Tíminn - 06.08.1986, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 6. ágúst 1986
NEYTENDASÍÐAN
Sumargleði
við grillið
Nú er sá árstími aö við getum notið þess að grilla úti.
Smáir og stórir geta safnast saman í kringum grillið,
steikt og brasað af hjartans lyst og farið í leiki og skemmt
sér. Hér koma nokkrar uppskriftir af léttum grillmat, sem
bæði börnum og fullorðnum þykir góður.
Grillolíur
Það er enginn vandi að búa til
sína eigin kryddolíu til að pensla
með grillstcikur. Hellið þeim yfir á
flöskur og geymið í ísskáp. Hcr
koma nokkrar tillögur:
Leggið lauk í snciðum, hvítlauk,
chiliduft, basilikum og rósmarin í
olíu. Látið standa í minnst nokkra
klukkutímu hclst nokkra daga.
Blandið santun olíu. sojasósu og
sítrónusafa. Sinnep hrært út í olíu
er gott á svínakjöt. Látið lárviðar-
lauf, salvíu og timian út í olíu.
Marineruð lambarif
l 'h kg lambarif
1 dl matarolía
4 msk sítrónusafi
2 tsk mulið rósmarín
I tsk timian
1 búnt fínsöxuð steinselja
Skerið rifin í sundui á milli
beinanna. Hrærið saman afgangin-
um af efnunum í kryddlöginn og
hellið honum í sterkan plastpoka.
Látið kjötið í og hristið vel saman
þannig að allir kjötbitarnir séu
þaktir kryddlög. Lokið pokanum
og látið hann liggja í ísskáp í
minnst 2 klukkutíma. Takið kjöt-
ið úr og látið rcnna vcl af því.
Grillið kjötbitana í 15 mínútur og
snúið þeim oft á meðan.
Lambakótelettur
12 kótelettur
I hvítlauksbátur
'h tsk pipar
timian og rósmarín
matarolía
Skerið hvítlauksbátinn í tvennt
og nuddið kótcletturnar með
honum. Stráið síðan pipar, rósmar-
in og timian yfir. Penslið kótelett-
urnar mcð matarolíunni og grillið
þær í um það bil 10 mínútur.
Litrík lambarúlla
1 kg beinlaus lambaslög
1 rauð paprika
I lítil dós maiskjarnar
1 búnt steinselja
salt og pipar
Látið innri hlutann á lambaslag-
inu snúa upp og stráið yfir salti og
pipar. Skerið steinseljuna og papr-
ikuna smátt. Leggið grænmetið á
slagið og rúllið því upp. Stingið
löngum ostapinnum í gegnum rúll-
una til að halda henni saman. Það
þarf að stinga þeim nokkuð þétt.
Skerið rúlluna í 2 cm þykkar sneið-
ar og passið að það sé ostapinni í
hverri sncið. Pcnslið sneiðarnar
með olíu oggrillið í um það bil 8-10
mínútur á hvorri hlið.
Kryddborgarar
500 gr hakk
1 rauð paprika í litlum teningum
100 gr púrra, fínsöxuð
1 hvítlauksátur, fínsaxaður
2 msk fínsöxuð steinselja
1 tsk salt
pipar og paprika
Blandið öllu saman og látið fars-
ið standa og jafna sig í ísskápnum
í að minnsta kosti I klukkustund.
Mótið 8 borgara og grillið þá í um
það bil 3 mínútur á hvorri hlið.
Penslið með grillolíu öðru hverju.
4 msk muldar kornflögur
nokkrir dropar kryddsósa eftir
smekk
1 tsk salt
ögn af pipar.
Blandið öllu saman og mótið 8
borgara. Leggið gjarnan 1 sneið af
osti á borgarann þegar búið er að
grilla aðra hliðina.
Grillaðar kartöflusneiðar
Sjóðið kartötlurnar með hýðinu
í 5-10 mínútur. Afliýðið þær og
skerið síðan í um það bil 1 cm
þykkar sneiðar. Þræðið sneiðarnar
upp á grillpinna og penslið með
kryddolíu. Grillið þangað til þær
eru farnar að brúnast og snúið oft.
Ostaborgarar
500 gr hakk
100 gr rifinn ostur
1 fínsaxaður laukur
Kryddsmjör
Kryddsmjör er alveg nauðsyn-
legt að hafa þegar verið er að
grilla. Búið gjarnan til stóran
skammt og geymið í ísskápnum
eða í frystinum. Þá er það við
hendina með litlum fyrirvara.
Hrærið smjörið þangað til það er
mjúkt og blandið bragðefnunum
út í. Mótið rúllu úr smjörinu og
pakkið því inn í álpappír. Kælið.
Síðan er smjörið skorið í þunnar
sneiðar rétt áður en það er borið
fram.
