Tíminn - 23.10.1986, Page 19

Tíminn - 23.10.1986, Page 19
- - V . • Fimmtudagur 23. október 1986 Tíminn 19 I ÚTVARP/SJÓNVARP llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllll lillllll lllíi'*— / l- Halldór Rafnar íkaffi hjá Jónínu Jónína Leósdóttir tekur á móti kaffigestum og spilar tónlist eftir þeirra höfði að venju á Bylgjunni í kvöld kl. 20-21.30. í kvöld er það Halldór Rafnar lögfræðingur sem situr við borð hennar. Halldór Rafnar lögfræðingur er blindur, en varð það ekki fyrr en á fullorðinsárum. Hann hefur mikið starfað að málum blindra og ör- yrkja almennt og unnið sem lög- fræðingur fyrir Öryrkjabandalagið og Blindrafélagið. „Ég ætla að ræða við hann um þessa upplifun, hvernig það er að hafa verið sjáandi og verða blindur, og um lífið og tilveruna almennt," segir Jónína og bætir því við að Halldór sé mikill grínisti, léttur í skapi og fróður um margt og sér sé tilhlökkunarefni að spjalla við hann. kl. 21.10 Rauðliðarnir Pálmi Gestsson, Friðrik Stefánsson tæknimaður, Árni Tryggvason, Hanna María Karisdóttir og Hallmar Sigurðsson leikstjóri (t.f.v.) eru meða1 beirra sem vinna að flutningi Síðasta vígisins. Nú er Stöð 2 farin að rugla útsendingar um 9-leytið eins og sjónvarpsáhugantenn hafa orðið varir við. Það eru þess vegna ekki aðrir en „lyklahafar" sem geta notið kvikmyndarinnar Rauðliðar (Reds) sem sýnd verður þar kl. 21.10 í kvöld. Það er Warren Beatty sem lagði allan sinn metnað í gerð þessarar kyikmyndar á sínum tíma. Hann er leikstjóri, handritahöfundur og fer með aðalhlutverk, og hreppti reyndar Óskarsverðlaunin fyrir leikstjórnina árið 1981. Sömuleiðis hlaut Maureen Stapleton Óskarinn fyrir leik sinn í aukahlutverki í þessari mynd. Sagan er um ástarævintýri bandaríska kommúnistans og blaðamannsins Jolin Reed (War- ren Beatty) og kvenréttindakon- unnar og rithöfundarins Louise Bryant (Diane Keaton) á tímum byltingarinnar í Rússlandi og áhrif byltingarinnar á það. Við sögu kemur leikritahöfundurinn frægi Eugene O’NeilI (Jack Nicholson) sem líka verður ástfanginn af Lo- uise Bryant. Fimmtudagsleikritið: SÍÐASTA VÍGID Fimmtudagsleikrit Rásar I að þessu sinni er Síðasta vígið eftir Laurence Moody í þýðingu Þor- steinsÖ. Stephensenoghefstflutn- ingur þess kl. 20. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson og tæknimenn eru Friðrik Stefánsson og Ástvald- ur Kristinsson. Mary Brown er ógift skrifstofu- stúlka sem býr við heldur þröngan kost í heimalandi sínu, Englandi. Dag nokkurn berast henni þær óvæntu fréttir að hún hafi erft lítið hótel á Ítalíu eftir gamla vinkonu föður síns. Hún tekur þá ákvörðun að flytjast þangað og taka við rekstri hótelsins. Nokkru seinna kem^jj ún í kynni við samlanda sinn þar á staðnum sem ekki er allur þar sem hann er séður og um tíma lítur út fyrir að þessi kynni hafi afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir hina saklausu ungfrú Brown. Leikendur eru: Hanna María Karlsdóttir, Karl Guðmundsson, Árni Tryggvason, Kristín Anna Þórarinsdóttir, Pálmi Gestsson, Sigurður Karlsson, Viðar Eggerts- son. Guðmundur Ólafsson, Guð- mundur Pálsson og Kolbrún Erna Pétursdóttir. Leikritið verður endurflutt á þriðjudagskvöldið kemur kl. 22.20. kl. 21. Gestagangur: