Tíminn - 04.11.1986, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 4. nóvember 1986 Tíminn 3
Almennur félagsfundur Dagsbrúnar:
Dagsbrún vill gera
bráðabirgðasamninga
- Fariö er fram á að nýtt skattakerfi veröi tekið upp
Á félagsfundi Dagsbrúnar sem
haldinn var á sunnudag var sam-
þykkt ályktun um kjaramál þar sem
segir að reynslan af kj arasamningun-
um í febrúar sé mjög góð, en þar
segir ennfremur: „Þrátt fyrir góðæri
hefur átt sér stað mikil mismunun í
kjörum fólks. Þessa mismunun verð-
ur að leiðrétta eins og kostur er og
bætaafkomuþeirra lægst launuðu."
Dagsbrún hefur sett fram þrjú
megin markmið við næstu samnings-
gerð. Þau eru að aukning heildar-
kaupmáttar verði staðreynd og þar
komi til nr.a. breytingar á bónus og
kaupauka og að þessir launaliöir
verði færðir frekar inn í tímakaupið.
í öðru lagi að tryggð verði áfram-
haldandi lækkun verðbólgu og stað-
festa í efnahags- og atvinnuþróun. í
þriðja lagi er farið fram á að nýtt
skattakerfi verði tekið upp, og verði
frádráttarliðum og skattþrepum
verði fækkað og markvissum aðgerð-
um til að draga úr skattsvikum verði
hrundið í framkvæmd. Fundurinn
samþykkti þrjár meginleiðir sem eru
færar til þess að ná þessu fram.
í fyrsta lagi að engir heildarsamn-
ingar verðir gerðir fyrr en ný ríkis-
stjórn hefur tekið til starfa.
Bráðabirgðasamningar verði
gerðir við VSI' og VMS, til að tryggja
að kaupmáttur aukist þennan tíma.
Samningarnir eiga að gilda til fyrsta
maí.
í þriðja lagi að samningsréttur
verði í höndum félaganna og þau
noti tímann fram til fyrsta maí til
þess að finna leiðir til þess að draga
úr innbyrðis launamisrétti' og leggja
drög að nýju launakerfi. -ES
Borgfirskar konur
funda um kjaramál:
Upp með
launin
Konur á Vesturlandi hyggja nú
á sérstaka baráttu fyrir bættum
kjörum sér til handa. Kjaramál
kvenna og barátta í komandi
kjarasamningum verður helsta
umræðuefnið á fundi sem Verka-
lýðsfclag Borgarness heldur ann-
að kvöld, miðvikud. 5. nóvemb-
er, í Snorrabúð í Borgarnesi.
Pótt verkalýðsfélagið boði til fund-
arins er hann opinn öllum sem
áhuga hafa á málefninu.
Meðal ræðumanna á fundinum
verða tvær baráttukonur að
sunnan; Þórunn Sveinbjörnsdótt-
ir, varaform. Starfsmannafélags-
ins Sóknar og Jónína Leósdóttir
blaðamaður og framkvæmda-
stjóri starfshóps um launamál
kvenna.
Leiklistar-
skóla
íslands
formlega
afhent
húsnæði
- bylting í
aðstööu skólans
Sverrir Hermannsson. mennta-
málaráðherra afhenti formlega í gær
Leiklistarskóla fslands, fyrrum
húsnæði Landssmiðjunnartil afnota.
Helga Hjörvar, skólastjóri sagði
ljóst, að ef Sverrir Hermannsson
hefði ekki brugðist svo skjótt og vel
við húsnæðisvanda skólans, væri
skólinn ekki starfandi nú. Hafi skól-
inn á þeirn 12 árum sem hann hcfur
starfað, sífellt verið í húsnæðishraki,
og hafi verið kennt á sjö mismunandi
stöðum í bænum þegar verst lét.
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra sagði að heppnissagan
hefði eiginlega byrjað þegar hann
var iðnaðarráðherra og seldi Lands-
smiðjuna. Sjálfum litist sérstórvel á
hið nýja húsnæði skólans, og færi í
því eftir áliti aðstandenda Leiklistar-
skólans sem væru mjög ánægðir með
nýja húsnæðið. Taldi ráðherrann að
láta muni nærri að kostnaður vegna
breytinga sem gera þurfi á húsnæð-
inu stappi nærri 9 milljónum kr.
þegar upp verði staðið. Reyndar er
tæpt ár liðið frá því skólanum var
úthlutað þessu húsnæði, og var byrj-
að að flytja starfsemina þangað
l.september sl.
Að sögn Helgu Hjörvar, scm
hefur verið skólastjóri undanfarin
fjögur ár, sóttu 83 nemendur um
skólavist á síðasta vori en aðeins
væri heimilt að taka inn 8 nemendur
í hvert sinn. Nú eru 26 nemar við
nám í skólanum, en nemar eru
teknir inn í skólann þriðja hvert ár.
Alls hefði skólinn útskrifað 76
leikara á starfsferli sínum og hefðu
fleiri þeirra en e.t.v. hefði mátt
búast við, fengið vinnu við leiklist.
Aðalnámsgrein skólans sagði
Helga vera leiktúlkun, en ennfremur
væri kennd íslenska, leiklistarsaga
og listasaga að ógleymdri líkams-
þjálfun, raddþjálfun og söngþjálfun.
