Fréttablaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 35
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
KÆRLEIKSHÁTÍÐ verður haldin í hjarta Reykjavíkurborgar
í dag klukkan 18. Gengið verður frá Austurvelli að tjörninni og
síðan í kringum hana í eins konar meðmælagöngu þar sem
mælt er með hlýju, kærleika og ást.
„Pacas er blóðheitur Suður-Amer-
íkani sem finnst hann vera Val-
entínus sjálfur, svo í dag má segja
að Valentínus standi á fimmtugu,“
segir Guðbergur Garðarsson sem
þjóðin þekkir betur sem Begga,
betri helming Pacasar, en saman
unnu þeir veruleika- og hönnunar-
þáttinn Hæðina í fyrra.
„Pacas velti því einu sinni fyrir
sér að breyta nafni sínu í Valent-
ínus, en það þótti mér einum of
mikið af því góða,“ segir Beggi og
skellihlær. „Mér finnst dásamlegt
við Pacas hve ríkulega hann býr
yfir jákvæðri hugsun. Honum er
lífsnauðsynlegt að vera jákvæð-
ur, glaður og hamingjusamur, og
hann dvelur aldrei við fortíðina
heldur lifir fyrir daginn í dag og
líður eins og 25 ára þótt fimmtugs-
afmælið blasi við sem veruleiki í
dag.“
Beggi ætlar að halda sínum
heittelskaða mikið afmælishóf. „Í
öllu kreppuhjalinu ætlum við að
elda með hjartanu handa vinum og
vandamönnum og hlýja hvert öðru
með söng, dansi og skemmtileg-
heitum. Við erum svo ríkir að eiga
mikið af góðum vinum sem vilja
leggja hönd á plóg með skemmti-
atriði og erum orðnir virkilega
spenntir fyrir kvöldinu,“ segir
Beggi, en þeir Pacas ætla að taka
forskot á veisluhöldin með þjóð
sinni yfir miðjan daginn. „Hús-
bændur í Smáralind ætla að bjóða
upp á dýrindis hjartalaga Valent-
ínusartertu sem við Pacas skreyt-
um af natni og skerum niður ofan
í gesti og gangandi,“ segir Beggi
fullur tilhlökkunar og segist hafa
fundið rómantíska sál sína vaxa
eftir að leiðir þeirra Pacasar lágu
saman. „Við erum báðir ástarinn-
ar menn og njótum þess að hafa
fallegt og rómantískt í kringum
okkur. Valentínusardag ber náttúr-
lega upp á afmælisdag Pacasar, og
hefur frá fyrsta degi veitt okkur
ómælda gleði. Ég veit að margir
setja upp snúð og kalla hann amer-
ískan tökudag, en mér finnst við
ættum öll að baða okkur í dulúð og
ástríðu rauða litarins, sem og róm-
antík dagsins, ef það á annað borð
getur skapað okkur hamingju og
gleðilegar stundir.“
thordis@frettabladid.is
Valentínus er fimmtugur
Rómantík, blóðhiti og lífsnautnir eru aðalsmerki dagsins, eins og mannsins sem fæddist undir funheitri
sólu í Brasilíu fyrir hálfri öld, en lifir nú í ást og samlyndi á ísaköldu landi þar sem eldur kraumar undir.
Ástarfuglarnir Beggi og Pacas kunna að lifa lífinu í gleði og þökk fyrir hvern dag sem Guð gefur. Hér eru þeir sælir saman á Kaffi
Sólon þar sem málverk Pacasar eru sýnd um þessar mundir. Sýningin stendur fram í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Landsins mesta úrval af íslenskum sófum
Patti húsgögn
Íslensk framleiðsla - Íslensk hönnun - Íslensk framtíð
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Kolaportið
er opið
laugardaga
og
sunnudaga
frá kl. 11-17
Tr y g g v a g ö t u 19 • 101 R e y k j a v í k
S í m i 5 62 5 0 3 0 • w w w . k o l a p o r t i d . i s
www.tskoli.is
Steinsmíði – hoggið í stein
Tækniskólinn býður upp á námskeið þar sem kennd eru undirstöðuatriði í
almennri steinsmíði og höggverki. Þátttakendur hanna og smíða hlut úr
steini. Námskeiðið er í samvinnu við Steinsmiðju S. Helgason.
Tími: 23. feb. - 14. mars, alls 35 klst.
Námskeiðsgjald: 36.900 kr.
Nánari upplýsingar fást í s. 514 9601 og á ave@tskoli.is