Tíminn - 04.11.1986, Side 1
ISTUTTU MÁU...
JOAQUIM CHISSANO
utanríkisráðherra Mósambik var í gær
tilnefndur sem hinn nýi forseti landsins
og tekur hann við embætti Samora
Machels sem lést í flugslysi á dögun-
um. Chissano er 47 ára gamall og kom
útnefning hans ekki á óvart. Það var
Marcelino Dos Santos, meðlimur
æðsta ráðs hins ráðandi Frelimo-
flokks, sem tilkynnti um útnefninguna
í beinni útvarpsræðu í gær.
SJOTIUOG FIMMáragam
all spænskur eftirlaunamaður sem ætl-
aði að skipta sparifé sínu milli ættingj-
anna komst að því í gær að peningarn-
ir voru verðlausir. Karl geymdi spariféð
í plastpoka og treysti lítt á bankastofn-
anir. Seðlarnir sem hann geymdi höfðu
hinsvegar verið aflagðir fyrir allmörg-
um árum.
HILMAR Þ. Hilmarsson við-
skiptafræðinemi úr Njarðvíkum hefur
ákveðið að gefa kost á sér í framboði
framsóknarmanna á Reykjanesi. Hilm-
ar á sæti í miðstjórn flokksins og einnig
í kjördæmisráði á Reykjanesi.
Þá hefur Gylfi Guðjónsson ökukenn-
ari í Mosfellssveit gefið kost á sér,
einnig í Reykjaneskjördæmi. Hann
hyggst gefa kost á sér í þriðja sæti eins
og Hilmar.
KVENNALISTINN hefur tek-
ið ákvörðun um að bjóða fram til
Alþingis í Reykjaneskjördæmi. Var
þetta ákveðið áfélagsfundi Kvennalist-
ans í Reykjaneskjördæmi um helgina.
Einnig var ákveðið á fundinum að fram
færi könnun meðal félagskvenna um
val á frambjóðendum.
SVERRIR Hermannsson mennta-
málaráðherra fékk flest atkvæði í
fyrsta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna
í Austurlandskjördæmi, sem fram fór
föstudag og laugardag sl. Sverrir fékk
447 í fyrsta sæti, en alls 678 atkvæði.
Egill Jónsson alþingismaður varð í
öðru sæti með 349 atkvæði í 1 .-2. sæti
en alls 487 atkvæði. í þriðja sæti varð
Kristinn Pétursson framkvæmdastjóri
Bakkafirði og fjórði Hrafnkell Jónsson
frá Eskifirði.
|
TALNjNGU I lokuðu prófkjöri
sjálfstæðismanna í Reykjaneskjör-
dæmi lauk um helgina. Ekki hafa enn
verið gefnar upp tölur í prófkjörinu, og
hefur einn þeirra sem varo í efstu
sætunum, Víglundur Þorsteinsson far-
ið þess á leit við kjörnefnd að tölurnar
verðir gerðar opinberar. Kjörnefnd
gerði það að tillögu sinni að listinn yrði
skipaður eftirfarandi. »1. Matthías Á
Mathiesen, 2. Ólafur G. Einarsson, 3.
Salome Þorkelsdóttir, 4. Ellert Eiríks-
son, 5. Gunnar G. Schram og 6.
Víglundur Þorsteinsson. Talað hefur
verið um að Víglundur hafi fengið 159
atkvæði á móti 156 atkvæðum
Gunnars, en sá síðarnefndi færður til,
í tillögu kjörnefndar.
ARNI JOHNSEN alþingis-
maður lenti í þriðja sæti lista sjálfstæð-
ismanna á Suðurlandi samkvæmt til-
lögum kjörnefndar Sjálfstæðisflokks-
ins. Árni vill hinsvegar fá að sjá tölur
og niðurstöður úr prófkjörinu áður en
hann tjáir sig um niðurstöðurnar, en
hann var í öoru sæti listans. Þar trónir
nú Eggert Haukdal á eftir Þorsteini
Pálssyni sem fékk flest atkvæði í
fyrsta sæti.
KRUMMI
Krummi. „Ætli það
séu fleiri atkvæði í
Leiklistarskólanum
en í Hótelskólanum? “
Reglugerðin fyrir árið 1987-1988
Fullvirðisréttur bænda
skertur mest á Ströndum
Á næstu dögum mun bændum
berast fullvirðisréttur þeirra til
framleiðslu sauðfjárafurða fyrir
verðlagsárið 1987-1988 því byrjað
var að póstleggja hann í gær frá
Framleiðsluráði landbúnaðarins.
Ljóst er að búmarkssvæðin
koma nokkuð misjafnlega út vegna
setningar reglugerðarinnar um full-
virðisréttinn, þrátt fyrir að öll
svæði hafi fengið 3% skerðingu.
Til viðbótar þeirri skerðingu fær
Strandasýsla mesta skerðingu en
Svalbarðshreppur, Sauðanes-
hreppur og Þórshafnarhreppur,
Skeggjastaða- og Vopnafjarðar-
hreppur sem er eitt búmarkssvæði
fylgja þar á eftir. Síðan koma
Mýrasýsla, nær allir hreppar á
Austfjörðum, báðar Skaftafells-
sýslur, hreppar í S-Múlasýslu og
V-Húnavatnssýsla.