Þau John Reed og Louise Bryant urðu fórnarlömb rússnesku bylt- ingarinnar. Kvikniyndin Rauðliðar segja frá því. Inga Bjarnason gestur Ragnheiðar Halldór Rafnar lögfræðingur er gestur Jónínu Leósdóttur á Bylgj- unni í kvöld kl. 20. I kvöld kl. 21 verðurgestagangur hjá Ragnheiði Davíðsdóttur á Rás 2 og er gestur hennar í þetta sinn Inga Bjarnason leikstjóri. Inga hefur vakið mikla athygli sem leikstjóri að undanförnu og munu leikhúsáhugamenn minnast leikstjórnar hennar á „Tom og Viv“ sem Alþýðuleikhúsið sýndi á Kjarvalsstöðum í fyrra við geysi- góðar undirtektir. Og nú líður að því að frumflutningur verði á sýn- ingu Alþýðuleikhússins í leikstjórn Ingu á einþáttungi Strindbergs „Sú sterkari" (Sem reyndar var sýndur í sumar) með íslenskum viðbæti. Sýningar verða í Hlaðvarpanum og hefur lítið verið látið uppi um verkið enn sem kontið er, en kannski bætir Inga úr því í kvöld. Þá kennir Inga verðandi fóstrum í Fósturskóla íslands framsögn og leikræna tjáningu. „Inga er alveg afspyrnu lifandi og hress manneskja," segir Ragn- heiður og nú geta bara útvarps- hlustendur hlakkað til að kynnast Ingu Bjarnason leikstjóra, kennara o.s.frv. betur í kvöld. Fimmtudagur 23. október 6.45 Veöurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir 7.03 Morgunvaktin - Páll Benediktsson, Þorgrímur Gestsson og Lára Marteins- dóttir Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veöurfregnir kl. 8.15. Tilkynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. 7.20 Daglegt mál Guðmundur Sæmunds- son flytur þáttinn. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barnanna. „Fljúg- andi stjarna“ eftir Ursulu Wölfel. Krist- ín Steinsdóttir les þýöingu sina (7). 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. 9.35 Lesiö úr forustugreinum dagblaö- anna. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 „Ég man þá tið“ Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Söngleikir á Broadway. Tólfti þáttur: „Fantasticks". Árni Blandon kynnir. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 ( dagsins önn - Efri árin. Umsjón Hilmar Þór Hafsteinsson. 14.00 Miðdegissagan: „Undirbúningsár in“, sjálfsævisaga séra Friðriks Frið rikssonar Þorsteinn Hannesson les (13). 14.30 í lagasmiðju Count Basie's 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Frá svæöisútvarpi Reykjavíkur og nágrennis. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið Stjórnandi: Sigurlaug M. Jónasdóttir. 17.00 Fréttir. 17.03Tónskáldatími. Leifur Þórarinsson kynnir verk eftir Snorra Sigfús Birgisson. 17.40 Torgið - Menningarmál. Síðdegis- þáttur um samfélagsmál. Meðal efnis er fjölmiðlarabb sem Ólafur Þ. Harðarson flytur kl. 18.00. Umsjón: Óðinn Jónsson. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.40 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgm sem Uuðmundur Sæmundsson flytur. 19.45 Að utan Fréttaþáttur um erlend mál- efni. 20.00 Leikrit: „Síðasta vígið“ eftir Lawr- ence Moody Þýðandi: Þorsteinn Ö. Stephensen. Leikstjóri: Hallmar Sigurös- son. Leikendur: Hanna Maria Karlsdóttir, Karl Guðmundsson, Árni Tryggvason, Kristín Anna Þórarinsdóttir, Pálmi Gestsson, Sigurður Karlsson, Viðar Egg- ertsson, Guðmundur Ólafsson, Guð- mundur Pálsson og Kolbrún Erna Péturs- dóttir. 