Tíminn - 10.12.1986, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 10. desember 1986
Tíminn 15
MINNING
IIIIUIIIIIIIIIIIII
MATTHILDUR
GUDMUNDSDÓTTIR
frá Bæ í Steingrímsfiröi
Matthildur Guðmundsdóttir
fæddist á Drangsnesi við Steingríms-
fjörð 19. júlí 1905. Hún var dóttir
hjónanna Guðmundar Guðmunds-
sonar sjósóknara og bónda í Bæ á
Selströnd og Ragnheiðar Halldórs-
dóttur konu hans.
t>au áttu saman 14 börn. Þrettán
þeirra komust til manndómsára, öll
svipmikið og dugandi fólk. Fjöl-
skyldan átti heima á Drangsnesi í
ellefu ár og þá var lífsbjörg heimilis-
ins því nær eingöngu til sjávar sótt.
Þótti Guðmundur öðrum fremri sem
aflasæll og glöggur árabátaformað-
ur.
Árið 1914 keypti Guðmundur
hálfa jörðina Bæ á Selströnd, og þá
víkkaði athafnasviðið, því nú varð
landbúnaður stærri þáttur í heimilis-
umsvifunum.
Þegar fjölskyldan fluttist að Bæ
voru þar fyrir á eign Guðmundar
tvær fjölskyldur barnmargar í fastri
ábúð á hluta jarðarinnar. Fyrstu árin
var því þröngt setinn bekkur þar
sem þrjár fjölskyldur bjuggu í sömu
baðstofu, þar af 18-20 börn innan
fermingar.
En öllu þessu fólki farnaðist vel og
samskiptin voru þægileg. Þar ríkti
oftast söngur og gleði þegar tóm
gafst til frá skyldustörfum. Bæjar-
systkinin urðu ung hlutgeng og at-
hafnasöm á þeim vettvangi. Systurn-
ar jafnt sem bræðurnir máttu ganga
að hverju því verki þau voru talin
duga til, en þarna var starfssviðið
fjölþætt til sjós og lands.
Öll voru systkinin kjarkmikil og
létu lítt á sig fá þótt stundum þyrfti
að leggja nótt með degi þegar mestar
annir kölluðu að. Hún Matthildur
varð því ung að taka til hendinni við
heimilisstörfin.
Hún óx upp og varð mjög falleg
kona, glaðvær og sönghneigð. Það
er ekki ofmælt að eftir henni var
tekið hvar sem hún fór. Margir ungir
menn litu hýru auga heim að Bæ
þegar hún var þar í blóma ungmeyj-
aráranna.
Ég sem þessar línur set á blað
þekkti vel Bæjarheimilið á þeim
árum. Ég var á svipuðu reki ogsumir
krakkarnir þar og við Gunnar, bróð-
ir Matthildar, stóðum saman á
kirkjugólfinu á Kaldrananesi þegar
við fermdumst. Milli bæjanna er
aðeins stuttur háls sem aldrei var svo
örðugur yfirferðar, að ekki væri
hægt að komast þar um til að njóta
saman leikgleði æskunnar. Og vin-
áttubönd sem þá voru tengd urðu
furðu haldgóð þótt árunum fjölgaði
og oft væri vík milli vina.
Ragnheiður, móðir Matthildar,
var greind kona og hög bæði til
munns og handa. Hún kenndi dætr-
um sínum að feta þá sömu slóð hvað
viðkom verkshætti og heimilishaldi,
enda kom það í Ijós þegar Matthild-
ur sjálf fór að halda heimili að henni
var í engu áfátt á því sviði. Hún
giftist árið 1927 Halldóri Magnússyni
ættuðum úr Borgarfirði. Þau bjuggu
fyrst tvö ár í Bæ en fluttust svo í
Hamarsbæli innar við Steingríms-
fjörð, þaðan stundaði Halldór út-
gerð og sjómennsku.
Árið 1947 fluttust þau svo á Akra-
nes og áttu þar heimili þangað til
Halldór lést 6. október 1966.
Þau hjón voru barnlaus en tóku í
fóstur frá frumbernsku Björn H.
Björnsson frá Smáhömrum. For-
eldrar hans voru Björn Halldórsson
og Elínborg Benediktsdóttir. Þau
eru bæði látin. Hann er því af sama
stofni og Matthildur fósturmóðir
hans því hún og Björn faðir hans
voru systrabörn.
Ekki þarf að draga í efa að
pilturinn sá hefur fengið góðan
samastað hjá frændkonu sinni og
manni hennar, enda mun mega sjá
þess merki. Hann er nú hafnarstjóri
Björn Rönningen
Fuöulegur feröalangur
Árni Einarsson þýddi
Vivian Zahl Olsen myndskreyttl
Æskan.
Ævintýri þar sem menn bjóða
veruleikanum byrginn og sigrast á
mannlegum takmörkunum hafa
lengi vinsæl verið. Töfraklæðin sem
fljúga mátti á um loftin blá voru
lengi vinsæl. Og til er staka sem segir
svo frá rímnaköppunum:
Þeir skulu sigla loft og lög og land
og tíma,
annars verður það engin ríma.
Enn eru slík töfrabrögð vinsæl í
barnabókum. Má þar nefna til dæmis
tvær nýjar bækur handa ungum les-
endum: Bé 2 eftir Sigrúnu Eldjárn
á Akranesi kvæntur Gýju Gunn-
laugsdóttur og eiga þau sex börn.
Eftir að Matthildur missti mann
sinn var hún fyrst þrjú ár á Akranesi,
en síðla árs 1969 fór hún bústýra til
Þorláks Jónssonar rafvirkjameistara
frá Súgandafirði, sem þá hafði misst
konu sína og bjó einn með syni
sínum á heimili þeirra í Reykjavík.
Þessi þáttaskil í lífi Matthildar
hygg ég að hafi orðið upphaf þess
auðnuvegar sem hún síðan gekk í 17
ár eða til banadægurs.
Þorlákur var í sárum þegar hún
kom til hans. Sjálf hafði hún reynt
þau umskipti og átti því auðvelt með
að skilja hvernig málin stóðu. Það
kom líka fljótt í ljós að hún var
þessum vanda vaxin. Eðlislæg glað-
værð hennar og hlýhugur færði birtu
inn á heimilið, sem gerði þeim
feðgum Ijúfara lífið og auðveldara
að sætta sig við orðinn hlut.
Þau Þorlákur og Matthildur urðu
vinir og félagar. Hún stjórnaði heim-
ili hans af myndarskap og smekkvísi,
þannig urðu þessi samvistarár þeim
báðum góð ár laus við einsemd og
ama ellinnar sem oft vill hrjá þá sem
einir ganga. Vinátta tókst með Matt-
hildi og börnum Þorláks og ætt-
mennum. Hún naut hjá því fólki
þeirrar virðingar sem hún hafði til
unnið með stjórnsemi, heiðarleika
og vinarþeli í starfi sínu. Og líklega
eru heilindi í vináttu engum nauð-
synlegri en þeim sem farnir eru að
fella flugfjaðrirnar.
Matthildur var ljóðelsk og orðhög
og eru til eftir hana vel dregnar
lífsmyndir í bundu ogóbundnu máli.
Hún skilur eftir sig Ijúfar minningar
hjá þeim sem hana best þekktu.
Þannig ganga góðar konur um garð
hvar sem þær fara.
Ég votta vinum hennar og að-
standendum öllum dýpstu samúð.
Þorsteinn frá kaldrananesi.
og Drekann með rauðu augun eftir
Astrid Lindgren sem nú er fremst í
flokki þeirra höfunda á Norðurlönd-
um sem skrifa sögur af börnum.
Björn Rönningen, sem er vel
metinn höfundur í Noregi, segir hér
furðusögur eins og nafn bókarinnar
bendir til. Vilhjálmur frændi hefur á
valdi sínu tækni sem ekki verður
skýrð og verður ekki fylgt eftir nema
með hugarflugi ímyndunaraflsins.
En mesta undrið á vegum hans er þó
hryssan Klara. Þar er á ferðinni
stórmerk sögupersóna.
Myndir þær sem sögunni fylgja
sæma henni vel og eru til þess gerðar
að hjálpa ímyndunaraflinu eins og
vera ber.
H.Kr.
UMSÖGN
llllHllliiilllllllllIII
iiiiiiiiiiiiiinii
Að b jóða hversdags
leikanum byrginn
ASKRIFT
Eg undirritaður/uð óska eftir að gerast áskrifandi að TIMANUM. 3 nýjar matreiðslubækur
Sigmars B. Haukssonar verða sendar mér um leið og ég staðfesti umsókn þessa.
