Tíminn - 02.07.1986, Blaðsíða 12

Tíminn - 02.07.1986, Blaðsíða 12
12 Tíminnf Miðvikudagur 2. júlí 1986 FAHR stjörnumúgavél KS-85DN. Vinnslubreidd 3,0 m. Meira en 25000 kr. lækkun f= ARMULA 11 SIMI SB15DO coopmr Síur í flestar vélar á góðu verði WÉPR& IMOMiiJSmHF Jámhálsi 2 Sími 83266 TIORvk. Pósthólf 10180 ÞEGAR KOMIÐ ER AF VEGUM MEÐ BUNDNU SLITLAGI. . . =3 CZJ □ tekur það sinn tíma að venjast breyttum fillíW FÖRUM VARLEGA! ||UMFERÐAR £ Bílbeltin hafa bjargað yar"'" Okkur vantar hjólhýsi og tjaldvagna á syningarsvædi okkar Opið virka daga frá kl. 10-21 Sunnudaga frá 13-19 BÍLASALAN Vélarogvagnar LANDSBYGGÐARÞJÓNUSTAN Sími 99-1504-1506 Eyrarvegi 15 Selfossi Bújörð til sölu Til sölu er jörðin Skarð í Breiðdal. Upplýsingar síma 97-5794 eftir kl. 20.00. Ferð á Strandir Ákveðið hefur verið að fara 4. daga ferð á Strandir 9.-12. júlí næstkomandi á vegum starfs aldraðra í Hallgrímskirkju. Lagt verður af stað miðvikudagsmorg- un 9. júlí kl. 10 f.h. og haldið að Laugarhóli í Bjarnarfirði á Slröndum. Kvöldmatur og gisting í rúmum. Fimmtudaginn 10. júlí. Lagt af stað kl. 10. Borðað á Djúpuvík, farið í Árnes og hlýtt þar á messu. Farið í Norðurfjörð. Þaðan til Djúpuvíkur aftur. Borðaður kvöidverður og gist þar. Föstudaginn 11. júlí. Lagt verður af stað kl. 13 farin sama leið til baka en nú um Drangsnes og aftur í Laugarhól og gist þar. Laugardaginn 12. júlí. Lagt af stað kl. 10. Farið heim um Borgarfjarðardali. Allir ellilífeyrisþegar eru velkomnir í þessa ferð. Nánari upplýsingar gefur Dómhildur Jónsdóttir í síma 39965. Vinningar í Kosningahappdrætti Kvennalistans 19. júní 1986 var dregið í kosningahapp- drætti Kvennalistans eftirtalin númer komu upp. 1. 5572,2. 1505,3. 1194,4. 3369,5.2542, 6. 3850, 7. 2072, 8. 2141, 9. 2905, 10. 0760, 11. 0523. 12. 2131, 13. 1762, 14. 4906, 15. 1922, 16. 0498, 17. 1497, 18. 5624, 19. 1245, 20. 4686, 21. 1234, 22. 4546, 23. 3561. Vinninga ber að vitja á skrifstofu Kvennalistans, Kvennahúsinu, Hótel Vík, 107 Reykjavík, sími 13725 eða 21500 innan eins árs. Ferðaáætlun M.S. FAGRANES sumarið 1986 Allar upplýsingar fást á skrifstofu Hf. Djúpbátsins, Aðaistræti 1, s. (94-) 3155,4655,3558 og 3016. Ali informatíon available at the office of Hf. Djúpbáturinn. Aöalstræti 1, Isafjörður. Tei (94-) 3155,4655,3558, ancl 3016. Ferðaáætlun m.s. Fagraness sumarið 1986 Sumaráætlunin gildir 27. júní-25. ágúst Ferðir um isafjarðardjúp verða á þriðjudögum og föstudögum, brottför frá Isafirði kl. 08.00. Á þriðjud. tekur hring- ferðin um ísafjarðardjúp 9-11 klst. og er stoppað á 6-8 stöðum. Á föstudaginn tekur hringferðin um 5 tíma og stoppað er á 4 stöðum. Margir láta flytja fólk og bíl yfir Djúpið, en þar sem ekki er hægt að taka nema 4 bifreiðar í hverja ferð er nauðsynlegt að panta far fyrir bílinn í tæka tíð. Ferðir í Jökulfirði verða einu sinni í viku, og stoppað annað hvort í Grunnavík eða Hesteyri. Ferðir á Hornstrandir verða tvisvar í viku, aðal viðkomustaðir eru Aðalvík og Hornvík. Leiguferðir með hópa um ísafjarðar- djúp, Jökulfirði eða sjóstangaveiði eru mjög vinsælar. Berjaferðir verða með haustinu og verða auglýstar síðar. Upplýsingar: Djúp- báturinn, Isf. s. 94-3155 og 4655. Ný menntamál 2. tbl. 4. árg. Á forsíðu þessa blaðs er mynd af manni, sem virðist vera að stunda vafa- sama iðju, en í fyrstu grein heftisins er einmitt sagt frá þessari iðju. Greinin er eftir Ingólf Á. Jóhannesson og nefnist: Viltu ljósrita þetta fyrir mig? - þankar um ljósritun í skólum. Sigríður Haraldsdóttir skrifar: Neyt- endafræðsla framtíðarinnar, Hannes Ólafsson: Námskrá handa framhaldsskól- um! Þriðja sjónarmiðið - um tölvur í ' kennslu, heitir grein eftir Ragnheiði Briem. Skrifað er um einkunnagjöf og áhrif einkunna á ráðningar í störf á vinnumarkaði. Jón Hnefill Aðalsteinsson á þarna grein um Frásagnalist fyrri alda - nokkrar athugasemdir. Bókafréttir og margt fleira er í þessu blaði, sem gefið er út af Bandalagi kennarafélaga. Ritstjóri er Hannes Ólafs- Ný bóksðluskrá Bókavðrðunnar BÓKAVARÐAN - Gamlar bækur og _ nýjar - Hverfisgötu 46 í Reykjavik hefur nýlega gefið út Bóksöluskrá nr. 39. Skráin er 40 bls. og er bókatitlum skipt eftir efni: Norræn fræði og íslensk og héraðssaga og ættfræði, þýddar skáldsögur af eldra tagi, m.a. ýmsar frægustu skáldsögur allra tíma eftir Dickens, Verne, Conan-Doyle, Victor Hugo, Tolstoj o.m.fl., leikrit og leikhúsefni, menningarsaga og íslands- saga, hagnýt efni og blandaðar fagbók- menntir og ýmsir fleiri flokkar bóka og tímarita. Af einstökum verkum má t.d. nefna Aarböger for nordisk oldkyndighed frá upphafi til kringum 1960, næstum 100 árgangar þessa merka undirstöðurits í norrænum fræðum og sögu og fornleifa- fræðilestrarbók Sigurðar Nordals með hinum fræga formála um samhengið í íslenskum bókmenntum, sem höfundur- inn felldi síðan niður í síðari útgáfum, Árferði á Islandi eftir Þorvald Thor- oddsen, Orðabók Konráðs Gíslasonar 1869, hin fræga bók Adolfs Hitlers: Mein Kampf, pr. í Þýskalandi 1932 og einnig Nmálverkaprentanabók sama höfundar. Bókaskrá Bókavörðunnar er ókeypis send öllum sem þess óska utan Stór- Reykjavikursvæðis og afhent í verslun- inni að Hverfisgötu 46 nokkru eftir út- komu. Útivistarferðir Miðvikudagsferð verður 2. júlí kl. ' 08.00. Tilvalið er að dvelja heila eða hálfa viku í Þórsmörk. Sérstakt hús er fyrir sumardvalargesti. Fullkomin snyrtiað- staða með vatnssalernum og sturtum. Verð á vikudvöl kr. 3.420.- (félagar) og 4.490,- (utanfélagar). Sumarleyfisferðir á Hornstrandir 8.-17. júií Hornstrandir - Hornvik, tjald- bækistöð. 8.-17. julí Hesteyri - Aðalvík - Hornvík, bakpokaferð 16.-20. júli Hornvík - Reykjafjörður 18.-25. júlí Strandir - Reykjafjörður - Hornstrandir 2. -6. júlí: Kjölur - Sprengisandur - Skagi. Einnig siglt í Drangey. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni Grófinni 1, símar: 14606 og 23732. Minningarkort Minningarsjóðs Samtaka um kvennaathvarf Samtök um kvennaathvarf hafa nýlega látið gera minningarkort og mun það fé, sem þannig kemur inn, renna óskert til, reksturs Kvennaathvarfsins. Nokkrar gjafir hafa þegar borist. Kortin eru afgreidd á teimur stöðum, Reykjavíkur Apóteki og á skrifstofu sam- takanna í Hlaðvarpanum að Vesturgötu . 