Fréttablaðið - 14.02.2009, Page 22
22 14. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
Þ
að er spenna í loftinu í Hlíða-
skóla, verið er að æfa fyrir
umsvifamikinn söngleik sem
verður frumsýndur eftir
nokkrar vikur. Þó að komið sé
fram yfir lok skóladags er skól-
inn enn fullur af nemendum og þegar dyrum
að samkomusal skólans er lokið upp blasir
við fjöldinn allur af einbeittum unglingum.
Það er verið að æfa söngleikinn Það er að
koma og þegar blaðamann ber að garði er
verið að æfa senu þar sem barn er á leiðinni,
það er líklega að koma.
Anna Flosadóttir kennari við skólann er
leikstjóri og aðalsprautan á bakvið söng-
leikinn sem krakkarnir hlakka mörg hver
til þess að taka þátt í alla sína skólagöngu.
„Ég fékk þá hugmynd fyrir fimmtán árum
að setja upp söngleik í unglingadeildinni,“
segir Anna Flosadóttir. Þetta fyrsta skipti
tóku 45 nemendur unglingadeildarinnar þátt
í söngleiknum.
Flest vilja leika
„Það er óhætt að segja að hann hafi slegið
í gegn,“ segir Anna og brosir að minning-
unni. Síðan þá hefur söngleikur verið settur
upp í unglingadeildinni á þriggja ára fresti
og framleiðslan hefur undið upp á sig, um
hundrað krakkar hafa tekið þátt í verkinu,
samið leikritið, sungið, leikið, dansað og
séð um velflest sem að verkinu lýtur undir
handleiðslu Önnu og fleiri fagmanna. „Flest
vilja leika og við högum því þannig að allir
fá að gera það, krökkunum er því skipt upp í
hópa sem vinna senur en það kemur fyrir að
þau eru öll að leika í einu og þá eru hundrað
á sviðinu og mikið að gerast.“
Anna er myndlistarmenntuð, kenn-
ir myndlist og leiklist. „Ég hef áhuga og
ástríðu fyrir leikhúsi og hef viljað auka hlut
leiklistar í skólum,“ segir Anna sem hefur
orðið að þeirri ósk sinni í Hlíðaskóla en á
árunum 2003 til 2007 var hann móðurskóli
í listum og hefur haldið áfram þeirri stefnu
og þróun sem það hafði í för með sér. „Við
gerum listgreinunum jafn hátt undir höfði,
og kennum þær í sjö vikna lotum.“ Leik-
list er að mati Önnu mikilvæg listgrein og
gagnleg til að kenna í skólum, allir þurfa
jú að koma fram og standa fyrir máli sínu
og leiklistin þjálfar fólk í því. Á hverju ári
frá fyrsta og upp í sjöunda bekk er sett-
ur upp söngleikur í Hlíðaskóla undir stjórn
tónmenntakennarans Sigríðar Johannsdótt-
ur og því þjálfaðir nemendur á ferð þegar
þau koma upp á unglingastigið. „Leiklistin
er skylda upp í sjöunda bekk en þátttaka í
söngleiknum er auðvitað frjáls“
Skrúfað fyrir styrki
Vinnuferlið hefur verið þannig hjá Önnu
og krökkunum að þau semja leikritið sjálf,
Anna hefur samið grind og þau spunnið í
kringum hana. Síðastliðið haust hófst þessi
vinna „Svo kom í ljós að ÍTR hafði skrúfað
fyrir alla styrki til svona verkefna og það
var hætt við sýninguna.“ Anna var ekki til-
búin til þess að samþykkja þessa niðurstöðu,
verkið hefur verið svo gefandi auk þess sem
að krakkarnir hafa beðið eftir því að taka
þátt í söngleiknum, sum hver síðan í sex
ára bekk. „Ég settist bara niður og skrifaði
fyrrverandi nemendum hér og bað þá um
að hjálpa mér með tónlistina, þeir gera það
í sjálfboðavinnu. Svo vinnum við þetta kaup-
laust ég og Elva Dögg Númadóttir kennari
sem sér um að þjálfa dansana.“ Þar fyrir
utan hafa tveir kennaranemar lagt söng-
leiknum lið þær Hildur Magnúsdóttir og
Elísa Snæbjörnsdóttir. „Svo skrifaði ég for-
eldrum í fyrsta skipti, og það er skemmst
frá því að segja að viðbrögðin voru ótrúlega
góð, pósthólfið var fullt um leið, allir vilja
aðstoða.“
Jákvæð áhrif
Til að spara var að ákveðið var að taka gam-
alt verk til sýningar. Það er að koma var
samið og sýnt fyrir tólf árum síðan. Verk-
ið segir frá nokkrum fjölskyldum og örlög-
um þess og óhætt að segja að uppfærslan sé
viðamikil, tvær hljómsveitir, dans, söngur
og leikur. Leikið er í salnum í Hlíðaskóla,
í raun út um allan sal eins og Anna sýnir
blaðamanni. „Þegar sem mest er að gerast
hafa áhorfendur varla við að fylgjast með
því sem er í gangi.“
Anna segir uppsetningu á söngleikn-
um hafa mjög jákvæð áhrif á stemming-
una í unglingadeildinni. „Krakkarnir fara
að mynda tengsl þvert á árgangana, sem er
ekki sjálfgefið í unglingadeildum þar sem
hírarkíið er yfirleitt mikið. Það kom líka í
ljós þegar við höfðum enn aðgang að niður-
stöðum í samræmdum prófum að útkom-
an úr þeim var síst verri þegar söngleikur
var settur upp, þó að krakkarnir verji mjög
miklum tíma í æfingar. Þau læra að skipu-
leggja sig, koma með bækur á æfingar og
nýta dauðan tíma.“
Anna segir einkar jákvætt í Hlíðaskóla
hvað strákarnir taka virkan þátt í leiklist-
inni, þeir eru fleiri en stelpurnar og í sumum
senum eru þeir í algjörum meirihluta.