Þá settu þriðja árs nemar upp barna-
eða unglingaleikrit og lokaársnemar
settu upp fjögur leikrit og væri
kappkostað að hafa a.m.k. eitt
þeirra eftir íslenskan höfund. Nú
starfa fimm fastráðnir kennarar við
skólann, auk jafnmargra stunda-
kennara. -phh
SkoraáStefán
í sérframboð
Fóstrur undirbúa
langa kjarabaráttu
Þátttaka í hópuppsögnum er um 80%
Fóstrur hjá ríki og Reykjavíkur-
borg hafa sagt upp störfum sínum
frá og með 1 .nóvember. Þær munu
því hætta störfum frá og með
l.febrúar 1987 hafi ekki tekist
samkomulag um hærri laun.
Það eru 260 fóstrur af 328 sem
hafa sagt störfum st'num lausum og
er þátttakan því um 80%. Ríki og
Reykjavíkurborg reka samtals 78
dagvistarheimili fyrir 4300 börn
þannig að uppsagnir fóstranna hafa
áhrif á dvöl 3900 barna. Þátttakan
hjá forstöðumönnum heimilanna
er að meðaltali sú sama og hjá
deildarfóstrum. Þess ber að geta
að ekki er heimilt að hafa dagvist-
arheimili opin ef sérmenntaður
forstöðumaður er ekki til staðar.
Á blaðamannafundi sem Kjara-
nefnd Fóstrufélags íslands hélt í
gær, kom fram að þær fóstrur sem
hafa nú sagt upp störfum eru því
viðbúnar að baráttan fyrir hærri
launum verði löng og á hverfafund-
um fóstra að undanförnu hafa
margar fóstrur sagst myndu fara í
íhlaupavinnu á meðan á kjarabar-
áttunni stæði.
Ef ekki nást umtalsverðar hækk-
anir, er óttast að mjög margar
fóstrur snúi ekki til starfa á ný
heldur haldi áfram þcim störfum
sem áttu að verða íhlaupastörf eða
leiti að öðru framtíðarstarfi. Kjara-
nefnd varaði því við því að við-
semjendur framlengdu uppsagnar-
frestinn um þrjá mánuði líkt og nú
hefur þegar gerst hjá sjúkraliðum,
nema þá til þess að í alvöru sé
áhugi fyrir því að nota þann tíma
til að umtalsverðar bætur á launa-
kjörum næðust fram.
Fóstrur hjá mörgunr sveitarfé-
lögum lrafa á síðastliðnum mánuð-
um náð leiðréttingum á launum
sínum gegnum starfsmat og sér-
kjarasamninga, en hjá Reykjavík-
urborg hefur ákvörðun um starfs-
mat kvenna ekki verið sinnt, þótt
niðurstöður þess ættu að liggja
fyrir um komandi áramót.
Sem dænii um byrjunarlaun
deildarfóstra í öðrum svcitarfélög-
um, má nefna að í Vestmannaeyj-
um eru þau 35 þúsund á móti
27.600 í Reykjavík. Á Höfn í
Hornafirði eru byrjunarlaunin
32.900 og á Akureyri 32.500.
Kjaranefndin sagði að kröfugerð
væri í undirbúningi og jafnframt
launakröfunum vilja fóstrur ræða
samningsrétt og verkfallsrétt en
samkvæmt núverandi ástandi hafa
fóstur einungis samnings- og verk-
fallsrétt í gcgnum sín stéttarfélög,
þ.e. cru starfsmenn sveitarfélaga
og ríkisins.
ABS
f gærkvöld hófst söfnun undir-
skrifta á Þórshöfn og víðar í Norður-
landskjördæmi-eystra til þess að
skora á Stefán Valgcirsson alþing-
ismann að gcfa kost á sér til frám-
boðs í næstu kosningum. Að sögn
Jóhanns Jónssonar framkv.stj.
Hraðfrystihússins á Þórshöfn var
fyrirhugað að byrjað yrði að safna
undirskriftum í gærkvöld en þeir
sem að undirskriftunum standa eru
stuðningsmenn Stcfáns í kjördæm-
inu.
Stefán náði ekki kjöri í fyrsta sæti
framboðslista framsóknarmanna í
kjördæminu, í prófkjöri sem fram
fór á auka kjördæmisþingi á Húsavík
á sunnudag, en Guðmundur Bjarna-
son hlaut hins vegar kosningu í það
sæti með 161 atkvæði gegn 131
atkvæði Stefáns.
Þórólfur Gíslason frá Þórshöfn,
sem er stuðningsmaður Stefáns gaf
kost á sér í annað sæti listans og
hlaut hann heldur ekki kosningu. Þá
gengu stuðningsmenn hans af fundi.
Framboðslistann í kjördæminu
skipa:
1. Guðmundur Bjarnason (161
atkv), 2. Valgerður Sverrisdóttir
(165 atkv), Jóhannes Geir Sigur-
geirsson (127 atkv), 4. Þóra Hjalta-
dóttir (116 atkv), 5. Valdimar Braga-
son (144).
Sjá nánar um viðbrögð við úrslitum
á bls. 5. -BG
Fóstrur standa hér þétt saman og ætla ekki að láta deigan síga.
Margrét Pála Ólafsdóttir, Fjóla Björgvinsdóttir, Elísabet Auðunsdóttir, Arna Jónsdóttir og Ásdís Ólafsdóttir
Norðurland-eystra: