Tíminn - 10.12.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 10.12.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn Miövikudagur 10. desember 1986 SPEGILL SVEITARSTJÓRNARMÁL „Og þá var kátt í höllinni" þegar prins Johannes átti 60 ára afmæli, og konan hans, sem er 34 árum yngri skipulagði hátíðahöldin. Þarna er skrúðganga 2.700 manns í þjóðbúningum að fara af stað í hallargarðinum. Hjónakomin era á myndinni efst ■ horninu t.h. fe 2 S sl » W w w w W |Tf ’ ■fllly jþ. jlEml *mk. __ úi ÍCjl ífS*.. Hr JKLjJF m flf |É' »1 t; ■ ^ L I I Klikkaðasta prinsessa í heimi! Hápunktur afmælishátíðahaidanna var grímuball fyrír 600 gesti, þar sem allir mættu í 18. aldar búningum. Til hægri á myndinni má sjá afmælisbarnið og prinsessuna hans með demants-ennisskraut sem Marie Antoinette átti á sínum tíma, gimsteinum sett og ómetanlegt til fjár Það gerist víst ekki sérstæðari aðalsmær í heiminum nú til dags en prinsessan Gloria von Thurn und Taxis í Þýskalandi. Hún er oftast með hárið tætt upp f stífa og lakkaða toppa eins og mesti punk- ari, þeytist um á mótorhjóli í leðurfötum með keðjum ogskraut- hnöppum. Þannig klædd á hún það til að aka eftir hraðbrautunum um þvera og endilanga Evrópu. Gloria er stundum kölluð TNT- prinsessan. Það veit enginn hvenær sprengingin verður, en allt er óöruggt í kring um hana og ekki er hægt að vita upp á hverju hún tekur næst. Gloria er gift Johannesi prins, sem heitir reyndar fullu nafni: Johannes Baptista de Jesus Maria Louis Miguel Friedrich Bonifazius Lamoral von Thurn und Taxis! Hann er einn af ríkustu mönnum Þýskalands, og er sagður eiga a.m.k. þrjá milljarða dollara (120 milljarða ísl. kr. - eða álíkaogallar þjóðartekjur íslendinga) Þau búa í 500 herbergja höll, sem er jafnvel stærri og rúmbetri en Buckingham Palace í London. Þau hjón eru bæði samvalin í eyðsluseminni. Þau njóta þess að lifa hinu ljúfa lífi, og þegar prinsinn varð 60 ára í sumar héldu þau þriggja daga veislu, sem hin 26 ára prinsessa skipulagði, og kostuðu hátíðahöldin um 750.000 dollara! „Líf ökkar er meira spennandi en bæði Dallas og Dynasty-þættirn- ir og væru framhaldsþættir um okkur x sjónvarpinu myndum við alveg slá þessa gömlu lummulegu þætti út!“ sagði Gloria hróðug, þegar hún sagði frá hátíðahöldun- um. Gloria prinsessa er af mjög tign- um evrópskum aðalsættum, en fjölskylda hennar hefur ekki verið rík. Hún giftist Johannes prins fyrir sex árum og fyrstu fjögur árin hélt hún kyrru fyrir heima og sinnti skyldum sínum sem eiginkona,- m.a. fæddi hún þrjú börn. Svo var það fyrir rúmum tveimur árum, að prinsessan vildi fara að hafa það frjálst og njóta lífsins. Nóg var af þjónustufóíki, svo hún var ekki í vandræðum með barna- píur. Allir bjuggust við að maður hennar myndi bregðast illur við, en það var nú eitthvað annað. Hann meira að segja fylgdi henni stund- um á ævintýraferðalögum hennar, og virtist ekkert hafa á móti því að unga konan hans skemmti sér. Einu sinni voru þau stödd með vinum sínum á diskóteki í Munc- hen þegar prinsinn fann brúsa með háreyðingarmeðali. Hann gerði sér lítið fyrir og fór með brúsann fram í fatahengið og úðaði háreyðing- Uppáhalds-hárgreiðsla prinses- sunnar: allt hárið tætt upp í stífa toppa ! armeðalinu á fínu pelsana og þeir urðu hárlausir og snoðaðir. Eig- endur loðfeldanna urðu fokillir,-en prinsinn bara hló og sagði frúnum að kaupa sér nýja pelsa - og senda sér reikninginn ! í hinni frægu afmælisveislu prins- ins voru 25 hljómsveitir sem skemmtu, og þar var skrúðganga 2700 manns í þjóðbúningum, dans- hópar sýndu og skotið var 21 fallbyssuskoti. Gleðskapurinn var haldinn í höll þeirra um 100 km frá Munchen. Meðal frægra gesta voru Mick Jagger og sambýliskona hans fyrir- sætan Jerry Hall, arabíski auðkýf- ingurinn Adnan Khashoggi og Sor- aya fyrrv. keisaradrottning í íran