Nafn
Nafnnr.
Heimili Sýsla
Sími Póstnr.
Einnig ertekiöviöáskriftum í síma 91-686300 Siðumúla 15, 105 Reykjavík
i
m
getrauna-
VINNINGAR!
16. leikvika - 6. desember 1986
Vinningsröð: 11X - 211 - X11 - 111
1. vinningur: 12 réttir, kr. 15.700,-
142 52661 (4/11) 98255(6/11) 129892(6/11) 212536(11/11)
1569(3/11) 54104(4/11) 98722(6/11) 130637(6/11) 212809(7/11)+
2251 54743(4/11) 99762(6/11)+ 130821(6/11)+ 213056(9/11)
3562 55510(4/11) 101754(6/11) 130856(6/11) 213710(12/11)
19630 56734(4/11)+ 102005(6/11) 131262(6/11)+ 213738(12/11) ( +
16326(3/11) 60591(4/11) 102776(6/11) 184730(4/11) 214079(9/11)
21064+ 63746(4/11) 105037(6/11) 201628(9/11) 214084(13/11)
40349(4/11) 64122(4/11) 125083(6/11) ^01785 (7/11 ) 214102(16/11)
41708(4/11) 65064(4/11)+ 126286(6/11) y' 202769(7/11) + 214110(10/11)
43235 (4/11) 66450(4/11) 126700(6/11) 202903(10/11)+ 214113(10/11)
44383(4/11) 71431 (4/11) + 127052(6/11)+ 203844(7/11) 214156(9/11)
45430(4/11) 95331(6/11) 127053(6/11) 203847(14/11) 214232(11/11)
46233(4/11) 97078(6/11) 127526(6/11)+ 204055(14/11)+ 214242(8/11)
46811(4/11) 97677(6/11)+ 127564(6/11) 209282(12/11)+ 210401(10/11)
49192(4/11) 98055(6/11) 127688(6/11)+ 209366(12/11) 545714(3/11)
50861(4/11)+ 98089(6/11) 127975(6/11) 209853(12/11)
52223(4/11) 98209(6/11) 128934(6/11) 211122(11/11)+
2. vinningur: 11 réttir, kr. 360,-
Alls komu fram 1.550 raðir. Vinningur fyrir ellefu rétta verður sendur
vinningshöfum nú í vikunni. Þeir vinningshafar sem ekki hafa fengið vinninga
sína innan viku frá birtingu þessara auglýsingar, vinsamlegast hafið samband
við aðalskrifstofu Islenskra getrauna.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á
skrifstofunni i Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verðateknar
til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda stofninn
og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
ÍSLENSKAR GETRAUNIR
íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík
Auglýsing
Ráöuneytið vekur athygli útgeröarmanna á því aö
frestur til að sækja um staðfestingu ráðuneytisins
á færslum aflakvóta milli skipa rennur út 29.
desember n.k. Umsóknir, sem síðar berast verða
ekki teknar til greina.
Jafnframt vekur ráðuneytið athygli á því að ekki
verður unnt að gefa út leyfi til botnfiskveiða 1987
til þeirra skipa, sem ekki hafa sent afla- eða
sóknarmarksskýrslur fyrir árið 1986.
Tekið skal fram að nauðsynlegt er að senda
skýrslurnar þó skipið hafi ekki stundað veiðarnar.
Sjávarútvegsráðuneytið,
9. desember 1986.
Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu
Arnleifar Steinunnar Höskuldsdóttur
frá Höskuldsstöðum, Djúpavogi,
til heimilis að Kiapparbergi 23, Reykjavík
verður gerð frá Dómkirkjunni, föstudaginn 12. desember, kl. 10.30.
Blóm og kransar eru afbeðin, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu,
er bent á Minningarsjóð Krabbameinsfélags íslands.
Örn Egilsson
Höskuldur Egilsson
Ragnheiður Egilsdóttir
Margrét Þórdís Egilsdóttir
Egill Gestsson
Lonni Egilsson
Soffía Rögnvaldsdóttir
Lárus Svansson
ÓskarSmári Haraldsson
barna- og barnabarnabörn