Tíminn - 04.11.1986, Blaðsíða 5

Tíminn - 04.11.1986, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 4. nóvember 1986 Tíminn 5 Stefán Valgeirsson alþingismaöur: HVIRFILVINDAR OG STORMAR, BLÁSA EFTIR PRÓFKJÓRIÐ - ákvörðun um sérframboð kemur þegar menn hafa sofið úr sér hitann og sárindin Listi Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi-eystra. 1. sæti Guðmundur Bjarnason, 2. sæti Valgerður Sverrisdóttir. 3. sæti Jóhannes Geir Sigurgcirsson, 4. sæti Þóra Hjaltadóttir, 5. sæti Valdimar Bragason, 6. sæti Bragi Bergmann og 7. sæti Egill Olgeirsson. „Ég er nú ef til vill ekki rétti maðurinn til þess að segja til um hvernig hljóð er í mönnum. Ég hef að vísu heyrt í mjög mörgum, en að ég átti mig á því hvernig vindar hér blása get ég ekki sagt á þessari stundu. Það er sums staðar hvirfil- vindur og annars staðar strekkings stormur, en hvort þetta lægir veit ég ekki. Ég er nú búinn að vera lengi í pólitík og ég geri ekkert að lítt athuguðu máli, enda er þetta ekki bara spurningin um mig. Spurningin er sú, þegar menn hafa sofið úr sér mesta hitann og sárindin, að hvaða niðurstöðu komast menn?" sagði Stefán Valgeirsson alþingismaður í samtali við Tímann þegar hann var spurður hvort hugur væri fyrir sér- framboði í Norðurlandskjördæmi eystra. Á aukakjördæmisþingi á sunnudag náði Stefán ekki kjöri í fyrsta sæti á framboðslista Fram- sóknarflokksins í kjördæminu og munaði um 30 atkvæðum á honum og Guðmundi Bjarnásyni sem mun skipa efsta sætið á listanum í kom- andi kosningum. „Ef það reynist vera stór hópur manna, sem ætlar að yfirgefa flokk- inn út af þessu - án þess að ég sé að segja að svo verði - þá hlýtur það að verða umhugsunarefni hvað á að gera,“ sagði Stefán. Stefán Valgeirsson hefur túlkað þessi úrslit í prófkjörinu sem ósigur fyrir byggðastefnu flokksins og segir að forysta flokksins sé orðin of höll undir þéttbýlið á suð- vestur horn- inu. „Það sem hefur verið að gerast á undanförnum árum er að áhersl- urnar eru að breytast. Nú cr farið að leggja höfuð áherslu á þéttbýliö fyrir sunnan og það er eins og menn átti sig ekki á því að gamla stcfnan okkar um byggöastefnu þ.e.a.s. að byggðin úti um land megi ekki dragast mikið saman, hcfur orðið útundan. Ég vil minnka aðstöðumuninn í þjóðfélag- inu eftir því sem það er hægt og legg höfuð áherslu á það. Ég hef brýnt formann okkar á því að hann sem forsætisráðherra og einn af þeim sem gaf fyrirheit um það þegar kjördæmabreytingin var samþykkt að jafna efnalega og félagslega að- stöðu manna þar sem mismunar gætti, stæði við þau fyrirheit. Það hefur hins vegar afskaplega lítið verið af því gert," sagði Stefán Valgeirsson. Hann benti á að landsbyggðin, þar sem byggi 40% af þjóðinni, aflaði 60% af gjaldeyristekjum þjóð- arinnar og sagði að það væri lélegur bóndi sem slátraði bestu mjólkur- kúnni sinni. Stefán var spurður hvort þessi ágreiningur hans og forystu Fram- sóknarflokksins myndi hafa áhrif á störf hans með þingflokknunt og hvort hann myndi hugsanlega segja sig úr honum. „Ég vcit ekki hvort það breytir nokkrú frá því sem hefur vcrið. Vitaskuld hef ég setið á mér uppi í deild en ég hef látið þá hafa það niðri í þingflokknum. Égerfyrst og fremst framsóknarmaður þó ég telji að sumir af mínum félögum séu farnir að hallast svona sitt á hvað, miðað við þá stefnu sem við tilheyrð- um hér einu sinni og ekki nerna um áratugur síðan það fór að verða veruleg breyting þar á. Ég hef verið að reyna að halda þeim ögn á götúnni," sagði Stefán. „Það cr ckki mfn sök að málin eru komin svona, hún cr annarra," sagði Stefán að lokum. -BG Þórólfur Gíslason, Þórshöfn: „Mikil alda fyrir sérframboði“ Guðmundur Bjarnason alþingismaður í pontu á auka kjördæmisþinginu á Húsavík um helgina. Guðmundur Bjarnason alþingismaður: Mitt framboð ekki komið að sunnan Hvatningin kom frá stuðningsmönnum heima í kjördæmi. „Frá upphafi þessa máls hef ég hvatt til sátta, en hins vegar finnst mér nú eftir að við höfum reynt allar leiðir til þrautar fram að þessu, að frumkvæði til sátta verði að koma úr annarri átt,“ sagði ÞórólfurGíslason kaupfélagsstjóri á Þórshöfn í samtali við Tímann í gær. Þórólfur ásamt stuðningsmönnum gekk út af auka- kjördæmisþingi Framsóknarflokks- ins á sunnudag eftir að Ijóst var að hann myndi ekki hljöta kosningu í annað sæti listans. Áður hafði Stefán Valgeirsson gengið út eftir að hann náði ekki kosningu í fyrsta sæti listans. Þórólfur var spurður að því hvaða rök hefðu verið fyrir því að hann ásamt fleiri Norður-Þingeyingum hefðu ekki gengið út af kjördæmis- þinginu fyrr en úrslit voru ljós um kosningu í annað sætið í stað þess að ganga út strax með Stefáni og hvort það hefði getað orðið málamiðlun ef hann yrði kosinn í annað sætið. Þórólfur sagði að sumir af stuðnings- mönnum þeirra Stefáns hefðu talið að svo gæti orðið, en eins og atkvæð- in féllu á þinginu hefði Guðmundur fengið 55% atkvæðanna en Stefán 45%. Þessi sömu 55% hefðu síðan stutt Valgerði og þá hafi þeim endanlega verið ljóst að best væri að fara að tygja sig til heimferðar en þeir áttu langa ferð fyrir höndum. „Þar af leiðandi, sem er lykilatriði, töldu þeir sig alveg óbundna af þessu framboði," sagði Þórólfur. Að- spurður um það hvort ekki hafi komið til greina að ná fram sáttum með að Stefán færi í annað sætið sagði Þórólfur að nokkuð ljóst hafi verið að hann hefði aldrei náð kosn- ingu í það heldur eins og málin þróuðust. „Hér er mikil alda fyrir því að Stefán fari í sérframboð og menn muni þá fylkja sér um hann. Hins vegar hefur þeirri spurningu ekki enn verið svarað," sagði Þórólfur um hugsanlegt sérframboð fram- sóknarmanna í Norðurlandskjör- dæmi-eystra. -BG „Fullyrðingar um að mitt framboð, eða óskir um það að ég yröi kosinn í fyrsta sætið, sé komið að sunnan það skil ég ckki. Ég er auðvitað Húsvíkingur og sem ung- lingur vann ég í norður Þingeyjar- sýslu og tel mig eiga þar fullt af kunningjum og þekkja vel til. Ég fullyrði að ég hafi unniö fyrir allt kjördæmið þann tíma sem ég hef setið á þingi, og ekki síður fyrir Þórshöfn og nágrenni fremur en aðra hluta kjördæmisins. Nefni ég þar sérstaklega uppbyggingu skóla- mannvirkja og heilbrigðisstofnana. Engin sér sjónarmið hafa ráðið þar ríkjum,“ sagði Guðmundur Bjarna- son alþingismaður í samtali viðTím- ann í gær. Guðmundur benti á að liann væri hluti af þeirri flokksforystu sem mikið hefur borið á góma eftir sögulcgt kjördæmisþing á Húsavík um helgina.„Hvatningin að mínu framboði er fyrst og fremst komin frá mínum stuðningsmönnum heima í kjördæmi en ekki frá því sem einhvenir menn kalla „flokksfor- ystu“. Ég held að með þessari aðferð höfum við náð fram góðum fram- boðslista sem er sigurstranglegur. Hann er skipaður ungu og áhuga- sömu fólki á aldrinum 3o-35 ára sem hefur þrátt fyrir ungan aldur starfað mikið að félagsmálum, svo sem rnál- efnum samvinnuhreyfingarinnar, launþcgamálum og sveitarstjórnar- málum. Allt hefur þetta fólk tekið virkan þátt í starfi Framsóknar- llokksins," sagði Guðmundur. Hann var spurður hvað honum sýndist um framvindu mála að loknu kjördæmisþingi þegar Ijóst væri að Stefán Valgeirsson tæki ekki sæti á listanum. „Við Stefán höfum oftast átt gott samstarf svo sem segja má úm aðra þingmenn kjöfdæmisins. Prófkjörið og sá háttur sem þar var hafður á var fulkomlega lýðræðisleg- ur. Ég trúi því ekki að einhver af þeini fulltrúum Framsóknarflokks- ins sem sótti þingið hyggi á sérfrant- boð. Á kjördæmisþinginu var saman kominn kjarni þess fólks sem starfað hefur fyrir flokkinn,“ sagði Guð- mundur. Hann vildi að lokum nota tækifærið og þakka öllum þeim sem veittu honum stuðning og traust í þessum kosningum og því fólki sem valdist á listann. -ES Stefán Valgeirsson alþingismaður tilkynnir að aftakan hafi farið fram og að hann taki ekki sæti á þessum lista. .

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.