Tíminn - 11.01.1987, Side 4

Tíminn - 11.01.1987, Side 4
4 Tíminn 'Sv^daC LEIÐARI í „frjálsu“ þjóðfélagi Það er með ólíkindum hvað allur vindur er fljótur að fara úr „stóru“ málunum hér á landi. Undanfarin ár hafa komið upp mál sem við fyrstu sýn hafa virst hin umfangsmestu og menn búist við að þeir sem í hlut ættu yrðu nú að taka út sína refsingu. Hafskipsmálið er líklega besta dæmið um mál af þessu tagi. Stórfyrirtæki fer á hausinn og dregur með sér í fallinu einn af bönkum landsins og hver veit nema blað eitt hér í bæ eigi eftir að riða til falls í kjörfar fársins. Blessaðir fjölmiðlarn- ir hafa keppst um að flytja fréttir af málinu og fyrrverandi forsvarsmenn fyrirtækisins og banka- stjórar bankans hafa keppst við að bera af sér allar sakir um gáleysi, hvað þá refsivert athæfi. En hvers er almenningur vísari - hvað hefur gerst? Líklega verður þekking hins almenna borgara á málinu alltaf yfirborðskennd, varla við öðru að búast í svo flóknu máli. Hitt er svo alvarlegra að þegar upp er staðið er líklcgt að ósköp lítið hafi gerst - menn hafi einungis orðið vitni að stormi í vatnsglasi eina ferðina enn. Svo virðist a.m.k. um „umfangsmesta fjár- svikamál seinni ára“ eða hið fræga okurmál. Eftir mikla rannsókn lögregluyfirvalda og umfjöllun dómstóla kemur á daginn að ekkert okur hafi átt sér stað. Og hvers vegna? Vegna þess að Seðla- banka íslands láðist að birta auglýsingar um hæstu lögleyfðu vexti á þeim tíma er viðskiptin fóru fram. Já hann er mikill máttur auglýsinganna! í kjölfar þessa ætlar embætti ríkissaksóknara svo að „taka upp nýja heildarlínu í öllum okurmálunum“. Sú nýja lína mun væntanlega taka við af öðrum „línum“ í þjóðfélaginu og vera „frjáls“. Frelsi hefur verið eitt aðal lausnarorðið hjá ákveðnum öflum í þjóðfélaginu undanfarið. Vextir eru meðal þess sem telst frjálst í þjóðfélagi okkar í dag og eiga þeir að ráðast af framboði og eftirspurn. 1 slíku draumaástandi er ekkert til sem heitir okur - hin ósýnilega hönd markaðarins hefur einfaldlega alræðisvald yfir mönnum. Fetta er raunar sú staða sem upp virðist komin hér á landi ef marka má orð Jónatans Pórmundssonar laga- prófessors. Samkvæmt því sem hann segir geta menn nú tekið þá vexti sem um semst svo fremi að ekki sannist á þá svokölluð misneyting samkvæmt samningalögunum. Ákvæðið um misneytingu bein- ist gegn því að menn notfæri sér einfeldni, fákunnáttu, bágindi eða vald yfir öðrum til að knýja fram sér hagstæða samninga. í ljósi þeirrar túlkun- ar sem virðist hafa ráðið ferðinni í meðferð okurmálsins hingað til má telja líklegt að túlkun misneytingarákvæðis samningalaga verði heldur „frjálsleg“. í takt við tíðarandann yrði einfeldni, fákunnátta eða bágindi túlkuð sem slæm markaðs- staða og þar með væri það fyrir utan verksvið stjórnvalda að skipta sér af þeim málum. Pá væri nú loksins runninn upp blómatími okrara og brask- ara sem vísast myndu verða taldir til betri borgara þó hingað til hafi landinn nú haft heldur lítið álit á þeim, a.m.k. opinberlega. Umsjón Helgarblaðs: Atli Magnússon Þór Jónsson Reinhard Reynisson _____________________ERLEND, Sunnudagur 11.janúar1987 Þórarinn Þórarinsson skrifar um: MALEFNI. Urslit þýsku kosninganna radas af fylgi Frjálslynda flokksins Haldi hann velli, helst núverandi stjórnarsamstarf áfram HINN 25. þ.m. fara fram þingkosningar í Vestur- Þýskalandi og benda allar sídustu skoðanakannanir til þess, að ríkisstjórnin muni halda velli. Þetta þótti hins veg- ar óráðið fyrir nokkrum mánuð- um, því að Kohl kanslari hafði orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru. Það hefur hingað til verið talið eftirsótt af Þjóðvcrjum að hafa svokallaða sterka leiðtoga, en Kohl er fjarri því að fullnægja þeirri myncl. Ef til vill er þessi ímynd Þjóðverja að breytast. Kohl er í senn manneskjulegur og landsföðurlegur í framkomu, en bersýnilega enginn afburða- maður. Má vcra að Hitler hafi átt þátt í að breyta þessu. Núverandi ríkisstjórn byggist á samstarfi þriggja flokka. Tveggja kristilegra flokka, sem skipta þannig með sér verkum, að annar þcirra, CSU, starfar aðeins í Bæjaralandi undir for- ustu Franz Josefs Strauss, en hinn, CDU, íöllumöðrum fylkj- um landsins og er Kohl formað- ur hans. Þriðji flokkurinn er Frj álslyndi flokkurinn, FDP. Kristilegu flokkarnir hafa kosn- ingabandalag í þingkosningun- um. CSU býður cinn fram að þeirra hálfu í Bæjaralandi, en ekki í öðrum fylkjum. CDU býður fram í öðrum fylkjum, en þar býður CSU ekki fram. í stjórnarandstöðu nú eru sós- íaldemókratar (SPD) og Græni flokkurinn eða græningjar, eins og flokkurinn er venjulega nefndur. SAMKVÆMT stjórnarskrá Vestur-Þýskalands fær enginn flokkur þingsæti, nema hann fái minnst 5% greiddra atkvæða. Þetta er gert til að útiloka smá- Kohl er ekki jafningi hinna „sterku“ fyrirrennara sinna sósíaldemókratar ná ekki því fylgi, sem þeir höföu 1980, en Græningjar auka fylgi sitt. SAMKVÆMT skoðanakönnun kemst Frjálslyndi flokkurinn vel yfir 5% rnarkið, en þó er því var- lega treyst. Hann hefur síðan 1969 sveiflast á milli 5,8% og 10,6%. Fyrir kosningarnar 1983 bentu skoðanakannanir lengi til þess, að hann myndi lcnda innan við 5% markið, en útkoman var sú, að hann fékk 7% eins og áður segir. Sigurvonir hans nú byggjast á því, að talsverður hluti af kjós- endum CDU veiti honum braut- argengi til að treysta þannig meirihluta stjórnarinnar. Margir forustumenn CDU eru lítið hrifnir af því að vinna eingöngu með CSU eða flokki Strauss. Strauss muni þá gerast of heimtufrekur og vilja bæði verða Kosningaúrslit í Þýskalandi 1949-1983. flokka, en þeir voru býsna marg- ir í tfö Weimarlýðveldisins og eru taldir hafa átt þátt í falli þess. Þá giltu hlutfallskosningar án nokkurra takmarkana. Síðan 1961 hefur 5%-reglan leitt til þess, að ekki hafa átt sæti á þinginu nema fjórir flokkar eða þeir, sem eru áður nefndir. í síðustu þingkosningum, sem fóru fram í mars 1983, bættist fimmti flokkurinn við eða Græni flokkurinn. Þá urðu úrslítin þau, að CDU fékk 38,2% greiddra atkvæða, CSU 10,6%, SPD 38,2%, FDP 7% og Græni flokkurinn 5,6%. SPD hrapaði þá úr 42,8%, sem hann fékk 1980 og Frjálslyndi llokkurinn úr 10,3%. Þeir misstu