Tíminn - 23.10.1986, Qupperneq 6
Fimmtudagur 23. október 1986
6 Tíminn
ÚTLÖND llllllllllllllllllllll
FRÉTTAYFIRLIT
Washington - Háttsettur
bandarískur öldungadeildar-
þingmaður sagði sovésku
sendimennina sem vísað var
úr landi hafa hlerað símtöl
stjórnvalda. Embættismaður
innan stjórnarinnar bandarísku
sagði hana enn stefna á árang-
ur í afvopnunarviðræðum við
Mikhail Gorbatsjov Sovétleið-
toga og stjórn hans þrátt fyrir
brottrekstur sovésku sendi-
mannanna.
HARARE — Stúdentar í
Zimbabwe fóru um götur Har-
areborgar annan daginn í röð
til að vekja athygli á dauða
Samora Machel forseta Mós-
ambik. Mótmælin í gær voru
þó friðsamleg miðað við lætin
í fyrradag þegar stúdentarnir
skeyttu skapi sínu á bygging-
um sem hýstu Suður-Afríku-
búa og börðu hvíta menn á
götum borgarinnar.
GLENAGLES, Skotland
— Varnarmálaráðherrar
NATO-ríkjanna stóðu að baki
Reagan Bandaríkjaforseta og
sögðu hann hafa gert djarfa
tilraun til að ná viðamiklum
afvopnunarsamningum við
Moskvustjórn á leiðtogafundin-
um í Reykjavík.
KUWAIT — íranskir byssu-
bátar gerðu sína aðra árás á
skömmum tíma á olíuflutn-
ingaskip er sialdi frá Kuwait.
Árásin var gerð undan strönd-
um Sameinuðu furstadæm-
anna í sunnanverðum Persa-
flóa.
LUNDÚNIR — Elie Wiesel
handhafi friðarverðiauna Nób-
els flaug til Moskvu þar sem
hann vonaðist til að geta átt
viðræður við Mikhail Gorbat-
sjov Sovétleiðtoga um vanda-
mál rússneskra gyðinga.
PEKING — Kínversk stjórn-
völd lýstu yfir reiði sinni vegna
breytinga í bandarískri löggjöf
þar sem Tíbet var undanskilið
Kína. Bandarískir embættis-
menn sögðu lista þennan hafa
verið mistök.
NÝJA DELHI - Rajiv
Gandhi forsætisráðherra Ind-
lands vék frænda sínum Arun
Mehru úr lykilembætti sem ráð-
herra yfir öryggismálum ríkis-
ins. Þetta var ein af mörgum
breytingum sem Gandhi gerði
á stjórn sinni.
Risavcldin hafa lengi ógnað jörðinni með drápsvopnum sínum. Nú eru þau komin í svokallaðan brottvísunarleik
sem reyndar getur verið hættulegur leikur sé honum stöðugt fram haldið.
Samskipti risaveldanna fara kólnandi:
Brottvísunarleiknum
framhaldið af krafti
Sovétstjórnin rak fimm bandaríska sendimenn úr landi í gær
og fækkaöi verulega í innlendu starfsliði hjá sendiráðsskrif-
stofum Bandaríkjamanna
Moskva-Reuter
Sovétstjórnin rak í gær fimm
bandaríska sendiráðsstarfsmenn úr
landi og tilkynnti um að 260 sovéskir
starfsmenn í sendiráði Bandaríkj-
anna í Moskvu og konsúlatinu í
Leníngrad yrðu leystir frá störfum
sínum.
í opinberri tilkynningu sem lesin var
upp af Gennady Gerasimov tals-
manni utanríkisráðuneytisins var
sagt að myndi Bandaríkjastjórn
halda áfram„mismununaraðgerð-
um“ sínum gagnvart sovéskum borg-
urum í Bandaríkjunum myndi Mos-
kvustjórnin gera frekari„viðhlítandi
ráðstafanir".
I tilkynningunni voru þeir brott-
reknu tilgreindir og allir sagðir hafa
stundað„óleyfilegar athafnir er
beindust gegn Sovétríkjunum", með
öðrum orðum; njósnir.
Ákvörðun Sovétstjórnarinnar fylgir
í kjölfar brottrekstrar 55 sovéskra
sendimanna frá Bandaríkjunum.
Áður hafði Bandaríkjastjórn skipað
25 sovéskum starfsmönnum hjá
Sameinuðu þjóðunum úr landi og
Sovétstjórnin svarað með því að
reka á brott fimm bandaríska sendi-
menn frá Moskvu.
