi mótmæla verkalýðsfélögin harðíega. Ágúst Einarsson sagði í gær að Hraðfrystistöðin myndi gera það sem í hennar valdi stæði til þess að hjálpa sínu fólki til að komast í ný störf, hugsanlega með atvinnu- miðlun svipaðri þeirri sem Grandi rak í vetur. -BG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.