Tíminn - 27.11.1986, Blaðsíða 4
4. Tíminn
Fimmtudagur 27. nóvember 1986
I Iiii hljí'lin .i SK’Uiiiíu. 11nn K'knr slarl
--i11 .tI\ iirlctu Dg hcr cr hiítv ;t<'» Iíviii
iil.niaO lc\tann sinn ;iOiir cn luin kcm-
iii l'rant l’\ i ir ;ihc\ rciKlur.
m
™ ím. -et. prrnsessa, ,n e*n,i, «n, Hk. 0««*- StT.ni.
Mónakóprinsessa hefur kynnst hvoru tveggja
Prinsessan
með mörgu hliðarnar
Stefanía Mónakóprinsessa hefur
á sinni stuttu æfi upplifað meira en
mörgum tekst á margfalt lengri
tíma. Hún er aðeins 21 árs gömul,
en trúlega finnst mörgum blaðales-
andanum að hann hafi aldrei flett
blaði án þess að þar sé sagt frá
þessari glæsilegu og fjölhæfu prins-
essu. { öllum þessum fréttaaustri
kennir auðvitað margra grasa. Þar
er að finna bæði góðar fréttir og
vondar af prinsessunni og bæði
sannar fréttir og ósannar. En alltaf
er Stefanía fréttaefni.
Nýlega kom Stefanía fram í
þýska sjónvarpinu og var þá að
kynna nýjustu hljómplötuna sína,
„One Love To Give“. Rétt áður en
hún gekk þar inn á svið átti blaða-
maður viðtal við hana og gerði sér
greinilega góðar vonir um að fá þar
krassandi mynd af léttúðugri prins-
essu sem aldrei hafði difið hendi í
kalt vatn og hefði bara verið að
leika sér alla sína ævi. En þegar
upp var staðið hafði blaðamaður
fengið þó nokkuð aðra mynd af
prinsessunni.
Fyrsta spurningin var hefðbund-
in. Hvernig er draumaprinsinn!
Stefanía hefur þó nokkra reynslu
af karlmönnum nú þegar og þykist
hafa komist að niðurstöðu um
hvaða kostur sé mikilvægastur við
þann rnann sem hún kann að kjósa
að deila ævinni með. „Hann verður
að vera lífsglaður og hafa skop-
skynið í lagi. Mér finnst sjálfri
ákaflega gaman að skemmta mér
og ég vil ekki vera innan um
leiðinlegt fólk. Útlitið er ekki eins
mikilvægt og gott og skemmtilegt
skap.“
Reyndar bætti prinsessan því við
að hún væri alltof ung til að gerast
húsmóðir. En að öðru leyti væri
hún vel undir það búin. Hún sagð-
ist vera alvön að elda mat, móðir
hennar hefði séð ium að hún lærði
það og hefðu þær Karólína systir
hennar verið aldar upp við að
aðstoða í eldhúsinu í höllinni. Og
kökubakstur og sultu- og saftgerð
var stunduð í eldhúsinu í sumar-
húsinu. Hún segist oft hafa séð
hversu hjálparvana stúlkur frá rík-
um heimilum eru þegar þær þurfa
að sjá um sig sjálfar. Þannig sé hún
ekki sjálf og þakkar hún það upp-
eldisáhrifum móður sinnar.
En Stefanía meistarakokkur á
það sameiginlegt með mörgum
öðrum snillingum í matargerð að
hafa minna gaman af að ganga frá
í eldhúsinu eftir vel heppnaða
matseld og það heimilistæki sem
hún kann best að meta er upp-
þvottavélin.
Hvað um kvikmyndaleik? Stef-
anía segist oft fá send kvikmynda-
„Það tekst engum karlmanni lengur að blekkja
mig,“ segir 21 árs gömul lífsreynd prinsessa.
handrit en enn sem komið er hafi
ekkert þeirra freistað sín. Enda sé
hún þessa dagana önnum kafin við
lagasmíð og hljómplötugerð og
það sé meira en nóg verkefni í bili.
Sem sagt, eiginmaður og heimili
verður að bíða enn um sinn á
meðan Stefanía spreytir sig á hin-
um og þessum sviðum öðrum. Hún
hefur nú þegar slegið í gegn sem
tískuhönnuður og popp-listamaður
og fleiri listasvið finnst henni lokk-
andi. En ef manninn með rétta
viðhorfið ræki á fjörur hennar, er
ekki að vita hvaða stefnu líf hennar
tæki. Hún er enn svo ung að henni
liggur ekkert á að setjast einhvers
staðar að til frambúðar.
