Tíminn - 10.12.1986, Page 6

Tíminn - 10.12.1986, Page 6
6 Tíminn Miðvikudagur 10. desember 1986 NAIRÓBI — Lögregla skaut viðvörunarskotum og dreifði táraaasi til að hafa stjórn á óeirðum í borginni Kitwe í Zambíu sem er helsti bærinn á koparbeltissvæði landsins. ibúar staðarins, sem haft var símasamband við frá Nairóbi, sögðu ólætin vera að aukast í Kitwe og nærliggjandi bæjum. Þau hófust á mánudaginn og fylgdu í kjölfar gífurlegra hækkana á matvörum. TUNIS — Frelsissamtök Pal- estínumanna (PLO) reyndu að trycjgja vopnahléið í „búða- stnðinu" í Líbanon. Bardagar brutust engu að síður út í gær í Suður-Líbanon og þar fauk því út í sandinn þriðja vopn- ahléið sem gert hefur verið á síðustu fjórum dögum. PARÍS — Jacques Chirac forsætisráðherra Frakklands reyndi að styrkja hina hægri- sinnuðu samsteypustjórn sina í sessi en óeining var innan hennar eftir að Chirac dró til baka áform um breytingar á háskólanámi í landinu. Stú- dentar skipulögðu hinsvegar mótmælagöngur sem fram fara í dag undir slagorðinu „Aldrei aftur". LUNDÚNIR — Innanríkis- ráðherrar Evrópubandalags- ríkjanna hittust í þriðja sinn á þremur mánuðum og fóru fram á við Bandaríkjastjórn að hún ynni nánar með evrópskum stjórnvöldum í baráttunni gegn eiturlyfjum og hryðjuverkum. VARSJÁ — Pólsk stjórnvöld útilokuðu að bandaríski öld- ungadeildarþingmaðurinn Edward Kennedy kæmi til landsins yfir jólin. Kennedy hafði hugsað sér að fara til Póllands til að veita helstu stjórnarandstæðingum lands- ins mannréttindaverðlaun og hitta Lech Walesa leiðtoga Samstöðu að máli. STOKKHÓLMUR Verðandi handhafar Nóbels- verðlaunanna komu til Oslóar og Stokkhólms til að verða viðstaddir afhendingu þeirra í dag. JERÚSALEM — ísraelskir hermenn skutu á og særðu sextán ára gamlan Palestínu- mann á hinu hertekna Gaza- svæði. Mikil mótmæli gegn ís- raelskum yfirráðum hafa farið fram á þessu svæði síðustu vikuna. Spánn: RETTLÆTIÐ EKKITIL AÐ GRÍNAST MED Nokkur ókyrrð hefur verið í ísrael að undanförnu. Óeirðir brutust fyrst út í Jerúsalem í lok nóvember og mátti rekja þær til þess að ungur gyðingastúdent var stunginn til bana í gamla borgarhlutanum í Jerúsalem. Heittrúaðir gyðingar svöruðu með því að eyðileggja eignir araba og í sumum tilfellum ráðast á þá. Þurfti að kalla út aukalið lögreglu til að hafa hemil á látunum sem voru mikil eins og sést á meðfylgjandi mynd. Nú undanfarna daga hafa svo uppþot verið tíð á hinum hertekna Vesturbakka og á Gazasvæðinu. Þar hafa Palestínumenn látið í Ijós langvarandi óánægju sína með ísraelsk yfirráð með því að efna til óeirða. Jerez, Spánn-Keuter Bæjarstjórinn í Jerez, höfuðborg sherrý vínhéraðanna í suðurhluta Spánar, hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi og fær ekki að taka að sér embættisstörf næstu sex árin. Þennan dóm fékk bæjar- stjórinn fyrir að hafa óvirt réttlætið. Pedro Pacheco Herrera heitir maðurinn sem málið snýst um. Hann lét opinberlega hafa eftir sér í janúar árið 1985 að „réttlæti væri grín". Pacheco lét þetta út úr sér eftir að héraðsdómstóll hafði dæmt ákvörð- un bæjarstjórnarinnar í Jerez um að láta rífa niður hús poppsöngvara ógilda. Pacheco og samstarfsmenn hans vildu meina að poppsöngvarinn Bertin Osborne hefði verið að brjóta ákveðin svæðislög með húsbygging- unni. Dómstólar töldu þó ekki að hér hefði verið um grín að ræða né að orð bæjarstjórans hefðu verið eitt- hvað grín. Pacheco þurfti nefnilega