Tíminn - 04.07.1986, Blaðsíða 5

Tíminn - 04.07.1986, Blaðsíða 5
Föstudagur 4. júlí 1986’ Tíminn 5 UTLÖND lllillllil Ifllllllilllli! Noregur: Hvalveiðibann! Norska stjórnin laut fyrir alþjóðlegum þrýstingi og peningaguðnum Mammon Osló-Reuter Það fór eins og Tíminn skýrði frá í gær. Norska stjórnin hefur látið undan alþjóðlegum þrýstingi og sett bann á hvalveiðar í gróðraskyni. Stjórnvöld tilkynntu um bannið í gær sem taka mun gildi á næsta ári. Knut Frydenlund utanríkisráð- herra sagði á blaðamannafundi í gær að Norðmenn myndu hætta hval- veiðum þessum að loknu yfirstand- andi veiðitímabili en myndu þó halda áfram að veiða hvali í vísinda- skyni. Noregur var þar með síðasta þjóð- in til að lúta banni Alþjóða hval- veiðiráðsins um bann á hvalveiðar í gróðraskyni. Islendingar. Sovét- menn, Japanar og Suður-Kóreubúar veiða enn hvali en hafa samþykkt bannið í höfuðatriðum. Norska stjórnin hefur ákveðið að skipa óháða nefnd sem rannsaka mun ástand hrefnustofnsins en Norðmenn veiða 400 hrefnur á þessu ári og er það eina hvalveiði þeirra. Til samanburðar má nefna að á fyrstu árum þessa áratugs veiddu Norðmenn 2000 hrefnur á hverju veiðitímabili. Samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar hafði Bandaríkja- stjórn haft uppi alvarlegar hótanir um að stöðva allan innflutning á norskum sjávarafurðum til Banda- ríkjanna myndu Norðmenn ekki samþykkja bann Alþjóða hvalveiði- ráðsins. Norðmenn selja sjávaraf- Hvalir fór hæð sína í loft upp í gær er Norðmenn ákváðu að hætta veiðum á þeim nema í nafni vísindamennsku. Marokkó: Hassan gaf dóttur markvarðar nafn Rabat-Rcuter. Hassan konungur Marokkó hef- ur valið nafn handa nýfæddri dótt- ur Badou Zakis en sá er frægur fyrir að hafa varið mark landsliðs þeirra Marokkóbúa í knattspyrnu og keppti í heimsmeistaramótinu í Mexíkó nú á dögunum. Dóttirin fæddist á sama tíma og Zaki henti sér hornanna á milli í mörkum Mexíkóvalla. Samkvæmt hefð í Marokkó mun því konungurinn verða nokkurs konar guðfaðir stúlkubarnsins. Zaki er væntanlegur heim til Marokkó í dag ásamt öðrum liðs- mönnum knattspyrnulandsliðsins sem stóð sig frábærlega í Mexíkó og komst í milliriðla keppninnar miklu. Abdellatif Semlali æsku- og íþróttamálaráðherra landsins sagði Hassan konung hafa nefnt dóttur markvarðarins eftir einni dóttur sinni sem heitir Hasnaa. urðir til Bandaríkjanna fyrir 160 milljónir dollara á ári hverju. Talsmönnum grænfriðunga bar ekki alveg saman í gær. Einn sagði ákvörðun Norðmanna vera stóran sigur fyrir umhverfisverndunar- menn. I höfuðstöðvum samtakanna á Suður-Englandi var hinsvegar sagt að ákvörðunin væri svindl og Norð- menn myndu halda áfrarn að veiða hvali og selja í gróðraskyni. Bandaríkin: Offita er arfgeng Chicago-Reuter Rannsókn sem gerð var á rúmlega fjögur þúsund tvíburapörum hefur sýnt að erfðir ráða mestu í sambandi við offitu. Petta kom fram í niður- stöðum rannsóknarskýrslu sem birtar voru í gær. Vísindamenn við háskólann í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum kom- ust að þessari niðurstöðu með því að bera saman eineggja tvíbura og þá sem tvíeggja voru. Þau tilvik þarsem báðirtvíburarn- ir áttu við offituvandamál að stríða voru tvisvar sinnum algengari hjá eineggja tvíburum. „Pessi rannsókn gefur í skyn að erfðir ráði mjög miklu í sambandi við offitu." stóð í skýrslunni sem er að finna í tímariti bandaríska lækna- félagsins. V-Þýskaland: Andúð á