Tíminn - 04.07.1986, Side 8
8-IÍ0!il1n
ÍÞRÓTTIR
Föstudagur 4. júlí 1986
Guðmundur Torfason skorar hér með hreint ógurlegu vinstrifótarskoti - glæsimark.
íslandsmótiö í knattspyrnu 1. deild:
Tímamynd Pétur
Réttlætinu var fullnægt
- Frábærir Framarar sigruöu Skagamenn á Laugardalsvelli með þremur mörkum gegn einu í
skemmtilegum leik
Framarar fóru á kostum í gær-
kvöldi er þeir sigruðu lið Skaga-
■nanna með þremur mörkum gegn
einu í einum skemmtilegasta leik
sumarsins. Skagamenn komust yfir
snemma í leiknum en Framliðið tók
frumkvæðið eftir það og uppskar
eins og það sáði, skoraði þrjú mörk
á síöustu 18. mínútum leiksins.
Guðbjörn Tryggvason náði foryst-
unni fyrir Akranes með marki á 9.
mínútu eftir að vörn Fram hafði
brugðist í að koma frá fyrirgjöf.
Guðbjörn fylgdi vel á eftir, Friðrik
markvörður kom út á móti cn allt
kom fyrir ekki. Guðbjörn skoraði.
Framarar tóku völdin eftir markið
og léku á köflum stórgóða knatt-
spyrnu. Kristinn Jónsson var ógn-
andi út á vinstri kanti þar sem hann
fékk góðan stuðning frá Viðari Þor-
kelssyni. Fyrirgjafir streymdu inn að
Golf á Akureyri
- Allir þeir bestu meö á Opna kóka kóla mótinu
Frá Gylfa Kristjánssyni á Akureyri:
Elsta opna golfmót landsins verð-
ur haldið hér á Akureyri um helgina.
Það er Opna kóka kóla mótið sem nú
er haldið í tuttugasta skipti.
Mótið hefst kl. 8 á íaugardags-
morgninum og verða leiknar 36
holur með og án forgjafar. Mótið er
jafnframt stigakeppni fyrir val á
landsliði og því leika meistaraflokks-
menn 36 holur bæði á laugardag og
sunnudag og eru fyrstu 18 holurnar
báða daga liður í Kóka kóla keppn-
inni.
Allir bestu golfarar landsins eru
væntanlegir til leiks í þessu virðulcga
móti.
marki Skagamanna en annað hvort
voru miðverðimir Sigurður Lárusson
og Sigurður B. Jónsson of sterkir í
skallaboltunum fyrir sóknarmenn
Fram eða að Birkir Kristjánsson
markvörður greip vel inní.
Skagamenn með forystuna í hálf-
leik og virtust eins ætla að halda
henni þegar síðari hálfleikurinn var
hálfnaður. í>á opnaðist flóðgáttin.
Guðmundur Torfason skoraði á
72. mínútu með frábæru vinstrifótar-
skoti frá vítateig, svo fast að Birkir
sá ekki boltann fyrr en hann lá í
netinu. Guðmundur var á ferðinni
sex mínútum síðar með gott skalla-
mark eftir fyrirgjöf Guðmundar
Steinssonar. Steinsson skoraði svo
þriðja markið eftir að hinn stórefni-
legi Gauti Laxdal hafði þrumað í
stöngina.
Sem sagt, góður leikur sem
Friðgeir Hallgrfmsson dómari lét
ganga vel áhorfendum til ánægju.
Portúgal:
Bora heiðraður
Þjálfari mexíkanska knatt-
spyrnulandsliðsins, Bora Milutin-
ovic frá Júgóslavíu, hefur verið
heiðraður með „Aztec-erninum“
sem er æðsta heiðursmerki sem
erlendir menn geta orðið sér út
um í Mexíkó. Það var forseti
landsins, de la Madrid, sem nældi
„Örninn“ í Bora en hann hlaut
hann fyrir frábæran árangur með
knattspyrnulandsliðið á HM.
Mexíkanar komust í 8-liða úrslit
en töpuðu þar fyrir V-Þjóðverj-
um á vítaspyrnum. Þetta er lang-
besti árangur Mexíkana í heims-
meistarakeppni.
Formaður Roma
settur í bann
Knattspyrnusamband Evrópu
ákvað að dæma ekki ítalska
knattspyrnuliðið Roma í eins árs
bann fyrir að reyna að múta
dómara fyrir leik gegn Dundee í
Evrópukeppni fyrir tveimur
árum. Dómstóll UEFA koinst að
þeirri niðurstöðu að forseti fé-
lagsins, Dino Viola, hefði einn
reynt að múta franska dómaran-
um sem dæmdi leikinn og því var
hann dæmdur í fjögurra ára bann
frá allri þátttöku í Evrópukeppn-
um. Liðið verður hinsvegar ekki
dæmt og mun því taka þátt í
UEFA-keppninni á næsta vetri.
Hvergerðingar
fá Skagamenn
Hvergerðingar duttu í lukkupott-
inn þegar dregið var í 16. liða
úrslitum Mjólkurbikarsins í gær.