„Strákar eru stundum tregari til að taka þátt
í leiklist en það á ekki við hjá okkur.“
Ekki er stætt á því að trufla æfingu hjá
metnaðarfullum nemendum lengur. Þó að
vel gangi á margt eftir að gera fyrir frum-
sýningu. Ýmsir kostnaðarþættir eiga eftir að
falla til, eins og í kringum lýsingu á verkinu
en Anna vonast til að það leysist farsællega.
Frumsýningin er 14. mars og að sjálfsögðu
er öllum opið að mæta. „Við höfum sýnt verk-
in sjö til átta sinnum.“
Sjálfboðavinna gerir unglingasöng-
leik í Hlíðaskóla að veruleika
Í fimmtán ár hefur Anna Flosadóttir kennari við Hlíðaskóla leikstýrt viðamiklum söngleik unglingadeildar Hlíðaskóla. Í haust
leit út fyrir að efnahagshrunið hefði þær afleiðingar að ekkert yrði úr uppfærslu á söngleiknum, því skrúfað hafði verið fyrir alla
styrki. Anna var ekki til í þær málalyktir eins og Sigríður Björg Tómasdóttir komst að.
ÞAÐ ER AÐ KOMA Mikil innlifun á æfingu hjá þeim Ásdísi Vídalin Kristjánsdóttur og Róbert Smára Björnssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þau Sigríður Kristín Kristj-
ánsdóttir, Hildur Svein-
björnsdóttir og Ástráður
Stefánsson taka öll þátt
í söngleiknum Það er að
koma. Sigríður er í níunda
bekk og Hildur og Ástríður
í þeim tíunda. Þau eru
sammála um að einkar
gaman sé að taka þátt í
söngleiknum og telja ekki
eftir sér veru í skólanum
eftir að hefðbundnum
skóladegi lýkur. „Ég á eldri
systkini og ég hef verið
að bíða eftir þessu síðan
ég var í sex ára bekk,“ segir
Hildur sem leikur hjúkrunarfræðing í leikritinu sem keppir við fjóra kollega sína
um athygli læknisins. Þau segja það hjálpa þeim í leiknum að hafa tekið þátt í
uppfærslum í yngri deildum. „Við erum öll vön að vera á sviði.“ Ástráður leikur
hlutverk einstæðs föður í sýningunni, reyndar föður stúlkunnar sem Sigríður
leikur og spilar líka á píanó. „Þetta er rosalega skemmtilegt og svo kynnumst
við hvert öðru betur en við myndum gera annars.“
GAMAN AÐ TAKA ÞÁTT Sigríður Kristín Kristjánsdóttir,
Ástráður Stefánsson og Hildur Sveinbjörnsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON.
„Anna hafði samband við okkur og spurði hvort við værum
til í að sjá um tónlistina í söngleiknum í ár, það kom ekki
annað til greina en að segja já,“ segja þeir Kári Allansson
og Guðfinnur Einarsson sem fyrir tólf árum voru nemendur
í 9. bekk Hlíðaskóla og tóku þá þátt í söngleiknum Það er
allt að koma sem var saminn af nemendum það árið. „Við
gátum ekki hugsað okkur að söngleikurinn félli niður þó
að styrkirnir hefðu gert það,“ segja þeir en báðir leggja síð-
degin undir vinnu með nemendum í Hlíðaskóla um þessar
mundir og taka ekki krónu fyrir. „Það var alveg sjálfsagt að
hjálpa til, okkur finnst bara gaman að geta gefið til baka
það sem við fengum sjálfir.“
Kári og Guðfinnur segja það hafa verið frábær upplifun
á unglingsárunum að semja söngleik og flytja hann. „Þetta
var algjörlega ógleymanlegt, það var talað um fyrir og eftir
söngleik í unglingadeildinni,“ segja þeir félagar sem spiluðu
í hljómsveit söngleiksins. „Það sem var til dæmis svo
skemmtilegt var að söngleikurinn þjappaði okkur saman,
krökkunum í unglingadeildinni, skilin á milli árganga þurrk-
uðust út og það gerðist að áttundu bekkingar og tíundu
bekkingar töluðu saman,“ segja þeir og hlæja.
Tvær hljómsveitir skipaðar nemendum taka þátt í leik-
ritinu, rokkhljómsveit og sígildari sveit. „Þeir er þvílíkt fljótir
að læra, krakkarnir, en það er auðvitað mikil vinna eftir.“
Kári er orgelleikari og nemandi í Listaháskóla Íslands og
hefur því haldið sig í tónlistarheiminum síðan á unglings-
árum. Guðfinnur er viðskiptafræðingur en þeir hafa leikið
saman í ballsveitum. „Maður spilar samt mest í brúðkaup-
um núorðið, það er aldurinn.“
GUÐBRANDUR OG KÁRI Skemmtu sér mjög vel þegar þeir
tóku þátt í söngleiknum fyrir tólf árum.
Krakkanir fara að mynda tengsl þvert á ár-
gangana, sem er ekki sjálfgefið í unglinga-
deildum þar sem hírarkíið er yfirleitt mikið
Biðum spennt eftir að fá að taka þáttKomum að sjálfsögðu til aðstoðar
ANNA FLOSADÓTTIR hefur leitt nemendur Hlíða-
skóla í viðamiklum söngleik síðastliðin fimmtán ár,
og lætur kreppuna ekki stoppa sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON