Tíminn - 27.11.1986, Síða 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 27. nóvember 1986
Fimmtudagur 27. nóvember 1986
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
Hlllilll!
ÍÞRÓTTIR
Gerir Maradona
Napoli að meisturum?
Eftir stórsigur Napoli á Empoli í ítölsku 1.
deildinni um sfðustu helgi lét fyrirliði þeirra,
Diego Maradona, hafa eftir sér að þetta væri
Napoliliðið sem hann hefði alltaf látið sig
dreyma um, lið sem hefði gaman af því að lcika
knattspyrnu og lið sent honum líkaði við.
Maradona hefur ástæðu til að gleðjast,
Napoli hefur undanfarnar vikur verið í efsta
sæti deildarinnar í fyrsta skipti í 11 ár. Þeir
sigruðu Juventus á heimavelli fyrir skömmu og
ekkert bendir til að þeir láti forystuna af hendi
um þessa helgi, að minnsta kosti. Mótherjar
Napoli um þessa helgi verða Verona, á heima-
velli Napoli en Juventus á erfiðan útileik gegn
Ronta sem varð í öðru sæti í fyrra.
Napoli hefur tekið þátt í deildakeppninni í
60 ár en aldrei tekist að bera sigur úr býtum.
Þeim hefur gengið illa í Evrópukeppnum en
orðið tvisvar ítalskir bikarmeistarar, í fyrra
skiptið þegar þeir léku í 2. deild árið 1962.
Seinni bikarinn fengu þeir árið 1976 svo 10 ár
eru liðin síðan liðið fékk verðlaun. Það er ekki
skrítið þó áhangendur liðsins haldi í sér
andanum allir sem einn þessa dagana í von um
að lukkan verði liðinu hliðholl fram í maí en
þá lýkur deildakeppninni.
Þeir sem best þekkja til segja liðið ekki vant
því stressi sem fylgir efsta sætinu og þá hefur
liðið oft dalað þegar líður á vorið eða eins og
einn forráðamanna Napoli orðaði það svo
skemmtilega „bráðnað eins og snjórinn þegar
sól hækkar á lofti.“
Bianchi þjálfari segir góðan árangur liðsins
núna vera árangur stöðugrar uppbyggingar frá
því hann tók við í fyrra, byggt sé á sömu
grundvallarhugmyndum og þá en auk þess hafi
bæst við þrír góðir leikmenn, Femando De
Napoli á miðjunni og þeir Andrea Carnevale
og Francesco Romano sem kom frá annarrar-
deildarliðinu Triestina styðja Maradona í
sókninni. Þessir þrír hafa unnið mjög vel
saman og reynst andstæðingunum skeinuhætt-
ir.
Mótherjar Napoli sem hingað til hafa fyrst
og fremst litið á Maradona sem aðal hættuna í
liðinu viðurkenna nú að Iiðið sé orðið hættuleg-
ur mótherji sem heild. Þjálfari Roma segir:
„Napoli hefur um helmings líkur á að standa
uppi sem sigurvegarar. Það eru engir veikir
punktar í liðinu og þeim gengur vel á útivelli.
Nú og svo hafa þeir líka Maradona..."
Maradona lét sig dreyma um heimsmeistaratit-
il og hér er hann á fullri ferð í átt að honum.
Nú er hann í höfn og næsti draumur er að verða
ítalskur mcistari.
Hafið samband í
sima 24790 eða 24966
Stuðningsmenn
Kristín, Finnur, Fanný og Ingl Þór.
ábyráö
reynsla
Finnur ingólfsson hefur meö störfum sínum
áunniö sér mikiö traust. Því hafa honum verið
falin mörg trúnaðarstörf:
• Formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands.
1 Stjórnarformaður Félagsstofnunar stúdenta.
• Formaður Samb. ungra framsóknarmanna.
• í stjórn Framsóknarflokksins.
• Aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar.
Styðjum ungan mann með dýrmæta reynslu í
fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarmanna í
Reykjavík 29. og 30. nóv. n.k.
atorka
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
Uerdingen tapaði
fyrir Barcelona
Þriðja umferð í Evrópukeppni féiagsliða (UEFA) í knattspyrnu var
leikin í gærkvöld og voru það fyrri leikir liðanna scm voru á dagskrá.
