Tíminn - 11.01.1987, Page 15
!
Sunnudagur 11.janúar1987
Tíminn 15
FTIR að Poppsíðan hafði velt því fyrir sér hvernig staðið
skyldi að einhverskonar uppgjöri fyrir síðasta ár, komst
hún að því að ekki mátti láta ego umsjónarmannsins eitt
ráða ferðinni. Poppsíðan brá því á það ráð að setja sig í
samband við nokkra músikelskendur og fá þá til að setja niður á
blað hvernig listi yfir 10 bestu plötur ársins 1986 gæti litið út. Þar
sem DV hafði þegar riðið á vaðið var ekki um marga kunna kappa
að ræða. Pví brugðum við á það ráð að blanda þessu örlítið saman
og fer hér á eftir listi þeirra sem fengnir voru til og örlítil kynning
á persónunni.
Listi Halldórs Inga Andréssonar
1. Bruce Springsteen - Live 1975-1985
2. Poul Simon - Graceland
3. Peter Gabríel - So
4. Elvis Costello - King of America
5. Steve Winwood - Back in Highlife
6. Talking Heads - True Stories
7. Paul McCartney - Press
8. Pretenders - Get Close
9. John Fogerty - Eye of the Zombie
10. Bob Dylan - Knocked Out Loaded
Halldór Ingi er reyndur poppskríbent. Hann
vann hér á árum áður bæði hjá Þjóðviljanum og
Vísi en fluttist að lokum á Morgunblaðið þar sem
hann hélt úti frábærri poppsíðu sem hann kallaði
Slagbrand. í þá daga var Morgunblaðið kevpt til
að geta gengið að góðum og réttum poppfréttum.
í dag rekur Halldór Plötubúðina að Laugavegi 20,
og hefur hann meðal annars sérhæft sig í
sérpöntunum fyrir fólk.
Listi Kristjáns Kristjánssonar:
1. Peter Gabriel - So
2. Queensrych - Rage for Order
3. Stranglers - Dreamtime
4. Iron Maiden - Somewhere in Time
5. David Lee Roth - Eat Them and Smile
6. Big Country - The Seer
7. Bon Jovi - Slippery When Wet
8. Megas - í góðri trú
9. Status Quo - In the Army Now
10. Talking Heads - True Stories
Kristján Kristjánsson er rúmlega tvítugur
Reykvíkingur sem nýlega hefur kvatt sér hljóðs í
heimi poppskríbenta. Hann sér um athyglisverða
poppsíðu í íþróttablaðinu og ef lukkan lofar þá
megum við eiga von á enn frekari skrifuin frá
honum.
Listi Gunnlaugs Sigfússonar
1. The The - Infected
2. Prince - Parade
3. R.E.M. - Lifes Rich Pageant
4. Elvis Costello - Blood and Chocolate
5. Martin Stevenson and The Daintees - Boad to
Bolivia
- 6. Bobby Womack - Womagic
7. Let’s Active - Big Plans For Everybody
8. Peter Case - Peter Case
9. Kinks - Think Visual
10. Robert Cray - Strong Persuader
Gunnlaugur Sigf ússon er eins og Halldór Ingi
reyndur og vel skólaður í poppbransanum. Hann
skrifaði lengi vel í Helgarpóstinn og á þeim tíma
mátti lesandinn vera öruggur um að fínna vel
skrifaða gagnrýni sem fullt mark var takandi á. Og
eflaust hefur engum tekist eins vel upp í að blanda
saman húmor og fróðleik í skrifum sínum. I dag
starfar Gulli hjá Ríkisútvarpinu og er með fullri
virðingu fyrir öllum, eflaust hæfasti
útvarpsmaðurinn í dag. Að minnsta kosti kemst
enginn nálægt því að vera með jafn góða almenna
músíkþekkingu og Gulli hefur. Um þetta vitna
þættir hans og má til dæmis benda á Poppgátuna
sem hann hefur stjórnað í félagi við Jónatan
Garðarsson.
Listi Lovísu Sigurjónsdóttur:
1. Iron Maiden - Somewhere in Time
2. Queensrych - Rage for Order
3. David Lee Roth - Eat ’Them and Smile
4. Bon Jovi - Slippery when Wet
5. Metalica - Masters of Puppets
6. Judas Priest - Turbo
7. Crimson Glory - Crimson Glory
8. Armorede Sainte - Delerious Monad
9. Ratt - Dancing Undercover
10. Peter Gabriel - So
Lovísa Sigurjónsdóttir er hvorki þekkt í heimi
útvarps né blaðamennsku. Hún er saklaus
sveitastúlka sem kemur frá þeim ágæta stað
Sauðárkróki, sem í seinni tíð hefur fengið orð á á
sig fyrir að ala upp hina hörðustu
þungarokksaðdáendur. Og Lolla er engin
undantekning. Hún setur þessa ágætu tónlist á
oddinn og er verðugur fulltrúi hennar í vinsælda
og gæðavali. Að minnsta kosti hefur stúlkan ekki
fengið nafnbótina „þungarokksdrottning íslands“
fyrir ekki neitt. Lolla er liðlega tvítug og stundar
nám í félagsfræði við Háskóla íslands.
Stressaðar kartöflur!
Svíar hafa tekið af
markaðnum kartöflutegund
eina vegna þess að hún er talin
of stressuð. Telja sérfræðingar
að álagið við að vaxa hafi reynst
henni um megn. „Þessi
kartöflutegund er mjög
viðkvæm fyrir stressi. Við telj um
að uppskeran í ár hafi orðið fyrir
of mikilli geislun frá sólu. Miklar
rigningar skoluðu
yfirborðsjarðvegi burt þannig að
kartöflurnar voru nánast ofan
jarðar,“ sagði Ulla Hagman
næringarfræðingur sem starfar
við matvælaeftirlitið þar í landi.
KROSS-
GÁTAN
Nr. 523
LAUSN A SIÐUSTU GATU
c: 4 CQ C3 ct. <X 3 E
o: & JD 'O m s □
j* <C 2 Lti t- £ oc 4 CL <3
£ a r <r £ o a[_ 'uj ra
V vO já 2 o p co 4 B ra
W 4 u. 'Q U | u Q
x >cc c* & JD £ D 0
m ktí u o: 0c CL ■ </> □ a
‘d j* ct X <r ■ EE - oi □
-5 "0 4 tA X. X
5 - £ u oc a 4 'UJ CE PQ « <r
b ‘O i — 4 *-* <1 4 hzW □
a ■ Z £ T
3 tS? L- ct o: o
2 Z fc- X- □ B
Æ O cc z 1 tn £ K
tc n 2: V K t- a 3 Œ O
z Œ CA .-o £ O 1
tL > <r >< UJ 0
<N rN 01 w - Z Æ j4
f JX z — 2 <3 T fö «.
LO o? ö: u