Tíminn - 10.12.1986, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.12.1986, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 10. desember 1986 Tíminn 3 BÍSN talar um stéttsvik: „Samning anefnd ASI seldi iði inemana“ Iðnnemar hækka meira en aðrir, segir Ásmundur Stefánsson. BÍSN, Bandalag íslenskra sér- skólanema með iðnnema innan- borðs, hefur sent frá sér mjög harðorða yfirlýsingu, þar sem samninganefnd ASI er sökuð um að hafa notað iðnnema sem sölu- vöru og að vinnubrögð sem viðhöfð voru í samningunum séu „ekkert annað en örgustu stéttasvik '. Lýsir BÍSN þar allri ábyrgð á hendur samningancfndar ASI. Segir í yfirlýsingunni að kjör iðnnema hafi verið slitin úr því samhengi sem þau hafi verið í undanfarna áratugi, þ.e. scm hlut- fall af launum sveina á fyrsta ári og að þeir hafi verið samdir langt niður fyrir yfirlýst lágmarkslaun, þ.e. 26.500 kr. Grunnlaun iðn- nenia eftir samningana eru nú 21.023 kr. á mánuði og segir í yfirlýsingu BÍSN að með þessum samningi hafi verið brotið blað í sögu verkalýðshreyfingarinnar, þar sem sá hópur sem minnsta möguleika eigi til að verja kjör sín hafi verið skilinn eftir langt fyrir neðan framfærslumörk. Ásmundur Stefánsson, forseti ASf svaraði þeirri spurningu hvort samninganefnd ASÍ hafi selt iðn- nema, með einföldu ncii. „Það er náttúrulega Ijóst að iðnnemar hækka meira en flestir hópar aðrir. Það má finna dæmi unt iðnnema sem standa í stað, en almenn hækkun taxta iönnema er sennilega á bilinu 12%-25%, sé hækkunin í desember talin með. Það er því ekki rétt að þcir hafi verið skildir eftir. Það er reyndar rétt að þeir eru fyrir neðan 26.500 kr markið, en það er ekki einsdæmi að iðnnemar hafi verið fyrir ncðan verkamenn í launum. Með þessunt samningum erum við að færa okkur inn á raunveruleikann og þess vegna er viðmiðunin byggð á all breyttum forsendum en áður var, þegar lág- markstekjutrygging hefur verið sett.“ Ásmundur taldi rétt að minna á að flestir iðnnentar njóta sveina- kjara í sambandi við fæðis- og flutningagjald og því mætti bæta við þessa lölu eitthvað á fjórða þúsund krónum. Sagði Ásmundur að nefndin hefði talið að iðnnemar hefðu fcng- ið það verulega úrbót, að ekki hefði verið talið rétt að láta samn- ingaviðræður slitna á þessu atriði, sem þær hefðu annars gert ef harðar hefði verið gengið fram. Aðspurður sagði Ásmundur þetta vissulega alvarlegar ásakanir, en hann tæki þær ekki til sín að neinu leyti. -phh. Messías fluttur í Hallgríms- kirkju Sinfóníuhljómsveit íslands og Pólýfonkórinn munu flytja Messías eftir Georg Friedrich Hándel í Hallgrimskirkju annað kvöld, fimmtudagskvöld. Stjórnandi verður Ingólfur Guöbrandsson, en einsöngvarar verða Maureen Bartwaite, Sigriður Ella Magnúsdóttir, lan Partridge og Peter Coleman- Wright. Þessir tónleikar eru hinir sjöundu á fyrra misseri þessa starfsárs Sinfoníuhljómsveitarinnar. Hljómburðurinn í Hallgrímskirkju hefur nú verið lagfærður með ýmsu móti og hafa til dæmis kór og hljómsveit verið flutt innar í kór kirkjunnar. Öryggismálanefnd: SOVÉSKAR HUGMYNDIR UM HERNAÐ Öryggismálanefnd hefur gefið út „Hernaðarstefnu Sovétríkjanna", eftir Þórö Ægi Óskarsson, en rit þetta er annað í röðinni í rannsókn- arverkefnum á vegum nefndarinnum um þann þátt alþjóðamála sem snýr að samskiptum austurs og vesturs. Áður hefur komið út rit unt stefnu og þróun kjarnorkuvígbúnaðar ris- aveldanna. í ritinu er rakin söguieg þróun hernaðarstefnu Sovétríkjanna m.a. með hliðsjón af þróun kjarnorkuvíg- búnaðar. Gcrð er grein fyrir þeirn meginatriðum sem inóta sovéska hernaðarsteínu en þau eru hug- myndir Sovétmanna um nernað, marx-lenínisk hugmyndafræði, land- fræðileg lega Sovétríkjanna, söguleg reynsla og hagkerfið. Yfirlit um herstyrk Sovétríkjanna er að finna í ritunu og rætt er um framkvæmd hernaðarstefnunnar á alþjóöavett- vangi, en í því sambandi er rætt um Varsjárbandaiagið, Kína, vopnasölu og afvopnunarmál. Ritið er til sölu í bókaverslunum og á skrifstofu Öryggisntálanefndar. Frá æfingu Sinfóníuhljómsveitar íslands og Pólýfonkórsins á Messíasi. Sjóli, skip Sjólastöðvarinnar: ERLENDIR AÐILAR HAFASÝNTÁHUGA Erlendir aðilar hafa sýnt áhuga á að kaupa Sjóla skip Sjólastöðvarinn- ar í Hafnarfirði. Haraldur Jónsson hjá Sjólastöðinni staðfesti þetta í samtali við Tímann en sagði jafn- framt að ekki væri hægt að segja á þessu stigi málsins hverjir hefðu gert tilboð í skipið. Haraldur sagði að þeir aðilar sem sýnt hefðu áhuga hefðu ákveðið að byggja yfir skipið og koma því í rekstur á nýjan leik. Sjóli hefur legið í Hafnarfjarðar- höfn síðan hann brann í fyrra. Sjólastöðin er að láta sniíða skip fyrir sig í Noregi og verður því að selja Sjóla úr landi og er þar með loku skotið fyrir það að innlendir aðilar geti keypt skipið, þar sem ætlunin cr að færa fiskveiðilcyfi Sjóla yfir á hið nýja skip sem væntan- legt er á næsta ári. Sjóli hefur legið í Hafnarfjarðarhöfn frá því skipið brann í fyrra. Nú hafa erlendir aðilar sýnt áhuga. Afurðalánin: Lánin afgreidd eins og í fyrra „Það er fullt samkomulag milli viðskiptabankanna og Seðlabank- ans að veita afurðalán út á sauð- fjárafurðir með sama hætti og á síðastliðnu ári. Hér er um þaö að ræða að 67,7 prósent af óniður- greiddu heildsöluverði, sem eru 70,2 prósent af óniðurgreiddu heildsöluverði án sjóðagjalda verði greitt." sagði Tómas Árnason seðlabankastjóri í samtali við Tím- ann í gær. Síðastliðinn fimmtudag barst Seðlabankanum erindi frá slátu- leyfishöfum, um afurðalánin og var það erindi sundurliðun á kostn- aði við slátrunina og verðmæti afurðanna. Þetta erindi var kannað af lánadeild Seðlabankans og í framhaldi af þeirri athugun var haldinn fundur í gær fyrir hádegi þar sem fulltrúar viðskiptabank- anna og Seðlabankans komust að þessu samkomulagi. -ES UNGMENNAFELAGID ÍSLENDINGUR 75 ÁRA Frá Magnúsi Magnússyni, frcttaritara Tímans í Borgarfirði. Um þessar mundir eru liðin 75 ár frá stofnun Ungmennafélagsins ís- lendings. Félagið var stofnað á Hvanneyri þann 12. desember 1911. Aðalhvatamaðurinn að stofnun þess var Páll Zóphóníasson, sem jafn- framt var fyrsti formaður. Félags- svæði íslendings er Andakíls- og Skorradalshreppur. Starfsemi félagsins er fjölþætt, eins og vera ber. Má þar nefna skemmtanakvöld, íþróttaiðkun og ýmsa aðra æskulýðs- og menningar- starfsemi. Félagið á og rekur Hreppslaug, sem er mjög vinsæl sundlaug við Efri-Hrepp í Skorradal. Leikhópur á vegum félagsins æfir nú leikritið „Týndu teskeiðina", eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri er Hákon Waage. Leikendur eru 9 og er þetta 6. leikritið, sem félagið sýnir á 10 árum. Gert er ráðfyrir frumsýn- ingu á „Týndu teskeiðinni" í Brún, á afmælisdegi félagsins þann 12. desember. 1 tilefni 75 ára afmælisins býður Ungmennafélagið íslendingur öllum félögum sínum fyrr og nú, ásamt öðrum íbúum á félagssvæðinu, til samakomu í Brún í Bæjarsveit þann 13. desember. Samkoman hefst með kaffisamsæti kl.21,00, en síðan verð- ur skemmtidagskrá. Þátttaka til- kynnist í síntum 7068 og 7043. Formaður Ungmennafélagsins ís- lendings nú er Pálmi Ingólfsson, Hálsurn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.