Tíminn - 27.11.1986, Side 1
0 STOFNAÐUR1917
11 ni 111 n
SPJALDHAGI
allar upplýsingar
á einum staö
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
ISÍUTTU MALI...
| SJÁVARÚTVEGS-
RÁÐUNEYTIÐ hefur gefið út
reglugerð um bann við togveiðum
suður af FSeykjanesskaga. Samkvæmt |
reglugerð þessari eru togveiðar bann-
aðar á tímabilinu 22. nóvember til 31.
desember 1986 að báðum dögum
meðtöldum á svæði sem að austan
markast af línu, sem dregin er frá
Selvogsvita í punkt 63° 30’0 N 21° 39’0
V. Að sunnan markast svæðið af línu,
sem dregin er frá punkti 63° 30’0 N 21°
39’0 V í punkt 63° 40’0 N 22° 32’0 V.
Að vestan markast svæðið af línu,
sem dregin er frá punkti 63°40’0 N
22°32’0 V réttvísandi norður að Stað-
; arbergi.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt
beiðni Útvegsmannafélags Suður-
nesja og að fenginni umsögn Fiskifé-
lags íslands.
Á undanförnum árum hefur sókn
togbáta stóraukist á þessu svæði og
geta þeir nú togað á harðari botni en
áður tíðkaðist.
Á sama tíma hefur línuútgerð aukist
verulega. Af þessum sökum hefur
komið til árekstra milli báta sem stunda
togveiðar og línuveiðar á svæðinu á
undanförnum árum og er þessi reglu-
gerð sett í því skyni að koma í veg fyrir
það.
OPNUNARTIMI verslana
breytist þannia i desember að heimilt
er að hafa opið til kl. 18.00 laugardag-
inn 13. desember, til kl. 22.00 laugar-
daginn 20. desember, til kl. 23.00 á
Þorláksmessu og til kl. 12.00 á
aðfangadag og gamlársdag. Heimilað-
ur opnunartími aðra daga, samkvæmt
kjarasamningi V.R. og Kaupmanna-
samtakanna er eftirfarandi: Frá mánu-
dögum til fimmtudags til kl. 18.30, á
föstudögum til kl. 21.00 og á laugar-
dögum til kl. 16.00. Fyrsta vinnudag
eftir jól skulu verslanir ekki opna fyrr
en kl. 10.00. Söluturna er heimilt að
hafa opna til kl. 13.00 á aðfangadag
oa gamlársdag, en á jóladag eiga þeir
að vera lokaðir.
1.DESEMBER hátíðahöld
stúdenta við Háskóla íslands verða nú
með talsvert breyttu sniði frá þvi sem
verið hefur undanfarin ár. Listakosn-
ingar til hátiðahaldanna hafa nú verið
aflagðar og í staðinn annast deildarfé-
lög innan skólans skipulagninguna. Á
þriggja ára fresti er dregið um það
hvaða þrjú deildarfélög sjái um hátiða-
höldin og í ár eru það heimspeki- laga-
og viðskiptadeildir sem skipuleggja
hátíðahöldin. Umræða dagsins mun
mun að þessu sinni snúast um innra
starf háskólans.
FORELDRAFÉLAG dag
heimilisins Sunnuborgar í Reykjavík
samþykkti á almennum félagsfundi
fyrir skömmu áskorun til borgarstjórnar
um að gera nú þegar ráðstafanir til að
bæta kjör fóstra og starfsmanna á
dagheimilum og leikskólum og tryggja
þeim mannsæmandi iaun. Jafnframt
er lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu
þessara stétta og bent á að uppsagnir
þeirra séu afleiðing afleitra kjara.
SÖLUFYRIRTÆKI sam
bandsins og Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hækkuðu í gær verð á
freðfiski á Bretlandsmarkaði í annað
sinn á þessu hausti. Fryst þorskflök
hafa þá hækkað um ein 30% á þessu
ári og er verðið nú komið í 117 kr. kg.
Eftirspurnin eftir freðfiski í Bretlandi
hafa verið að aukast og hefa verið flutt
út um 22 þúsund tonn fyrstu 10
mánuði ársins.
