Tíminn - 27.11.1986, Qupperneq 3
Firrímtuöagur 27. nóvember1986
Tíminn 3
T »
Ibúðaverð á Suðumesjum
hækkar meira en í Reykjavík
Síldarvertíðin:
Sumar stöðvar eru
búnar með kvótann
- búið að salta í tæplega 224 þúsund tunnur
verðmunurinn minnkað úr 28% í 18% á tveim árum
Söluverð á fermetra íbúðarhús-
næðis hefur annað árið í röð hækkað
hlutfallslega mun meira en verð í
Reykjavík og á Akureyri. Fyrri
hluta ársins 1984 var íbúðaverð í
Reykjavík 28% hærra en á Suður-
nesjum, fyrri hluta árs 1985 var
munurinn um 25% og fyrri hluta
þessa árs var hann kominn niður í
18%, samkvæmt Markaðsfréttum
Fasteignamatsins.
Á engum þessara staða hefur
þó verið haldið í við hækkun bygg-
ingarvísitölu. Vantar þar rúm 7%
upp á á Suðurnesjum, tæp 16% á
Akureyri og rúmlega 18% í Reykja-
vík.
Um töluverða verðlækkun hefur
því verið að ræða á íbúðarhúsnæði á
þessum þrem landssvæðum nú ann-
að árið í röð - meira þó milli áranna
1985 og 1986. Framreiknað eftir
byggingarvísitölu frá 1984 hefði
fermetraverð í Reykjavík fyrri helm-
ing þessa árs átt að verða um 31.640
krónur. í raun var það um 25.860
krónur, eða rúmlega 18% lægra sent
fyrr segir. Það samsvarar um hálfrar
milljóna króna verðlækkun á meðal-
íbúð.
Fyrri hluta árs 1984 var meðalverð
á fermetra íbúðarhúsnæðis aðeins
um 700 kr. hærra á Suðurnesjum en
á Akureyri, sá munur var kominn í
um 1.350 kr. ári síðar og í rúmlega
2.930 krónur að meðaltali fyrri helm-
ing þessa árs. Meðalsöluverð íbúða
á Akureyri (106,6 ferm.) var um 1,9
millj. króna á fyrri helmingi þessa
árs og þar af var útborgun um 67%
eða 1.270 þús. krónur. Söluverð á
fermetra var um 18.100-18.700 á 4ra
herbergja íbúðum og minni, en tæp-
lega 17 þús. að meðaltali á stærri
íbúðum, hverra meðalstærð var um
172 fermetrar. Söluverð á fermetra
hafði hækkað um tæp 19% frá því
árinu áður á sama tíma og 31,6%
hækkun varð á byggingarvísitölunni.
Meðalverðið var tæplega 30% lægra
en í Reykjavík.
Meðalíbúðarverð á Suðurnesjum
reyndist á sama tíma 2.140 þús. (103
ferm.), þar af um 66% útborgun.
Söluverð á fermetra var að meðaltali
um 21.130 kr., en mjög mismunandi
eftir stærð íbúða. Þannig var það
rúmlega 24 þús. kr. á minnstu íbúð-
unum, en um 19.500-19.700 á 4ra
herbergja íbúðum og stærri. Hækk-
un á fermetra milli ára reyndist
tæplega 27% á Suðurnesjum.
Meðalverð á fermetra fyrri helm-
ing ársins var 25.860 kr. í Reykja-
vík, þar af rúmlega 71% útborgun.
Hækkun á fermetra milli ára var að
meðaltali aðeins um 15,6%, eða
mun minni en á báðum hinum
stöðunum. - HEI
Söltun er nú lokið á nokkrum
söltunarstöðvum og aðrar eru í
þann veginn að klára söltunarkvóta
sinn. í fyrrakvöld var búið að salta
í 223.934 tunnur af um 260.000
sem búið er að semja um fyrirfram-
sölu á. Síldarsaltendafélögin
sömdu í haust um að söltuninni
upp í síðustu 25% af sölusamning-
unum við Sovétmenn yrði skipt
milli söltunarstöðvanna í hlutfalli
við hversu mikið þær hafa saltað
síðustu átta árin. Það verða þvf
50.000 tunnur sem skipt verður
samkvæmt þessum kvóta milli 42
aðila sem eru að salta síld.
Eins og fram hefur komið hefur
tunnuskortur nokkuð tafið fyrir
söltun en f gær voru tvö skip að
losa tunnur á Austfjörðum og það
þriðja var væntanlegt á Hornafjörð
í dag, en tunnulaust er orðið á
Höfn. Fjórða skipið er nú að lesta
tunnur í Noregi og kemur það með
síðasta skammtinn af tunnum á
þessari vertíð á næstunni.
Að sögn Kristjáns Jóhannesson-
ar hjá Síldarútvegsnefnd eiga sum-
ar stöðvarnar eftir mestan hluta
síns kvóta og ekki við því að búast
að söltun verði lokið fyrr en í næstu
viku. Mest hefur verið saltað á
Eskifirði það sem af er vcrtíðinni
eða 38.603 tunnur, en þar á enn
eftir að salta eitthvað.
Veiðin á þessari vertíð er orðin
um 44.000 tonn og mikil veiði var
í fyrrakvöld og í fyrri nótt. Síidin
veiðist fyrst og fremst á Seyðisfirði,
Mjóafirði og Reyðarfirði og er
síldin átulaus og talsvert af stórsíld
með. Að sögn ArnarTraustasonar
veiðieftirlitsmanns hjá sjávarút-
vegsráðuneytinu höfðu í fyrradag
farið 38.200 tonn af síld í vinnslu,
þ.c. annað en bræðslu, en unt
4.200 tonn farið í bræðslu. Sagði
hann að nú þegar kvóti væri kom-
inn á söltunarstöðvarnar mætti
reikna mcð að hlutfall þess magns
sem færi í bræðslu hækkaði.
- BG
BUNADARDEILD
SAMBANDSINS
ÁRMULA3 REYKJAVlK SlMI 38900
$ SA.MBA.NDIÐ Á SÝNINGU
í nýja Bílaborgarhúsinu við Fossháls
dagana 27.-30. nóvember
SÝNUM:
YÉLSLEÐA-FJÓRHJÓL-SNJÓBLÁSARA -RAFSTÖÐYAR
Verðum með þessar
''orur á kynningarverði
meðan á sýningu stendur
asamt ymsum varahlutum