Fréttablaðið - 14.02.2009, Page 33
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009
Í UPPÁHALDI
Eftir Þórdísi Zoega
húsgagnahönnuð
liggja ýmis verk en hún
heldur þó mest upp á
stólinn Sess. BLS. 3
SÓLARSPEGILL
Kenneth Wingard hefur
hannað veggspegil sem
minnir á sólina og er
búinn skemmtileg-
um eiginleika. BLS. 4
● Síðustu mánuði hefur
skapast nýr grundvöllur
fyrir sölu notaðra
hluta. Í Mörk-
inni 1 verður
verslunin Notað
og nýtt opnuð form-
lega í dag en þar
má koma ýmsum
vörum í umboðssölu.
Jón Halldór Bergs-
son, annar eigenda, segir verslunina góðan
vettvang fyrir þá sem vilja koma ýmsum
munum í verð.
V
ið tökum hvað sem er í umboðssölu,“ útskýrir
Jón Halldór Bergsson, annar eigenda versl-
unarinnar Notað og nýtt. „Fólk er með stút-
fullar geymslur heima og mörg fyrirtæki
eru að hætta rekstri með ákveðna vöruflokka sem
við getum þá tekið að okkur í umboðssölu. Við verð-
um því bæði með notað og nýtt.“
Eigendurnir hófu að taka við vörum í vikunni og
segir Jón Halldór að viðtökurnar hafi farið fram úr
vonum. Vörurnar séu í raun bornar út jafnharðan
og þær eru bornar inn. Hann segir nýju verslunina
ekki beinlínis byggjast á hugmyndinni um kompu-
eða skransölu en þarna geti fólk komið góðum hlut-
um í verð. Hlutirnir geta verið í sölu í átta vikur
til að tryggja endurnýjun á úrvali. „Við komumst að
samkomulagi um hvað varan á að kosta og tökum
Þetta er auðvitað ekki
skemmtilegt ástand
en þarna fær fólk tækifæri til að
breyta dóti í peninga.“
Notað og nýtt
FRAMHALD Á BLS. 2
Þetta skemmti-
lega loftljós er
á meðal þeirra
nýju húsmuna sem
verða seldir í bland við not-
aða hluti í versluninni Notað og
nýtt. Að sögn Jón Halldórs kemur það frá þýska
fyrirtækinu Kari og er því gott dæmi um þá há-
gæða vöru sem má finna í búðinni. Líkt og aðrir
nýir munir sem þar eru á boðstólum er ljósið á
töluvert lækkuðu verði.
Kíkt í fjársjóðs-
kistuna
Loftljós frá
fyrirtækinu
Kari.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Allt til rafhitunar
Olíufylltir rafmagnsofnar
Brenna ekki rykagnir. Auðveld uppsetning á vegg.
250 - 400 - 750 - 800 - 1000 - 1600 - 2000 wött.
Norskir
hitakútar
Úr ryðfríu stáli
Fyrir sumarhús og heimili
Yfir 30 ára reynsla hérlendis
10 ára
ábyrgð
Fermingartilboð 2009
Sjá nánar á www.betrabak.is