KRUMMI
„Það var einhver <
tala um að fresta
samningum fram yfir
forval. “
Stjórnarsamþykkt Dagsbrúnar:
0113 taugatitringi
meðal samningamanna
Mismunandi áherslur, segir Guömundur J. Guðmundsson
Litlu virtist mega muna í gær að
slitnaði upp úr samningaviðræðum
aðila vinnumarkaðarins, eftir að
stjórnarsamþykkt Verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar barst fund-
armönnum í hendur. Þar ítrekaði
stjórn félagsins fyrri samþykktir
sínar og tók fram að hvorki VMSÍ
né ASI hafi umboð til að gera
samninga fyrir hönd Dagsbrúnar.
í samþykktinni segir síðan:"
Stjórn félagsins mun leiða samn-
ingaviðræður fyrir hönd félagsins í
samráði við hina ýmsu starfshópa
þess. Stjórnin telur nauðsynlegt að
algjör uppstokkun á taxtakerfinu
sé forsenda þess að hægt sé að
hækka lægstu taxta verulega, svo
„Þessi samþykkt þýðir að það
þarf að semja um uppstokkun á
launakerfinu núna, hækka lægstu
launin en heildarsamningar bíði
fram yfir nýja ríkisstjórn, sagði
Þröstur Ólafsson, frkvst. Dags-
brúnar þegar hann kynnti stjórnar-
samþykkt félagsins fyrir blaða-
mönnum um kl. 18 í gær.
„Ég á von á því að Guðmundur
J. Guðmundssson muni sem for-
maður Dagsbrúnar ekki taka þátt í
þessu, en hvort hann verður áfram
á fundi sem fulltrúi Verkamanna-
sambandsins skal ég ekki segja, en
hann verður ekki sem fulltrúi
Dagsbrúnar. Ég á von á því að
strax í næstu viku, þegar hugsan-
lega liggur fyrir niðurstaða af þess-
um samningaviðræöum, munum
við fara fram á sérviðræður," sagði
Þröstur.
Þessi ummæli vekja nokkra at-
full eining skapist um niðurstöður
og heitir á alla félagsmenn að
fylkja sér fast urn félagið.“ Við
þessa óvissu bættust ummæli Þrast-
ar Ólafssonar, frkvstj. Dagsbrún-
ar, sem birtast hér á síðunni og
virtust taka af allan vafa að Dags-
brún ætlaði að hætta samningavið-
ræðum undir forystu ASÍ.
Eftir að fundur hafði síðan stað-
ið í nokkra tíma komu þeir Ás-
mundur Stefánsson og Guðmund-
ur J. Guðmundsson fram og boð-
uðu til skyndiblaðamannafundar.
Ásmundur las fyrst úr samþykkt
formannafundar ASí og sagði síð-
an að samþykkt Dagsbrúnar árétt-
aði markmið sem væru í góðu
hygli þar sem þau virðast ekki í
samræmi við þá stefnu sem Guð-
mundur J. Guðmundsson lýsti yfir
við blaðamenn í gær og birtast hér
í frétt á síðunni. Ekki gekk Guð-
mundur af fundi, og hann Iýsti því
yfir í gær, að hann sæti samninga-
fundi sem fulltrúi Dagsbrúnar.
Auk þess segir hann að ekki verði
sprenging þó ekki verði samið til
skamms tíma. Virðist því vera
þarna á ferð nokkur skoðanamun-
ur hjá þessum forystumönnum
Dagsbrúnar.
Þröstur neitaði að þessi afstaða
Dagsbrúnar mótaðist af próf-
kjörsslag milli hans og Ásmundar
Stefánssonar, forseta ASÍ, heldur
væri verið að fylgja samþykktum
félagsins frá í haust. Þærsamþykkt-
ir hafi ekki verið á neinn hátt
teknar til greina í afgreiðslum
samræmi við santþykktir ASÍ. Einn
og sami tónn væri í efnisáherslu.
Það væri niðurstaða Dagbrúnar að
láta frekar á það reyna hvort hægt
væri að komast áfram í þessum
samningaviðræðum. Ásmundur
vék sér undan að túlka ummæli
Þrastar Ólafssonar þar sem hann
hefði ekki heyrt þau.
