Tíminn - 04.07.1986, Blaðsíða 12

Tíminn - 04.07.1986, Blaðsíða 12
16 Tíminn DAGBÓK Sumarferð Framsóknar- félaganna í Þórsmörk Árleg sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykjavíkverð- ur sunnudaginn 20. júlí nk. Farin verður dagsferð í Þórsmörk. Sætagjald fyrir fullorðna verður kr. 650 og kr. 450 fyrir 12 ára og yngri. Upplýsingar og skráning er á skrifstofu Framsóknar- flokksins að Rauðarárstíg 18, sími 24480. Nánar auglýst síðar. Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík Kennara vantar að Stóru-Vogaskóla, Vogum, Vatnsleysustrandar- hreppi. Meðal kennslugreina: Eðlisfræði, líffræði og tungumálakennsla (enska, þýska). í sveitarfé- laginu eru um 650 íbúar og þaðan eru um 35 km. til Reykjavíkur. Upplýsingar veita: Hreiðar í síma 92-6520 og Einar í síma 92-6600. SJ LANDSVIRKJUN Vinnubúðir til sölu Landsvirkjun áformar að selja, ef viðunandi tilboð fást, vinnubúðir við Búrfellsstöð. Um er að ræða eftirtalin hús: 4 íbúðarhús stærð 100 m2 1 mötuneytishús stærð 260 m2 1 íbúðarhús stærð 50 m2 1 svefnskáli stærð 260 m2 Dagana 4.-5. þessa mánaðar munu starfsmenn Landsvirkjunar sýna væntanlegum bjóðendum húsin frá kl. 10-18. Nánari upplýsingar veitir innkaupastjóri Lands- virkjunar. Tilboð þurfa að berast Landsvirkjun, innkaupa- deild, Háaleitisbraut 68, 108 Reykjavík, eigi síðar en 8. þessa mánaðar. Notum Ijós í auknum mæli — í ryki, regni.þoku og sól. UMFERDAR RÁÐ yUMFEROAR rAd Á mölinni mætums* með bros á vör — ef bensíngjöfin er tempruð. Ferðafélag íslands Helgarferðir 4.-6. júlí 1) Hagavatn - Jarlshettur. Gist í sælu- húsi F.í. við Hagavatn og tjöldum. Farar- stjóri er Leifur Þorsteinsson. 2) Hluðuvellir - Brúarárskörð - göngu- ferð Gist fyrstu nóttina við Hagavatn, en þá seinni á Hlöðuvöllum. Gist í húsum. Fararstjóri er Jón Viðar Sigurðsson. 3) Þórsmörk - Gist i Skagfjörðsskála. Sumarleyfi í Þórsmörk svíkur engan. Ath.: Af gefnu tilefni er ástæða til þess að vekja athygli ferðamanna á því, að ekki er fólksbílafært til Þórsmerkur, að- eins að Markarfljótsbrú. Ferðafélag íslands. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins 1) 8.-16. júlí (9 dagar): Aðalvík - Hornvík. Gengið mcð viðleguútbúnað frá Aðalvík til Hornvíkur á 3-4 dögum. Skoðunarferðir í Hornvík. Fararstjóri er Jón Gunnar Hilmarsson. 2) 8.-16. júlí (9 dagar): Hornvík -• Hornbjargsviti - Látrabjarg. Gist í tjöld- um í Hornvík og daglegar gönguferðir frá tjaldstað. 3) 2.-9. júlí (ódagar): Landmannalaug- ar - Þórsmörk. Gengið milli gönguhúsa F.í. með svefnpoka og mat. Öruggara að panta tímanlega. 4) 11.-19. júlí (Sdagar): Borgarfjörður cystri - Loðmundarfjörður. Flogið til Egilsstaða og ekið þaðan til Borgarfjarð- ar. Gist í svefnpokaplássi. Fararstjóri er Tryggvi Halldórsson. 5) 16.-20. júlí (5 dagar): Eldgjá - Strútslaug - Álftavatn gönguferð með viðleguútbúnað. 6) 18.-23. júlí (6 dagar): Landmanna- laugar - Þórsmörk 7) 18.-24. júlí (7 dagar): Vestfirðir - hringferð - ekið um Vestfirði, Djúp, skoðunarferðir frá áningarstöðum. Til baka er ekin Streingrímsfjarðarheiði. Gengið frá Keldudal um Svalvoga, Lokin- hamradal til Álftamýrar. Upplýsingablað á skrifstofunni. Fararstjóri er Sigurður Kristinsson. Hringið og fáið upplýsingar umferðirnaráskrifstofu F.f. Öldugötu3. Dagsferðir Ferðafélagsins 1) Laugardag 5. júlí kl. 13.00: Flóra íslands (blómaskoðun) Fararstjóri verður Þóra Ellen Þórhallsdóttir. 