Tíminn - 06.08.1986, Page 5
Fjórða ráðstefna OPEC á þessu ári:
Óvænt samkomulag
Samtökin talin hafa styrkt sig í sessi eftir sögulega samþykkt
- Olíuverð á heimsmarkaði hækkar á nýjan leik
Genf-Reuter
Samtök olíuframleiðsluríkja
(OPEC) þykja líkleg til að ná aftur
einhverjum af fyrri áhrifum sínum
eftir sögulega samþykkt um að
minnka verulega framleiðslukvóta
sinn.
Samtökin létu mikið að sér kveða
á árunum milli 1973 og 1980 og réðu
þá olíuverðinu að mestu leyti. Á
síðustu árum hafa aðrar framleiðslu-
þjóðir hinsvegar komið meir inní
þennan markað og hlutur OPEC
hefur minnkað. Samtökin reyndu þó
að klóra í bakkann í desember á
síðasta ári og ætluðu sér að auka hlut
sinn í heimsframleiðslunni.
Sú tilraun mistókst þó hrapallega
og olíuverð féll meira en nokkru
sinni síðan árið 1973.
OPEC sýndu þó í Genf nú um
helgina, er þar lauk fjórðu ráðstefnu
samtakannaiá þessu ári,að þau eru
síður en svo dauð úr öllum æðum.
Samtökin komu nefnilega öllum
sérfræðingum á óvart með að sam-
þykkja áætlun - að vísu aðeins
tímabundna - sem gerir ráð fyrir
framleiðsluminnkun er hljóðar upp
á einar fjórar milljónir olíutunna á
dag eða í það magn sem framleitt var
árið 1984, þ.e. tæplega 17 milljónir
olíutunna á dag. Olíuverð á heims-
markaði jókst þegar um tvo dollara
á tunnu er þetta fréttist.
Margir sérfræðingar um olíumál
létu þó uppi efasemdir um að OPEC
gætu haldið sig við þessa áætlun til
lengdar og sumir héldu því reyndar
fram að samþykktin gerði ekki meira
en að stöðva verðhrunið á olíu og
kannski ná því upp um einn til tvo
dollara.
Þeir viðurkenndu þó að OPEC
hefðu sýnt umtalsverðan samtaka-
mátt með samkomulagi sínu og það
ætti eftir að koma þeim til góða í
framtíðinni þegar tekist verður á um
völdin yfir heimsmarkaðsverðinu á
olíu. „Þau eru farin að líkjast sam-
tökum á nýjan leik,“ sagði einn
markaðssérfræðinganna.
Samkomulag það sem OPEC
komu sér saman um í Genf gildir til
tveggja mánaða en víst þykir að það
þurfi að framlengja ef samtökunum
eigi að verða að þeirri ósk sinni að
olíuverð verði komið upp í 17 til 19
dollara á tunnu í lok þessa árs.
Ríki OPEC ráða nú sem stendur
yfir tveimur þriðju af þeim olíulind-
OPEC eru ekki dauð úr öllum æðum. Það sýndi sig á ráðstefnu samtakanna í
Genf. Hér má sjá Yamani olíumálaráðherra Saudi-Arabíu (t.v.) ásamt
aðstoðarmönnum sínum.
um sem vitað er um í heiminum og þrjá fjórðu af þessu magni. Þau er
fjögur OPEC ríkjanna framleiða Saudi-Arabfa,Kuwait,íranogírak.
Miövikudagur 6. ágúst 1986
Tíminn 5
UTLÖND
Kína:
Unglingar óánægðir
með hlutskipti sitt
Kínversk ungmenni líta ekki framtiðina björtum augum ef marka má nýlega
skoðanakönnun.
Noröurlönd:
Viðskiptabann
á Suður-Afríku?
Meirihluti kínverskra ungmenna
er óánægður með líf sitt. Þetta kom
fram í niðurstöðum skoðana-
könnunar sem birtar voru í gær.