o.fl. o.fl. frægðarfólk. Þýskir kvikmyndaframleiðendur ætla að gera sex þátta sjónvarps- mynd um Gloiru og prinsinn henn- ar og eru þau mjög lukkuleg mað það. „Gloriu finnst bara verst að fá ekki sjálf að leika í myndinni,“ segir maður hennar. Nýjustu fréttir af Gloriu prins- essu eru þær, að nú hafi hún hugsað sér að breyta lifnaði sínum. „Pressan hefur gert mig að algjöru fífli“, segir hún í viðtali við News- week nú í byrjun desember. Svo hefur Gloria komið fram með hug- mynd um að gera hinn 500 her- bergja kastala sinn að einhvers konar samkomustað, eða „salon“ fyrir málara, hljómlistarmenn og aðra listamenn. „ Það er æðsta verkefni mitt að gefa snillingum og listamönnum tækifæri til að hittast," sagði prinsessan í viðtal- inu. Dalvík Fiskmarkaður Á Dalvík er verið að athuga mögu- leika á stofnun fiskmarkaðar. Á bæjarráðsfundi fyrir stuttu bar þessi mál á góma og var eftirfarandi samþykkt: „Bæjarráð samþykkir að kosin verði þriggja manna vinnuhópur til undir- búnings stofnunar fiskmarkaðar á Dalvík M.a. verði könnuð sú leið að stofna sérstakt hlutafélag sem tæki að sér rekstur markaðsins. Vinnu- hópurinn starfi náið með hafnar- nefnd að skipulagi og undirbúningi þess er lýtur að höfninni. Jafnframt verði bæjarstjórn gerð grein fyrir gangi mála eftir atvikum." Sjávarútvegsfræðsla Á Dalvík hefur verið sett á fót nefnd á vegum bæjarstjórnar sem fjalla á um sjávarútvegsfræðslu á Dalvík og hóf hún störf í nóvember sl. Á fyrsta fundi var fjallað um starf nefndarinnar í næstu framtíð og voru nefndarmenn sammála að fyrst yrði að einbeita sér að hugmyndum um eflingu stýrimannabrautar við skólann. Á fundi nefndarinnar var farið yfir námsvísi Stýrimannaskólans í Reykjavík skólaárið 1986-1987 og spunnust upp af því umræður um möguleika að vera með 2. stigs nám við skólann á Dalvík á næsta náms- ári. Nefndin mun vinna skýrslu um málið nú á næstunni. Þá hefur nefndin samþykkt að kanna hjá fyrirtækjum hvað stæði til boða varðandi aðstöðu til verklegrar kennslu. Byggingamál grunnskólans Teikningar af skólahúsnæði fyrir grunnskóla á Dalvík voru kynntar á fundi skólanefndar fyrir nokkru. Spunnust nokkrar umræður um hvað ætti að byggja næst og hvernig ætti að haga beiðnum um fjárveiting- ar til skólans á árinu 1988. Menn töldu æskilegast að fjárveiting feng- ist bæði í tengiálmu og suðurálmu, en bygging tengiálmu hefði forgang. Þá hefur verið rætt um námsflokka og fullorðinsfræðslu. Nefndin lagði mikla áherslu að þeir þættir gleymd- ust ekki. Hún er einnig einhuga um að áfram verði haldið að byggja upp stýrimannanám, sem þróa mætti yfir í sjávarútvegsskóla. Snjóbræðslukerfi við Dalvíkurhöfn Á Dalvík stendur fyrir dyrum að taka í notkun snjóbræðslukerfi fyrir norðurgarð Dalvíkurhafnarinnar. Úttekt hafði verið gerð á kostnaði við fyrirhugað snjóbræðslukerfi og athugað hvort hagkvæmari leiðir væru til. Svo reyndist ekki vera og leggur hafnarnefnd til að snjó- bræðslukerfi með millihitara verði tengt í einu lagi. Stofnkostnaður er áætlaður 492.000 krónur og árlegur rekstrarkostnaður verði 246.000 krónur. Þá hefur hafnarnefndin ákveðið að keypt verði fimm ný og endurbætt björgunarnet Markúsar til notkunar á bryggjum. Einnig að keypt verði labb rabb tæki til notkunar fyrir starfsmenn hafnarinnar. Frá Veitunefnd Veitunefnd hefur gert áætlun um lágmarksframkvæmdir við hitaveitu á árinu 1987. Þær eru: 1. Dæla í kyndistöð 2. Endurnýjun á lögn milli Hólavegar og Kirkjuvegar. 3. Frágangur á viðbyggingu í kyndi- stöð. Starfsmenn veitunefndarinnar hafa undanfarið verið að mæla kaldavatnslindir á Karlsárdal og Ytri- Hvarfseyrum, með fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir í huga. Þegar nauðsynlegar mælingar liggja fyrir mun veitunefndin taka ákvörðun um virkjunarstað. -HM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.