2) Sunnudagur 6. júlí kl. 09.00: Laxár- gljúfur - Hrunakrókur. Ekið að Tungu- felli og síðan Línuveginn. Gengið niður Laxárgljúfur. Fararstjóri er Ólafur Sig- urgeirsson. 3) Sunnudagur 6. júlí kl. 13.00: Kamba- brúnir - Núpafjall. Gengið með brún Núpafjalls og komið niður hjá Hjalla í Ölfusi. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Helgarferðir 11.-13. júlí 1) Melar í Hrútafirði - Haukadalsskarð - Haukadalur (gömul gönguleið) Gist í svefnpokaplássi. 2) Þórsmörk - Gist í Skagfjörðsskála. Gönguferðir við allra hæfi. 3) l.andmannalaugar Gist í sæluhúsi F.í. Gönguferðir. 4) Hveravellir - Gist í sæluhúsi F.í. Þjófadalir. Hvítárnes o.fl. Útivistarferðir Helgarferðir 4.-6. júlí Þórsmörk Gist í skálum Útivistar í Básum. Góð sumardvöl fyrir fjölskyld- una. Einnig eru sunnudags- og miðviku- dagsferðir. Flatey - Breiðaljarðareyjar Dvöl í Flatey og sigling um eyjarnar. Skaftafell - Oræfi. Tjaldað í Skafta- felli. Skaftafell - Öræfajökull. Gengin Sand- fellsleið á Hvannadalshnjúk. Tjaldað í Skaftafelli. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni Grófinni 1. símar 14606 og 23732. Viðeyjarferð á laugardaginn kl. 14.00 Þjóðleið mánaðarins: Njarðvíkurfitjar- Skipsstígur á sunnudaginn kl. 13.00. Þórsmörk einsdagsferð á sunnudaginn. Útivist Útivistarferðir Dagsferðir: Laugardagur 5. júlí kl. 14.00 - Viðeyjar- ferð. Brottför frá kornhlöðunni í Sunda- höfn. Gengið um eyjuna undir leiðsögn. Kaffiveitingar í Viðeyjarnausti (ekki inni- falið). Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Kynnist Viðey á afmælisárinu. Sunnudagur 6. júlí kl. 08.00 - Þórsmörk. Gönguferðir við allra hæfi. Einnig góð ferð fyrir sumardvalargesti. Sunnud. kl. 13.00 - Þjóðleið mánaðarins: Skipsstígur gamli Grindavíkurvegurinn. Létt ganga. Kaffistopp við Bláa lónið. Brottför frá BSl, bensínsölu. Sog - Djúpavatn er kvöldganga á mið- vikudag kl. 20.00 Þórsmerkurferð á mið- vikudagsmorguninn kl. 08.00. Símar á skrifstofu Útivistar: 14606 ogh 23732. Föstudagur4. iúlí 1986 Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Frístunda- hópsins Hana nú í Kópavogi verður á morgun, 5. júlí. lagt verður af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Anægjuleg er vaxandi þátttaka fólks með börn sín og barnabörn og ítrekað er að bæjarrölt Hana nú á laugardögum er fyrir alla Kópavogsbúa. . Nú eru garðar bæjarins í fegursta sumarskrúða og gróðurangan í bænum. Markmiðið er: Samvera, súrefni, hreyf- ing. MÚLABÆR Flóamarkaður í Múlabæ - Þjónustumiðstöð aldraðra i Ármúla 34 - Starfsfólk í Múlabæ hyggst efna til Flóamarkaðar laugardaginn 5. júlí kl. 14,00-17,00 í og við Múlabæ. Útimarkað- ur verður í gangi ef vel viðrar. Fjölmargt eigulegra muna, bæði fatnaður og innan- stokksmunir, notaðir og nýir. Kaffi verð- ur á könnunni. Afrakstri verður varið til byggingar skjólhýsis á svölum heimilisins, sem mun gera heimilisfólki kleift að njóta útiveru í ríkara mæli. Dregið í tveimur happdrættum hjá Ferðafélagi íslands í fyrsta lagi var efnt til happdrættis á göngudegi F.