Tíminn - 23.10.1986, Page 14

Tíminn - 23.10.1986, Page 14
14 Tíminn__________________________________________________ lllllllllllllllllllllllll BÓKMENNTIR Fimmtudagur 23. október 1986 Smásðgur með blaðamennskuívafi Matthías Johannessen: Konungur af Aragon og aðrar sögur. Almenna bókafólagið, Rvk. Smásögur geta verið með marg- víslegu móti, og þessi bók er ein- mitt gott dæmi um smásagnabók sem er töluvert öðruvísi en við eigum einna helst að venjast í seinni tíð. Það hefur, að ég má segja, verið nokkuð hefðbundið hjá þeim höfundum, sem skrifað hafa hér smásögur, að rækta það form hreint og óblandað af öðrum tegundum ritmennsku. Þar hefur með öðrum orðum verið á fcrðinni eitthvað sem kalla mætti leit eftir hinni hreinu og óblönduðu list smásögunnar. Það er ljóst af þessari nýjustu bók Matthíasar Johannessen að hann kann vel á smásagnaformið. Eins og íslenskir bókalesendur vita hefur hann fengist við flest ef ekki öll form ritmennsku, jöfnum hönd- um á sviði blaðamennsku og hinna listrænni skrifa, nema hvað ég minnist þess ekki að hann hafi ráðist á skáldsagnaformið. í þessari bók þótti mér það hins vegar vera nokkuð áberandi ein- kenni að hann leitaði sér útgangs- punktar í efnum sem tengjast blaðamennsku á einn eða annan hátt. Að vísu á þetta ekki við um allar sögurnar, en býsna margar. Og um þær sem þetta á ekki við sýndist mér hitt gilda að hann fyndi sér sambærilega útgangspunkta í öðrum áttum og ynni út frá þeim á Fyrsta íslenska ritið um þjóðarrétt Út er komið ritið „Ágrip af þjóðarétti" eftir Gunnar G. Schram prófessorogalþingismann. Er þetta fyrsta ritið um þjóðarétt, sem út kemur hér á landi, en útgefandi er Úlfljótur. Þjóðaréttur er sú grein lög- fræðinnar sem fjallar um það hvaða reglur gilda í samskiptum ríkja veraldar. í bókinni er gerð grein fyrir grundvallaratriðum þjóða- réttarins og það skýrt hvernig hann tengist íslenskum lögum og hvernig þjóðréttarreglur gilda hér á landi. Með auknum samskiptum íslands við önnur ríki á alþjóðavettvangi hefur mikilvægi þjóðaréttar sem hluta íslenskrar réttarskipunar far- ið vaxandi. Er bókinni ætlað að veita fræðslu og upplýsingar um þau atriði öllum þeim sem á því hafa áhuga. Fjallað er m.a. um það hvernig túlka á reglur íslenskra laga í samræmi við þjóðarétt og gerð grein fyrir þeim reglum hans, sem gilda um landhelgina, efnahags- Gunnar G. Schram. lögsöguna og landgrunnið. Eru þar rakin nreginatriði hins nýja Haf- réttarsáttmála Sameinuðu þjóð- anna, sem ísland gerðist aðili að 1985. Gerð er grein fyrir fiskveiði- réttindum ríkja innan og utan efna- hagslögsögunnar, m.a. laxveiðum á úthafinu og rétti strandríkisins í þeim efnum. Þá er rætt um með- ferð utanríkismála og hvaða frið- helgi og undanþága frá lögum er- lend sendiráð og sendifulltrúar njóta hér á landi. Fjallað er um efni og fram- kvæmd alþjóðasamninga, þar á meðal margra slíkra samninga, sem ísland hefur gert við önnur ríki. I sérstökum kafla er gerð grein fyrir því hvernig ríkjum ber að leysa deilur sín á milli eftir friðsamlegum leiðum og fjallað um Alþjóðadómstólinn í Haag í því sambandi. Þá er rætt um réttar- stöðu íslenskra ríkisborgara og lög- sögu ríkisins yfir þegnum sínum, þegar þeir eru staddir erlendis, og jafnframt yfir skipum og flugvél- um. Þetta nýja rit um þjóðarétt er prentað í Gutenberg og er það 228 bls. að stærð. svipaðan hátt. Með öðrum orðum eru hér víða gripin upp efni sem gætu þess vegna átt heima í dagblaði, ýmist sem fréttir, Ijósmyndir eða helgar- blaðagreinar, til dæmis um söguleg efni. Út frá þeim er síðan unnið, og sögurnar eiga sér það sameigin- legt að þær reyna að sýna þennan