Tíminn - 16.01.1987, Side 6
6 Tíminn
Föstudagur 16. janúar 1987
FRÉTTAYFIRLIT
v‘:’
öá&aiöi
11;, s I
■STrsÆí.
MANILA — Skæruliðarmús-
lima á Mindanaoeyju á Filipps-
eyjum drápu sex manns, skáru
á rafmagnslínur í tveimur hér-
uðum og héldu uppi skothríð á
þorp eitt þar sem kristnir menn
búa. Ríkisstjórnin sagði samt
sem áður að embættismenn
hennar hefði fulla stjórn á
svæðinu og lofaði að láta ekki
undan ofbeldisþvingunum
múslima.
BAHREIN — Hersveitir ír-
ana og íraka börðust á tvenn-
um vígstöðvum. (gær var vika
liðin frá því íranar hófu stór-
sókn sína á suðurvígstöðvun-
um og hefur fjöldi almennra
borgara látið lífið í loftárásum
og flugskeytaárásum á borgir
beggja vegna landamæranna.
GENF — Bandaríkin og So-
vétríkin hófu að nýju í gær
viðræður um takmörkun kjarn-
orkuvopna og geimvopna í
Genf. Þetta var fyrsta tækifær-
ið fyrir Max Kampleman, aðal-
samningamann Bandaríkja-
stiórnar, til að hitta hinn nýja
aoalsamningamann Sovéts-
tjórnarinnar, Yuly Vorontsov
aðstoðarutanríkisráðherra.
BEIRUT — Þrír sérstakir
sendimenn Amins Gemayel
forseta Líbanons héldu til við-
ræðna í Damascus til að reyna
að jafna árslangan ágreining
Líbanonstjórnar við Hafez Al-
Assad Sýrlandsforseta og
stjórn hans.
JAKARTA — Jawad Mans-
uri aðstoðarutanríkisráðherra
írans sagði stjórn sína kaupa
bandarísk vopn á svörtum
markaði og nota þau í stríðinu
gegn írak. Hann neitaði hin-
svegar alfarið fréttum um að
íranar hefðu keypt vopn af
ísraelsmönnum og sagði enga
möguleika vera á því að bæta
samskiptin við Bandaríkja-
stjórn á meðan hún héldi uppi
óhróðri og árásarstefnu gegn
stjórninni í Teheran.
VjN — Jafnaðarmannaflokk-
urinn í Austurríki og hinn
íhaldssami Þjóðarflokkur kom-
ust loks að samkomulagi um
samsteypustjórn, sem verður
fyrsta samstjórn þessara
flokka síðan árið 1966.
VIKTORÍUFOSSAR,
Zimbabwe - Robert Mugabe
forsætisráðherra Zimbabwe
og Joaquim Chissano forseti
Mósambik hittust til að ræða
borgarstyrjöldina í landi Chiss-
anos.
ÚTLÖND
Afganstjórn hefur boðað vopnahlé. Sovétmenn vilja fara heim. Ekki er þó líklegt talið að það dugi til að slá
vopnin úr höndum skæruliða.
Afganistan:
Sovétmenn vilja heim
verði vopnahlé virt
- Ólíklegt er þó taliö aö skæruliðar fari aö tilmælum Kabúlstjórnar-
innar og viröi sex mánaöa vopnhlé
Reuter-
Sovétstjórnin sagði í gær að
ákvörðun um að kalla alla sovéska
heri heim frá Afganistan væri háð
viðbrögðum andstæðra afla við sátt-
artilraunum Najibullah leiðtoga Af-
ganistan.
Najibullah sagði í Kabúl í gærm-
orgun að Sovétstjórnin og ríkisstjórn
sín hefðu komist að samkomulagi
um brottför allra sovéskra herja frá
landinu. Ekki gaf hann þó nánari
skýringar á þessum orðum sínum.
Gennady Gerasimov talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins sagði
á fréttamannafundi í Moskvu að
bíða yrði með nánari útlistanir á
brottför sovéska hersins þar til Ijóst
yrði hver viðbrögðin yrðu við vopn-
ahléinu í landinu.
Afganistanstjórn boðaði sex mán-
aða vopnahlé í baráttu sinni við
skæruliða fyrr í þessum mánuði og
gekk það í gildi í fyrrinótt. Hingað
til hafa þó mörg skæruliðasamtök
landsins afneitað vopnahléstilboð-
inu og telja það einungis hafa verið
lagt fram til að riðla liði þeirra.
Najibullah Afganistanleiðtogi
hefur einnig, í tilraunum sínum til
að ná „þjóðarsátt", boðist til að
mynda þjóðstjórn með þátttöku
Afgana sem nú búa erlendis og þá
hefur hann lofað að veita sumum
pólitískum föngum og liðhlaupum
frelsi.
Stjórnir Sovétríkjanna og Afgan-
istan hafa hingað til ítrekað að
Pakistanar og Bandaríkjamenn
verði að hætta að „skipta sér af“
málefnum Afganistan eigi að koma
til brottfarar sovéskra hermanna frá
landinu.