Sfefania
°» Vnt
orðstír,
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Málefni aldraðra
í Borgarnesi
Málefni aldraðra hafa verið mjög
áberandi í hreppsnefnd Borgarnes-
hrepps í haust, enda um mjög
mikilvægan málaflokk að ræða.
Hreppsnefndarmenn virðast allir
sammála um það réttlætismál að
gera hinum eldri borgurum, sem
byggt hafa upp það velferðarþjóðfé-
lag sem við búum við í dag, ævi-
kvöldið sem best. Við skulum líta á
þau málefni aldraðra sem snúa að
hreppsnefnd Borgarneshrepps.
Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnesi er starfrækt Dvalar-
heimili aldraðra og eru vistmenn þar
víða að komnir af Vesturlandi. Þvi
hlýtur öll umræða um öldrunarmál í
Borgarnesi að taka nokkuð miö af
því.
Félagsstarf aldraðra
Á fundi hreppsnefndar síðari hluta
september báru fulltrúar minnihlut-
ans upp tvær tillögur er snerta
málefni aldraðra. Sú fyrri hljóðaði
svo:
„Hreppsnefnd Borgarneshrepps
samþykkir, að vinna að því að
væntanlegt Félag eldri bæjarbúa fái
miðhæð Svarfhóls til umráða, og
skal stefnt að því að allt félagsstarf
aldraðra fari þar fram“
Nokkrar umræður urðu um tillög-
una og sýndist sumum að eðlilegra
væri að hafa starfsemi sem þessa
innan Dvalarheimilisins. Tillögunni
var síðan vísað til hreppsráðs fél-
agsmálanefndar.
Félag eldri bæjarbúa
Seinni tillagan gerði ráð fyrir að
skipaður yrði sérstakur starfshópur
til að vinna að stofnun Félags eldri
bæjarbúa í Borgarnesi og stefnt að
því að stofndagur þess yrði 10.
október 1986.
Með tillögunni fylgdi greinargerð,
þar sem þent er á góða reynslu
þeirra félaga eldra fólks, sem stofn-
uð hafa verið á nokkrum stöðum á
landinu. Sérstaklega er vakin athygli
ályktun ASÍ þar sem segir að stofn-
un samtaka eftirlaunafólks sé eitt af
forgangsverkefnum verkalýðshreyf-
ingarinnar á næstunni.
í greinargerðinni er bent á að nú
skorti verulega á að eldra fólk þekki
rétt sinn, en gert er ráð fyrir að
uplýsinga- og fræðslustarf verði stór
þáttur í starfi Félags eldri bæjarbúa.
Auk þess tæki félagið þátt í að
skipuleggja tómstundastarf aldr-
aðra.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Væntanleg stofnun félags aldr-
aðra hefur verið kynnt meðal eldri
bæjarbúa í Borgarnesi. Gert er ráð
fyrir að þeirri kynningu verði haldið
áfram, en stofnun félagsins hefur
verið frestað fram yfir áramót.
íbúöir aldraðra
I Borgarnesi er nú í gangi á
vegum hreppsins, bygging 1 .áfanga
ibúða fyrir aldraða við Ánahlíð.
Gert er ráð fyrir að jarðvegsvinna og
gerð sökkla Ijúki fyrir næstu áramót
og verkinu verði lokið 1. september
1987.
Þjónusta við aldraða
. Lögð hafa verið fram drög að
‘samningi við Dvalarheimili aldraðra’
( Borgarnesi um framkvæmd vissra
þátta öldrunarþjónustu í Borgarnesi,
s.s. að neyðarvakt fyrir íbúa við
Ánahlíð verði í Dvalarheimilinu og
að íbúarnir hafi aðgang að matstofu,
þvottum og hárgreiðslustofu Dvalar-
heimilisins.
Önnur málefni
Öðrum málefnum sem ofarlega
eru á baugi í hreppsnefnd Borgar-
neshrepps mun verða gerð skil í
dálki þessum á næstunni.
- HM
Dálkur um sveitarstjórnarmál
mun birtast hér á síðunni af og til í
vetur. Efni frá sveitarfélögunum er
vel þegið. Sendist til ritstjórnar
Tímans, Síðumúla 15, 108 Reykja-
vík.