Baycr Uerdingen tapaði á heimavelli fyrir Barcelona og skoruðu þcir
spænsku mörk sín tvö scint í ieiknum, á76. og79. mín. Þar voru á ferðinni
Roberto Fernandez í fyrra skiptið og Mark Hughcs í það síðara.
Þrátt fyrir að lcikmcnn Uerdingen hafi vcrið mcira með knöttinn í
lciknum áttu þeir fá færi, raunar ekki eitt einasta í fyrri hálfleik og var
sigur Spánverjanna fyllilega verðskuldaður.
Sókn Uerdingen þyngdist verulega er leiö á leikinn en síðustu 15
mínúturnar ætluðu þeir sér um of og Spánverjar náðu að skora.
Ekki var jetið um frammistöðu Atla Eðvaldssonar í fréttaskeyti
Reuters en hann lék allan leikinn.
Internazionale frá Ítalíu vann nauman sigur á Tékkunum í Dukla Prag,
Alessandro Altobelli skoraði sigurmark þeirra snemma í fyrri hálfleik en
síðan bökkuðu ítalirnir í vörn og héldu fengnum hlut. Teljast verðu líkiegt
að þeim takist að komast áfram í 4. umfcrð því síðari lcikurinn verður á
Ítalíu.
Úrslit í Evrópuleikjunum x' gærkvöld urðu þessi:
Uerdingen(V-Þ) - Barcelona(Spáni) ....
Dundee Utd.(Sk.) - Hxxdjuk Split(Jug.) . .
Ghcnt(Belgíu) - Gautaborg(Svíþj.).
Groningen(Holl.) - Guimares(Port.) ....
Dukla Prag(Tékk.) - Intcrnazionale(ít) . .
Spartak Moskva(Sovét) - Tyrol(Austurr) .
Torino(ítalíu) - Beveren(Belgíu) .
Rangers(SkotL) - Gladbach(V-Þ)....
íslandsmótiö í handknattleik - 1. deild:
KR'ingar lögðu
slaka Ármenninga
Lokatölur 22-19 í döprum handknattleiksleik
Ekki tókst Ármenningum að
vinna sér inn sín fyrstu stig í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik í gær-
kvöldi þrátt fyrir ágæta tilraun. Þeir
urðu fórnarlömb KR-inga sem unnu
þá 22-19 í slökum leik. Þegar aðeins
um ein mínúta var eftir af leiknum í
gærkvöldi í Höllinni varstaðan 20-19
fyrir KR og Ármenningar með
boltann. Þeir fengu dauðafæri á
línunni en Gtsli Felix varði af stakri
snilld eins og hann gerði svo oft í
leiknum. KR-ingar brunuðu upp og
skoruðu og þar með var leikurinn úti.
KR-ingar hafa nú híft sig af botnin-
um en Ármenningar eru á leið
þaðan sem þeir komu.
Leikurinn var slakur handknatt-
leikslega séð. Oft á tíðum var algert
ráðleysi í sóknarleik liðanna og sumar
sóknir drógust ansi á langinn, allt að
3-4 mínútur. KR-ingar voru þó betri
aðilinn og áttu sigurinn skilið þó
ekki væri nema fyrir að flagga nokkr-
um ungum og bráðefnilegum leik-
mönnum eins og Konráð Ólafssyni
og Þorsteini Guðjónssyni. Hjá Ár-
menningum var það helst Einar
Naaby sem eitthvað gerði og gat.
Nú leikurinn þróaðist þannig að
KR-ingar ná forystu snemma í leikn-
um. Ármenningar jafna 5-5 en lenda
síðan 10-12 undir í leikhléi. í sx'ðari
hálfleik halda KR-ingar öruggri for-
ystu sem þeir síðan virðast ætla að
missa niður er Ármenningar komast
rétt í rass þeirra skömmu fyrir leiks-
lok eins og áður er lýst. Sigurinn var
þó sanngjarn 22-19.
Konráð gerði 6 mörk KR-inga en
Guðmundur Albertsson 5. Einar
skoraði 6 fyrir Ármann. Dómarar
leiksins voru ekki einu mennirnir
sem voru sofandi í Höllinni í gær.
GuðmundurTorfason
fer til Beveren
Guðmundur Torfason hefur gert
samning við belgíska 1. deildarlið-
ið Beveren og gildir hann í 2 1/2 ár.