Piparsmjör
250 gr smjör
2 tsk fínsaxað estragon
2 msk fínsöxuð steinselja
1 lítill fínsaxaður laukur
ca 2 msk græn piparkorn
ögn af sítrónusafa
Bleikt kryddsmjör
500 gr smjör
!/: dl fínsöxuð steinselja
!ó dl fínsaxað dill
'/: dl fínsaxaður graslaukur
!ó msk fínsaxaður grænn pipar
h 3-4 pressaðir hvítlauksbátar
2 msk tómatkraftur
1 tsk salt
Paprikusmjör
500 gr smjör
1 fínsöxuð rauð paprika
1-2 búnt fínsaxaður graslaukur
2 msk sítrónusafi, 1 tsk salt
GÓDUR MATURI
SUMARBÚSTADNUM
Oft er það þannig í sumarbústaðnum að möguleikar til að búa til mat
eru ekki miklir. Kannski er aðeins lítið gastæki til að matreiða á og þá
þarf að hafa hugmyndaflugið í lagi til að geta búið til góðan mat.
Einfaldast er að hafa mat sem er allur soðinn í sama pottinum. Hér á eftir
koma nokkrar uppskriftir sem allar er hægt að nýta í sumarbústaðnum,
húsvagninum eða tjaldútilegunni.
Oregano kartöflupanna
ögn af smjöri
1 kg kartöflur
1 lítil púrra (eða laukur)
150 gr reykt skinka í þunnum
sneiðum
3 dl rifinn ostur
1 tsk oregano
1- 2 dl grænmetissoð
2- 3 tómatar
steinselja
Hreinsið kartöflurnar og púrr-
una (laukinn) og skerið í sneiðar.
Skerið skinkuna í fína strimla.
Bræðið smjörið á pönnu, leggið
ofan á í lögum kartöflusneiðar,
púrru (lauk) og skinkustrimla.
Stráið á milli rifnum osti og oreg-
ano. Hellið varlega soðinu
meðfram. Það er ekki nauðsynlegt
að salta þar sem grænmetissoðið
og osturinn innihalda salt. Látið
lok á pönnuna og látið malla við
lítinn hita í um það bil 25 mínútur.
Takið af lokið, skerið tómatana
í sneiðar og leggið ofaná, þekið
með dálitlum rifnum osti og oreg-
ano. Látið á aftur og látið malla í
5 mínútur í viðbót eða þangað til
osturinn er bráðnaður. Stráið dá-
lítilli steinselju yfir og berið fram
með brauði.
sneiddri. Hellið ananassafanum
yfir og látið hann sjóða með í
dálitla stund. Kryddið með cay-
ennapipar og pipar. Setjið lok á og
látið malla í um það bil 10 mínútur.
Hrærið síðan út í sýrða rjómanum.
Smakkið og saltið ef með þarf.
Berið fram í pönnunni og hafið
brauð og niðursneidda gúrku með.
Makkarónupottur
soðnar makkarónur fyrir fjóra
100 gr skinka (eða saltkjöt)
100 gr bjúga
100 gr salami
2-3 di rifinn ostur
1-2 dl rjómi
1 tsk ítalskt krydd
ögn af steinselju
inu. Hitið varlega upp og hrærið
varlega í með gaffli. Bætið út í
meiri rjóma ef með þarf. Stráið
steinselju yfir. Berið fram með
góðu salati og tómastsósu eða chil-
isósu.
Sólskinspanna
með saltkjöti
ögn af smjöri
ca 300 gr saltkjöt
1 lítil dós ananasbitar í eigin safa
1 matarepli
ca 15 cm púrrubiti
2 dósir bakaðar baunir
'h tsk cayennepipar
ögn af pipar
1 dl sýrður rjómi
kannski ögn af salti
Bræðið smjörið á pönnu. Skerið
saltkjötið í litla teninga og brúnið
aðeins í smjörinu. Skerið ananas-
inn í smábita og brúnið hann
aðeins í smjörinu. Bætiðút í eplinu
í smábitum og púrrunni niður-
Skolið nýsoðnar makkarónurnar
í köldu vatni og látið þær síðan
aftur í pottinn. Skerið skinkuna,
bjúga og salami í strimla. Blandið
þessu varlega saman við makkar-
ónurnar ásamt rifna ostinum,
megninu af rjómanum og krydd-
Fiskipakkar I
kartöflupottinum
ca 1 kg kartöflur
600 gr ýsa
dill
1 matarepli, saxað smátt
50 gr smjör
1 msk sósuduft af bearnaisesósu
1 tsk jurtasalt
1 sítróna
álpappír
Burstið kartöflurnar vel og legg-
ið þær í botninn á rúmgóðum potti.
Hellið í eins litlu vatni og mögulegt
er og saltið.
Útbúið nú fiskpakkana. Skiptið
fiskinum á fjóra álpappírsbúta.
Leggið dill á fiskinn og síðan
fínthakkað eplið. Blandið smjör-
inu saman við sósuduftið og kreist-
ið út í safa úr 1 sítrónu. Skiptið
þessu yfir fiskinn. Lokið hverjum
pakka og leggið ofan á kartöflurnar
og sjóðið við lítinn hita í 20
mínútur. Kartöflurnarogfiskurinn
eru tilbúin á um það bil sama tíma.
Berið fram með brauði og sítrónu
skorinni í báta.