Franskir
bændur
til bjargar
breskum
lömbum
Limoges.Frakklandi-Reutcr
Franskir bændur stöðvuðu
vöruflutningabíl í vikunni er flutti
lifandi bresk lömb. Bændurnir
leystu um fimm hundruð lömb og
slepptu þeim út í haga. Þetta kom
fram í tilkynningu frá frönsku
lögreglunni.
Bændurnir leystu dýrin úr haldi
til að mótmæía innflutningi á
breskum lömbum.Þeir gáfu sum-
um lambanna skordýraeitur og
bólusettu önnur til að gera þau
óhæf til matar fyrir mannskepn-
una.
Lögreglan sagði bændurna
hafa stöðvað flutningabílinn í
grennd við Limoges í Mið-Frakk-
landi. Atburður þessi var sá nýj-
asti í röð slíkra árása á trukka
sem flutt hafa lifandi lömb eða
lambakjöt frá Bretlandi.
ÚTLÖ
UMSJÓN:
Heimir
Bergsson
BLAÐAMAÐUR
Olíumálaráðherrar OPEC samtakanna eru í miklum vanda eftir enn eitt bráðabirgðasamkomulagið í Genf.
Fundur OPEC samtakanna í Genf:
Genf-Reuter
Fulltrúar á fundi Samtaka olíufr-
amleiðsluríkja (OPEC) í Genf
komust loks að samkomulagi í gær
um framleiðslukvóta eftir sautján
daga samningastreð.
Vestrænir sérfræðingar í alþjóð-
legum olíuviðskiptum sögðu þó
samkomulagið mjög takmarkað en
í því er gert ráð fyrir framleiðslu-
kvóta til handa hinum þrettán
ríkjum OPEC sem gildir til loka
þessa árs.
„Við erum að tala um úrslita-
stundina í næsta skipti," sagði
Phillip Lambert breskur
olíumarkaðssérfræðingur og átti
við næsta fund OPEC sem hefst
þann 11 desember næstkomandi.
Olíumálaráðherrar samtakanna
eru sammála um að þá verði leita
lausna á vandamáli sem ekki var
leyst að þessu sinni; nefnilega
framleiðslukvóta í prósentum til
hvers lands samtakanna sem gildir
í lengri tíma. Voldugustu aðilar
OPEC, Kuwait og Saudi Arabía
hafa lagt á það mikla áherslu að
slíkt samkomulag gangi í gildi
strax í byrjun næsta árs.
Verðlag á olíu á frjálsum mark-
aði fór upp um tíu til tuttugu
bandarísk cent á tunnu í Evrópu í
gær. Ekki voru þó olíukaupmenn
og markaðssérfræðingar allir á einu
máli um afleiðingar samkomulags-
ins, sem gerir ráð fyrir að ríkin
framleiði samtals 17 milljón tunnur
á dag í nóvember og desember, og
töldu reyndar margir að OPEC
yrði ekki að ósk sinni um að verðið
færi upp í 17 til 19 dollara á tunnu
frá 15 dollurum sem það er í dag.
Ali Khalifa Al-Sabah olíumála-
ráðherra Kuwait var þó bjartsýnn,
sagði samkomulagið hafa „mjög
jákvæð áhrif“ og bjóst við verð-
hækkunum nú þegar vetur gengur
í garð á norðurhveli jarðar.
Markaðssérfræðingum var hins-
vegar meira umhugað um framtíð
OPEC til lengri tíma sem ekki lítur
vel út náist ekki að semja um fasta
kvóta á desemberfundinum.
Raunar var lítið um að menn
kæmust að samkomulagi á hinum
sautján daga ianga fundi í Genf
t.d. tókst ekki að ljúka við sam-
komulagsdrög á ýmsum efnahags-
legum skilgreiningum svo sem olíu-
forða og fólksfjölda sem hafður
væri til viðmiðunar þegar fastur
olíukvóti væri ákveðinn.
Helstu samningamennirnir á
fundi OPEC voru forseti samtak-
anna Rilwanu Lukman frá Nígeríu
og Subroto olíumálaráðherra
Indónesíu sem ráðherra frá Kuwait
sagði að ættu skilið „Nóbelsverð-
laun fyrir þolinmæði."
Subroto var þreyttur að aflokn-
um fundinum í Genf og benti á að
ekki væri hægt að ákvarða fastan
olíukvóta á einungis vísindalegum
forsendum heldur stæðu þar í vegi
ýmisleg pólitfsk vandamál og nægir
að nefna stríð írana og Iraka f
þessu sambandi.
Það er því ljóst að bráðabirgða-
samkomulag var það eina sem kom
út úr viðræðum OPEC ráðherr-
anna í Genf sem gefur fundinum í
desember aukið gildi.