Kínverska dagblaðið sagði í frétt
að uni 260 ungmenni hefðu tekið
þátt í skoðanakönnun sem tímarit
um þjóðfélagsmál gekkst fyrir. Þar
kom í ljós að helmingur þeirra sem
spurðir voru töldu líf sitt ófullnægj-
andi, 16% voru mjög óánægð með
líf sitt, 28% nokkuð ánægð en aðeins
1,4% voru ánægð með hlutskipti sitt.
Skoðanakönnunin leiddi einnig í
ljós að æska landsins hefur ekki
mikla tiltrú á efnahagsumbreyting-
unum í landinu. Aðeins 10,5% að-
spurðra voru viss um að breytingarn-
ar myndu ná tilsettu marki.
„Kínverjar, sem áður voru vanir
að sætta sig við hlutskipti sitt, eru að
verða óánægðir," sagði í tímaritinu.
Helstu niðurstöður könnunarinn-
ar bentu til þess að ungt fólk vildi
ekkert frekar en efnisleg verðmæti
og öflugt menningarlíf.
„Þetta bendir til að fólk taki ekki
lengur mark á hinni hefðbundnu
siðvenju," sagði í tímaritinu. Því var
einnig bætt við að þótt fjölhyggja
væri óumflýjanleg þyrfti
samt sem áður að hafa eftirlit með
afleiðingum hennar.
„Það ættu að vera takmörk fyrir
því að geta sett persónulega hagi
ofar öllu öðru og stunda kynlíf í
nafni frjálsra ásta,“ sagði í grein
tímaritsins.
Helsinki-Reuter
Sten Andersson utanríkisráð-
herra Svíþjóðar sagði í gær að
Norðurlöndin myndu hugsanlega
ákveða í næstu viku að setja algjört
viðskiptabann á Suður-Afríku til
að mótmæla aðskilnaðarstefnu
stjórnarinnar í Pretoríu.
Þetta mál mun líklega verða
tekið fyrir í byrjun næstu viku
þegar forsætisráðherrar Norður-
landanna mæta til fundar í Dan-
mörku.
Andersson er nú í opinberri
heimsókn í Finnlandi og ræddi
hann í gær við Kalevi Sorsa for-
sætisráðherra sem er í flokki jafn-
aðarmanna eins og Andersson.
Pik Botha utanríkisráðherra Suð-
ur-Afríku sagði á blaðamannafundi
í gær að alþjóðlegar viðskiptaþving-
anir gegn Suður-Afríku myndu hafa
Sænski utanríkisráðherrann sagði
þá félaga hafa verið sammála í
höfuðatriðum um hvaða aðgerðir
Norðurlöndin ættu að taka upp
gegn Suður-Afríku. Hann gaf hins-
vegar ekki neinar nánari skýringar
á þessum ummælum sínum.
Svíar stunda þó nokkur viðskipti
við Suður-Afríku og viðskipta-
bannið myndi því helst lenda á
þeim.
Finnsk stjórnvöld hafa hingað til
fylgt þeirri stefnu að setja ekki
formlegt viðskiptabann á Suður-
Afríku nema öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna gangi á undan í
málum þessum.
hræðileg áhrif fyrir milljónir svert-
ingja bæði innan lands og utan.
Botha sagði stjórn sína hafa ákv-
eðið að setja upp hertara eftirlit með
innflutningi á vörum sem fara um
Suður-Afríku til nágrannaríkjanna.
Ástæðan var „afstaða Zimbabwe og
Zambíu," sagði Botha og átti þar
greinilega við viðskiptaþvinganir
þær sem leiðtogar sex Samveldis-
ríkja samþykktu í Lundúnum um
helgina.
Utanríkisráðherrann sagði að í
framtíðinni yrðu nágrannaríki Suð-
ur-Afríku að fá innflutningsleyfi og
sérstakt leyfi fyrir allar vörur er færu
um suður-afrískt landsvæði. Botha
bætti því við að tekið yrði upp
hertara eftirlit við landamæri Suður-
Afríku og þessara ríkja.
