Tíminn - 06.08.1986, Blaðsíða 16

Tíminn - 06.08.1986, Blaðsíða 16
na v'Ferðist meðVISA o ÚLFAR JÓNSSON aöeins 17 ára táningur, kyssir hér islandsbikarinn í golfi eftir glæsilegan sigur á enn glæsi- legra Landsmóti sem lauk á laugardaginn. Úlfar sigraöi meistaraflokk karla en Stein- unn Sæmundsdóttir vann meistaraflokk kvenna. Miðvikudagur 6. ágúst 1986 Skákum við Könum-verð- um mesta bílaþjóð heims? Samband ungra framsóknarmanna: Búist við miklu Kotvöllur í Hvolhreppi: Húsið alelda og brann til kaldra kola Einar Bjarnason um stuðning BSRB við lögregluna „Afskaplega hlý- legt en breytir varla miklu“ Rangæingar eru bílakóngar lands- ins - en Snæfellingar og Dalamenn fylgja þcim fast á eftir. I bílaeign eru íbúar þessara sýslna hraöfara aö nálgast Bandaríkjamenn í hlutfalli bílafjölda á íbúa, þ.e. að verða mestu bílaeigendur heimsins. í Rangárvallasýslu voru um síðustu áramót skráðir 889 bílar á hverja 1000 íbúa á bílprófsaldri, þ.e. 17 ára fólk og eldra. í Dalasýslu er þessi tala 886 á hverja KXK) íbúa og 881 bíll á Snæfellsnesi. Bílaeign í landinu hafði á miðju ári aukist um 6% frá áramót- um þannig að ekki er ólíklegt að markinu - bíll á hvern íbúa 17 ára og eldri - verði náð fyrir næstu áramót í framangreindum sýslum. Framangreindar tölur um btla- fjölda eru úr skýrslu Bifreiðaeltirlits ríkisins fyrir 1985; Þar voru skráðir bílar um síðustu áramót taldir 117.117 um síðustu áramót og vant- aði því aðeins um 3.700-3.800 bíla til þess að bt'll væri fyrir hverja tvo landsmenn. Það takmark mun þegar hafa náðst fyrir mitt þetta ár. Bílaeign rniðað við íbúafjölda er hinsvegar mjög misjöfn eftir svæðum og héruðum. Lang minnst er bíla- eign hlutfallslega í Vestmannaeyj- um, 491 á hverja 1000 íbúa á bíl- prófsaldri um síðustu áramót. Aðrir staðir með þetta hlutfall innan við 600 á móti 1000 voru: Ólafsfjörður 508 bíla, Siglufjörður 541 og Nes- kaupstaður og Akranes með 577 bíla. Athygli vekur og að ísafjarðar- sýsla og Isafjörður fylgir þarna næst á eftir í röð btlafæstu staða. í höfuðborginni var skráð bílaeign um áramót 44.368 bílar, sem er um 667 bílar á hverja 1000 á bílprófs- á landi undanfarna mánuði virðist sem við íslendingar gætum farið að skáka þeim, þ.c. að ná af þeim titlinum mesta bílaþjóð veraldar. þingi Samband ungra framsóknar- manna efnir til ársþings dagana 29.-30. ágúst og verður þingið haldið að Hrafnagili í Eyjafirði. Á þinginu verða m.a. ræddar megináherslur Framsóknar- flokksins í íslenskum stjórnmál- um á næstu árum og greint frá niðurstöðum þjóðmálakönnunar sem félagsvísindastofnun gerði fyrir SUF. Þá hefur Petru Kelly fyrrum þingmanni Græningjaflokksins í V-Þýskalandi verið boðið á þing- ið til að halda fyrirlestur um stefnu og störf flokks síns í umhverfisverndarmálum, en SUF hyggst í framtíðinni leggja mikla áherslu í umhverfisvernd og rétta landnýtingu í starfi sfnu. Búist er við að framboðsmál verði rædd á þinginu og sam- kvæmt heimildum Tímans hyggj- ast margir ungir framsóknar- menn berjast fyrir breytingum á efstu sætum framboðslista flokks- ins við næstu Alþingiskosningar. Þingmönnum Framsóknar- flokksins hefur öllum verið boðið á ársþingið. Á þinginu verður kosin ný stjórn en Finnur Ingólfs- son sem verið hefur formaður SUF s.l. 4 ár hyggst láta af störfum, enda hefur hann verið kosinn gjaldkeri Framsóknar- flokksins. ABS aldri, eða alveg um bíl fyrir hverja tvo íbúa borgarinnar. Hlutfallið í nágrannasveitarfélögunum og á Suðurnesjum var hcldur hærra. Bandaríkin og Kanada rnunu vera einu löndin þar sem bílaeign er meiri en bíll fyrir hverja tvo íbúa. Miðað við þau bílakaup sem verið hafa hér Það var fátt heillegt eftir þegar slökkvistarfi var lokið í Kotvelli síðdegis á sunnudag. Á myndinni má sjá hjónin Hermann Sveinsson