Tíminn - 10.12.1986, Side 2

Tíminn - 10.12.1986, Side 2
2 Tíminn Miðvikudagur 10. desember 1986 Um 67% fjölgun utanlandsferða í nóvember: Hafa kaupmenn misst af 200 millj. til útlanda - vegna fjölgunar innkaupaferða í nóvember? Nær 9 þús. íslendingar komu til landsins nú í nóvembermánuði, sem er um 3.600 manna fjölgun miðað við sama mánuð s.l. tvö ár, eða um 67%. Meiri hluti þessarar fjölgunar milli ára mun vera vegna „innkaupa- ferðanna“ margumræddu til Glasgow, Amsterdam, London og víðar. Ef við gæfum okkur að um tveir þriðju fjölgunarinnar væru inn- kaupaferðamenn, sem versluðu fyrir um 40 þús. kr. erlendis að meðaltali, vörur sem mundu kosta tvöfalt meira hér heima (samanber sjónvarpsvið- talið fræga) hefði þessi aukning inn- kaupaferða haft um 190 milljóna króna viðskipti af íslenskum kaup- mönnum nú í nóvembermánuði. íslendingar sem komu til landsins í mánuðinum voru nú um 8.850. í nóvembermánuði s.l. tvö ár voru þeir um 5.290 og aðeins 3.480 í nóv 1983. Fjölgun ferðalanga í nóvem- bererþví um 154% ás.l. þrem árum. Þótt mjög hafi verið rætt um stórfjölgun erlendra ferðamanna til landsins hefur íslenskum ferða- mönnum til útlanda fjölgað mun meira á þessu ári. í lok nóvember voru þeir orðnir um 102.900 á árinu, sem er fjölgun um 15.500 milli ára. Virðist ljóst að talan muni fara í a.m.k. um 110 þús. á árinu í heild. Útlendingar hingað til lands í nóvember voru um 5.150, sem er um 900 fleiri en í nóvember í fyrra. Komur útlendinga hingað voru orðnar 104.450 í nóvemberlok, sem er um 10.600 manns fleira en á sama tíma í fyrra. - HEI Siguröur E. Guðmundsson: Lánsloforð í vikunni til þeirra sem sóttu um eftir l.september og eru í lífeyrissjóði sem undirritað hefur samning við Húsnæðisstofnun „Við erum komin á flugstig með afgreiðslu á fyrstu lánsloforðunum og ég treysti því að það verði í þessari viku að það verði unnt að gefa þau út. Þá er um að ræða loforð til þeirra sem lögðu inn lánsumsókn- ir frá og með 1. september sl.,“ sagði Sigurður E. Guðmundsson forstöðu- ntaður Húsnæðisstofnunar í viðtali við Tímann í gær. „Það eru ekki komnar neinar dagsetningar á það hvenær lán skv. loforðum verða greidd út. Við göng- um frá því um leið og þessi lánslof- orð fara í prentun í tölvunni. Það verður auðvitað á næsta ári. Loforð- in verða dagsett þannig að það verður alveg hægt að treysta því að við þau verður staðið.“ - Hafa allir lífeyrissjóðirnir gert samninga við stofnunina ? „ Lífeyrissjóðirnir liafa næstum allir gert samninga um skuldabréfa- kaup á árinu 1986 og langsamlega flestir þeirra hafa gert samninga um 55% kaup. Núna standa yfir undir- ritanir af þeirra hálfu um samninga fyrir 1987 og 1988 og við höfum fengið inn santninga frá ríflega þriðj- ungi þeirra, eða 27 sjóðum af 86. Auðvitað hefði maður kosið að þessar undirritanir hefðu gengið hraðar fyrir sig og ég vona að þær gangi hratt fyrir sig úr þessu, því á þeim byggist náttúrlega útgáfa lán- sloforðanna til greiðslu 1987 og 1988. Ég þykist alveg viss um að um áramótin næstu, hafi helmingur sjóðanna gengið frá samningum við okkur. En þegar afgreiðsla láns- loforða hefst nú í vikunni þá verða teknar fyrir til afgreiðslu lánsum- sóknir þess fólks sem er í lífeyris- sjóðum sem þegar hafa undirritað samningana. Hinum verður ekki hægt að sinna fyrr en lífeyrissjóðir þeirra hafa gert samninga við Hús- næðisstofnun," sagði Sigurður E. Guðmundsson. - phh Dr. Kristján Eldjám vinnur að uppgreftri í gmnni Skálholtsdómkirkju. Væntanleg útgáfa Skálholtsrannsókna Á komandi vordögum mun koma út rit er fjallar um þær fornleifarannsóknir sem fram fóru á grunni Skálholtsdómkirkju á ár- unum 1954-1958. Yfirumsjón með rannsóknunum hafði dr. Kristján Eldjárn fyrrverandi forseti íslands. Eftir að hann lét af forsetaembætt- inu árið 1980 hafði hann lokið sínum hluta af fyrirhuguðu verki er fjallaði um Skálholtsrannsóknir og var þegar farinn að leggja á ráðin um útgáfu þess, er hann féll frá. Nú hefur starfi hans verið fram haldið og mun útgáfa verksins vera helguð dr. Kristjáni Eldjárn, en hann hefði orðið sjötugur þann ó.desember sl. Ðorgarspítalinn: Ganga meinatæknar út um áramótin? Enn hefur ekki verið viö þá samið Á kjaramálafundi Mcinatækna- félags íslands sem haldinn var 3.desembersl. voru málefni meina- tækna á Borgarspítalanum til uni- ræðu. í ályktun frá fundinum er minnt