„Það er ekki skollin á nein
styrjöld milli Dagsbrúnar og Al-
þýðusambandsins, hcldur eru
áherslur aðeins mismunandi,"
sagði Guðmundur. „Við erum
sammála um að lægri launin hafi
forgang, en við viljum fara í gegn-
um taxtakerfið og leggja þyngri
áherslu á það. Það er mikið sein-
formannafunda VMSÍ og VSf „og
ef við ætlum að halda áfram á þeim
nótum sem að ASf lagði upp, þá
þyrftum við að fá breytt félagsfund-
arsamþykktinni. Þannig að við
erum aðeins að ítrekum hana,“
sagði Þröstur. „Þó að lægstu
laununum verði lyft eitthvað upp
fyrir tuttugu þúsundin þá er það
ekki fullnægjandi lausn fyrir
okkur. Við getum alveg hugsað
okkur að hækka lægstu launin og
það væri byrjun á aðgerð sem gildi
til vors, og við notuðum tímann til
að stokka launaflokkakerfið upp,
en að bíða með þetta allt út heilt
, árið, við getum ekki eins og mál
standa núna sætt okkur við það“.
Þröstur minnti á að Dagsbrún stæði
ekki eitt, heldur hefði Trésmiðafé-
lag Reykjavíkur tekið sömu stefnu.
-phh
virkari leið. Við hömrum ekki hér
á þeirri leið okkar að gera skamm-
tímasammning, við erum ekki að
kýla á það. Heldur að töxtum verði
fækkað og að santkomulag um
niðurstöður náist og hafa Alþýðu-
sambandið og þessi samninganefnd
ekkert aftekið það,“ sagði Guð-
mundur.
Ásmundur sagði að ef ekki næð-
ust samningar fljótlcga, þá væri
Ijóst að mál frestuðust fram yfir
áramót og þá væri líklegt að þyrfti
að fylgja málunum eftir með meiri
þunga. Ekki vildi Ásmundur meina
að þó uppstokkun taxtakerfisins
yrði á dagskrá núna, sem tæki þá
lengri tíma, að það þýddi lok
samningaviðræðna. Það væri hægt
að finna málum ýmsa farvegi, t.d.
væri hægt að semja um
bráðabirgðahækkun lægstu launa
meðan unnið væri að öðrum mál-
um frekar, og lengd samninga færi
aðeins eftir því sem næðist fram.
Guðntundur sagði að Dagsbrún
teldi skammtímasamning eðlilegri,
en þeir ntuni ekki gera sprengingu
út af því. Það væri fleira scm
sameinaði en sundraði Dagsbrún
og ASl í þessu ntáli.
Þórarinn V. Þórarinsson frkvstj.
VSÍ sagði að sér sýndist að stjórn-
arsamþykkt Dagsbrúnar ásamt af-
stöðu byggingariðnaðarmanna væru
vísbending urn að innan ASÍ væri
ekki full samstaða um stefnumörk-
un formannaráðstefnu ASÍ. „Ég
lít á það sem vandamál vcrkalýðs-
hreyfingarinnar ef þar er þverbresti
að finna, varðandi kröfugcrðina.
En ég ætla verkalýðshreyfingunni
þann kraft að hún nái santan um
eigin markmið, og geng út frá því
að við getum haldið áfram hér
samningaviðræðum á morgun,"
sagði Þórarinn V. Þórarinsson.
- phh
Banaslys
við
Hrífunes
Fullorðinn niaður lést og
fullorðin kona er í mikilli lífs-
hættu, eftir harðan árekstur
sem varð í grennd viö bæinn
Hrífunes við Hrífncsheiöi í
V-Skaftafcllssýslu unt miðjan
dag í gær.
Harður árekstur varð í
beygju rétt austan við bæinn.
Fulloröin hjón voru í öðrum
bílnum en aðeins ökumaður í
hinum. Hann slapp lítt meidd-
ur frá slysinu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluö út í sjúkraflug
skömmu eftir hádegi í gær.
Ekki var taliö óhætt að færa
hiríli slösuðu til og var því
óskað eftir. þyrlunni. Hún flutti
hina slösuðu á Borgarspítalann
en þá var maðurinn þegar
látinn. - ES
Þeir voru brosmiidir samningamennirnir í Garðastrætinu í gær, þó bak við brosið hafi um tíma búið sú
áleitna spurning hvort allt væri að fara út um þúf'ur. F.v. Gunnar Friðriksson, Ásmundur Stefánsson.
Þórarinn V. Þórarinsson, Ólafur B. Ólafsson og Árni Benediktsson. (Iímamynd Sverrir)
Verkamannafélagiö Dagsbrún:
Forystan ósamstíga
- Þröstur Ólafsson og Guömundur J. gefa ósamhljóða yfirlýsingar