Tíminn - 04.07.1986, Page 1
BORGARSPÍTALINN tekur í
notkun nýtt símanúmer aö morgni laugar-
dags. Nýja símanúmerið veröur 696600
og tekur þaö gildi klukkan 6 um morgun-
inn. Tekiö hefur verið í notkun nýtt og
fullkomið tölvustýrt simakerfi af gerðinni
EMS 601 frá Siemens í V-Þýskalandi.
Nýja kerfiö býöur upp á fjölda nýjunga,
svo sem símafundi, bókunarkerfi,
skammval og ýmiss konar hringihópa.
MARGRÉT
Danadrottning og
Hinrik prins koma
til landins í dag, í
óformlega heim-
sókn. Heimsóknin
stendur fram til
mánudags, aö
einkaþota drottn-
ingar flýgur þeim
heim aftur.
VEIÐI í NORÐURÁ virðist
heldur vera að glæðast, ef marka má
veiði síðasta hóps sem lauk veiði í ánni á
hádegi í fyrradag. Fengust 103 laxar í
hollinu, sem var í þrjá daga að veiðum.
BÆJARSTARFSMENN í
Hafnarfirði hafa fenpið launahækkun. Á
fundi bæjarstjórnar í gær var gengið frá
sérkjarasamningum. Meðaltalshækkunin
er um sjö prósent.
VESTUR-LANDEYINGAR
verða að kjósa aftur. Ástæða þessa er að
vafaatkvæði var úrskurðað ógilt og skiptir
atkvæðið miklu, þar sem áður en atkvæð-
ið var dæmt ógilt voru hlutföllin tveir menn
óháðra gegn þremur mönnum K-listans.
Eftir ógildingu vann K-listinn mann af
óháðum. Ekki hefur verið ákveðið hvenær
kosning fer fram.
SÖNGVAKEPPNI sjónvarps-
stöðva var heldur kostnaðarsamari, en
gert var ráð fyrir í frumkostnaðaráætlun.
Skeikaði þar milljón, og var heildarkostn-
aður við þátttöku íslendinga um sjö millj-
ónir í stað sex sem reiknað var með í
upphafi.
FRITZ LEUTILER fyrrverandi
bankastjóri svissneska þjóðarbankans,
hefur ákveðið að segja af sér sáttasemj-
arastarfi því sem hann hafði í viðræðum
milli stjórnar Suður-Afríku og alþjóða-
banka sem lána fjármagn til landsins.
Leutiler tók þessa ákvörðun í mótmæla-
skyni við neyðarástandslögin sem sett
voru á í Suður-Afríku fyrir rúmum þremur
vikum.
LANDSMÓT hestamanna heldur
áfram í dag með því að stóðhestar verða
sýndir dómnefnd, undanúrslit verða í
A-flokki gæðingakeppninnar, töltkeppni
og kynningu félags hrossabænda, ungl-
ingakeppni tólf ára og yngri og kaupstaða-
ferð kemur á mótssvæðið. Um kl. 19.00
verður farið í sameiginlegan útreiðartúr
um Rangárvelli og frá kl. 21.00 verða
rútuferðir á hálftíma fresti frá Hellu á
dansleikinn í Njálsbúð. [ gær fékk Kristall
hæstu einkunn í undanúrslitum B-flokks
gæðinga, hlaut einkunnina 8,69. Númer
tvö varð Snjall með 8,66. Númer þrjú varð
Sölvi með 8,56.
KRUMMI
„Hann skyldi þó
aldrei vera blettótt-
ur hreini skjöldurinn'
sem Ólafur Ragnar
talaði um? “
Bolungarvíkursamkomu-
lagi vísað frá í Reykjavík
Framsóknarfulltrúinn situr hjá og kynnir sérstaka bókun
Tillögu frá fulltrúum Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalista um að lágmarkslaun
hjá Reykjavíkurborg verði 27 þús.
frá og með 1. júlí og 30 þús frá og
með 1. sept. var vísað frá á borgar-
stjórnarfundi í gær. Kristín Á.
Ólafsdóttir talaði fyrir tillögunni
og sagði að hér væri um aðgerð að
ræða til að bregðast við siðlausu
ástandi í launamálum. Hún sagði
að þessi aðgerð ætti ekki að stuðla
að tvöföldu launakerfi, enda yrði í
næstu kjarasamningum tekið tillit
til starfsaldurs og eðlilegs hlutfalls
dagvinnu og eftirvinnu í launum.
