Tíminn - 16.01.1987, Side 1
ISTUTTU MALL.
MJÖG HARÐORÐ ályktun
var samþykkt á fundi í Verkamannafé-
laginu Hlíf með verkamönnum starf-
andi í fiskvinnslu. Segir í ályktuninni
að fundurinn telji að forystumenn
verkalýðshreyfingarinnar hafi um lang-
an tima ekki virt sérstöðu verkafólks
sem skyldi og þannig brugðist hlutverki
sínu í málefnum þess, sérstaklega
með tilliti til atvinnuöryggis.
„Þrátt fyrir loforð ýmissra forystu-
manna um úrbætur og jafnvel fullyrð-
ingar um að búið sé að ganga þannig
frá málum, að umsaminn uppsagnar-
frestur verði virtur, þá er fiskvinnslu-
fólki aftur og aftur vikið úr starfi fyrir-
varalaust," segir í ályktuninni. Enn-
fremur segir að engu líkara sé en að
þetta áherslumál hafi hreinlega týnst í
argaþrasi samningaviðræðnanna svo
orðalag ályktunarinnar sé notað.
Að lokum skorar fundurinn á stjórn
Verkamannafélagsins Hlífar að hefja
nú þegar undirbúning að gerð sérstaks
samnings um kjaramál fiskvinnslufólks
og það eitt fái að greiða atkvæði um
hann.
LOGREGLAN I Reykjavík
lagði í fyrrakvöld hald á 3000 mynd-
bandsspólur frá 5 myndbandaleigum í
borginni.
Samtals hefur því lögreglan lagt
hald á um 15 þúsund myndbönd á
tæpum mánuði.
Langflest þeirra myndbanda sem
lagt hefur verið hald á eru myndbönd
sem Samtök rétthafa myndbanda telja
að óheimilt sé að leigja út og vísa til
höfundarréttalaga þar um.
BYKO HF.
hefur ráðið nýjan
framkvæmda-
stjóra. Það er Árni
Árnason semtekur
við starfi-fram-
kvæmdastjóra
fjármálasviðs fyrir-
tækisins og mun
hann hafa yfirum-
sjón með öllum
fjármálum þess.
Arni hefur um nokkurt skeið gegnt
starfi framkvæmdastjóra Verslunar-
ráðs íslands.
SKAK Jóhanns Hjartarsonar og
Jóns L. Árnasonar fór í bið á svæða-
mótinu í Gausdal í gær. Tefld var
sjöunda umferð skákmótsins. Ernst
frá Svíþjóð sigraði Simen Agdestein
óvænt og hefur Ernst skotist einn upp
í fyrsta sæti með 5,5 vinninga. Aðeins
tvær umferðir eru nú eftir af mótinu, en
alls eru tefldar níu umferðir.
ELDUR KOM upp á svæði
BYKO í Kópavogi í gærkvöldi. Slökkvi-
lið var kallað út eftir að fjöldamargar
hringingar frá borgurum höfðu borist.
Reyndist vera um eld að ræða í sílói
inni á svæði fyrirtækisins en ekki varð
nein hætta af þeim sökum og tókst
auðveldlega að ráða niðurlögum
eldsins.
SOS A DV, eða íþróttafréttaritar-
inn Sigmundur Ó. Steinarsson hefur
tekið við ritstjórn blaðsins Reykjanes
sem gefið er út í Keflavík og er
málgagn Sjálfstæðisflokksins.
IKRUMMI
1 s O S, Suðurnes!!! 1
Karl Steinar Guðnason alþingismaður um ástandið á Suðurnesjum:
Stöndum á rústum
sjávarútvegsins
Þriðjungur flotans „fór“ á þremur árum: Togaralaust í árslok í Keflavík, Njarðvík og Garði?
„Við erum auðvitað skjálfandi
bæði af illsku og hræðslu -það sem
blasir er staðfesting á hruni sjávar-
útvegsins á Suðurnesjum," sagði
Karl Steinar Guðnason, alþingis-
maður. Hann ásamt öðrum Suður-
nesjamönnum stendur frammi fyrir
því að svo gæti farið að enginn
togari yrði eftir í Keflavík, Njarð-
vík og Garðinum áður en þetta ár
er liðið - en þeir voru 7 fyrir aðeins
3 árum. Tíminn hefur þegar sagt
frá ótta manna um að síðasti togar-
inn af þrem úr Garðinum - Gautur
- verði seldur burt. Uppboð á
eignum Sjöstjörnunnar stendur
fyrir dyrum í mars nk. og staðan er
svo slæm hjá Hraðfrystihúsi Kefla-
víkur að ef ekki kemur til sérstakra
aðgerða er talið blasa við að selja
verði togarana til að forðast
gjaldþrot.