og Guðrúnu Jónsdóttur svipast um í stofunni. Á innfelldu myndinni má sjá hvernig húsið lítur út að utan eftir brunann. - vatnslaus slökkvibíll fyrstur á staðinn Vond staða ef samningurinn fer naumlega í gegn Bærinn að Kotvelli í Hvolhreppi brann til kaldra kola sl. sunnudagog nær engu tókst að bjarga úr eldinum. Slökkviliðin á Hvolsvelli og Hellu Dauðaslys í Dýrafirði Ensk kona lést síðdegis á sunnudag, þegar hún hrapaði um eitt hundrað metra í Tófarfjalli í Dýrafirði. Konan var að klífa upp fj allið ásamt tveim vinkonum sínum þegar henni skrikaði fótur með fyrrgreindum afleiðingum. Björgunarsveitin á Þingeyri, læknir og þyrla Landhelgisgæsl- unnar, voru kölluð á staðinn, en konan var látin þegar að var komið. -BG komu á staöinn, en fengu ekki við neitt ráðið, enda húsið nær alelda þegar að var komið. Eigendur hússins, Hermann Sveinsson og Guörún Jónsdóttir, sem búa á Kotvelli ásamt tveimur uppkomnum börnum sínum voru úti við þcgar þau urðu eldsins vör. Hermann reyndi fyrst að komast inn í húsið eldhúsmegin, en þar var allt í björtu báli og síðan forstofumegin, en varð frá að hverfa. Hann þurfti því að fara á næsta bæ til að hringja á slökkviliðið. Slökkviliðið á Hvolsvelli fékk til- kynningu kl. 15.05 og á svipuðum tíma hringdi fólk á Rarigárvöllum í slökkviliðið á Hellu, en það sá reykinn tilsýndar. Aðeins einn mað- ur var á vakt á Hvolsvelli, slökkvi- liðsstjórinn Snorri Óskarsson, en fyrsti slökkvibíllinn kom samt að Kotvelli kl. 15.15. Á þeint bíl eru geymar fyrir um 1000 lítra af vatni, en þegar til átti að taka reyndust þeir 1 vera tómir og því ekki hægt að hefja slökkvistarf fyrr cn dælubíll og stór tankbíll komu frá Hellu nokkru seinna. Slökkvistarfi var síðan lokið upp úr kl. 16.00. 1 samtali við Tímann sagði Snorri Óskarsson að litlu hefði breytt þó svo að bíllinn sem fyrstur kom á staðinn hefði verið fullur af vatni, húsið hafi veriö nánast alelda þegar að var komið. Aðspurður sagðist Snorri enga skýringu hafa á því hvers vegna bíllinn hafi verið vatns- laus, sagðist helst halda að vatnið hafi lekið af honum því nokkuð hafi verið síðan tankurinn var fylltur. Aðeins náðist í 7 af þeim 22 sem skráðir eru í slökkvilið Hvolsvallar, enda verslunarmannahelgi. Snorri sagðist hafa lengi barist fyrir eflingu slökkviliðsins, en að því standa átta hreppar, en án árangurs. Ekki er vitað um eldsupptök, en Ijóst er að þau voru í eldhúsinu. Húsið var skyldutryggt og innbú tryggt að einhverju leyti. „Þetta er náttúrlega afskaplega hlýlegt hjá BSRB og það er ekki hægt annað en að virða það við þá, hins vegar er það mitt sjónarmið að það sé aldeilis útilokað fyrir lögreglumenn. jafnvel þó þeir lentu eitthvað út úr starfi, að fara að þiggja úr verkfallssjóði, því aðrir hafa staðið í verkfalli en við aldrei. Þannig að það þætti mér hæpið," sagði Einar Bjarnason for- maður Landssambands lögreglu- manna, þegar Tíminn innti hann álits á samþykkt BSRB að hópupp- sagnir skyldu flokkaðar með verk- fallsaðgerðum. „Það yrði náttúrlega einstakl- ingsbundið hvort lögreglumenn þæðu fé úr verkfallssjóði BSRB, ef til þess kæmi. Ég efast nú um að þetta breyti mikiu. Það sem við erum að velta fyrir okkur núna er hvernig best er að halda utan um þetta ef samningur- inn fellur og svo eins þcirri vondu stöðu ef hann fer naumt inn. Það væri mjög vond staða því það er alltaf vont ef menn eru að velkjast í vafa. Þetta þarf annað hvort að falla eða fara inn með drjúgum meirihluta. annars er alltaf hætta á slæmum starfsanda," sagði Einar Bjarnason. Þá kom fram að talning atkvæða um sanrninginn fer væntanlega ekki fram fyrr en í lok vikunnar og bjóst hann jafnvel við að tölur lægju fyrir eftir hádegi á föstudag- inn. phh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.