á það neyðarástand sem skapast á spítalanum um áramótin, ef ekki verður komist að samkomu- lagi við þá meinatækna scm þar vinna fyrir þann tíma. llafa allir meinatæknar utan yfirmeinatækn- ir, sagt upp störfum vegna óánægju mcð kjör sín og rennur cndaniegur uppsagnarfrestur þeirra út um ára- mót. Lýsti fundurinn yfir eindregnum stuðningi við meinatækna Borgar- spítalans og hvatti til þess að gengið yrði að kröfum þeirra hið allra fyrsta. - phh SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ aug- lýsti stöðu forstjóra Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins lausa til umsóknar hinn 21. október sl. Að fenginni umsögn stjórnar stofnunarinnar hefur sjávarútvegsráð- herra skipað dr. Grím Valdimarsson til að gegna stöðu forstjóra Rannsóknastofnun- ar fiskiðnaðarins frá og með 1. desember 1986 að telja. Menningarmál: Hrynur Þjóðleik húsið? Ályktun stjórnar Rithöfundasambandsins Stjórn Rithöfundasambands íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem segir að vandamál Þjóð- ieikhússins séu alvarlegri en svo að stjórnvöld geti setið aðgerðar- laus og horft á þessa miðstöð íslenskra og erlendra leikbók- mennta og leiklistar hrynja vegna viðhaldsleysis. Stjórnin bendir á að aðgerðir séu löngu brýnar og framlög hafi verið skert þannig að reksturinn sé sömuleiðis kominn langt af leið. Rithöfundasamband íslands heitir á stjórnvöld að sinna þessu strax og ennfremur á listamenn að fylgjast með þessu máli og taka því ekki með þögninni. Þátttakendur á þriðja námskeiði Samvinnuferða-Landsýn í farseðla- útgáfu og fargjaldaútreikningi, sem haldið var í nóvember. Samvinnuferðir-Landsýn: Vinsæl námskeið í farseðlaútgáfu Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir- Landsýn gekkst í fyrra fyrir tveim námskeiðum í fargjaldaútreikningi og farseðlaútgáfu. Um 300 manns sóttu um inngöngu á námskeiðin en aðeins 30 komust að og luku þeim. Stór hluti af því fólki er þegar kominn í störf hjá Samvinnuferðum- Landsýn svo og öðrum ferðaskrif- stofum og flugfélögum. Mikill skortur hefur verið á fólki sem kann til verka í fargjaldafrurn- skóginum. Engin námskeið eða skóli hefur þó verið haldinn í slíku fyrr en Samvinnuferðir-Landsýn reið á vaðið. í síðasta mánuði gekkst ferða- skrifstofan fyrir þriðja námskeiðinu vegna margítrekaðra óska. Sem fyrr sóttu margir um inngöngu, eða hátt á annað hundrað manns. Aðeins 16 komust að og luku þau námskeiðinu í endaðan nóvember. “Einlyndi og marglyndi“ Nýtt fræðirit eftir Sigurð Nordal íslenska bókmenntafélag verður að velja um í lífi sínu. Hið hefur gefið út ritverkið „Einlyndi og marglyndi" eftir Sigurð Nordal. Hér er um að ræða tuttugu Hannes- ar Árnasonar fyrirlestra, sem flutt- ir voru veturinn 1918 til 1919 við mikla athygli, en þessir heimspeki- fyrirlestrar hafa aldrei birst á prenti fyrr. Einlyndi og marglyndi er alþýð- legt fræðirit um heimspekilega sál- arfræði. Það fjallar, ýmist beint eða óbeint, um þroska og þroska- leiðir: bókin er tilraun til að svara því hvað er þroski, og hvernig niegi keppa eftir honum í lífinu. Sigurður fer margar ólíkar leiðir að efninu. Ein hin helzta er sú að hyggja að ólíkum manngildishug- sjónum - leysingjans og vandræða- mannsins, skáldsins og fram- kvæmdamannsins - eða lífsviðhorf- unt - draumhyggju, leikhyggju og vafahyggju meðal annarra - og bera saman. Við samanburðinn verða ævin- lega andstæður fyrir Sigurði, önd- verðir kostir sem hvert mannsbarn Hinar mismunandi andstæður reynir hann svo að sundurgreina í Ijósi þeirrar höfuðandstæðu sem bókin dregur nafn sitt af, andstæðu einlyndis og marglyndis. „Einlyndi og marglyndi" er bæði alþýðlegt og frumlegt verk, því Sigurður er ekki að endursegja kenningar annarra fræðimanna heldur að skapa sínar eigin kenn- ingar. í bókinni birtast öll handrit hans af Hannesar Árnasonar fyrir- lestrunum, á stöku stað ekki sam- fellt mál heldur minnisgreinar eða ágrip. Af sumum lestrunum eru tvær gerðir til, uppkast og hrein- skrift, og er þá hvorutveggja prentað. Þá eru einnig birt fjögur sendibréf Sigurðar um lestrana. Þorsteinn Gylfason og Gunnar Harðarson sáu um útgáfuna og skrifar Þorsteinn inngang að ritinu, þar sent fjallað er m.a. um sögu þeirra fræða sem þar eru iðkuð á síðustu tímum, eftir að fyrir- lestrarnir voru santdir og fluttir.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.