Einu búmarkssvæði reiknaðist full-
virðisréttur 2.756 ærgildisafurðir
umfram framleiðslu sem nýtt verð-
ur vegna riðuniðurskurðar þar árið
1984 og er það V-Barðastrandar-
sýsla. 1000 af þeim eru teknar frá
til þess að Framleiðsluráð geti
ráðstafað til þeirra aðila sem kæra
fullvirðisrétt sinn til Framleiðslu -
ráðsog leiðrétta þarf í framhaldi af
því. 1756 ærgildisafurðir eru hins
vegar teknar og ráðstafað til þeirra
svæða sem verst komu út. Mest af
því fékk Skagafjörður, Sauðár-
krókur og Siglufjörður og Stranda-
sýsla en einnig fengu Þistilfjarðar-
svæðið og Mýrasýsla hluta af því.
Þau bú fá mesta skerðingu sem
hafa framleitt sem næst búmarki
árin 1984 eða’85 eða hafa dregið
framleiðslu saman á árunum 1983-
1985 um 20% eða meira. í síðar-
nefnda tilvikinu er hærra árið tekið
sem hámarkstala og sú tala er
lækkuð um eina ærgildisafurð fyrir
hverja sauðkind, sem um hefur
verið fækkað umfram áðurnefnd
20%. Aðgerðir þessar eru miðaðar
við að sauðkindur hafi verið fleiri
en 100 haustið 1983. Fullvirðisrétt-
urinn verður skertur þar til réttur
framleiðenda á svæðinu verður
jafn fullvirðisrétti viðkomandi
svæðis og eru þá notaðar skerðing-
arreglur frá 1-10% eftir því hvað
innleggið nemur háu hlutfalli af
búntarkinu.
ABS
Virðisaukaskatturinn:
MANNEKLA GÆTIORDID
ERFIDUR ÞRÖSKULDUR
„Ég hef miklar áhyggjur af því
ef virðisaukaskatturinn verður tek-
inn upp hve mannfrekur hann
verður fyrir skattstofurnar og að
því leyti erfiður í framkvæmd, þar
sem við erum nú þegar undir-
mannaðir. Jafnfraint held ég að
tvöföldun á fjölda gjaldenda leiði
til afar seinvirks kerfis, þar sem
bókhald er þar að auki ekki allstað-
ar í sérlega góðu lagi,“ sagði Gest-
ur Steinþórsson, skattstjóri í
Reykjavík.
Talað var við Gest vegna þess að
nýlega kom fram í viðtali við hann
í Tímanum að skattstofunum hefur
á undanförnum árum reynst erfitt
að manna þær stöðuheimildir sem
þær hafa, sem hann sagði þó of
fáar. Og var hann því spurður
hvernig hann telji að takast muni
að tvöfalda þann mannafla sem nú
vinnur við framkvæmd söluskatts-
kerfisins. Gestur telur það mikið
áhyggjuefni, en á Skattstofu
Reykjavíkur sagðist hann hafa 10
stöðuheimildir vegna daglegra
framkvæmda við söluskattinn auk
rannsóknarntanna.
Samkvæmt því má ætla að aðeins
skattstofan í Reykjavík þyrfti um
10-12 viðbótarmenn með tilkomu
'virðisaukaskattsins. „Og þarna
veit ég þó ekki hvort jreir miða við
stöðuna eins og hún er nú eða
stöðuna eins og hún ætti að vera,“
sagði Gestur.
í greinargerð með frumvarpi um
virðisaukaskatt - sem nú hefur á ný
verið ákveðið að leggja fyrir Al-
þingi-erm.a. taliðaðframteljend-
ur vegna virðisaukaskatts verði unt
25 þús. manns í stað u.þ.b. 10 þús.
framteljenda vegna söluskattsins.
En um 35 manns munu nú eingöngu
vinna við framkvæmd söluskattsins
á skattstofunum. Þá töldu frum-
varpssmiðir að menn geri allt of
mikið úr því sjálfseftirliti sem felist
í virðisaukaskattskerfinu. Þörf á
virku skatteftirliti verði síður en
svo minni en með söluskattskerf-
inu.
En hvernig lýst skattstjóranum á
virðisaukaskattinn sem slíkan?
„Ég hef löngum verið þeirrar
skoðunar að það ætti að leggja
niður söluskatt og taka upp sölu-
skatt,“ sagði Gestur. Með því
kvaðst hann eiga við að leggja eigi
niður söluskattinn í núverandi
mynd en taka í staðinn upp svipað
kerfi og upphaflega var farið af
stað með. Þ.e.a.s. hafa söluskatt,
en fækka undanþágum frá honum
gífurlega frá því sem nú er.
Frá því söluskatturinn var tekinn
upp um 1960 sagði Gcstur undan-
þágunum stöðugt hafa verið
fjölgað, sem valdi því að kerfið sé
nú orðið injög erfitt í framkvæmd.
Þar hafi Alþingi og fjármálaráð-
lierrar undanfarinna ára hjálpast
að. Eins og staðan sé nú orðin
verði að gera eitthvert verulegt
átak með söluskattinn - annað
hvort að breyta honum eða taka
upp virðisaukaskatt.
Gestur taldi síður en svo að
kasta eigi virðisaukaskattinum
strax til hliðar, heldur eigi einmitt
að skoða það kerfi mjög yandlega,
þar sem það hafi ýmsa kosti fram
yfir söluskattskerfið. Samkvæmt
fruntvarpinu séu undanþágur t.d.
ekki það miklar að ástæða sé til að
óttast þær.
„í ljósi reynslunnar hlýtur maður
þó að vera logandi hræddur um að
þar yrði lagt út á sörnu braut og átt
hefur sér stað með söluskattinn -
en sú braut hefur nú verið gcngin
á enda í raun og veru,“ sagði
skattstjórinn. -HEI