Fréttablaðið - 14.02.2009, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
9.26 13.42 17.59
9.19 13.27 17.35
Í dag er laugardagurinn 14.
febrúar, 45. dagur ársins.
Að undanförnu hef ég átt bágt með að trúa mínum eigin
eyrum þegar sjálfstæðismenn tjá
sig í fjölmiðlum. Hugsunin sem oft-
ast skýtur upp kollinum þegar það
gerist er: „Á hvaða reikistjörnu
hefur þetta fólk haldið sig upp á
síðkastið?“ Þannig er það beinlín-
is absúrd að heyra Árna Mathiesen
tala af vandlætingu um pólitíska
misbeitingu bankakerfisins.
NÚ efast ég ekki um að Árni sé
ágætlega gefinn og sæmilega inn-
rættur. Þess vegna trúi ég líka að
hann sjái sjálfur einlæglega ekki
þá himinhrópandi mótsögn sem er
í slíkum orðum þegar þau hrjóta
af vörum hans. Hann er bara ekki
það góður leikari að hann gæti gert
það án þess að bregða svip.
ÉG held líka að sjálfstæðismenn
trúi því sjálfir að allt sem nýja
ríkisstjórnin er að gera hafi verið
það sem þeir ætluðu að gera sjálf-
ir. Sjálfsagt stóð til hjá þeim að
breyta lögum um Seðlabankann
og skipta þar um yfirstjórn til að
umheimurinn sæi að Íslending-
ar hygðust taka á vandanum af
alvöru. Þeir sögðu bara engum frá
því. Ég held nefnilega að það hafi
ekki enn síast inn í vitund þeirra
að hagstjórn þeirra skellti skuld á
þjóðina sem jafnast á við að hvert
einasta hús á eyjunni hafi brunnið
til kaldra kola.
ÞESS vegna trúi ég því líka að Sig-
urði Kára Kristjánssyni hafi verið
alvara þegar hann fullyrti að ekki
væri hægt að klína ástandinu á
Sjálfstæðisflokkinn. Að hans mati
er með öðrum orðum ekki hægt að
gera flokk, sem haft hefur stjórn
efnahagsmála á sinni könnu í tæpa
tvo áratugi, ábyrgan fyrir afleið-
ingum gjörða sinna. Maður hlýt-
ur að spyrja sig hvað þessir menn
hafi verið að gera í vinnunni síð-
astliðin átján ár ef ástandið er ekki
á þeirra ábyrgð. Er ekki skárra, af
tvennu illu, að játa á sig mistök en
að viðurkenna að hafa verið fjar-
verandi allan þennan tíma?
AUÐVITAÐ gerir fólk sér grein
fyrir því að ef ekki er hægt að
klína ástandinu á Sjálfstæðisflokk-
inn þá er það af sömu ástæðu og
ekki er hægt að klína skít á svín
í stíu; það er hvergi auður blettur
til að klína honum á! Þetta verður
vonandi útskýrt umbúðalaust fyrir
þingmanninum í lok apríl.
PS. Fyrirsögn þessa pistils er
tilvitnun í fyrrum bankastjóra
Lloyd’s bankans í London, úr
spjalli sem hann átti við kunningja
minn fyrir skömmu um „íslenska
efnahagsundrið“.
„These are not
bankers, they
are wankers!“
Tökum að okkur alla auglýsingahönnun
á sérstaklega góðu verði.
Við hjálpum þér í kreppuni
FAGVINNA: 863 6129 - 664 1622