Pinochet var sýnd í verki Hamborg-Reuter. Hópur flóttamanna frá Chile sem lifir í útlegð í þýsku hafnarborginni Hamborg tóku á sitt vald sendiráðs- skrifstofu Chile þar í borg í gær til að sýna andúð sfna á herforingja- stjórn Pinochet. Talsmaður lögreglunnar sagði eina sautján Chilebúa hafa ruðst inn í skrifstofuna og hentu þeir fljótlega tveimur myndum af Pinochet út um glugga hennar. Starfsmenn sendi- ráðsskrifstofunnar komu þó í veg fyrir að hópurinn gæti sent símskeyti til innanríkisráðherra Chile. Um hundrað manna hópur safn- aðist saman fyrir utan sendiráðið til að sýna samúð sína með flótta- mönnunum. f gær hélt herinn í Chile áfram að brjóta niður mótmæli stjórnarand- stæðinga með harðri hendi. Sóhóhverfiö í Lundúnum: Klámkóngar verða að leita annað Lundúnir-Reuter Sóhóhverfið í Lundúnum hefur síðustu 25 árin aðallega verið þekkt fyrir blómlegan klámiðnað þar sem kynlífsbúðir og erlent „pansýningar- fólk“ hafa ráðið ríkjum. Bæjarráð Westminster, sem Soho- hverfið tilheyrir, hefur nú hinsvegar ákveðið að flæma á burt flestalla klámkónga Soho í eitt skipti fyrir öll. í síðustu viku samþykkti bæjar- ráðið nýjar leyfisreglur vegna opn- unar klámbúlla og lýsti um leið yfir þeirri stefnu sinni að loka um fimm- tíu af þeim sextíu kynlífsfyrirtækjum sem í hverfinu eru. Peter Hartley formaður umhverf- isnefndar bæjarráðsins sagðist vel skilja að klámiðnaðarhverfi yrði að vera í stórborg eins og Lundúnum. Hann bætti því hinsvegar við að margar klámbúllurnar væru vafa- samar í meira lagi og hefðu gefið Soho slæmt nafn, þeim yrði því lokað. Líklegt er talið að um næstu jól verði farið að draga verulega úr klámstarfseminni í Soho. Allir vita þó að iðnaðurinn hverfur ekki en hvar næsta hverfi klámsins í Lundún- um verður er þó ekki alveg vitað. laðbera vantar / eftirtalin hverfi. Lindarbraut, Miðbraut, Vallarbraut. Til afleysinga í1 mánuð ríminn SIÐUMULA 15 S686300 Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd gatnamálastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboð- um í lagningu holræsaífyllingar norðan Sætúns, milli Kringlumýrarbrautar og Laugalækjar, hol- ræsaífyllingar norðan Sætúns, milli Kringlumýr- arbrautar og Laugalækjar, holræsa sunnan Sæ- túns ásamt gerð yfirfallsbrunns við Kringlumýrar- braut svo og tenginga við eldra holræsakerfi. Verk þetta nefnist Sætúnsræsi, þriðji áfangi. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík gegn kr. 10.000.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 15. júlí n.k. kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVlKURBORGAR Fríkirltjuvagí 3 — Simi 25800 Málningarvinna Tilboð óskast í að mála að utan húseignina Háaleitisbraut 68 (Austurver). Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar Háaleitisbraut 68, til 9. júlí nk. Stjórn húsfélagsins. Orkubankinn Nýtt á íslandi: Teygjunámskeið Þann 7. júlí til 11. júlí hefjast í Orkubankanum svokölluð teygjunámskeið. Námskeiðið er nýjung hér á landi, og er jafnt fyrir íþróttafólk sem almenning. Hinn vinsæli Kung-fu kennari Friðrik Páll Ágústsson er leiðbeinandi. Frekari upplýsing- ar í Orkubankanum í síma21720. Verð 1.000- kr. Bifvélavirkja vantar Kaupfélag Vopnfirðinga óskar eftir að ráða bifvélavirkja eða menn vana bílaviðgerðum í 2 til 3 mánuði, mikil vinna. Upplýsingar gefur verk- stæðisformaður eða kaupfélagsstjóri í síma 97- 3200.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.