21.30 Einsöngur í útvarpssal Sigrún Gestsdóttir syngur lög eftir Sigursvein D. Kristinsson, Franz Schuberl, Richard Wagner og Gabriel Fauré. Hrefna Egg- ertsdóttir leikur með á píanó. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Edvard Munk Þorgeir Ólafsson tók saman þáttinn. 23.00 Túlkun í tónlist Rögnvaldur Sigur- jónsson sér um þáttinn. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. RA* Fimmtudagur 23. október 9.00 Morgunþáttur í umsjá Kristjáns Sig- ’ urjónssonar og Sigurðar Þórs Salvars- sonar. Guöríður Haraldsdóttir sér um barnaefni kl. 10.03. 12.00 Létt tónlist 13.00 Hingað og þangað um dægur- heima með Inger Önnu Aikman. 15.00 Sólarmegin Þáttur um soul- og fönk- tónlist í umsjá Tómasar Gunnarssonar. (Frá Akrureyri). 16.00 Umsjón: Hanna G. Siguröardóttir. 17.00 Hitt og þetta Stjórnandi: Andrea Guðmundsdóttir 18.00 Hlé. 20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö Gunnlaugur Helgason kynnir tíu vinsæl- ustu lög vikunnar. 21.00 Gestagangur hjá Ragnheiði Daviðs- dóttur. Gestur hennar er Inga Bjarnason leikstjóri. 22.00 Rökkurtónar Stjórnandi: Svavar Gests. 23.00 Kínverskar stelpur og kóngulær frá Mars frá Mars. Annar þáttur af þremur um tónlist breska söngvarans Davids Bowie. Umsjón: Snorri Már Skúla- son og Skúli Helgason. 24.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00,10.00,11.00, 12.20,15.00,16.00 og 17.00. Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá mánudegi til föstudags. 17.03-18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykja- vik og nágrenni - FM 90,1 MHz. 18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni - FM 96,5 MHz. Má ég spyrja? Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugsson. M.a. er leitað svara við áleitnum spurningum hlustenda og efnt til markaðar á Markaðstorgi svæðisút- varpsins. Föstudagur 24. október 17.55 Fréttaágrip á táknmáli 18.00 Litlu Prúðuleikararnir (Muppet Ba- bies) 14. þáttur. Teiknimyndaflokkureftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kolbeins- son. 18.25 Horfðu á mig. Litil saga um heyrnar- skertan dreng og samskipti hans viö aðra. Þýðandi Baldur Hólmgeirsson. 18.50 Auglýsingar og dagskrá 19.00 Spitalalíf (M*A*S*H) Fjórði þáttur. Bandarískur gamanmyndaflokkur sem gerist á neyðarsjúkrastöð bandaríska hersins í Kóreustríðinu. Aðalhlutverk: Alan Alda. Þýðandi Kristmann Eiösson. 19.30 Fréttir og veður 20.00 Auglýsingar 20.10 Ságamli (Der Alte) 20. Mánudagurtil mæðu. Þýskur sakamálamyndaflokkur. Aðalhlutverk: Siegfried Lowitz. Þýðandi Veturliði Guðnason. 21.10 Unglingarnir í frumskóginum Umsjón: Sigurður Jónasson. Stjórn upp- töku: Gunnlaugur Jónasson. 21.40 Sameinuðu þjóðirnar. Upplýsinga- og umræðuþáttur í tilefni af degi Samein- uðu þjóðanna. Umsjónarmaður Guðni Bragason. 22.20 A döfinni Umsjónarmaöur Marianna Friðjónsdóttir. 22.25 Seinni fréttir 22.30 Moby-Dick. Bresk-bandarisk bíó- mynd frá 1956, gerð eftir samnefndri skáldsögu Hermann Melvilles. Leikstjóri John Huston. Aðalhlutverk: Gregory Peck, Richard Basehart, Friedrich Le- debur, Leo Genn, Orson Welles og James Robertson Justice. Hvalveiðiskip- stjóri einn leggur ofurkapp á að finna hvítan risahval, sem gerði hann að örkumlamanni endur fyrir löngu, og stefn- ir bæði skipi og áhöfn í háska til að koma fram hefndum. Einnig mætti segja aö sagan sé um eðli góðs og ills, mátt skaparans og náttúraflanna og mannlegs vilja gegn örlögum. Þýðandi Sigurgeir Steingrímsson. 