Guðnxundur Torfason hefur
ákveðið að gerast atvinnunxaður í
knattspyrnu, hann hcfur gert 2 1/2
árs samning við belgíska 1. dcildar-
liðið Beveren og hélt til Belgíu í
gær. Beveren cr í 4. sæti í Belgíu,
4 stigum á eftir Anderlecht.
Jón Þórir Jónsson skoraði 6 mörk fyrir Breiðablik og hér er eitt þeirra í uppsiglingu án þess að Brynjar Kvaran eða Pétur Bjarnason
komi vörnum við. Tímamynd Svcirir
íslandsmótið í handknattleik - 1. deild:
KA jafnaði gegn Breiðabliki á síðustu sekúndunum eftir að hvorugt
lið hafði skorað í 6 mínútur
FINM I FYRSTA SÆTI
Staðan
Víkingur
Breiðablik
FH
XCA
Fram
Valur
Stjarnan
KI!
Haukar
Armann
í 1. deild karla á lslandsmótinu í hand-
knattleik eftir leikina í gærkvöld:
Breiðablik-KA 24-24
FH-Valur 23-21
Haukar-Víkingur 23-24
Ármann-KR 19-22
6 5 0 1 139-126 10
6 4 1 0 118-104 9
6 4 0 2 156-131 8
6 3 1 2 136-142 7
5 3 0 2 120-97 6
6 3 0 3 156-143 6
4 2 0 2 106-105 4
6 2 0 4 115-137 4
6 1 0 5 126-162 2
6 0 0 6 128-149 0
Lokamínúturnar í leik Breiðabliks og
KA í Digranesi í gærkvöld voru sögulegar.
Þegar rúmar 6 mínútur voru til leiksloka
var staðan 24-23 Blikunum í hag en þá tók
við markalaus kafli beggja liða, skref,
ruðningur, knötturinn útaf, skot í stöng,
allt þetta sýndu liðin á þessum kafla auk
þess sem Brynjar Kvaran varði 2 skot og
Guðmundur Hrafnkelsson 1. Það var síðan
15 sekúndum fyrir leikslok sem KA mönn-
um tókst að jafna leikinn en þeir höfðu
hangið nxjög lengi á boltanum og Blikarnir
varist mjög vel. Blikarnir fóru í sókn en KA
menn brutu á þeim, dæmt aukakast og
tíminn ekki stöðvaður og Birni Jónssyni
tókst ekki að skora úr aukakastinu framhjá
varnarmúr KA. Lokatölur urðu 24-24 og
Blikarnir töpuðu þar með sínu fyrsta stigi í
íslandsmótinu í vetur.
Breiðablik skoraði fyrstu mörkin í leikn-
um, komst f 3-0 og 4-1 og var forskot þeirra
fyrst og fremst góðri markvörslu Guðmund-
ar Hrafnkelssonar að þakka. KA menn
sóttu á og þegar 14 mínútur voru fram að
leikhléi tókst þeim að jafna 6-6. Eftir það
var jafnt á öllum tölum upp í 11-11 og hafði
Breiðablik ævinlega frumkvæðið. Blikarnir
skoruðu síðan 3 síðustu mörk hálfleiksins
þrátt fyrir að vera tveimur færri og staðan í
leikhléi var 14-11.
Enn bættu Blikarnir við í upphafi síðari
hálfleiks og varð munurinn tvívegis 5 mörk.
Eftir því sem leið á síðari hálfleikinn drógu
KA menn þó á aftur og síðustu 10 mínút-
urnar var lengst af eins marks munur.
KA menn gerðu mikið af klaufalegum
mistökum í leiknum, sendu oft beint útaf
og annað í þeim dúr en vörn Breiðabliks
hefur oft verið sterkari þó hún færi upp á
við eftir því sem leið á leikinn.
Besti maður KA í leiknum var Jón
Kristjánsson og Brynjar Kvaran varði vel í
síðari hálfleik. Hjá Breiðabliki varði Guð-
mundur Hrafnkelsson mjög vel framanaf
og Jón Þórir Jónsson, Þórður Davfðsson og
bræðurnir Aðalsteinn og Björn Jónssynir
voru einnig góðir.
