Tíminn - 04.07.1986, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.07.1986, Blaðsíða 6
6 Tíminn Timinn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvaemdastjóri Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjóri: Aðstoðarf réttastjóri: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason NíelsÁrni Lund OddurÓlafsson Guðmundur Hermannsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.- Taka verður á skattsvikum Lengi hefur það verið vitað að skattsvik tíðkast hér á landi í miklum mæli. Algengasta leið einstaklinga sem stunda þessa iðju er að gefa ekki upp réttar tekjur sínar sem þeir fela á einn eða annan hátt, oft með því að selja vinnu sína án þess að það komi fram. Þetta sama má segja um ýmiss iðn- og þjónustufyrir- tæki ásamt verslunum þar sem nótulaus viðskipti eru tíðkuð og ekki staðið skil á söluskatti. Þessi mál bera ekki hvað síst á góma þegar skattskrár eru lagðar fram og mönnum gefst tækifæri á að sjá hvað hver einstaklingur borgar til hins opinbera og jafnframt að bera uppgefnar tekjur hans við hans daglegu umsýslan. Hún er oft í hróplegu ósamræmi við þau laun sem viðkomandi gefur upp sem sínar tekjur til að lifa af. Hversu furðulegt sem það svo er, þá eru það oft þessir sömu einstaklingar sem hvað mest fjargviðrast um lélega þjónustu hins opinbera, s.s. slæma vegi, lélega skóla og vilja betri heilsugæslu svo eitthvað sé nefnt. Það er eins og þeir átti sig ekki á því að tekjur sam- félagsins koma frá þegnunum og þeir eru einir af þeim. í grein sem Jón Kristjánsson, alþingismaður ritaði í Tímann í síðustu viku fjallar hann um þessi mál og nauðsyn þess að skattsvik verði með öllu upprætt. Þingmaðurinn vitnar til skýrslu fjármálaráðherra Þor- steins Pálssonar um störf nefndar sem kannað hefur umfang skattsvika. Um þessa skýrslu varð mikil umræða s.l. vor, sem ekki er undarlegt miðað við þær tölur sem þar koma fram, og full ástæða til að vekja á þeim athygli að nýju. í skýrslunni segir: „Niðurstaða starfshópsins er sú að umfang dulinnar starfsemi hérlendis sé á bilinu 5-7% af vergri landsframleiðslu. Ef miðað er við 6% sem meðaltal, nemur þetta um 6,5 milljörðum króna árið 1985 miðað við áætlaða verga landsframleiðslu. Tap hins opinbera vegna vangoldinna beinna skatta og söluskatts má áætla um 2,5-3^) milljarða króna árið 1985.“ Svo vitnað sé til greinar Jóns Kristjánssonar alþingis- manns segir hann eftirfarandi: „Þetta er hrikaleg niðurstaða sem hlýtur að kalla á tafarlausar aðgerðir til úrbóta. Mér rennur til rifja sem þingmanni að tala fyrir niðurskurði á bráðnauðsynlegum framkvæmdum hins opinbera, meðan menn komast upp með að greiða ekki lögboðin gjöld til samfélagsins. Þegar þessi upphæð nemur fjárlagahallanum sem er þó eitt mesta efnahags vandamál þjóðarinnar um þessar mundir, þá er manni meir en nóg boðið. Það verður að gera tafarlausar ráðstafanir til úrbóta í þessum efnum. Það má furðulegt heita hvað stór hópur manna í þjóðfélaginu telur ekkert athugavert við að hafa fé af ríkisvaldinu og samfélaginu.“.„Hinn almenni launa- maður í landinu mun ekki líða það til lengdar að nágrannar hans leiki sér með þrjá milljarða, skattsvikna, meðan þeir borga fullt og fjármagn vantar til fram- kvæmda, þjónustu og skuldagreiðslna hins opinbera. Það mætti setja sér það markmið að ná helmingi þessarar upphæðar inn þegar á næsta ári og það gæti vissulega tekist ef verulega vel er tekið á málum.