í októbermánuði á síðasta ári
kallaði Moskvustjórnin átta þúsund
hermenn heim frá landinu en betur
má ef duga skal því vestrænir sér-
fræðingar álíta að um 115 þúsund
sovéskir hermenn séu enn í Afgan-
istan.
Gerasimov sagði- á fréttamanna-
fundinum að viðbrögð við vopnahléi
Afganistanstjórnarinnar hefðu verið
nokkuð mismunandi í gær en hann
hélt þó fram að sumir skæruliðahóp-
UTLOND
ar í landinu hefðu þegar orðið við
tilboði stjórnarinnar í Kabúl. Ekki
er samt talið líklegt að helstu skæru-
liðasamtökin samþykki vopnahléið
jafnvel þótt lofað sé brottför sov-
éskra herja.
Reyndar byrjaði ekki vopnahléið j
byrlega í gær því þá bárust fréttir frá !
Islamabad að afganskir skæruliðar
hefðu drepið þrjá stjórnarhermenn í
árás nálægt landamærum Afganistan
og Pakistan.
Háttsettur embættismaö-
ur í Moskvudeild
kommúnistaflokksins:
Rekinn
fyrir
slaka
stjórnun
Moskva-Rcuter
Háttsettur embættismaður í
einu hverfisráða kommúnista-
flokksins í Moskvu hefur verið
rekinn úr starfi fyrir slælega fram-
mistöðu við baráttu gegn áfeng-
issýki og lyfjaofneyslu. Það var
hið opinbera dagblað Moskov-
skaya Pravda sem frá þessu skýrði
í gær.
Blaðið sagði að Yuri Grafov,
fyrsti aðalritari flokksdeildarinn-
ar í Timiryazwvsky hverfinu í
Moskvu, væri einnig sakaður um
lélega stjórnunarhæfileika og
sýna ekki nógan vilja að vinna að
þeirri endurskipulagningu þjóð-
félagsins sem nú stendur yfir.
Mikhail Gorbatsjov Sovétleið-
togi hefur opinberlega hvatt til
baráttu gegn óhóflegri áfengis-
drykkju og kemur brottrekstur-
inn heim og saman við það ákall.
Alexander Vlasov innanríkis-
ráðherra viðurkenndi nýlega að
vitað væri um 46 þúsund skráða
eiturlyfjasjúklinga í landinu og
Boris Yeltsin, leiðtogi kommún-
istaflokksins í Moskvu, sagði ný-
lega að 3700 skráðir eiturlyfjasj-
úklingar væru í höfuðborginni.
Shevardnadze boðið
að heimsækja Noreg
Osló-Reuter
Eduard Shevardnadze utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna hefur verið
formlega boðið að heimsækja Noreg
á þessu ári. Það var talsmaður
norska utanríkisráðuneytisins sem
frá þessu skýrði. Samkvæmt heimild-
um innan norsku ríkisstjórnarinnar
er líklegt að Shevardnadze komi til
landsins í vor.
„Shevardnadze hefur verið boðið
til Osló og við treystum á að af
heimsókn hans geti orðið á þessu
ári. Engar dagsetningar hafa þó
verið ákveðnar“, sagði Per Paust
talsmaður norska utanríkisráðu-
neytisins í samtali við Reuters frétta-
stofuna.
Samkvæmt heimildum Reuters er
líklegt talið að sovéski utanríkisráð-
herrann heimsæki Atlantshafsband-
alagsríkið í vor og myndi þetta verða
fyrsta heimsókn háttsetts sovésks
embættismanns til Noregs í nokkur
Líklegt er talið að viðræður She-
vardnadze og norskra ráðamanna
muni meðal annars snúast um við-
vörunarkerfi er færi í gang er kjarn-
orkuslys ættu sér stað. Samningar
um slíka upplýsingamiðlun náðust
einmitt milli Sovétmanna og Finna í
síðustu viku er Nikolai Ryzhkov
forsætisráðherra Sovétríkjanna kom
í heimsókn til Helsinki.
Gro Harlem Brundtland hefur
einnig boðið Ryzhkov að heimsækja
Noreg og sovéskir embættismenn
töldu í gær líklegt að hann myndi
heimsækja landið á næsta ári.
Eduard Shevardnadze utanríkisráð
herra Sovétríkjanna: Boðið til Nor-
egs
Lundúnaborg:
Herferð gegn hatri
Lundúnir-Reuter
Yfirmaður lögreglunar í
Lundúnum beitti sér fyrir herferð
gegn kynþáttaandúð og hófust að-
gerðir í gær, en minnihlutahópar í
höfuðborg Bretlands hafa löngum
kvartað yfir auknum líkamsárásum
og öðru ofbeldi er tengist kynþátta-
hatri.
Sir Kenneth Newman sagði kyn-
áttaofbeldi vera komið „af hinu illa
bæði siðferðilega og þjóðfélagslega
séð“. Hann viðurkenndi að auka
þyrfti samstarf lögreglu og minn-
ihlutahópa í borginni og hvatti
báða aðila til að vinna að því.
Herferð Scotland Yard, þar sem
höfuðstöðvar lögreglunnar eru til
húsa, mun í fyrstu verða beint að
hverfunum Ealing og Newham en
þar eru tíðar árásir á einstaklinga
er tilheyra minnihlutahópum.