„Hér á Suðurnesjum var áður
vaxtarbroddur útgerðar og fisk-
vinnslu, en nú stöndum við á
rústum sjávarútvegsins á staðnum.
Skýringin er sú að allir nema
Suðurnesjamenn virðast geta boð-
ið hærra verð í skipin, sem veldur
því að bæði skip og bátar streyma
héðan. Mest hefur þó verið um það
síðustu 3 árin, sem best er staðfest
í skýrslu sjávarútvegsráðherra frá
sl. vori," sagði Karl Steinar.
Samanlagður fiskiskipastóll í
Garði, Keflavík og Njarðvík
minnkaði úr 73 skipuni niður í 49
á árunum 1983-1985, eða um
þriðjung. Á árunum 1984-85
minnkaði og þorskaflamark skipa
frá þessum stöðum um 3.700 tonn.
Karl Steinar sagði afleiðingarnar
koma í Ijós þegar stórframkvæmd-
um Ijúki á Keflavíkurvelli innan
tíðar, í atvinnuleysi hundruða
fólks. En um 400 ntanns starfi við
þá fiskvinnslu sem enn er eftir þar
syðra.
Hvort togurum Hraðfrystihúss-
ins verði haldið á staðnum sagði
hann fara eftir því hvort ntenn vilji
stuðla að því að leysa dæmið. Talið
'sé að um 110 millj. mundu nægja
til að fyrirtækið og togararnir gætu
staðið styrkum stoðum. Og menn
gieymdu því ekki að Fiskvciðasjóði
hafi ekki þótt 100 millj. stór biti til
iað afskrifa þegar t.d. Kolbeinsey
var seld til Húsavíkur aftur.
-HEI
Sjómannadeilan leyst:
Verkfalli lýkur
formlega í dag
- Eftir að lokið verður allsherjartalningu
í Reykjavík.
Samningar voru undirritaðir í
húsi sáttasemjara um þrjúleytið í
gær milli sjómanna og útgerðarm-
anna. Alls voru 6 samningar undir-
ritaðir, en það voru samningar
yfir- og undirmanna á Vestfjörð-
um, samningar yfirmanna og samn-
ingar undirmanna annars staðar á
landinu, og samningar yfirmanna
og undirmanna á stóru togurunum,
togurum yfir 500 tonnum.
Samningarnir tókust rétt fyrir kl
8:00 í gærmorgun en það tók
nokkurn tíma að setja þá upp og
koma á undirskriftarhæft form.
Félagsfundir víðsvegar um land-
ið voru haldnir í gærkvöldi og
morgun þar sem samningarnir voru
bornir undir félagsmenn. Heildar-
atkvæðafjöldinn verður talinn í
dag, úr einum potti eftir að atkvæði
hafa verið flutt til Reykjavíkur.
Formlega lýkur verkfalli ekki fyrr
en sú talning hefur farið fram.
Búist er við því að flotinn fari að
tínast úr höfn fljótlega upp úr því.
Viðtöl við forvígismenn samn-
inganefndanna eru á blaðsíðu þrjú
ásamt frétt um innihald samning-
anna. -BG/ES
Undirritaðir voru samningar milli sjómanna og útvegsmanna í gærdag í
Karphúsinu. Var þar með settur lokapunkturínn aftan við sviptingasama
viku sem m.a. hefur faríð inn á þing sem frægt varð. Timumynd Sverrir
Banaslys í Stardalshnjúki:
Maður hrapaði
15 metra og lést
„Hneta“ gaf sig
Maður hrapaði til bana í Star-
dalshnjúk í grennd við Mosfells-
heiði í gærkveldi. Haföi hann
ásamt öðrum manni verið að
klífa bjargið þegar öryggisfesting
gaf sig með fyrrgreindunt af-
leiðingum. Féll maðurinn um
fimmtán metra. Félagi mannsins
gerði vart viö og var björgunar-
sveitin Kyndill í Mosfcllssvcit
kölluó út. Voru mennirnir mjög
vel útbúnir til klifurs. Stardals-
hnjúkur cr vinsæll æfingarstaður
fjallagarpa.
Þyrla Landhclgisgæslunnar fór
á staðinn og var læknir úm borð.
Þegar hann kom á staðinn var
annar læknir mættur á slysstað.
Öryggisfestingin (kölluð hneta
meðal fjallamanna) sem gaf sig
var færð til skoðunar hjá rann-
sóknarlögreglu ríkisins og er ekki
Ijóst með hvaða hætti hún hefur
bilað. Getur allt eins verið um að
ræða að hún hafi skroppið úr
sprungu. Ekki er liægt að greina
fránafni mannsinsaðsvostöddu.
-ES