00.20 Dagskrárlok. Fimmtudagur 23. október 6.00- 7.00 Tónlist í morgunsárið. Fréttir kl. 7.00. 7.00- 9.00 Á fætur með Sigurði G. Tóm- assyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður litur yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 8.00 og 9.00. 9.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Palli leikur öll uppáhaldslögin og ræðir við hlustendur til hádegis. Fréttir kl. 10.00 11.00og 12.00. 12.00-14.00 Á hádegismarkaði með Jó- hönnu Harðardóttur. Jóhanna leikur létta tónlist, spjallar um neytendamál og stýrir flóamarkaði kl. 13.20. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgju- lengd. Pétur spilar og spjallar víð hlust- endur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00 16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Hailgrímur Thorsteinsson i Reykjavík síðdegis. Hallgrimur leikur tónlist, litur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00 og 19.00. 19.00-20.00 Tónlist með léttum takti. 20.00-21.30 Jónína Leósdóttir á fimmtu- degi. Jónína tekur á móti kaffigestum og spilar tónlist eftir þeirra höföi. 21.30-23.00 Spurningaleikur. Bjarni Ó. Guðmundsson stýrir verðlaunagetraun um popptónlist. 23.00-24.00 Vökulok. Fréttamenn Bylgj- unnar Ijúka dagskránni meö fréttatengdu efni og Ijúfri tónlist. STOD 7VO SLENSKA SJONVARPSÞELAGíD Fimmtudagur 23. október 17.30 Myndrokk. 17.55 Teiknimyndir. Gæi smáspæjari. 18.25 fþróttir 19.25 Fréttir. 19.50 Bjargvætturinn. („The Equalizer"). Bandarískur framhaldsmyndaflokkur. McCall verður hreykinn en um leið sorg- mæddur þegar sonur hans Scott fær inngöngu í þekktantónlistarskóla í París, því þá verður minni tími sem þeir feðg- arnir geta eytt saman. Til að bæta úr því ákveða þeir að eyða helginni á rólegum stað úti í sveit. En margt fer á annan veg enætlaðer... 20.35 Teiknimynd. Vofan Casper. 20.40 Tiskan (Fashion Show) 21.10 Rauðliðarnir (Reds). Warren Beatty. Mynd þessi gerist á tímum rússnesku byltingarinnar. Sagan er um ástarævint- ýri John Reed (Warren Beatty) og Louise Bryant (Diane Keaton) og hvernig rúss- neska byltingin lék samband þeirra. John Reed er bandarískur kommúnisti og blaðamaður, en Louise rithöfundur og kvenréttindakona. Eugene O Neill (leik- inn af Jack Nicholson), hinn frægi leikrit- ahöfundur kynnist, frk. Bryant og verður ástfanginn af henni. Skerast þvi leiðir hans og Reed. Sagan er skrifuð af Warren Beatty og Trevor Griffiths. 00.25 Elsku Mamma (Mommy Dearest) Bandar. kvikmynd um ævi leikkonunar Joan Crawford. Þetta er sagan um stjörn- una - þjóðsagnapersónuna - og móður- ina. Um framagirni og tilfinningaleg átök í einkalífinu. Gagnvart almenningi var Joan Crawford hin ákveðna, vel klædda leikkona sem allir dáðust að, en i mynd- inni kemur fram önnur hlið á henni. Ógleymanleg mynd byggð á sannsögu- legum heimildum. Með aðlhlutverk fara Fay Dunaway (Joan Crawford) og Steve Forrest. 00.20 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.