Tíminn - 23.10.1986, Síða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 23. október 1986
p
. AÐ var sko enginn „leik-
sviðskoss" sem hann Kristján Jó-
hannsson óperusöngvari fekk hjá
elskunni sinni eftir frumsýninguna
á TOSCU.
Pétur - Ijósmyndari Tímans - var
þar nærri og náði þessum fallegu
myndum af hamingjuóskum Sig-
urjónu Sverrisdóttur, leikkonu, er
hún kom eftir frumsýninguna að
samgleðjast söngvurunum og óska
þeim til hamingju með frammi-
stöðuna í þessari glæsisýningu á
óperunni TOSCA.
Fyrst og fremst fékk auðvitað
Kristján koss og klapp, enda eru
þau kærustupar, og brúðkaup sagt
vera á næstunni.
Sigurjónu Sverrisdóttur muna
margir sjónvarpsáhorfendur eftir
úr sjónvarpsmyndinni „Drauga-
saga“, sem gerðist í sjónvarpshús-
inu að Laugavegi 176. Sömuleiðis
vakti hún mikla hrifningu leikhús-
gesta í leikritinu Tom og Viv sem
Alþýðuleikhúsið setti á svið. Flún
lék Viv, taugaveiklaða og hálfgeð-
veika eiginkonu rithöfundar, sem
sjálfur var ekki alltof sterkur á
taugum.
Það hefur verið fullt hús á allar
sýningar á TOSCU frá því fyrsta,
og er ákveðið að hafa eina auka-
sýningu á óperunni áður en Kristj-
án Jóhannsson þarf að fara yfir
Atlantshafið að syngja í bandarísk-
um óperuhúsum. Aukasýningin á
Toscu verður laugardagskvöldið
25. október.
Síðan verður sýningarhlé þar til
Kristján kemur aftur 19. nóvemb-
er.
Það sér ekki þreytu á óperusöng varanum eftir frumsýninguna, - en hamingjan Ijómar af þeim Sigur-
jónu Og Kristjáni. Tímamyndir Pélur
KOSSILEIKHUSI
- en ekki „leiksviðskoss“
AF ÞINGI
Fyrirspurnir
Guðrún Helgadóttir (Abl.Rvk) og
Ingvar Gíslason (F.NE.) vilja fá
svör frá menntamálaráðherra um
lögmæti skólamálaráðs Reykjavík-
ur. Fyrirspurnin er í fimm liðum: 1)
Telur ráðherra að stofnun skóla-
málaráðs Reykjavíkur samrýmist
12. gr. laga um grunnskóla? 2) Telji
ráðherra svo vera, hver er þá verk-
efnaskipting milli fræðsluráðs og
skólamálaráðs? 3) Hefur staða
fræðslustjórans í Reykjavík breyst
við þessa nýskipan fræðslumála í
borginni? 4) Telur ráðherra að
fræðslustjórinn í Reykjavík, sem er
fulltrúi menntamálaráðuneytisins og
Reykjavíkurborgar, eigi að hafa rétt
til setu á fundum skólamálaráðs? 5)
Telur ráðherra að nauðsyn hafi knú-
ið á um stofnun skólamálaráðs; sé
svo: hver var hún?
Ólafur Þ. Þórðarson (F.Vf.) spyr
forsætisráðherra hvað líði störfum
stjórnarskrárnefndar
Geir Gunnarsson (Abl.Rn.) fer
fram á að fjármálaráðherra geri
skriflega grein fyrir viðskiptastöðu
ríkissjóðs við sveitarfélög vegna
þátttöku í framkvæmdum. Á hann
þar við sameiginlegar framkvæmdir
ríkis og sveitarfélaga vegna grunn-
skóla og skólastjóraíbúða, dagvist-
arheimila, íþróttamannvirkja, sjúkra-
húsa, heilsugæslustöðva, læknis-
bústaða, hafnarmannvirkja og lend-
ingarbóta. Þá vill þingmaðurinn fá
að vita um áætlaða skuld ríkissjóð
vegna ofangreindra framkvæmda á
árinu 1986.
Þingsálykt-
unartillögur
Fimm þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, þeir Kristín S. Kvaran
(Rn), Salóme Þorkelsdóttir (Rn.),
Árni Johnsen (Su ), Friðjón Þórð-
arson (Ve.) og Valdimar Indriða-
son (Ve.) hafa lagt fram tillögu til
þingsályktunar um samfélagslega
þjónustu sem úrræði í viðurlagakerf-
inu, sem kveður á um að ríkisstjórnin
skipi nefnd til að kanna hvort endur-
gjaldslaus vinnuþjónusta í þágu
samfélagsins geti við ákveðnar að-
stæður komið í stað afplánunar
dóma í fangelsi og einnig orðið til
þess að gera skilorðsdóma mark-
vissari.
Frumvarp
Fram hefur komið frumvarp í efri
deild frá Eiði Guðnasyni, Karli
Steinari Guðnasyni og Stefáni
Benediktssyni, þingmönnum Al-
þýðuflokksins. Frumvarpið er svo-
hljóðandi: „Fyrsti sunnudagur í júní-
mánuði ár hvert skal vera frídagur
íslenskra sjómanna. Sé fyrsti
sunnudagur í júni hvítasunnudagur
skal næsti dagur þar á eftir vera
frídagur sjómanna."
í greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að frumvarp sama efnis
var lagt fram á þinginu í fyrra en varð
ekki útrætt en málinu var upphaf lega
hreyft á þinginu 1984 í formi fyrir-
spurnar til sjávarútvegsráðherra.
Ráðherra sagði þá m.a. í svari sírtu:
„Ég hefi þrátt fyrir mínar yfirlýsingar
ekki viljað beita mér fyrir því á þessu
þingi að svo verði, en tel hins vegar
sjálfsagt að taka það upp á næsta
þingi, enda er stutt eftir af þessu
þingi og ekki öruggt að slíkt mál
næði fram að ganga, nema mjög
góð samstaða væri um það.“