“ Þessi orð Jóns Kristjánssonar alþingismanns eru vissulega þess virði, nú þegar erfitt reynist að koma saman fjárlögum, að eftir þeim sé tekið. Það var einnig þakkarvert að fjármálaráðherra Þor- steinn Pálsson lét sérstaka nefnd kanna þessi mál. Nú reynir á að unnið sé í samræmi við niðurstöður hennar. Á það naunu framsóknarmenn leggja áherslu. Föstudagur 4. júlí 1986 GARRI Að græða á neyð annarra Haraldur Blöndal, hæstaréttar- lögmaöur, skrifar mjög athygl- isverða grein í Mbl. 27. júní sl. Gerir hann þar að umtalsefni grein er Davíð Björnsson, deildarstjóri verðbréfadeildar Kaupþings hf. rit- aði í Mbl. um íslenska ávöxtunar- sjóði. Þessir sjóðir eru tveír og eru í eigu hlutafélaga, Kaupþings hf. og Fjárfestingarfélagsins hf. Sjóðir þessir raka saman fé og skiluðu 54% ársávöxtun fyrsta árið og svaraði það til 20% vaxta umfram verðtryggingu. Til samanburðar má geta þess, að verðtryggð ríkis- skuldabréf bera 9% raunvexti. Gífurleg afföll Þessir tveir ávöxtunarsjóðir fjárfesta aðallcga í verðtryggðum og fasteignaveðtryggðum skuldab- réfum og cru þessi bréf keypt með gífurlegum afföllum. Sú er skýring- in á miklum gróða ávöxt- unarsjóðanna. Haraldur Blöndai segir: „ Verðtryggð reðskuldabréf eru oftast gefín út af tveimur ástæðum. Annars vegar eru þau gefin út fyrir eftirstöðvum kaupverðs í fast- eignaviðskiptum. Slík bréf eru til nokkuð margra ára, enða hafa fasteignasalar gert sér greín fyrir því, að verðtryggð skuldabréf eru hengingaról fyrir hvern mann, nema að þau séu a.m.k. tilátta ára. Eigendur þessara bréfa selja þau gjarnan þegar þeir eru í fjárþröng, en bankar taka tæpast svona bréf af almúgamanni sem greiðslu eða tryggingu, ncma viðkomandi sé kominn í vandræðavanskil við bankann. Afföll af þessum bréfum eru mjög mikil.“ Okurbréfin Ennfreinur scgir Haraldur: „Hins vegar eru gefin út bréf, sem lögmenn kalla sín á milli okurbréf. Óheimilt er að kaupa bréf með afföllum af skuldara, og þess vegna er búinn til milliliður, sem verður eigandi bréfsins og selur bréfíð. Framkvæmdastjóri fyrirtækis sem selja þarf þessi bréf, er talinn kröfuliafí bréfsins eða eigandi, og fyrirtækið skuldari. Framkvæmdastjórinn selur síðan Haraldur Blöndal, hæstaréttaríög- maður. bréfíð með afföllum eins og hann ætti það. Allir vita, að hér er verið að fara í kringum okurlögin ogþað hefur gengið hæstaréttardómur um, aðsvona viðskiptiséu okurvið- skipti. Þessi bréf eru ekki gefín út til langs tíma og afföllin eru mjög mikil. Það er hægt að sýna fram á það,að svona bréferu gefín útmeð vitund og aðstoð starfsmanna fjár- festingafélaganna tveggja.“ Hinn ,,opinberi“ verðbréfamarkaður „Hér á landi hefur ekki verið starfandi verðbréfamarkaður undir opinberu el'tirliti. Nú mun slíkur markaður tekinn til starfa og selur rikisskuldabréf og nokkur önnur opinher bréf, sem ekki eru seld með afiöllum. Hins vegar eru önn- ur skuldabréf ekki seld þar, heldur ganga þau kaupum og sölum hjá fjárfestingarfélögunum en bæði eru þessi félög með prívatfjármála- markaði fyrir sig og á vöxtunarsjóði sína. Ég stórefast um, að framboð og eftirspurn séu þar látin ráða, heldur eru „kaupendur“ á þessum mörkuðum sammála og samtaka um að þvinga fram eins mikil afföll af bréfum og mögulegt er. Davíð Björnsson kallar þessi verðbréfa- viðskipti bagstæða fjárfestingu, - mér fínnst okur nákvæmara orða- lag. “ Að kreista blóð undan nöglum Grein sinni lýkur Haraldur með þessum orðum: „Ég tók áðan dæmi af fram- kvæmdastjóranum, sem þykist vera að lána fyrírtækinu pening- ana. Stundum er þetta öfugt. Stundum ersonurað „lána“móður sinni og setur eigin íbúð að veði fyrir að móðirin borgisér, -stund- um „lánar“ maður konu sinni. Þessi bréf lenda svo í vanskilum, enda eðlilegt, þegar afföllin eru eins og þau eru, - þá eru þau gjaldfelld, svo að afföll sem miðuð voru við 4 ár koma með fullum þunga strax á fyrsta ári. Þessi bréf eru íslenskum innlieimtulög- fræðingum vel kunn, svo og upp- boðshöldurum. Almúgafólk hefur glapist vegna fagurgala í blöðum og útvarpi til þess að gefa út og selja svona bréf, þegar bankarnir geta ekki lánað því, og svo ræður enginn við neitt. Það skiptir enda máli, hvort verið eraðgreiða 4-5% umfram verðbólgu eins og Seðl- abankinn leyfír, eða hvort menn verða að greiða 20% eins og ávöxtunarsjóðirnir ná með því að skipuleggja afföllin. Ef bankarnir færu að kaupa og selja almenn skuldabréf, myndu afföllin stórminnka og komast í eðlilegt horf. Hinn opinberi verð- bréfamarkaður er kjörinn vett- vangur til þess. En það er eins og þeir ráði þar mestu um skipulagn- ingu, sem hafa hagnað sinn af því að kreista blóðið undan nöglunum á þeim, sem minna mega sín.