einnig að greiða sem samsvarar um tólf þúsund krónur í sekt svo og allan dómskostnað. Sameinuðu þjóðirnar: MENNING í MIÐPUNKTI Mubarak Egyptalandsforseti heldur upp í Evrópuför í dag Sameinuðu þjóðirnar-Keuter Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna lýsti í vikunni tímabilið frá árinu 1988 til ársins 1997 sem alþjóð- legum áratug menningarþróunar. Það er mennta-, vísinda- og menn- ingarmálastofnun SÞ(UNESCO) sem sjá á um framkvæmdir í sam- bandi við þennan áratug. Alls greiddu 146 þjóðir atkvæði með þessari tillögu SÞ en Bandaríkin greiddu atkvæði gegn henni og Bret- ar og ísraelsmenn sátu hjá. Bandaríkin hættu að starfa innan UNESCO fyrir tvcimur árum og héldu fulltrúar stórveldisins því fram að samtökin væru andsnúin vestræn- um hagsmunum auk þess sem spill- ing væri í stjórnun þeirra. Bretar fylgdu svo í kjölfar Banda- ríkjamanna í fyrra og sögðu sig úr samtökunum sem aðsetur hafa í París. Vestur-Þýskaland: Njósnarar kommúnista eiga í vök að verjast Bonn-Keuter Vestur-Þjóðverjar hafa veitt 32 njósnara frá ríkjum Austur-Evrópu í net sitt á þessu ári og hafa ekki fleiri verið handsamaðir við iðju sína síðan árið 1980. Það var forseti leyniþjónustu landsins sem sagði þetta í viðtali er birtist í gær. Holger Pfahls sagði í viðtali við tímaritið Quick að leyniþjónusta hans hefði ver'ulega lagað aðferðir sínar eftir að háttsettur “njósnara- veiðari", Hans-Joachim Tiedge flúði yfir til Austur-Berlínar sumarið 1985. „Við gerðum ráð fyrir í byrjun að Tiedge hefði ljóstrað öllu upp svo við undirbjuggum okkur undir allar hugsanlegar aðferðir sem hinir aðil- amir gætu notað til að safna upplýs- ingum". Egyptalandsforseti í Evrópuheimsókn - Mubarak hyggst enn styrkja sambandiö viö Frakklandsstjórn Kairó-Reuter Hosni Mubarak forseti Egypta- lands heldur til Frakklands í dag í opinbera heimsókn. Stjórnmála- skýrendur telja að heimsókn forset- ans muni enn tryggja samband Frakklandsstjórnar við Egypta en frönsk stjórnvöld hafa lengi verið talin hliðhollust Egyptum af öllum stjórnum í Evrópu. Mubarak mun þó ekki láta staðar numið í Frakklandi heldur fer hann til Stuttgart í Vestur-Þýskalandi um næstu hclgi og ræðir þar við Helmut Kohl kanslara landsins. í lok Evr- ópuheimsóknar sinnar fer svo forset- inn til Rúmeníu og mun þar eiga viðræður við Nicolae Ceausescu leiðtoga kommúnistaríkisins. Það verður einn af fáum fundum sem forseti Egyptalands hefur átt við leiðtoga Austur-Evrópuríkis. Mubarak mun meðal annars ræða við Francois Mitterrand forseta í París og verður ástandið í Mið-Aust- urlöndum og önnur heimsmál þar til umræðu. Einnig munu efnahags- vandræði Egypta verða á dagskrá og er búist við að Mitterrand muni endurtaka stuöning franskra stjórn- valda við beiðni egypsku stjórnar- innar um að Alþjóða gjaldeyrissjóð- urinn leggi til stuðning við endur- greiðslur af erlendum lánum Egypta. Ekki er þó búist við að neinar meiriháttar ákvarðanir verði teknar í þessum viðræðum forsetanna held- ur verði þessi fyrsta ríkisheimsókn egypsks leiðtoga til Frakklands, eftir að keisaranum var steypt af stóli árið 1952, fyrst og fremst notuð til að staðfesta góð samskipti ríkjanna tveggja. Mitterrand og Mubarak, sem komst til valda fyrir fimm árum síðan eftir að Anwar Sadat þáver- andi forseti var myrtur, eru góðir vinir og verður þetta í fimmtánda sinn sem þeir hittast.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.