Thailand:
Prem útnefndur
forsætisráðherra
Indland:
Tískanfer í hundana
Nýja Delhi-Reuter
Tískan er að fara í hundana í
einni helstu borg Indlands, Bom-
bay.
Fyrirtæki eitt þar í borg hefur
nefnilega orðið sér úti um leyfi til
að safna saman líkum þeirra 150
hunda sem daglega deyja drottni
sínum í fátækrahverfum Bombay,
sem nóg er af, ellegar í verslunar-
strætum stórborgarinnar.
Fyrirtækið hyggst innan skamms
hefja sölu á bindum og handtösk-
um gerðum úr hundaskinni.
Suður-Afríka:
Svaraðfullumhálsi
Pretoría-Reuter
Bangkok-Reuter
Bhumibol Adulyadej konungur
Thailands útnefndi í gær Prem Tins-
ulanonda í embætti forsætisráð-
herra. Þetta er þriðja kjörtímabilið
sem Prem hefur verið útnefndur í
embættið af konungnum. Nokkuð
hefur verið um mótmæli í landinu að
undanförnu gegn því að Prem sitji
lengur í embættinu.
Ríkisútvarpið í Thailandi tilkynnti
um útnefningu Prems í gær og hafði
eftir honum að hann liti á embættis-
veitinguna sem mikinn heiður og
lofaði hann að mynda ríkisstjórn
eins fljótt og kostur væri.
Um þúsund stúdentar héldu áfram
mótmælum sínum í gær gegn Prem
og kröfðust þess að kjörinn fulltrúi
yrði gerður að forsætisráðherra.
Hinsvegar héldu um þrjú þúsund
leigubílstjórar og bændur fund í
Bangkok í gær og lýstu þar fullum
stuðningi við forsætisráðherrann.
Prem er nú 65 ára gamall og hefur
hann stýrt stjórn landsins síðan árið
1980. Hann hefur ávallt verið út-
nefndur af konungi landsins til þessa
verks. Búist er við að hin nýja stjórn
muni vera samsteypa að minnsta
kosti fjögurra miðflokka og njóta
yfirgnæfandi þingmeirihluta.
Prem tók ekki þátt í kosningunum
þann 27. júlí síðastliðinn en sam-
kvæmt lögum í Thailandi má kon-
ungur útnefna ókjörinn fulltrúa í
embættið. Prem er fyrrverandi hers-
höfðingi og nýtur stuðnings bæði
hers og konungs.
Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00
Frá Brianslæk kl. 14 00
Til Stykkishólms kl. 18.00
fyrir brotttör rútutil Rvk
‘Fimmtudaga: Samatimatallaog
mánudaga
Fóstudaga: Frá Stykkishólmi kl 14 00.
eftir komu rutu
Viökoma í inneyjum
Frá Brjánslæk kl 19.30
Til Stykkishólms kl. 23.00
Prið|udaga: Fra Stykkishólmi kl 14 00
ettir komu rutu
Fra Brjánslæk kl. 18 00
Til Stykkishólms kl. 21 r30
Laugardaga Fra Stykkishólmi kl. 09 00
Sigling um suöureyjar
Fra Bganslæk kl. 15 00
Til Stykkishólms kl. 19.00
Á timabilinu 1. juli til 31. áqust
Miövikudaga: FraStykkisholmi kl. 09.00
Frá Brjánslæk kl 14 00
Til Stykkisholms kl 18.00.
fyrir brottlor rútu.
Viðkoma er avallt i Flatey á baöum leiðum
Bilaflutninga er nauðsynlegt að panta með fyrirvara.
Fra Stykkishólmi:
Hjá afgreiðslu Baldurs
Stykkisholmi, s.: 93-8120
Frá Brjánslæk:
Hja Ragnari Guðmundssyni.'
Brjánslæk. s.: 94-2020. '
\
A timabilinu 1. mai til 30. sept.
Á timabilinu 1. júm til 31. agust