efnivið sinn út frá öðru sjónarhorni en dagblaðið gerir. Svo dæmi sé gripið þá er þarna saga um Knut Hamsun og skipti hans við Þjóðverja á stríðsárunum, en sjónarhornið er kona hans, hjónaband þeirra og sambandið á milli þeirra. Líka er þarna saga um konu norðan úr Húnavatnssýslu frá öldinni sem leið, sem að breyttu breytanda hefði getað orðið ágætis efni í hefðbundið blaðaviðtal eða sögulega yfirlitsgrein. Hér er aftur á móti dregin upp svipmynd af henni í elli og reynt að skyggnast inn í líðan hennar og hugrenningar mcð sálgreiningaraðferðum bók- menntanna. Líka er þarna lýsing á dauðsfalli stýrimanns á millillandaskipi, sem gæti út af fyrir sig orðið að ósköp venjulegri blaðafrétt. Hér verður hún hins vegar að tilefni til mann- lýsingar á útfararstjóra úti í Hamborg. Svo er þarna líka býsna glögg lýsing á allsérstæðu dauða- stríði gamals manns sem að ýmsu minnir á Morgunblaðsviðtölin sem Matthías varð einn frægastur fyrir hér á árum áður. Og þarna er ýmislegt fleira, og ekki verður betur séð en Biblían sé farin að sækja töluvert á Matthías í seinni tíð, og er hann þar svo sem ekki einn á báti. Þarna eru meðal annars tvær sögur sem fjalla um þá Lúkas guðspjallamann og Pál post- ula, og í báðum er kafað dálítið inn í persónur þeirra beggja. Líka er þarna saga um Rut hina móabít- ísku og það hvernig hún hefur tengst inn í líf lítils drengs norður á íslandi nú á þessari öld. Þá cru þarna töluvert margar sögur þar sem á einn eða annan Matthías Johannessen hátt er vikið að margs konar erfið- leikum sem karlmenn verða fyrir eftir að þeir eru komnir á miðjan aldur, og er ýmist vikið að þessu beint eða í tengslum við önnur viðfangsefni. Þar kennir ýmissa grasa, en meðal annars er þar fengist við hluti eins og hjóna- bandserfiðleika, sjúkdóma, tauga- truflanir margs konar og jafnvel hreina geðveiki. Þetta er nokkuð óvanalegt í íslenskri smásagna- gerð, en má vera upphafið að nýju viðfangsefni í henni. Margt fleira mætti nefna úr þess- ari bók, enda er hún efnismikil og viðfangsefnin töluvert fjölbreytileg sem fólgin eru innan spjalda hennar. Eins og ég gat um er Matthías Johannessen fjölhæfur rithöfundur, afkastamikill og hefur komið víða við á alllöngum ferli sínum. Sjálfur hef ég allt frá byrjun verið einna hrifnastur af tveimur hliðum á verkum hans, annars vegar blaðaviðtölum hans og hins vegar Ijóðagerðinni. Eigi ég að gefa álit mitt eftir bestu samvisku þá verð ég að segja það eins og er að smásögurnar í þessari bók höfða ekki eins sterkt til mín persónulega og margt í verkunum af hinum tveimur tegundunum. En slíkt mat er alltaf persónubundið og það fer ekki á milli mála að hér er tekið á efniviðnum af kunnáttu og list- fengi. Ef tala má um hefð í íslenskri smásagnagerð þá virðist mér að sögurnar hér brjóti' hana í því að þær séu útleitnari og margar hverj- ar bundnari tilefnum sínum en menn hafa átt að venjast. í því eru þær byltingarkenndar. Og bylting- arstarfsemi í listum er af hinu góða, því að af henni þróast þær áfram og endurnýja sjálfar sig. Af þeirri ástæðu þykir mér fengur að þessari nýju bók Matthíasar Jo- hannessen. -esig I Bókstafurinn eða hinn sanni andi guðs Ég minnist þess, að fyrir all- nokkru áttu sér stað blaðaskrif á milli Páls H. Árnasonar í Vest- mannaeyjum og Einars Ingva Magnússonar. Lét Páll í ljós þá skoðun sína aö mcnn lifni aftur að líkamsdauða afstöðnum í stað þess að bíða dómsdags í gröfum sínum. Einar var þessari skoðun aftur á móti algerlega andsnúinn, og telur hana brjóta mjög í bága við skrif biblíunnar. Hann virðist telja að biblían öll sé jafn heilög og alsönn hvar sem niður í hana sé gripið, samanber orð hans: „Öll biblían er orð hans“, og „Hún er spádómsbók og lögbók og heilagur sannleikur hins eina alvalda Guðji.