í. 25. maí sl. Vinninga hlutu: Gunnar Tyrfingsson, Stórateig 7, Mosfellssveit - helgarferð að eigin vali fyrir tvo. Valdimar Helgason, Rauðalæk 23, R. - dagsferð að eigin vali fyrir tvo. Þorvaldur Tryggvason, Hvassaleiti 121, R - dagsferð að eigin vali fyrir tvo. 1 öðru lagi var efnt til happdrættis fyrir þá sem tóku þátt í Esjugöngum Ferða- félgsins f tilefni af 200 ára afmæli Reykja- ■ vtkur og vinningar voru helgarferðir fyrir tvo að eigin vali. Þeir sem unnu voru þessir: Hjalti Kristgeirsson, Njálsgötu 12, R., Selma Hallgrímsdóttir, Bogahlíð 24, R., Dóra E. Sigurjónsdóttir, Réttarholts- vegi 69, Málfríður Konráðsdóttir, Leifs- götu 24 og Jetta Kjærgárd, Grenimel 7. Vinningshafar eru beðnir að gefa sig fram á skrifstofu félagsins, Öldugötu 3 og velja sér ferðir að eigin vali. - Ferðafélag fslands. Sumarferð fyrir aldraða á Vestfjörðum Rauða kross deildir á Vestfjörðum efna til árlegrar sumarferðar með aldraða þann 16. ágúst n.k. Að þessu sinni verður farið að Þela- mörk í Eyjafirði og dvalið þar 16.-22. ágúst. Farið verður í ferðir þaðan. Nánari upplýsingar gefa: Áslaug Ármannsdóttir, Flateyri í síma 7798 og Sigrún G. Gísla- dóttir, Flateyri, sími 7770. Háls-, nef- og eyrnalæknir á Norðurlandi eystra og Austurlandi Einar Sindrason háls-, nef- og eyrna- læknir ásamt öðrum sérfræðingum Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands verða á ferð á Norðurlandi eystra og Austurlandi dagana 7.-13. júlí n.íc. Rann- sökuð verður heyrn og tal og útvegið heyrnartæki. Farið verður á eftirtalda staði. Kópasker...................... 7. júlí Raufarhöfn ................... 8. júlí Þórshöfn...................... 9. júlí Vopnafjörður..................10. júlí Egilsstaðir........... 11. og 12. júlí Seyðisfjörður.................13. júlí Tekið á móti tímapöntunum á viðkom- andi heilsugæslustöð og er fólki bent á að panta tíma sem fyrst. Nýmenntamál 2. tbl. 4. árg. Á forsíðu þessa blaðs er mynd af - manni, sem virðist vera að stunda vafa- sama iðju, en í fyrstu grein heftisins er einmitt sagt frá þessari iðju. Greinin er eftir Ingólf Á. Jóhannesson og nefnist: Viltu ljósrita þetta fyrir mig? - þankar um ljósritun í skólum. Sigríður Haraldsdóttir skrifar: Neyt- endafræðsla framtíðarinnar, Hannes Ólafsson: Námskrá handa framhaldsskól- um! Þriðja sjónarmiðið - um tölvur í kennslu, heitir grein eftir Ragnheiði Briem. Skrifað er um einkunnagjöf og áhrif einkunna á ráðningar í störf á vinnumarkaði. Jón Hnefill Aðalsteinsson á þarna grein um Frásagnalist fyrri alda - nokkrar athugasemdir. Bókafréttir og margt fleira er í þessu blaði, sem gefið er út af Bandalagi kennarafélaga. Ritstjóri er Hannes Ólafs- son. Opið er allan sólarhringinn, síminn er 21205. Húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyirr nauðgun. Orkubankinn Nýtt teygjunámskeið ORKUBANKINN, Vatnsstíg 11, er nú með námskeið, sem er nýjung á Islandi. Þann 7. júlí til 11. júlí hefjast í Orkubankanum svoköluð teygjunámske- ið. Námskeiðið er jafnt fyrir íþróttafólk sem almenning. Hinn vinsæli Kung-fu kennari Friðrik Páll Ágústsson er leið- beinandi. Frekari upplýsingar í Orku- bankanum í síma 21720. t Fríðrík Páll Ágústsson, Kung-fu-kennarí.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.