“ Fjárplógsstarfsemi Hér eru orð í tíma töluð. Stað- reyndin er sú, að eigendur ávöxt- unarsjóðanna tveggja eru aðilar að hinum „opinbera“ verðbréfamark- aði. Hin skuggalegu viöskipti þeirra þola ekki „opinbert“ eftirlit. Þess vegna er þcim haldið utan við hinn „opinbera“ vcrðbréfamarkað, enda ráða fulltrúar ávöxtunarsjóð- anna þar ferðinni. Um hin gífur- legu afföll hafa þeir svo samtök. Með þessari fjárplógsstarfsemi þarf strangt opinbert eftirlit. Hér þarf að taka til hcndinni. Garri. VÍTTOG BREITT Aular eða okrarar Skotar eru frægir fyrir að vera fastheldnir á fé, og borga ekki meira fyrir hlutina en þeir telja sanngjarnt verð. Því mun erfitt að hafa Skota að féþúfu. Öðru máli gegnir með íslendinga. Þeir hafa ekki hugmynd um sannvirði nokk- urs hlutar og kaupa það sem þeim sýnist hvað sem það kostar og hafa aldrei hugmynd um hvort þeir eru að gera vond eða góð kaup. Af sjálfu leiðir að þeir gera alltaf vond kaup. Það var vel til fundið, hjá Verð- lagsstofnun að bera niður í Glas- gow í Skotlandi til að gera saman- burð á verði vöru þar og hér. Þar sem Skotar eru naumir á fjármuni og eyðslusemin undir góðu meðal- hófi er fróðlegt að sjá á hvaða verði kaupmenn falbjóða þeim vöru sína. Niðurstaðan er sú að annað hvort eru íslenskir innflytjendur og kaupmenn óþokkar og okrarar, eða aular sem ekki hafa hundsvit á viðskiptum og láta prakka inn á sig vöru á verði sem er utan og ofan við allan þjófabálk. En það gerir þeim ekkert til því að þeim mun dýrari sem varan er í innkaupi þeim mun hærri álagn- ingu er smurt á hana, og endanlega er það neytandinn sem borgar brúsann. Getuleysi Á þeim matvælategundum sem gerður var verðsamanburður á kom í ljós að í Reykjavík er smásöluverð 140-600% hærra en í Glasgow. Það er skýrt tekið fram að um sömu vöru er að ræða, sömu vörumerki og sömu pakkningar. Hér á landi gilda reglur um heildsöluleyfi og þurfa innflytjend- ur að fá opinberan stimpil upp á að þeir hafi leyfi til að kaupa vöru erlendis og selja hér á landi. Hvort þeir kunna þetta eða geta þurfa þeir aldrei að sanna. Getu heildsala til að annast inn- kaup hlýtur maður að draga í efa, að minnsta kosti þeirra sem kaupa inn þær vörutegundir sem könnun- in um verðið í Skotlandi og á íslandi náði til. Heildsalagreyjunum tókst mörg- um hverjum að kaupa varning af framleiðendum eða heildsölufyrir- tækjum í útlöndum á hærra verði en smásöluverð er á sömu vöruteg- undum í Glasgow. Eyðsluseggir Niðurstöður verðsamanburðar- ins eru svo fáránlegar, að það dugir ekki að láta segja sér tvisvar hvers konar viðskipti eru hér á ferðinni. Það er alveg sama þótt flutnings- gjöld og tollar séu lagðir ofan á verð innkeyptu vörunnar, að það réttlætir ekki nema lítinn hluta þess verðmunar sem er á verðinu í Skotlandi og á íslandi. Hér á landi starfa menn að öflun gjaldeyris með súrum sveita.Út- flutningsiðnaðurinn er á heljar- þröm og stendur hvorki undir sjálf- um sér né mannsæmandi launa- greiðslum. Á sama tíma gumsast heildsalar með gjaldeyri þjóðar- innar, eyða honum eins og fávitar og lifa góðu lífi á atvinnugrein sem þeir hafa hvorki kunnáttu né sið- ferðisþrek til að stunda. Frekari athugun Ef verðsamanburðurinn byggist einvörðungu á tilviljunum og gefi ekki rétta mynd af heildsalastétt- inni, en sýni aðeins að þeir sem flytja inn þær vörutegundir sem þar eru tilgreindar þar sem okrið eða fávísin kemur berlegast í ljós, hljóta samtök innflytjenda að bera af sér slyðruorðið og láta í ljós álit á þeirri tegund kaupmennsku sem tíðkast með tilgreind innflutt mat- væli. Að lokum hóflegasta orðalag áratugarins: „Verðlagsstofnun telur að niður- stöður samanburðarins gefi tilefni til frekari athugunar.“ OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.