“ Ekki dettur mér í liug að draga úr gildi biblíunnar, síður en svo. En misvitrir menn gera oft úr henni annað og minna en vera ætti, og miklu minna úr guði sjálfum en vera skyldi. í biblíunni eru tili kaflar, sem stríða á móti skilniþgi okkar á guði, hinni æðstu ydru, sem við, trúum að beiti kærleiksáhrifum sínum á allt og alla. Hefur ekki hin^ æðsta vera, hin mikla verund alls sem er, skapað grunninn að öllu sem er og þróað allt sem er fram til æ meiri fullkomnunar með áhrifa- mætti sínum? Eru ekki allar stjörnur og allar vetrarbrautir og allt fíf alheimsins til orðið fyrir óþrotlegan mátt og ást hinnar æðstu veru? Og beitir þessi æðsta vera nokkru sínni öðru meðali en ást og kærleika til að koma fram áformum sínum? Mun ckki algæska guðs vera slík, að aldrei beiti hann illum aðferðum í viðureign sinni við hið illa? II. Undarleg túlkun biblíunnar á algæsku guðs Mig langar til að nefna sem dæmi frásagnir í biblíunni, sem virðast stríða gegn þeim hugmynd- um sem fullkomnastar er unnt að gera sér um algæsku og ást hinnar æðstu veru: í annarri Mósebók er skýrt frá plágunum tíu, sem Jahve lét ganga yfir Egyptaland til þess að fá Faraó til að láta ísraelsmenn lausa. Því Faraó tregðaðist við að veita þeinr brottfararleyfi úr landinu. En var þessi tregða Faraós öll honum að kenna? Ekki er svo að sjá á orðum biblíunnar. Sjötta plágan fólst í því að Jahve sló alla Egypta kýlum. Biblían segir: „En Jahve herti hjarta Far- aós...“, svo að ekki fengu Israels- menn leyfi hans til að fara burt. í áttundu plágunni fylltist Eg- yptaland af engisprettum, sem átu upp allan jarðargróða. Og Faraó iðraðist og vildi leyfa ísraelsmönn- um að fara úr landinu. En þá segir biblían: „En Jahve herti hjarta Faraós, svo að han leyfði ekki Israelsmönnum burt að fara.“ Enn sendi Jahve plágu, þá tí- undu sem fólst í því að allir frum- burðir í landinu dóu, jafnt barn Faraós sem annarra. En áður en til þess kom, kunn- gerði Jósef konunginum þessa ák- vörðun Jahve, til þess að hann skyldi láta undan óskum ísraelsm- anna og leyfa þeim að fara brott úr Egyptalandi. „En Jahve herti hjarta Faraós og ekki leyfði hann Israelsmönnum að fara burt úr landi sínu ', segir ritningin um þennan atburð. III. Kærleikurinn, innsta eðli hinnar æðstu veru Sá hráskinnsleikur, sem Jahve, guð ísraelsmanna, er látinn leika þarna í viðskiptum sínum við Eg- ypta, getur ekki með réttu sam- rýmst skilningi okkar á algóðri, máttugri veru, hinni miklu verund alheimsins. Gæti ekki hér komið til greina skilningsleysi þess eða þeirra, sem rituðu Mósebækur, á hinu sanna kærleikseðli guðs? Eða var kærleikur eða fullkomleiki þeirrar máttarveru, sem stjórnaði Israelsmönnum á þeim tíma, ekki slíkur, sem við menn teljum æðstan? Svo virðist sem sum þau verk, sem sagt er að Jahve hafi látið ísraelsmenn vinna, t.d. í landvinn- ingum þeirra, er þeir komu til Kanaanlands, hafi verið af illum rótum runnin, í og með, en ekki af guðlegum kærleika einum saman, ef marka má allt það sem biblían kennir honum um. Því hinn æðsti kærleikur hlýtur að ná til allra manna og til allra þjóða. Hinu vil ég þó öllu heldur gera ráð fyrir, að hinn sanni kærleiks- andi hinnar æðstu veru, hafi ekki náð hugum ísraelsmanna, svo sem vera átti. Þeir hafi aldrei komist í nægilega fullkomið samband við hinn æðsta mátt, hvorki til að rita öll orð hans rétt á bækur, eða til að breyta eftir boðum hans, svo sem hann hefur til ætlast. Ingvar Agnarsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.