Mörkin skoruðu, Breiðablik: Jón Þórir
Jónsson 6(3), Kristján Halldórsson 5, Aðal-
steinn Jónsson 4, Þórður Davíðsson 3,
Björn Jónsson 2, Svavar Magnússon 2,
Magnús Magnússon 1, Sigþór Jóhannsson
1. KA: Jón Kristjánsson 6, Friðjón Jónsson
5, Pétur Bjarnason 4, Eggert Tryggvason
3(1), Guðmundur Guðmundsson 2, Jó-
hannes Bjarnason 2.
íslandsmótið í handknattleik, l.deild:
Heimasigur í hörðum
leik í Hafnarfirði
- FH sigraði Val með 23 mörkum gegn 21 í hröðum og spennandi leik
Þær voru æsispcnnandi lokamín-
úturnar í leik FH og Vals í Hafnar-
fifðinum í gærkvöldi. FH-ingar
höfðu leitt nær allan leikinn nokkuð
örugglega en þegar sex mínútur voru
til leiksloka var munurinn aðeins tvö
mörk, 21-19. Valsmenn gerðu nær
allt sem þeir gátu til að jafna, nema
breyta um leikaðferð ■' lokin sem
þeir hefðu líklega átt að gera, en allt
kom fyrir ekki. FH sigraði 23-21 og
fögnuður hinna fjölmörgu aðdáenda
þeirra var innilegur í lokin.
Sigur hins unga liðs FH var annars
sanngjarn. Leikmenn þess börðust
vel, léku ágæta vörn í fyrri hálfleik
og stórskyttan Héðinn Gilsson var
stöðug ógn allan tímann. Á bak við
varnarvegg FH-inga stóð svo einn
besti leikmaður gærkvöldsins, mark-
vörðurinn Magnús Árnason sem
varði ein fimmtán skot í lciknum og
þar af tvö vítaskot. Aðrir ónefndir
en ágætir í liði FH voru Guðjón
Árnason, Óskar Helgason og Stefán
Kristjánsson stóð sig einnig vel þann
stutta tíma sem hann lék.
Valsliðið gerði mörg mistök í
þessum leik en bætti sig verulega
þegar á leið. Júlíus Jónasson skoraði
grimmt, Þórður Sigurðsson er í
mikilli framför og Geir Sveinsson og
Jakob Sigurðsson eru máttarstólpar.
Markahæstir í liði Vals voru Július
með 7 mörk(3 víti) og Þórður með
4. Hjá FH. skoraði Héðinn 7 mörk.
hb
íslandsmótið í handknattleik
- 1. deild kvenna:
FHenn
efst
Þrír leikir voru í 1. deild kvenna á
íslandsmótinu í handknattleik í
gærkvöld, FH sigraði KR mcð 15
mörkum gegn 13, Fram vann Val
með 22 mörkum gegn 20 og Stjarnan
vann stórsigur á Ármanni 35-17.
Staða efstu liða er óbreylt, FH er
efst með 10 stig, Fram fylgir fast á
eftir, einnig með 10 stig og Stjarnan
er í 3. sæti með 8 stig.
íslandsmótið í handknattleik - 1. deild karla:
Víkingar á toppinn
Víkingar endurhcimtu toppsæt-
ið í 1. deildinni í handknattleik í
gærkvöld er þeir sigruðu Hauka
með 24 mörkum gegn 23 í Hafnar-
firði. Staðan í leikhléi var 13-10
Víkingum í hag.
Flest mörk Víkinga skoraði
Hilmar Sigurgíslason, 5 en Karl
Þráinsson, Bjarki Sigurðsson,
Guðmundur Guðmundsson og
Árni Friðleifsson skoruðu 4 mörk
hvcr. Flest mörk Hauka skoraði
Sigurjón Sigurðsson, 7 en Ágúst
Sindri Karlsson kom næstur með 5
mörk.
I
Það er milljón
fyrsta vinning
Þetta er minni vandi en margir halda!
Fimm einfölö ráð:
1. Fáðu þér Lottómiða á viðurkenndum sölurstað.
2. Fylltu út samkvæmt leiðbeiningum á bakhlið.
3. Skilaðu inn á næst sölustað og fáðu kvittun um leið
og þú borgar.
4. Berðu saman kvittunina og valtölurnar.
5. Fylgstu með beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu
næsta laugardag.
Happatölurnar eru komnar á kreik.
Láttu þær ekki framhjá þér fara!