3, 2. hæð, sem er opin alla virka daga árdegis kl. 10.00-12.00 (og stundum lengur). Þeir sem þess óska geta hringt á skrifstofuna og fengið senda gíróseðla fyrir greiðslunni. Síminn er 23720 Félagið Norrænt mannkyn and- mælir „innflutningi smábarna“ í tilkynningu frá félagi sem nefnist „Norrænt mannkyn" segir svo: „Fundur félagsins Norrænt mannkyn, haldinn í Hveragerði 27. apríl 1986 ítrekar fyrri samþykktir félagsins þess efnis, að vara við innflutningi smábarna frá van- þróunarlöndum til Islands. Fundurinn vekúr athygli á því, að talin hefur verið ástæða til að stöðva slíkan innflutning að nokkru vegna þess að hann tengist glæpsamlegri starfsemi í Hollandi og víðar. Fundarmenn telja, að undirrót þess ófremdarástands, sem ríkir í ættleiðingar- málum hér á landi, sé löggjöf sú um fóstureyðingar af félagslegum ástæðum, sem í gildi er, og hvetur fundurinn íslendinga til að má það skammarmark af sér, sem sú löggjöf er.“ SÁÁ Samtök áhugafólks um áfeng- isvandamálið, Síðumúla 3-5, sími 82399 kl. 9.00-17.00 Sáluhjálp í viðlögum 81515 j (símsvari). Kynningarfundir í Síðumúla 3-5 fimmtudaga kl. 20.00. Sjúkrast. Vog- ur 81615/84443. í nýjasta tbl. FREYS er rætt um kjótsóluna 11. blað FREYS á þessu ári er nýkomið út. Meðal efnis í blaðinu er, að tekin er fyrir framleiðsla og sala kjöts hér á landi. Ritstjórnargreinin heitir: Skipulögð eða stjórnlaus kjötframleiðsla. Þá er viðtal við Magnús G. Friðgeirsson, fram- kvæmdastjóra Búvörudeildar Sambands- ins: Bændur og kjötsalar leiti saman að úrræðum. Dilkakjöt nefnist grein Sigur- geirs Þorgeirssonar og Stefáns Scheving Thorsteinssonar, Rannsóknastonfun landbúnaðarins. Þar er mikið rætt um hvernig brugðist skuli við því vandamáli sem fitan er í kjötinu. Kjötkaupmenn álíta að of mikil fita eigi þátt í sölutregð- unni. Þá segir frá heimsókn til einyrkja í Miðvestrinu. Þar er á ferð fulltrúi Freys í heimsókn á bæ í Shawano-sýslu í Wisc- onsin, Ólafur R. Dýrmundsson segir frá rúningsnámskeiðum á Brekku í Norður- árdal. Greinar eru um Æðarungauppeldi á Melrakkaey, og um loðdýrarækt, Einar Hannesson skrifar um laxveiðina 1985, Óttar Geirsson um Framlög til jarðabóta og aðra grein: Eru túnin í hættu? Ýmislegt fleira er í blaðinu. Hundurinn Kátur er á forsíðu, en myndina fok Gísli Ragnar Gíslason. FAXI5. tbl. 46. árgangs Tímaritið Faxi er gefið út af Málfunda- félaginu Faxa í Keflavík. Jón Tómasson er ritstjóri. í þessu blaði segir frá Sjó- mannadeginum í Keflavík og hátíðar- höldum í sambandi við hann. Forsíða blaðsins er með mörgum myndum frá þessum degi. Þá segir frá samsýningu myndlistardeildar Baðstofunnar, sem stóð 14.-22. júní. Myndir og frásagnir eru frá skólaslitum Fjölbrautaskóla Suður- nesja í vor, og ávarp skólameistara, Hjálmars Árnasonar er birt. Myndir eru af brautskráðum nemendum skólans vor- ið 1986. Kristján Ingibergsson skrifar: Hvar er frelsi okkar fiskimanna? Tvítug Grindavíkurstúlka meðal hertekinna 1916 og flutt til Englands, heitir frásögn Marínar Magnúsdóttur. Minnignargrein er um Svein Eiríksson, slökkviliðsstjóra: Athafnamaður fellur frá á besta aldri. Einnig er minningargrein um Hrein Ásgrímsson skólastjóra. Sjóslysaannáll Keflavíkur 15. hluti er í þessu blaði með myndum, frásögn Matt- híasar Hallmannssonar: Við Krisuvíkur- bjarg 2. maí 1931. Sagt er frá Vinabæja- móti í Keflavík, samsöng Karlakórs Keflavíkur og margt fleira er í blaðinu. Minningarkort Kvenfélags r iixi-;— > ninigiioMar eru seld á eftirtöldunn stööum: Bókin, Miklubraut 68 Kirkjuhúsið, Klapparstíg Austurborg, Stórholti 16 Guðrún Þorsteinsdóttir, Stangarholti 32. Opið er allan sólarhringinn, síminn er 21205. Húsaskjól ogaðstoð við konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyirr nauðgun.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.