fylgi sitt til CDU og Græningja. Samkvæmt skoðanakönnun nú mun þessi þróun halda áfram. varaforsætisráðherra og utan- ríkisráðherra en þeim störfum gegnir Genscher, formaður Frjálslynda flokksins nú. Strauss er talinn eiga enga ósk heitari en að Frjálslyndi flokkur- inn hverfi úr sögunni, enda gerir hann það sent hann getur til að spilla fyrir honum. Þetta rekur m.a. rætur til þess, að Strauss var kanslaraefni kristilegu flokk- anna 1980, en þá fengu kristilegu flokkarnir fleiri atkvæði saman- lagt en sósíaldemókratar og hefði Strauss þá orðið kanslari, ef Frjálslyndi flokkurinn hefði ekki fengið oddastöðuna á þingi og myndað stjórn með sósíal- demókrötum. Sústjórn klofnaði haustið 1982 og myndaði Frjáls- lyndi flokkurinn þá stjórn með kristilegu flokkunum sem staðið hefur síðan. L.___________________ Strauss telur Frjálslynda flokkinn ótraustan bandamann, en siðan 1961 hefur hann unnið á víxl með sósíaldemókrötum og kristilegu flokkunum, nema á árunum 1965-1969, þegar kristilegu flokkarnir og sósíal- demókratar fóru með stjórn saman. Á árunum 1970-1982 vann Frjálslyndi flokkurinn með sósíaldemókrötumi. cn síðan með kristilegu flokkunum. Hann stefnir nú opinberlega að því að halda þeirri samvinnu áfram og er Kohl kanslari þess mjög hvetjandi, en Strauss er á öðru máli. EINS og nú horfir mun Frjáls- lyndi flokkurinn halda velli og óbreytt stjórn haldast áfram. Strauss mun þó gera ákveðnari kröfur um utanríkisráðherra- embættið, cn sennilega mun Kohl ekki fallast á það. Fari hins vegar svo, að Frjáls- lyndi flokkurinn heltist úr lest- inni, virðist um tvo möguleika að ræða. Annar er sá að kristi- legu flokkarnir fái meirihluta á þingi og myndi stjórn saman með Kohl sem forsætisráðherra og Strauss sem utanríkisráð- herra. Slík stjórn yrði sennilega mun meira til hægri en núver- andi ríkisstjórn. Hinn möguleikinn er sá, að sósíaldemókratar og græningjar fái meirihluta vegna mikillar fylgisaukningar hinna síðar- nefndu, en Ijóst þykir, að þeir munu auka fylgi sitt. Leiðtogar sósíaldemókrata hafa lýst yfir því að þeir muni ekki mynda stjórn með græningjunum. Þá er ekki nema um tvennt að ræða. Annað er að efnt verði til nýrra kosninga, en hitt að kristilegu flokkarnir og sósíaldemókratar taki höndum saman líkt og á árunum 1966-1969. Það þykir þó heldur ótrúlegt. Þótt það þyki nú líklegast, að núverandi ríkisstjórn Vestur- Þýskalands haldi velli, eru úrslit- in engan veginn ráðin. Fyrir kosningar getur margt breyst á síðustu stundu. Sósíaldemókrat- ar geta rétt hlut sinn í lokasókn- inni, en þeir eru að hefja hana. Þá gætu græningjar bætt við sig fylgi, einkum meðal yngri kjós- enda, vegna baráttu sinnar gegn kjarnorku og öðrum mengunar- völdum. Umhverfismálin virð- ast hafa vaxandi áhrif á stjórn- málabaráttuna í flestum löndurn heims, en þó mest í svonefndum vestrænum löndum. Þau geta m.a. leitt til þess, að núverandi flokkaskipun riðlist. Hingað til þykir kosningabar- áttan hafa verið dauf og litlítil. Þannig kann að breytast á loka- stiginu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.