Elín Ólafsdóttir, Kvennalista,
tók mjög í sama streng og sagði
fólk þreytt á þjóðarsátt sem gerð
hafi verið af nokkrum mönnum
bak við luktar dyr.
Sigrún Magnúsdóttir, Fram-
sóknarflokki sat hjá við atkvæða-
greiðslu um tillöguna, en kynnti
sérstaka bókun þar sem hún lýsir
sig sammála því að tryggð verði 30
þúsund króna lágmarkslaun. Hins
vegar segir hún í bókuninni, að
hún telji ekki rétt að rjúfa þá
samstöðu sem náðist í febrúarmilli
ríkisvalds og aðila vinnumarkaðar
um að ná verðbólgu niður, ekki
síst þar sem slíkir samningar væru
forsenda þess að takast mætti á við
launahækkanir í næstu samning-
unt.
Davíð Oddsson borgarstjóri bar
upp frávísunartillögu fyrir hönd
meirihlutans, ogvitnaði í málflutn-
ingi sínum til ummæla borgarfull-
trúa Alþýðubandalags og Alþýðu-
flokks þegar samningarnir voru
samþykktir á sínum tíma, og
minnti á að þá hafi Kvennafram-
boðið eitt verið á móti þeim. í
greinargerðinni með frávísunartil-
lögunni segir að víðtæk samstaða
hafi náðst um þessa samninga,.
enda hafi þeir haft í för með sér
kjarabætur, lækkandi verðbólgu og
stöðugra verðlag. Þar segir enn
fremur, að tillagan sé til þess gerð
að brjóta upp það samkomulag
sem gert var í febrúar og muni
þegar til lengdar lætur ekki auka
eða tryggja kaupmátt launafólks.
-BG
Gerð undirgangna undir Miklubraut, frá nýja Hagkaupshúsinu miðar vel. Umferðin hefur verið leidd framhjá framkvæmdarsvæðinu, og rennur
straumur bifreiða nú til beggja handa við verktakana sem við undirgöngin vinna. Tímamynd Pctur.
BJ og Alþýðubandalag
fengu fé frá Hafskip
- fullyröir Magnús Bjarnfreösson í grein í DV
Magnús Bjarnfreðsson fullyrðir,
í grein sem hann ritaði í DV í gær,
að Alþýðubandalag og Bandalag
jafnaðarmanna hafi þegið fjár-
stuðning úr sjóðum Hafskips.
Jafnframt kemur sú skoðun
Magnúsar í ljós að honum finnst
ekkert athugavert við að stjórn-
málaflokkar þiggi féfrá fyrirtækj-
um, heiti þeir ekki pólitískum
stuðningi í staðinn. Þessa skoðun
ítrekaði Magnús í samtali við Tím-
ann í gær, og sagði jafnframt að
upplýsingar þær sem hann byggði
fullyrðingu sína á væru komnar frá'
„manni sem væri öllum hnútum
ákaflega vel kunnugur," eins og
Magnús orðaði það. „Ég hef nátt-
úrlega ekki séð bókhald Hafskips,"
sagði Magnús.
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins var spurður um
fullyrðingu Magnúsar. Hann sagð-
ist ekkert botna í þessu og sagði
„ég held þetta sér rugl.“
Kristín Waage starfsmaður hjá
Bandalagi jafnaðarmanna sagði að
leitað yrði frekari sannana hjá
Magnúsi vegna fuilyrðingar hans.
En hún sagði að sér væri ekki
kunnugt um greiðslur. „Við bíðum
spennt eftir upplýsingunt," sagði
Kristín.
Magnús var spurður hvort um
verulega fjárhæðir væri að ræða og
sagði hann að ekki væri um að
ræða gígantískar upphæðir en
sagði jafnframt að verið væri að
tala um peninga.
Páll Pétursson:
„Ég hefði
sagt af mér “
„Ég er ekki að gera það að
tillögu minni að Albert Guð-
mundsson segi af sér embætti.
Hins vegar er ég þess fullviss
að ef hliðstætt ástand hefði
skapast hjá einhverjum af ráð-
herrum Framsóknarflokksins
þá hefði hann beðist lausnar og
ef ég hefði verið í sporum
Alberts Guðmundssonar hefði
ég beðist lausnar frá embætti."
Þetta segir Páll Pétursson þing-
flokksformaður framsóknar-
manna í viðtali um málefni
Alberts Guðmundssonar á bls.
7.
-ES