Þeir fá Skagamenn í heimsókn
þann 9. júlí og má búast við
miklum fjölda á þann leik.
Annars varð drátturinn þessi:
KR-ingar leika gegn Þór í Reykja-
vík, Víðir fær nágranna sina úr
Keflavík í heimsókn, ÍBV mætir
Breiðablikií Eyjum,. Grindavík
tekur á móti Val, KS leikur gegn
Víkingi, Fylkir gegn Fram og
Austri tekur á móti FH-ingum.
Leikirnir fara fram þann 9. júlí
nema viðureignir KS og Víkings
og Fylkis gegn Fram. Þessir tveir
leikir fara fram 8. júlí.
Átta í leikbann
- vegna þátttöku í „
Allt lykilmenn
Átta leikmenn portúgalska knatt-
spyrnulandsliðsins hafa verið dæmd-
ir í æfilangt bann frá þátttöku í
landsleikjum vegna þátttöku sinnar
í launadeilum sem komu upp rétt
fyrir HM í Mexíkó. Þá kröfðust
leikmenn hærri bónusa og til að
leggja áherslu á kröfur sínar þá
neituðu þeir að spila æfingaleik rétt
fyrir HM.
Meðal þeirra sem hlutu þennan
verkfalli" í Mexíkó
stranga dóm frá Knattpyrnusamb-
andi Portúgal eru markvörðurinn
Bento, miðvallarspilarinn Carlos
Manuel og félagi hans Jaime Pac-
heco, varnarmaðurinnj Pinto og
sóknarmaðurinn Diamantino. Allir
þessir leikmenn eru lykilleikmenn í
landsliðinu og Manuel varð þjóð-
hetja rétt fyrir HM er hann skoraði
eina mark leiksins gegn V-Þjóðverj-
um sem tryggði Portúgölum sæti í
HM.
Alþjóðakörfuknattleikssambandið:
Engiratvinnumenn
Tillaga um aö leyfa þeim að spila meö var felld
Alþjóðakörfuknattleikssamband-
ið, FIBA, greiddi í gær atkvæði á
þingi sínu í Barcelona um það hvort
leyfa eigi atvinnumenn í keppnum á
vegum Sambandsins. Tillaga þess
efnis var felld með 31 atkvæði gegn
27 en 74 þjóðir sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna. Ritari sambandsinssagði
þó við blaðamenn að tekið hefði
verið eitt skref í þá átt að leyfa
atvinnumönnum að spila með því
ákveðið hefði verið að fella orðið
„áhugamanna“ út úr nafni FIBA.
Tillaga þessa efnis var samþykkt
einróma en Bandaríkjamenn og So-
vétmenn sátu hjá. HM í körfuknatt-
leik hefst í Barcelona á Spáni á
morgun.
Kvennaboltinn
Kristrún Emilsdóttir skor-
aði stórglæsilegt mark fyrir
KR-stúlkurnar í gærkvöldi,
beint úr aukaspyrnu, og
dugði það KR til sigurs gegn
ÍBK í 1. deild kvennaboltans.
UBK sigraði lið ÍA upp á
Skaga með einu marki gegn
engu og skoraði Sigríður Sig-
urðardóttir mark UBK.
Kristín Arnþórsdóttir skor-
ar og skorar í deildinni. Hún
setti inn fjögur mörk í gær í
sigri Vals á Þór frá Akureyri.
Ingibjörg Jónsdóttir skoraði
tvö mörk og Ragnhildur Sig-
urðardóttir var einnig með
tvö. Sem sagt, 8-0 á Akureyri.
Brassar prúðastir
Alþjóðaknattspyrnusambandið,
FIFA, hefur útnefnt Brasilíumenn
sem prúðasta liðið í HM í Mexíkó.
Það var Joao Aavelange sem afhenti
forseta knattspyrnusambands Brasi-
líu, Pinto Guimaraes, verðlaunagrip
til viðurkenningar á því að Brasi-
líumenn hafi orðið „Meistarar heið-
arlegrar knattspyrnu."
Brasilíumenn fengu aðeins þrjú
gul spjöld í fimm leikjum og ekkert
þeirra fyrir gróf brot. Guimaraes
sagði við þetta tækifæri að það væri
leiðinlegt þegar lið þyrftu að falla úr
keppni á vítaspyrnum og bætti við
að í þremur síðustu HM-keppnum
hefðu Brassar aðeins tapað einum
leik en samt ekki komist í úrslitaleik-
inn.
Malmö meistari
Malmö tryggði sér bikarmeistara-
tign í sænsku knattspyrnunni í gær
er liðið sigraði Gautaborg 2-1 í
úrslitaleiknum. Staðan í hálfleik var
0-0 en Björn Nilsson skoraði fyrir
Malmö í upphafi síðari hálfleiks.
Michael Anderson jafnaði á 76.
mínútu en Anders Peterds skoraði
sigurmark Malmö þremur mínútum
seinna.